Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Blaðsíða 50
FRA LAN DSHLUTASAMTOKUNUM
Ingunn Guðmundsdóttir, for-
maður SASS, setur aðalfund
samtakanna. Við borðið sitja
Páll Skúlason, rektor Háskóla
íslands, og Þorsteinn Gunnars-
son, rektor Háskólans á Akur-
eyri, sem báðir héldu erindi á
fundinum.
unarsjóðs að skipuð verði þriggja manna nefnd, skipuð
einum fulltrúa frá Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands og
tveimur frá SASS sem vinni að framgangi þessara mála.
Nefndin geri grein fyrir störfúm sínum á sameiginlegum
fundi Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands og SASS sem
haldinn verði í september nk. Nefndin skal jafnframt
gera grein fyrir störfum sínum á næsta aðalfundi SASS.
Landbúnaður
Aðalfundur SASS 1999 hvetur til áffamhaldandi upp-
byggingar fjölbreytts landbúnaðar í héraðinu. Aðalfúnd-
urinn ítrekar nauðsyn þess að íslensk garðyrkja búi við
sambærilegt orkuverð og erlendir samkeppnisaðilar.
Fundurinn hvetur til þess að hraðað verði lagningu
þriggja fasa rafmagns til sveita, jafnframt verði póst- og
símaþjónusta bætt meðal annars með tilliti til tölvusam-
skipta. Aðalfundurinn skorar á Bændasamtök íslands og
landbúnaðarráðherra að leitað verði leiða til að auðvelda
kynslóðaskipti til sveita, m.a. beiti þessir aðilar sér fyrir
því að þeim sem hyggjast hefja störf í landbúnaði verði
boðið upp á hagstæðari lánakjör en nú tíðkast.
Rikisstofnanir út ú land
Aðalfundur SASS 1999 fagnar vilja ríkisvaldins til að
flytja ríkisstofnanir eða einstaka verkþætti út á lands-
byggðina og hvetur stjómvöld til áframhaldandi fram-
kvæmda í þeim efnum.
Vegainál
Gæði vegakerfis hafa grundvallaráhrif á atvinnu- og
búsetuþróun. Hvatt er til áframhaldandi uppbyggingar
vega, sérstaklega ófullkominna malarvega og auknar
verði fjárveitingar til viðhalds vega. Vakin er athygli á
kostum þess að bæta fjallvegi m.t.t. aukinnar umferðar
og ferðaþjónustu. Fundurinn telur afar brýnt að hið
fyrsta verði ráðist í aðgerðir við uppbyggingu vamar-
garða við ámar Klifandi, Þjórsá og Markarfljót. Hraða
þarf byggingu brúar á Hvítá og uppbyggingu Gjábakka-
vegar til að bæta samgöngur milli uppsveita Amessýslu.
Tengingar þessar em forsendur sameiningar, gmnnur að
atvinnuuppbyggingu og hagkvæmari þjónustueiningum.
Menntamál
Fræðslumiðstöð Suðurlands
Góðir skólar og gott aðgengi að menntun er eitt besta
tækið til byggðarstýringar í landinu. Aðalfundur SASS
1999 styður framkomnar hugmyndir um stofnun
„Fræðslumiðstöðvar Suðurlands" og telur að með því
móti verði háskóla- og símenntun á Suðurlandi best fýrir
komið. Mikilvægt er að tryggt sé að menntunin komi til
fólksins og að nám fari fram á sem flestum stöðum í hér-
aðinu.
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Fjölbrautaskóli Suðurlands hefur gjörbreytt aðstöðu
sunnlenskra ungmenna til framhaldsnáms. Öflug sam-
staða sunnlenskra sveitarfélaga um skólann er lykill að
áframhaldandi uppbyggingu hans. Aðalfundur SASS
1999 styður framkomnar hugmyndir um byggingu
íþróttahúss við skólann og ítrekar óskir þar um við ríkis-
valdið.
Framhaldsnám í matvælagreinum
Með tilvísun til þess að atvinnulíf á Suðurlandi byggist
að stórum hluta á framleiðslu matvæla og ferðamanna-
þjónustu telur aðalfundur SASS nauðsynlegt að hið
fyrsta verði komið á fót námsbrautum í matvælatækni og
skyldum greinum við ffamhaldsskóla á Suðurlandi.
240