Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Síða 27
SAMSKIPTI RÍKIS OG SVEITARFÉLAGA
sveitarfélaganna með fyrirmælum í
löggjöf, fyrir utan önnur fyrirmæli
eða óskir framkvæmdavaldsins.
Hversu langt má löggjaf-
inn ganga?
Óhjákvæmilega verður sífellt að
fara fram umræða um hvert hlutverk
löggjafans eigi að vera og hversu
langt hann eigi að ganga í lagasetn-
ingu og fyrirmælum um starfsemi
sveitarfélaganna og framkvæmd
þeirra á lögbundnum verkefnum
sínum. Það er reyndar svo að lög-
gjafanum er ætlað það hlutverk að
setja sveitarfélögum leikreglur,
kveða á um skyldur þeirra, ábyrgð
og réttindi, sem oft og tíðum eru
jafhframt réttindi, ábyrgð og skyld-
ur íbúa landsins. En hversu langt má
löggjafinn teygja sig án þess að
gengið sé á rétt sveitarstjóma til að
ráða málum sínum sjálfar?
Ég vil gjarnan fá að nefna hér
annað atriði sem snýr að samskipt-
um ríkis og sveitarfélaga og ég veit
að margir sveitarstjómarmenn kann-
ast við. Það varðar stofnsetningu
embætta eða starfsmanna ríkisins í
einstökum sveitarfélögum. Allir
fagna nýjum störfúm í sveitarfélag-
inu sínu og ekki er óalgengt að
sveitarstjómir taki að sér að útvega
húsnæði undir hið nýja embætti rik-
isins eða starfsmann. En þar að auki
er það þekkt að sveitarstjómir hafi
tekið þátt í hluta stofn- eða rekstrar-
kostnaðar embætta sem er ríkisins
að reka og rikisins að Qármagna,
lög mæla svo um. Abyrgð og áhrif á
rekstur og viðkomandi starfsemi er
samt sem áður áfram hjá ríkinu,
enda hafa sveitarstjómir þar ekki
lögformlega stöðu. Það þekkjast
meira að segja dæmi þess að sveit-
arfélög séu allt að því á almennum
uppboðsmarkaði og eigi það á hættu
að embætti og þjónusta gangi þeim
úr greipum og fari rakleiðis í annað
byggðarlag eða kjördæmi, ef sveit-
arfélagið eða félögin em ekki tilbú-
in að koma til móts við ríkið í þess-
um efnum.
Greinarhöfúndur hefúr ekki verið
lengi á vettvangi sveitarstjómarmál-
anna, rétt um fjögur ár. Þeir sem
eldri eru á vettvanginum gætu
sennilega sagt okkur hinum að þessi
mál hafi undanfarin ár og áratugi
verið til umræðu við flest þau tæki-
færi er sveitarstjómarmenn hittast.
Hvað er þá til ráða?
Hvaö um sjálfstjórn sveit-
arfélaga?
Evrópusáttmáli um sjálfstjórn
sveitarfélaga öðlaðist gildi hérlendis
þann 1. júlí 1991. Sáttmálinn hefur
ekki lagagildi, en líta má á hann
sem almenna viljayfirlýsingu ís-
lenskra stjómvalda. I 9. gr. sáttmál-
ans er fjallað um tekjustofna sveit-
arfélaga. Þar segir að sveitarfélög-
um skuli tryggðir fullnægjandi
tekjustofnar innan ramma hinnar
opinbem fjármálastefnu og að þeim
skuli fijálst að ráðstafa þeim að eig-
in vild innan valdsviðs síns. Enn-
fremur segir að tekjustofnar sveitar-
félaga skuli vera í samræmi við þau
verkefni sem sveitarfélögum em fal-
in í lögum. Samkvæmt þessu brýtur
það í bága við sáttmálann að flytja
nýja málaflokka eða verkefni til
sveitarfélaga nema jafnhliða sé
ákveðið hvernig útgjöldum vegna
þeirra skuli mætt.
Nýjar leiöir í hagsmuna-
gæslunni?
Fulltrúar sveitarfélaganna, sveit-
arstjómarmenn, stjórnir og starfs-
menn landshlutasamtaka sveitarfé-
laga, sem og Sambands íslenskra
sveitarfélaga hafa þann æma starfa
að gæta hagsmuna sveitarfélaganna
í samskiptum við ríkisvaldið. Þar
gildir að sofa ekki á verðinum og
seint virðist of mikillar árvekni
gætt. Þó hafa þessir aðilar fjölmörg
önnur störf á sinni könnu, auk þess
sem mál krefjast sífellt aukinnar
þekkingar og innsýnar. Nægir þar
að nefna þann ótölulega fjölda laga-
frumvarpa og þingsályktunartil-
lagna sem stafar frá Alþingi.
Hér fyrr var minnst á vinnu og
fjármagn sem sveitarfélögin í heild
lögðu í samninga við yfirtöku
grunnskólans. Þar var unnið með
kerfisbundnum hætti að hagsmuna-
gæslu sveitarfélaganna.
Það er áleitin spurning hvort
sveitarfélögin eigi að vinna þannig
almennt. Ættu þau t.d. að hafa yfir
að ráða sérhæfðu starfsfólki sem
ætlað er það hlutverk að yfirfara
lagafmmvörp, stjómvaldsfyrirmæli
og aðra geminga með það fýrir aug-
um að gæta þess að ekki halli á
sveitarfélögin í samskiptunum? Eða
jafnvel til að halda til haga þeim til-
vikum þegar ljóst er að hallað hefúr
á og þörf er leiðréttingar við.
Eða mætti hugsa sér sérstaka und-
imefúd Sambands íslenskra sveitar-
félaga, samskiptanefnd einhvers
konar, sem hefði þetta sérstaka hlut-
verk?
Hér er ekki lögð fram tillaga
heldur gerð tilraun til að leggja lóð á
vogarskálamar í þeirri umræðu sem
nú fer víða fram meðal sveitar-
stjórnarmanna. Umræðan er þörfþó
ekki sé þetta í fyrsta eða eina skiptið
sem hún kemur upp.
Mikilvæg málefni fyrir
höndum
Það er deginum ljósara að gagn-
kvæmt traust þarf að rikja í sambúð
ríkis og sveitarfélaga. Sveitarstjóm-
armenn em með bjartsýnustu mönn-
um á íslandi og trúa því að sambúð-
in geti gengið. Það á fyrir aðilum að
liggja að eiga mikil samskipti og
starfa saman. Meðal annars eiga
þeir nú fyrir höndum að semja um
yfirfærslu á stóm og miklu verkefúi,
málefnum fatlaðra, flóknum og við-
kvæmum málaflokki, semja um út-
reikninga, ábyrgð og umfram allt,
persónulega velferð Islendinga. Þá
er affarasælla að gagnkvæmt traust
ríki.
2 1 7