Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 38
38 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Sudoku Frumstig 8 4 9 5 6 1 6 3 1 1 2 5 3 8 5 3 9 4 2 9 6 1 9 4 3 5 2 8 4 1 3 7 2 7 6 5 3 7 5 8 1 3 6 5 4 8 1 2 8 4 3 9 3 5 1 7 6 5 8 3 2 6 4 9 7 4 6 1 8 2 4 5 2 3 9 6 1 7 8 7 8 3 4 1 5 6 9 2 9 6 1 7 8 2 5 4 3 2 7 6 9 5 1 3 8 4 3 9 8 6 7 4 2 5 1 5 1 4 8 2 3 9 6 7 6 2 7 1 4 9 8 3 5 8 3 5 2 6 7 4 1 9 1 4 9 5 3 8 7 2 6 8 6 1 7 9 3 4 2 5 5 4 9 6 2 8 7 1 3 2 7 3 1 5 4 8 6 9 1 8 2 4 3 6 5 9 7 9 5 7 2 8 1 6 3 4 6 3 4 9 7 5 2 8 1 3 1 6 8 4 7 9 5 2 4 9 8 5 1 2 3 7 6 7 2 5 3 6 9 1 4 8 3 7 8 5 6 1 2 4 9 2 6 5 4 3 9 1 8 7 1 4 9 2 8 7 6 3 5 9 8 2 3 4 5 7 1 6 4 5 1 8 7 6 3 9 2 7 3 6 1 9 2 8 5 4 8 2 7 9 1 4 5 6 3 5 9 3 6 2 8 4 7 1 6 1 4 7 5 3 9 2 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 3. mars, 63. dagur ársins 2012 Orð dagsins: Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jh. 20.) Víkverji er femínisti.Þó ekki í þeim skilningi, eða öllu heldur misskilningi, margra að hann sé kona sem krefst jákvæðrar mismununar, finnst allt karlkyns vera ógeðslegt og þenur sig upp á háa C í hvert skipti er kynjatengd mál koma upp. Í raun er hann karl á fer- tugsaldri sem þætti bara frábært ef allir gætu verið jafnir og á frekar erf- itt með að skilja af hverju það gengur ekki. Víkverji hefur hins vegar ekki viljað skilgreina sig sem femínista í ansi mörg ár en í því spilar hvað stærst hlutverk ótti við fordóma. x x x Orðið femínisti hefur í gegnum tíð-ina hlotið ansi neikvæða merk- ingu í augum margra og þess vegna hefur Víkverja tamist að kalla sig jafnréttissinna því í hans augum er það rökréttari skilgreining á skoðun- um hans en í raun og sann bara grunnmarkmið femínisma, jafnrétti óháð kyni. x x x Það er hverri stefnu dragbítur aðþurfa að vera í minnihluta og margar stefnur sem hafa byggst á fallegri, en stundum óraunhæfri hugsun hafa verið fordæmdar sökum þess að þeir sem ráða meirihlutanum græða ekkert á hugmyndum minni- hlutans. Kommúnismi í sinni fá- breyttustu og einföldustu mynd er gott dæmi. Enginn á neitt en engan skortir neitt og á meðan þegnarnir þjóna ríkinu þjónustar ríkið þegnana. En þessi hugmynd virkar illa í fram- kvæmd og oftar en ekki er það breyskleika manna um að kenna. x x x Femínismi er hinsvegar ekki óraun-hæf hugsun heldur er alveg rök- rétt að ætla að allir þegnar sama þjóð- félags búi við sömu kaup og kjör og sama hversu miklir fordómar verða fyrir orðinu af höndum þeirra sem nota það í niðrandi merkingu vegna þess að öfgafyllri femínistar krefjast kvenréttis í stað jafnréttis. Hins vegar virðist það vera eina leiðin til að ná ein- hverjum árangri og í ljósi þess getur Víkverji stigið stoltur fram og sagt: Ég er femínisti. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 keipa, 4 laska, 7 starfið, 8 ófús, 9 elska, 11 topp, 13 fræull, 14 fugla,15 móðguð, 17 sterk, 20 skar, 22 erfð, 23 steins, 24 stéttar, 25 vesælla. Lóðrétt | 1 dugnaður, 2 dul- an, 3 ráða við, 4 innsti hluti dals, 5 ásaka, 6 hagnaður,10 trjábörkur, 12 vel látin, 13 vínstúka, 15 stoppa í, 16 aft- urkalla, 18 kvendýrum,19 skordýra, 20 lof, 21 hræðslu. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fyrirmuna, 8 lykil, 9 lindi, 10 ull, 11 gárar, 13 afrek, 15 hvolf, 18 eldur,21 lof, 22 fulla, 23 angan, 24 afrakstur. Lóðrétt: 2 yrkir, 3 illur, 4 molla, 5 nánar, 6 flog, 7 virk, 12 afl, 14 fól, 15 hæfa, 16 orlof, 17 flaka, 18 efans, 19 duggu, 20 röng. