Morgunblaðið - 09.02.2012, Page 5
Sá sem hefur aldrei lent í tjóni sér ekki
mikinn mun á tryggingafélögum. Hann
borgar bara sínar tryggingar. Það er því
ekki skrítið að sumir haldi því fram að
tryggingafélög séu öll eins.
En hvað ef eitthvað gerist?
Frá árinu 2005 hafa margir viðskiptavinir
TM sem lentu í tjóni, deilt með okkur hvernig
þeir upplifðu úrlausn sinna mála. Svörin
sýna ekki aðeins að það skiptir miklu máli
hvar þú tryggir, heldur líka af hverju.
Í fyrsta lagi er ráðgjöfin sem þú færð þegar
þú kaupir tryggingar lykil-
atriði. Með réttri ráðgjöf
veistu hvað þú þarft að
tryggja og lendir síður
í því að verða fyrir
tjóni sem trygging-
arnar ná ekki yfir.
Í öðru lagi er það allra hagur þegar tjónamál
koma upp að úr þeim sé leyst fljótt og vel. Því
fyrr sem lífið kemst í samt horf, því betra fyrir
alla og góð viðbrögð skipta öllu máli.
Á afhverju.tm.is getur þú séð fjölda um-
sagna viðskiptavina sem lent hafa í tjóni
og notið þjónustu TM.
Í þriðja lagi getur skipt miklu hvernig
brugðist er við tjóninu sjálfu. Ef fyrirtæki
lendir til dæmis í bruna er mikilvægt að
komast hjá því að reksturinn stöðvist.
Þá skiptir afgreiðsla og aðkoma trygginga-
félagsins miklu máli.
Það er stefna TM að samband okkar
og viðskiptavina sé langtímasamband,
byggt á trausti og gagnkvæmum ávinningi.
Með réttri ráðgjöf og góðum viðbrögðum,
stöndum við undir þeim væntingum sem
þú gerir til okkar. Ef eitthvað kemur fyrir,
þá vilt þú vera hjá TM.
Tryggingamiðstöðin . Síðumúla 24 . Sími 515 2000 . tm@tm.is . afhverju.tm.is
Tryggingafélög
eru öll eins
–þar til eitthvað
kemur fyrir
Maður veit víst aldrei hvað gerist næst...
92% viðskiptavina TM
fengu tjón sitt bætt sam-
kvæmt könnun Capacent.
0009 01 02 03 04 05 06 07 08 09 10
Á síðustu 12 árum hefur TM 10 sinnum verið með
ánægðustu viðskiptavini tryggingafélaga.
1.
1.
1. 1.
1.
1. 1.
1. 1. 1.