Morgunblaðið - 11.02.2012, Side 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2012
Þann 30. júní næst-
komandi stöndum við
frammi fyrir því að
kjósa nýjan einstakling
í embætti forseta Ís-
lands. Þessar kosn-
ingar eru um margt
frábrugðnar síðustu
forsetakosningum árið
2008, en síðan þá hefur
umhverfi okkar, lífs-
viðhorf og raunveru-
leiki umturnast.
Sú trú okkar að við byggjum við
hagsæld og góða stjórn er brostin og
eftir situr óvissa, ótti og reiði. Okkur
hefur opinberast raunveruleiki þar
sem réttur almennings til lífsvið-
urværis er fótum troðinn. Raunveru-
leiki þar sem sérhagsmunir og fjár-
magn hafa forgang á hagsmuni
samfélagsins og einstaklinganna sem
í því búa. Okkur hefur opinberast
raunveruleiki þar sem peningavaldið
er yfirherrann en almenningur rétt-
laus.
Það sem skiptir mestu í þessum
kosningum er að við ákveðum í
hvernig samfélagi við viljum búa og
ekki síst, hvernig forseta við viljum
fá. Ætlum við að kjósa virkan forseta
sem tekur afstöðu til mála, er örygg-
isventill á gjörðir Alþingis og gætir
hagsmuna almennings? Eða ætlum
við að kjósa óvirkan forseta sem tek-
ur skipanir frá ríkisstjórn, sem hefur
í verki, allt vald Alþingis í hendi sér?
Nýja Ísland
Við stöndum frammi fyrir þeirri
staðreynd að hið gamla Ísland er
ekki að hverfa, heldur hafa ráðandi
öfl leitast við að endurvekja kerfið
sem féll 2008. Kerfi sem er öruggt
með að falla aftur með sömu for-
sendubrestum og eymd.
Hið nýja Ísland mun ekki rísa
nema með samhentu átaki almenn-
ings. Valið er okkar og valið mun
eiga sér stað 30. júní nk. Það er því
mikilvægt að við gætum að okkur,
svo ekki verði fyrir valinu fulltrúi
sérhagsmuna, heldur forseti sem
gætir hagsmuna al-
mennings og er tilbúinn
til að leiða okkur áfram
til réttlátara samfélags.
Ég trúi því að við
getum skapað hér á
landi samfélag þar sem
enginn þarf að líða
skort. Samfélag þar
sem réttur almennings
er tekinn fram fyrir
sérhagsmuni. Samfélag
þar sem hagsældin
kemur í formi eignar en
ekki skuldar. Ég trúi
því að við getum skapað
hér samfélag réttlætis, sanngirni og
frelsis.
Valdið er fólksins
Við stöndum frammi fyrir þeirri
ákvörðun hvort við viljum alvöru lýð-
ræði eða ekki. Við stöndum frammi
fyrir því að velja hvort við lútum
valdi sérhagsmunahópa eða ráðum
örlögum okkar og frelsi. Við stönd-
um frammi fyrir því að kjósa forseta
sem ver fólk en ekki sérhagsmuni.
Við stöndum frammi fyrir því að
velja forseta sem fylgir stjórn-
arskránni almenningi til heilla. Við
þurfum að velja forseta sem lætur
sig varða hlutskipti almennings.
Sem forseti, mun ég láta leggja
fyrir Alþingi frumvarp til laga um
þjóðaratkvæði, þar sem almenningi
verði gefinn kostur á að hafa áhrif á
líf sitt og framtíð, án skilyrða.
Sem forseti mun ég vinna að því að
hagsmunir almennings og sam-
félagsins í heild verði látnir ganga
framar sérhagsmunum.
Sem forseti mun ég leggja til að á
Íslandi verði fjármálakerfið endur-
hannað með hagsmuni samfélagsins
að leiðarljósi. Fjármálakerfi sem
byggir upp, en brýtur ekki niður.
Sem forseti mun ég leitast við að
skapa sátt milli þings og þjóðar. Ég
mun leggja mitt af mörkum til að
skapa hér umhverfi þar sem Alþingi
getur starfað án þrýstings frá fram-
kvæmdavaldinu. Umhverfi sem
styrkir Alþingi, en veikir það ekki.
Með raunverulegum aðskilnaði
löggjafar-, dóms- og framkvæmda-
valds, ásamt sterkum aðgangi al-
mennings að ákvörðunum vald-
stjórnarinnar munum við byggja upp
samfélag þar sem hagsmunir sam-
félagsins eru teknir fram fyrir sér-
hagmuni. Samfélag þar sem valdið
liggur hjá fólkinu.