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Nýju gleraugun. Norður ♠DG8 ♥KG652 ♦K74 ♣ÁG Vestur Austur ♠K953 ♠7642 ♥10873 ♥D4 ♦D8 ♦10652 ♣986 ♣542 Suður ♠Á10 ♥Á9 ♦ÁG93 ♣KD1073 Suður spilar 6G. „Þau eru margskipt,“ útskýrði suð- ur stoltur: „Maður sér vel á spilin heima og líka í blindum. Nær og fjær.“ Suður setti nýju gleraugun upp á nefið og skoðaði möguleika sína í grandslemmunni. Útspilið var lauf. Eftir skamma skoðun var tekið til starfa af fullum krafti: Drepið á ♣Á og tveir efstu í tígli lagðir niður. Bingó. Sami leikurinn var endurtek- inn í hjartalitnum og aftur bingó. Tígulníu svínað og lagt upp. Tólf slagir. „Nær og fjær og til hliðar líka?“ Andstæðingarnir voru fullir grun- semda, en nýju gleraugun komu hér ekkert við sögu. Áætlun sagnhafa var að spila upp á ♥D þriðju rétta, en kanna þó tígulinn fyrst. Þegar ♦D féll var sjálfsagt að toppa hjartað líka og eiga þá spaðasvíninguna til vara. Fullkomin nýting á öllum tækifærum. 3. mars 1200 Bein Jóns Ögmundssonar biskups voru tekin upp. Jóns- messa Hólabiskups á föstu er haldin til minningar um þetta. 3. mars 1952 Guðmundur Jónasson og þrír ferðafélagar hans komu á snjóbíl til Akureyrar eftir fjögurra daga ferð þvert yfir hálendið, sennilega þá fyrstu á þessum árstíma. „Mjög róma þeir félagar fegurð öræf- anna,“ sagði í Morgunblaðinu. 3. mars 1960 Maður á Akureyri giftist pólskri konu sem hann hafði kynnst sumarið áður. Brúð- kaupið fór fram í Póllandi en maðurinn var staddur á Hótel KEA. Í brúðkaupsgjöf gaf hann konu sinni farmiða til landsins. 3. mars 1984 Kristján Harðarson sló 27 ára gamalt Íslandsmet í lang- stökki, stökk 7,79 metra. Met- ið stóð í tíu ár. 3. mars 1984 Kvikmyndin Atómstöðin var frumsýnd. Myndin var byggð á sögu Halldórs Laxness en leik- stjóri var Þorsteinn Jónsson. „Dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið á Íslandi,“ sagði í DV. 3. mars 1997 Björk Guðmundsdóttir tók við tónlistarverðlaunum Norður- landaráðs í Ósló. Hún sagðist vera afar hrærð og þakkaði fyrir sig með söng. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Steindóra Steinsdóttir, íþróttafræðingur, er fer- tug í dag. Hún var í óða önn við að baka kransa- kökutoppa fyrir afmælisveisluna í kvöld þegar blaðamaður náði tali af henni í gær. Segir hún toppana vera í miklu uppáhaldi hjá bæði henni sjálfri og vinum hennar og ættingjum. Afmæl- isgestirnir í kvöld geta því hugsað sér gott til glóð- arinnar. Íþróttir eru stór hluti af lífi Steindóru en hún lék sem markvörður með meistaraflokki ÍA og landsliðinu í knattspyrnu á árum áður. Núna þjálf- ar hún yngri flokka hjá ÍA og kennir líkamsrækt hjá Djassballettskóla Báru á Akranesi. Þá æfir hún blak í frítímanum. Hún er þó ekki alveg hætt að sparka bolta og hún og félagar hennar úr gullaldarliði ÍA taka reglulega þátt í mótum og hafa jafnvel orðið svo frægar að vinna Drottingamót ÍR nokkur skipti í röð. Þá hefur hún við og við hlaupið í skarðið hjá meistaraflokki ÍA. „Ég fór síðast í markið 2009. Það endaði með ökklabroti í einum leiknum svo það var ekki sérlega skemmtilegt! Ég hef látið þetta vera síðan nema til að leika með gömlu liðsfélögunum,“ segir Steindóra. Steindóra Steinsdóttir er fertug í dag Toppar á afmælisdaginn Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 3. