Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Side 48
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
Aðalfundur SASS 1999
Þorvarður Hjaltason framkvœmdastjóri
Aðalfundur SASS, Samtaka sunnlenskra sveitar-
félaga, 1999 var haldinn dagana 19. og 20. mars sl. að
Efstalandi í Ölfusi.
Meginefni fundarins auk venjulegra aðalfundarstarfa
var umfjöllun annars vegar um háskólamenntun og
byggðarþróun og hins vegar um umhverfismál. Einnig
lágu fyrir fundinum starfsskýrsla stjórnar og fram-
kvæmdastjóra, starfsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Suður-
lands og skýrsla stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands.
Jafnframt var lögð fram skýrsla háskólanefndar SASS.
Til fundarins komu 55 fulltrúar frá 21 sveitarfélagi auk
gesta og starfsmanna.
Fundarstjórar voru þcir Jón Hólm Stefánsson og Sig-
urður Þráinsson, bæjarstjómarmenn í Ölfusi. Fundarrit-
ari var Guðni Pétursson, skrifstofustjóri Ölfuss.
Starfsskýrslur
Ingunn Guðmundsdóttir, formaður SASS, flutti starfs-
skýrslu stjómar og framkvæmdastjóra. Hún greindi frá
hefðbundnum störfum stjómarinnar og síðan einstökum
áherslumálum og viðfangsefnum hennar. Þá greindi hún
frá rekstri stofnana sem heyra undir samtökin eða em
reknar af þeim. Hún gerði sérstaklega að umtalsefni
samskipti Alþingis og sveitarfélaganna og gagnrýndi
einkum þann skamma tíma sem sveitarfélögum væri
gefinn til umsagnar um þingmál sem vörðuðu sveitarfé-
lögin miklu. Einnig væm hagsmunir sveitarfélaganna
oft og tíðum sniðgengnir af hálfú Alþingis.
Formaður heilbrigðisnefndar Suðurlands, Guðmundur
Ingi Gunnlaugsson, flutti skýrslu um fyrsta starfstímabil
nefndarinnar. Reynslan af hinni nýju skipan er góð það
sem af er, en heilbrigðisnefndin leysti níu heilbrigðis-
nefndir af hólmi á síðasta sumri. Matthías Garðarsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, lagði
síðan fram og fylgdi úr hlaði starfsskýrslu eftirlitsins.
Aldís Hafsteinsdóttir flutti ársskýrslu stjómar Skóla-
skrifstofú Suðurlands. Þá ræddi hún yfirfærslu málefna
grunnskólans til sveitarfélaganna og reynsluna af henni,
svo og nýja aðalnámsskrá fyrir gmnnskólann sem öðlast
gildi frá og með næsta hausti. Einnig ræddi hún um þró-
un háskólakennslu á Suðurlandi svo og fjamám sem far-
ið hefúr mjög vaxandi á síðustu ámm. Jón Hjartarson,
forstöðumaður Skólaskrifstofú Suðurlands, flutti starfs-
skýrslu fyrir árið 1998 og jafnframt greindi hann frá
störfúm háskólanefndar SASS. Fór hann yfir tildrög að
stofnun nefndarinnar og greindi frá störfúm hennar. Nið-
urstaða nefndarinnar varð sú að stefna bæri að stofnun
Fræðslumiðstöðvar Suðurlands. Óskaði hann f. h. nefnd-
arinnar eftir umboði aðalfundar SASS til stofnunar
sjálfseignarstofnunar um fræðslumiðstöð þannig að
starfsemi gæti hafist á hausti komanda. Undir þessum lið
tók til máls Ingi Rúnar Eðvarðsson, dósent við Háskól-
ann á Akureyri, en hann hafði haft yfirumsjón með
könnun sem unnin hafði verið fyrir háskólanefndina um
viðhorf Sunnlendinga til menntatækifæra á Suðurlandi.
Fór hann yfir helstu markmið, framkvæmd og niðurstöð-
ur hennar. Meginniðurstaða könnunarinnar er sú að
Sunnlendingar hafa vemlegan áhuga á að stunda fram-
haldsnám í heimabyggð. Að lokum hvatti hann til stofn-
unar fræðslumiðstöðvar á Suðurlandi.
Ávörp
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, ávarpaði fundinn og ræddi þær
miklu breytingar og þróun sem orðið hafa á sveitar-
stjómarstiginu síðustu 4-5 árin svo og þau verkefni sem
sveitarfélögin hafa tekið við undanfarin ár og þau sem
nú em í burðarliðnum, svo sem yfirfærsla á málefnum
fatlaðra. Einnig ræddi hann almennt um fjárhagsvanda
sveitarfélaganna í landinu. Þá skýrði hann frá þvi að nú
væri unnið að endurskoðun á lögum um tekjustofna
sveitarfélaga. Einnig ræddi hann byggðamál og aðgerðir
í þeim. Bar hann síðan fúndinum kveðjur frá stjóm sam-
bandsins og óskaði fundinum allra heilla.
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Suðumesjum, færði fúndinum kveðjur af
Suðumesjum. Þá ræddi hann sameiginleg hagsmunamál
landshlutanna beggja, t.d. Suðurstrandarveg og ferða- og
atvinnumál.
Erindi
Háskólamenntun og byggðarþróun
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri,
fjallaði um hlutverk og framlag háskóla i byggðarþróun
landsins. Þá ræddi hann sérstaklega um menntun og bú-
setuþróun á Suðurlandi og kynnti nýja skýrslu Rann-
sóknarstofnunar Háskólans á Akureyri um „Viðhorf
Sunnlendinga til menntatækifæra í heimabyggð“. Þá
238