Til að geta losað okkur úr hlekkj-
um fortíðar og haldið áfram til fram-
tíðar, þá þurfum við að ákveða
hvernig forseta við viljum. Það er
mikilvægt að í næstu kosningum hafi
almenningur val á milli þess að við-
halda hinu gamla eða sækja fram á
nýjum forsendum. Það er mikilvægt
að þetta val sé fyrir hendi.
Ég býð mig fram til að tryggja
þetta val. Tryggja það að hagsmunir
almennings verði hafðir í fyrirrúmi.
Ég kalla eftir aðstoð ykkar til að
veita mér það brautargengi, að þið
fáið tækifæri til að hafa þetta val.
Það mun ekki nást sátt um framtíð-
arsýn samfélagsins, nema þetta val
sé fyrir hendi.
Ef þið veitið mér þetta braut-
argengi mun ég vinna að því að
skapa með ykkur samfélag þar sem
einstaklingurinn getur lifað í full-
vissu þess að ekki verði gengið að
honum eða eignum hans vegna kerf-
isvillu.
Samfélag þar sem sérhver ein-
staklingur mun búa við frelsi til að
skapa sér þá hamingju sem hann
óskar sér.
Samfélag þar sem hagsmunir
heildarinnar eru látnir ganga fyrir
hagsmunum hina fáu.
Samfélag þar sem við almenn-
ingur erum frjáls.
Samfélag þar sem við almenn-
ingur ráðum.
Horfum til
framtíðar 30. júní 2012
Eftir Jón
Lárusson »Ég trúi því að við
getum skapað hér
samfélag réttlætis,
sanngirni og frelsis
Jón
Lárusson
Höfundur hefur gefið kost á sér í
embætti forseta Íslands og heldur úti
vefsíðunni www.jonlarusson.is
Launasjóður fræðiritahöfunda auglýsir eftir umsóknum um starfslaun úr sjóðnum
sem veitt verða frá 1. júní 2012. Rétt til að sækja um laun úr sjóðnum hafa höfundar
alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku.
Meginhlutverk Launasjóðs fræðiritahöfunda er að auðvelda samningu bóka,
veitt til hálfs árs, en heimilt er að veita þau til allt að þriggja ára. Þeir sem hljóta
!
Umsóknarfrestur er til 22 mars, kl. 16:00
Tekið verður við umsóknum frá og með 15. febrúar næstkomandi.
Umsóknir eru rafrænar og ber að að sækja um á www.rannis.is.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 515 5800
og á www.rannis.is
Auglýsing um starfslaun
Launasjóður fræðiritahöfunda
Umsóknarfrestur er til 22. mars 2012
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og
"
#
$
og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s.
Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og
miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.
islandsstofa.is
Borgartún 35 | 105 Reykjavík
Íslandsstofa býður upp á námskeið í markaðs- og
söluþjálfun sem er sniðin að þörfum starfsmanna
fyrirtækja sem markaðssetja og selja sjávarafurðir
á erlendum mörkuðum. Námskeiðið stendur yfir í
fjóra mánuði og verður ein vinnustofa í mánuði.
Þátttökugjald er 100.000 kr. á fyrirtæki miðað við
einn þátttakanda. Óski fyrirtæki eftir að senda fleiri
þátttakendur er kostnaður kr. 25.000 á hvern auka
þátttakanda, en einungis þrír þátttakendur komast
að frá hverju fyrirtæki. Innifalið í þátttökugjaldi eru
námsgögn, fyrirlestrar og veitingar.
Samningatækni og menningarmunur
28. febrúar frá 12.00–17.30
Sala og þjónusta á markaði erlendis
28. mars frá 12.00–17.30
Markaðsupplýsingar og tímastjórnun
18. apríl frá 13.00–16.30
Kynningartækni á sölufundum
22. Maí frá 12.00–17.30
Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig í verkefnið
gera það fyrir fimmtudaginn 23. febrúar
með tölvupósti á bjorn@islandsstofa.is
Nánari upplýsingar veita Björn H Reynisson
verkefnisstjóri, bjorn@islandsstofa.is
Ottósson, forstöðumaður markaðsþróunar,
hermann@islandsstofa.is
“Þetta námskeið lyfti mér upp úr þessu daglega harki og
hjálpaði mér að ná betri yfirsýn yfir þá þætti sem skipta máli.”
Svavar Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sæmarks
Markaðs-
og söluþjálfun
fyrir starfsmenn
fyrirtækja sem selja
sjávarafurðir
á erlendum mörkuðum
Ármúla 38 Sími 588 5011
Verð: 93 800
Staðgreitt: 69 900
FIMM LITIR
Afmæli!