Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Page 8
KYNNING SVEITARFÉLAGA
í leikskolanum Barnaborg. Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík.
Frá heimsókn forseta íslands í Hafralækjarskóla. Ljósm. Gunnar
G. Vigfússon.
Rennibrautin í leikskólanum. Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík.
Með samstilltu átaki hreppsins og félagasamtaka var
árið 1976 byggt félagsheimilið Ýdalir; það er jaínframt
íþróttahús fyrir Hafralækjarskóla. Með slíkri samnýt-
ingu tókst að byggja veglegra félagsheimili og hefúr það
nýst vel íyrir sveitina og héraðið í heild. íþróttavöllur
var tekinn í notkun 1988 og er hann á lóð skóla og fé-
lagsheimilis. Hann er með nokkuð góðri aðstöðu fyrir
fijálsar íþróttir og knattspymu en vegna deyfðar í iðkun
frjálsra íþrótta er hann fyrst og fremst notaður sem
knattspymuvöllur.
Leikskóli hefúr verið starfandi frá 1990. Hinn 1. maí
sl. var tekið í notkun nýtt skólahús; kallað Bamaborg;
það rúmar um 20 börn. Áætlað kostnaðarverð þegar
leiksvæði og lóð eru fullgerð er um 24 milljónir kr.
Arkitekt byggingarinnar er Aðalsteinn Júlíusson en yfir-
smiður Hermann Sigurðsson, Hraunkoti. Skólinn þjónar
sama svæði og Haffalækjarskóli.
Árið 1994 var tekið í notkun hreppshús svokallað en
Skólasllt í Hafralækjarskóla. Ljósm. Dagur Jóhannesson.
það hýsir skrifstofú og fúndaraðstöðu hreppsins. Einnig
er þar aðstaða fyrir slökkvilið og hjálparsveit. Aðaldæla-
hreppur leigir hjálparsveitinni húsnæðið en sem endur-
gjald er sveitin uppistaðan í slökkviliðinu. Hjálparsveitin
er mjög vel búin tækjum.
Hreppurinn á tvær kaupleiguíbúðir sem hann leigir út
og hefur ekki verið vandamál að fá leigjendur; frekar
hefur stundum skort húsnæði.
Hitaveita
Þegar Haffalækjarskóli var byggður var lögð þangað
hitaveita, félagsheimilið var svo tengt við hana. Á ámn-
um 1989 og 1990 var svo stofnað félag um lagningu
hitaveitu um meirihluta Aðaldælahrepps og hluta Ljósa-
vatnshrepps. Hitaveitan er sjálfstæður aðili en hreppur-
inn og Hafralækjarskóli em aðilar að henni. Vatn fær
hún úr borholu við Haffalæk og ffá Hitaveitu Húsavíkur;
það vatn er tekið á Hveravöllum í Reykjahreppi. Á sið-
astliðnu vori var stofnað félag um rannsóknir og virkjun
1 98