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.07 2,9 8.44 1,6 14.53 2,7 21.07 1,5 8.27 18.54 Ísafjörður 4.25 1,5 11.01 0,7 17.11 1,4 23.19 0,6 8.36 18.54 Siglufjörður 0.12 0,6 6.43 1,0 13.24 0,5 19.50 1,0 8.19 18.37 Djúpivogur 5.42 0,8 11.47 1,2 17.59 0,7 7.57 18.22 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú færð samviskubit af því að sinna sjálfum þér, svo undarlegt sem það virðist. Samtöl við foreldra eða aðra fjölskyldu- meðlimi eru mikilvæg. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ættir að leita ráða hjá góðum vini varðandi krefjandi verkefni, sem þér hefur verið falið, en stendur aðeins í þér. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú nýtur kumpánlegra samskipta við vini þína í dag. Láttu hvers konar gylliboð sem vind um eyru þjóta meðan þú kemur málunum í lag. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Viðræður við einhvern um trúar- brögð, stjórnmál eða útlönd fá alvarlegt yf- irbragð. Láttu annað lönd og leið og stefndu ótrauður að takmarkinu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Því meir sem þú reynir þeim mun minni árangri virðist þú ná. Ef þú hefur ekki tekið eftir því, þá ert þú jafn hæfur og allir aðrir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Nú er hart sótt að starfsemi þinni svo þú þarft að verja hana með kjafti og klóm. Það sem þú skilur ekki, verður útskýrt. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Fyrst verðurðu frábær, svo valdamikill. En líttu ekki of lengi um öxl því það er fram- tíðin sem skiptir máli. Hafðu taumhald á skapi þínu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það getur verið gaman að láta ýmislegt eftir sér en í upphafi skyldi endinn skoða. Hugmyndir þurfa að þroskast áður en þú dæmir þær góðar eða slæmar. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af hvað þú eigir að gefa vinum og fjölskyldunni. Ekki láta eitthvað vanhugsað koma þér úr jafnvægi. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Einhver kemur þér á óvart með gjöf eða ánægjulegum greiða. Nú langar þig að skapa á ný og bæta upp glataðan tíma. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Gerðu þér að reglu að ljúka þeim verkefnum, sem þú hefur tekið að þér, áður en þú bætir við. Allir eru glaðir, hressir og já- kvæðir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ættir að líta í eigin barm áður en þú skellir skuldinni á aðra. Raðaðu hlutunum í forgangsröð og taktu eitt verkefni fyrir í einu. Stjörnuspá 1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Dd6 4. d4 Rf6 5. Rb5 Db6 6. c4 c6 7. Rc3 g6 8. Rf3 Bg7 9. Be2 O-O 10. O-O Ra6 11. a3 Bf5 12. Rh4 Be6 13. Be3 Had8 14. h3 Dc7 15. Hc1 Dc8 16. b4 Rc7 17. Da4 a6 18. Da5 h6 19. d5 cxd5 20. cxd5 Bxd5 21. Bf4 Re6 22. Rxd5 Hxd5 23. Hxc8 Hxc8 24. Db6 Rxf4 25. Bf3 Hb5 26. Da7 Kh7 27. Hd1 e6 28. Bxb7 Hc7 29. De3 Hcxb7 30. Dxf4 a5 31. bxa5 Hxa5 32. Rf3 Hxa3 33. Dh4 Ha5 34. Kh2 Hb2 35. Hd2 Hxd2 36. Rxd2 Ha2 37. Rf3 Rd5 38. Rg5+ Kg8 39. Re4 Be5+ 40. g3 Kg7 41. Dd8 He2 42. Dh4 Staðan kom upp í B-flokki Corus- skákhátíðarinnar í Wijk aan Zee í Hol- landi. Alexander Motylev (2677) frá Rússlandi hafði svart gegn Katerynu Lahno (2557) frá Úkraínu. 42… Rf4! 43. gxf4 Hxe4 44. Dd8 Hxf4 45. Kg2 Bd4 46. f3 Bf6 47. Da5 Hf5 48. Db4 Hg5+ 49. Kf2 h5 50. Dc4 h4 51. Ke3 Hg2 52. Df1 Hh2 53. Kf4 Bd4 54. Ke4 Hd2 55. Kf4 Kh6 56. Db5 f5 57. Dxf5 e5+ og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.