Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Blaðsíða 44
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
Aðalfundur SSV 1998
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi (SSV) var haldinn í samkomuhúsinu i Grundar-
firði dagana 23.-24. október 1998.
Pétur Ottesen, formaður samtakanna, setti fúndinn og
síðan var Sigríður Finsen, oddviti Eyrarsveitar, kosin
fundarstjóri og Eyþór Björnsson, Grundarfirði, og
Magnús Magnússon, Borgarfirði, fúndarritarar.
Skýrslur um starf liðins árs fluttu Pétur Ottesen, frá-
farandi formaður SSV, Guðjón Ingvi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri SSV, Olafur Sveinsson, forstöðumaður
Atvinnuráðgjafar Vesturlands, Sveinn Kristinsson, for-
maður atvinnumálanefndar, Davíð Pétursson, formaður
samgöngunefhdar, og Olafúr Hilmar Sverrisson, fúlltrúi
Vesturlands í stjóm Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Framkvæmdastjóri lagði fram ársreikning samtakanna
og kynnti tillögu stjómar að fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri í Gmndarfirði, kynnti
starf nefndar er lagði fram drög að starfssamningi um
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og Guðrún Konný Pálma-
dóttir, fyrrverandi hreppsnefndarmaður í Dalabyggð,
sagði ffá starfi Svæðisvinnumiðlunar Vesturlands.
Ávörp á fundinum fluttu Magnús Stefánsson f.h. al-
þingismanna Vesturlandskjördæmis og Sigrún Magnús-
dóttir, stjómarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
og flutti fúndinum kveðjur stjómar sambands-
ins.
Yfirfærsla á málefnum fatlaóra
Páll Pétursson félagsmálaráðherra flutti er-
indi um helstu mál á vettvangi ráðuneytisins og
ræddi siðan sérstaklega um stefnu og störf að
yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveit-
arfélaga.
Magnús Þorgrímsson, framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu Vesturlands, flutti ítarlega
skýrslu um þjónustu svæðisskrifstofunnar og
sveitarfélaganna við fatlaða á Vesturlandi og
um greiningu og mat á þörfúm fyrir þjónustu í
nánustu framtíð. Áætlað er samkvæmt skýrsl-
unni að rekstrarkostnaður muni tvöfaldast, um
115 milljónir króna á ári, til að mæta aukinni
þörf á næstu 15 ámm. Sveinn Kristinsson flutti
erindi Gísla Gíslasonar, bæjarstjóra á Akranesi,
um yfirfærsluna, en hann lagði áherslu á að til
að markmið hennar næðist yrði að tryggja
sveitarfélögum fjármagn til að bæta þjónust-
una.
Að loknum ræðum ffamsögumanna vom umræður og
svömðu þeir síðan fjölmörgum fyrirspumum sem fram
vom bomar.
Eftir kaffihlé var farin stutt skoðunarferð um bæinn.
Nýjar áherslur í byggöamálum
Egill Jónsson, formaður stjórnar Byggðastofnunar,
flutti ítarlegt erindi um nýjar áherslur í byggðamálum og
gerði sérstaklega grein fyrir þingsályktunartillögu um
byggðamál, sem byggir m.a. á riti Háskólans á Akureyri,
„Byggðastefna til nýrrar aldar“, og riti Stefáns Olafsson-
ar prófessors, sem ber heitið „Búseta á íslandi“. Gerði
hann grein fyrir helstu atriðum sem þar komu fram, m.a.
um orsakir búferlaflutninga á Islandi. Miklar umræður
urðu um erindin og það mikilvæga mál sem þar var rætt.
Starfsmenn Atvinnuráðgjafar Vesturlands, sem rekin
er af samtökum sveitarfélaga í kjördæminu, fluttu erindi
og lögðu fram skýrslu um helstu mál sem nú er unnið að.
Olafúr Sveinsson um stofúun eignarhaldsfélags, Hrefúa
B. Jónsdóttir um stofnun Símenntunarmiðstöðvar,
Magnús Magnússon um uppsetningu Vesturlandsvefs á
Intemetinu og Sigríður Hrönn Theodórsdóttir um stofn-
un Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands.
Um öll þessi verkefúi samþykkti aðalfúndurinn álykt-
Grundarfjörður, þar sem aðalfundurinn var haldinn, hlaut á árinu 1998 um-
hverfisverðlaun sem héraðsblaðið Skessuhorn veitti. Ungmenni vinna hér í
fjörunni að rannsóknum í tengslum við gerð Staðardagskrár 21. Ljósm. Sæ-
dís Helga Guðmundsdóttir.
234