Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Qupperneq 34
VERKASKIPTING RÍKIS OG SVEITARFÉLAGA
Frá undirritun þjónustusamnings um málefni fatlaðra í Norðurlandskjördæmi vestra í
félagsmálaráðuneytinu 23. mars sl. Á myndinni eru, frá vinstri, Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra, Ágúst Þór Bragason, formaður SSNV, Páll Pétursson félagsmálaráðherra og
Sturlaugur Tómasson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Ljósm. Bjarni Þór
Einarsson.
frestunar á yfirfærslu á málefnum
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga, ný-
afstaðinna sveitarstjómarkosninga
og sameiningar sveitarfélaga hér í
kjördæminu, telur stjóm SSNV ekki
tímabæiT að semja við félagsmála-
ráðuneytið um sérstakan þjónustu-
samning fyrir kjördæmið. Stjórnin
telur að nýkjörnar sveitarstjórnir
þurfi að gefa sér tíma til að kynna
sér verkefnið og taka ákvarðanir um
framhald málsins.“
Það var að sjálfsögðu rétt að ný-
kjömar sveitarstjómir þurftu tíma til
að kynna sér verkefnið og taka
ákvarðanir um framhald málsins.
Til þess að auðvelda þeim þá vinnu
héldu formaður og framkvæmda-
stjóri SSNV kynningarfundi með
sveitarstjómarmönnum fyrir 6. árs-
þing SSNV, þar sem þinggögn um
málefni fatlaðra voru kynnt og
rædd. Þá var talið ósennilegt að hætt
yrði við yfirfærslu málaflokksins þó
sá möguleiki væri fyrir hendi. Það
gæti þó gerst en sennilegra yrði að
teljast að sveitarfélögin tækju við
málefnum fatlaðra einhvem tímann
á næstu þremur árum, hvort sem
einstökum sveitarstjórnum líkaði
það betur eða verr.
Yrði sú raunin að málefni fatlaðra
yrðu verkefni sveitarfélaga þyrftu
sveitarstjómir á Norðurlandi vestra
að ákveða rneð hvaða hætti þær
kysu að standa að rekstri mála-
flokksins. Að minnsta kosti þrjár
leiðir komu þá til greina:
1.leið
Obreytt rekstrarform, en á for-
ræði sveitarfélaga
Málefni fatlaðra á Norðurlandi
vestra yrðu með sama hætti og áður
og sérstakt byggðasamlag myndað
um reksturinn eða að SSNV yrði
falinn reksturinn standist það lög.
2. leið
Norðurlandi vestra verði skipt
upp í Ijögur þjónustusvæði
Þjónustusvæðin yrðu Sigluíjörð-
ur, Skagafjörður, Austur-Húna-
vatnssýsla og Vestur-Húnavatns-
sýsla. Öll þjónusta við fatlaða færð
til félagsþjónustu viðkomandi svæð-
is. Ekki væri um neinn samrekstur
milli svæða að ræða.
3. leið
Samrekin búsetuúrræði og
skammtímavistun
Þjónustusvæðin yrðu Siglu^örð-
ur, Skagafjörður, Austur-Húna-
vatnssýsla og Vestur-Húnavatns-
sýsla. Öll önnur þjónusta en búsetu-
mál færð undir félagsþjónustu við-
komandi svæðis. Búsetumál verði
undir sameiginlegri stjóm byggða-
samlags. Þessi leið nær fram hvom
tveggja að sveitarfélögin taki aukna
ábyrgð á málaflokknum og sjái
beint um alla þætti, nema búsetumál
þeirra sem þurfa mesta þjónustu.
Búsetumál fatlaðra em þyngsti þátt-
urinn, bæði að því er snertir þjón-
ustu og fjárhagsmál. Með sam-
rekstri er hægt að mæta búsetuþörf-
um þyngsta þjónustuhópsins með
meiri fjölbreytileika en ella. Sveitar-
félögin hefðu einn starfsmann sem
sinnti faglegu eftirliti og aðstoð við
starfsfólk og skjólstæðinga með
svipuðum hætti og verið hefur.
A 6. ársþingi SSNV, sem haldið
var á Blönduósi 21. og 22. ágúst
J.D.NEUHAUS
'&i?
TALIUR
- loft eða rafmagns
250 kg -100 tonn
SKEIFUNNI 3E-F • SÍMI 581 2333 • FAX 568 0215
224