Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Blaðsíða 41
FRÆÐSLUMÁL
fræðslustofnanir, stéttarfélög, fyrir-
tæki og samtök á Islandi gerðust
stofnaðilar félagsins og Qölmargir
hafa bæst i hópinn. Hér er án efa
öflugasti samstarfsvettvangur aðila
vinnumarkaðar, skóla og annarra
fræðsluaðila á sviði grunn- og sí-
menntunar til þessa. I samræmi við
lög og stefhu félagsins hefur það nú
þegar tekið að sér fjölmörg verkefni
á ffæðslusviðinu. Þann 12. apríl síð-
astliðinn var haldið stefnuþing
MENNTAR að Hótel Sögu og var
þar kynnt tillaga að stefnu næstu ára
undir heitinu „2000 lausnin: Mennt-
un“, en menntamálaráðherra, Bjöm
Bjamason, setti þingið.
Eitt þeirra verkefna sem MENNT
hefur tekið að sér er skipulagning
DAGS SÍMENNTUNAR sem ffarn
fór 28. ágúst. Fjölmargir aðilar um
allt land kynntu þá starfsemi sína og
var markmiðið að vekja athygli al-
mennings á Qölbreyttu námsfram-
boði þeirra. Þá var fluttur fjöldi fyr-
irlestra um símenntun, kynnt fjar-
kennsla og meðal annars notast við
gagnvirkt fundakerfi. Mikill áhugi
var á verkefninu og fjölmargir aðil-
ar lögðu fram metnaðarfullar staðar-
dagskrár. Óhætt er að segja að
dagur símenntunar hafi tekist vel og
verið skipuleggjendum og verk-
efnisstjórn hvatning ti! frekari
verkefna á þessu sviði.
Frekari upplýsingar um MENNT
em fáanlegar á skrifstofu MENNT-
AR, Laugavegi 51, Sími 511 2660.
Heimasíðan er www.mennt.is
Höfundur er skólameistari Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, verkefnastjóri „Europe-
an Regional Vocational Counsellor" og
situr i stjórn MENNTAR og Miðstöðvar sí-
menntunar á Suðumesjum.
Frekari upplýsingar fúslega veittar -
netfang olijon@fss.is
1) Greinarhöfundur átti auk þess sœti í
nefnd menntamálaráðherra um endurskoð-
un náms- og starfsráðgjafar á Islandi sem
skipuð var á síðasta ári. Menntamálaráðu-
neytið hefur geftð út skýrslu um niðurstöð-
ur nefndarinnar. Þar koma meðal annars
fram tiliögur um framhaldsnám fyrir t.d.
iðnmennlað fólk til að standa að
starfskynningu i grunn- og framhaldsskól-
um.
2) Hœgt er að nálgast heimasíðu LB verk-
efnisins á Intemetinu tilfrekari upplýsinga.
3) Frekari upplýsingar má fmna á heima-
siðu FS www.fss.is undir „Erlend sam-
starfsverkefni ’’.
4) Lárus Pálmason, meistari i netagerð og
kennari og deildarstjóri veiðatfœradeildar
Fjölbrautaskóla Suðumesja.
5) Frœðslunet Austurlands, sem stofnað
var i lok siðasta árs, er í þessu sambandi
gott dœmi um uppbyggingu háskólamennt-
unar á landsbyggðinni og frumkvœði
heimamanna til styrkingar byggð.
6) Samanber skýrslu VSÍ og RHÍ (1997) um
simenntun í atvinnulífinu og ský’rslu RHI
um sama efni.
Fosshótel fellur að óskum þínum
Þegar kemur að ráðstefnu- og fundarhöldum þá er Fosshótel Kea afbragðs kostur.
Hótelið hefur 4 vandaða sali sem rúma 20 - 230 manns, og góðan tækjabúnað.
73 herbergi með öllum þægindum eru til staðar auk góðra veitinga.
Múra
■
fOaHOTfl
Afþreying þín - okkar ánægja
Hafnarstræti 87-89 • 600 Akureyri • Sími: 460 2000 • Fax: 460 2060
Á hótelinu eru 4
ráöstefnu- og fundarsalir
fyrir 20 - 230 manns.
23 1