Sveitarstjórnarmál - 01.12.1999, Blaðsíða 44
UMHVERFISMAL
Ú rgangsþríhyrningurinn
Forgangsröð við meðhöndlun úrgangs
Stefán Gíslason, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21
Meðhöndlun úrgangs er meðal
þeirra verkefna sem sveitarfélögum
er ætlað að sinna. Samfara auknum
kröfum og vaxandi umhverfisvitund
þarf sífellt að leita nýrra leiða til að
losna við úrganginn eða meðhöndla
hann með viðunandi hætti. Víða eru
urðunarstaðir reknir á bráðabirgða-
starfsleyfum og mörg sveitarfélög
standa frammi fyrir erfiðu vali
varðandi framtíðarlausn úrgangs-
mála. Sums staðar velta menn því
fyrir sér hvort hægt sé að fá fram-
lengingu á bráðabirgðastarfsleyfinu
fyrir urðunarstaðinn, og annars
staðar er hugað að fjárfestingu sem
tryggja á framtíðarlausn þessara
mála.
Hér verður ekki reynt að gefa
óyggjandi svar við þeirri spumingu
hvaða lausnir séu bestar, hvorki ífá
íjárhagslegu né umhverfislegu sjón-
armiði. Engin slík algild svör em til.
Tilgangur þessarar greinar er aðeins
sá að kynna forgangsröð sem heppi-
legt er að hafa í huga þegar ákvarð-
anir eru teknar um meðhöndlun
úrgangs.
Forgangsröð við meðhöndlun
úrgangs er hægt að lýsa myndrænt
með svokölluðum úrgangsþríhym-
ingi (e. waste management hier-
archy). Þetta hugtak er lítt þekkt
hérlendis, en hefur verið notað í
opinberri umræðu í Bandaríkjunum
allt frá árinu 1976. Þríhymingurinn
er þannig byggður upp að fyrst ættu
menn að skoða efsta og stærsta
hluta hans. Þar er kynntur heppileg-
asti valkosturinn frá umhverfislegu
sjónarmiði. Ef sá valkostur er ekki
fyrir hendi eða þegar fullnýttur færa
menn sig eitt skref niður á við, eða
velja með öðmm orðum næstbesta
kostinn. Að honum frágengnum er
farið einu þrepi neðar og þannig
koll af kolli þar til enginn valkostur
er eftir nema sá lakasti sem ták-
naður er með neðsta og minnsta
hluta þríhymingsins.
Hér á eftir verður farið nokkmm
orðum um einstaka hluta þríhym-
ingsins:
Lágmörkun
Besta leiðin til að fást við þau
vandamál sem fylgja úrgangi er að
koma í veg fyrir að úrgangurinn
myndist eða að draga úr magninu
eins og kostur er. Slíka möguleika
ætti að skoða áður en lengra er
haldið. Þar með er komist hjá þeim
kostnaði og áhættu sem fylgir neðri
stigum þríhymingsins. Umhverfís-
væn hönnun vöru og framleiðslu-
ferla er viðleitni í þessa átt. Einnig
er oft ástæða til að spyrja eftirfaran-
di spurninga: Er varan yfirleitt
nauðsynleg? Þarf að nota hana í
svona miklu magni? Eru umbúð-
irnar nauðsynlegar? í þessu sam-
bandi er hollt að hafa í huga að allur
úrgangur hefur einhvern tímann
verið keyptur fyrir peninga.
Endurnotkun
Eftir að leitað hefur verið allra
leiða til að draga úr magni þess
úrgangs sem myndast, liggur næst
úrgangsþri'hyrningurinn.
Leltin að bestu leiðinnl til að meðhöndla úrgang byrjar efst.
298