Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 20
Sólarströnd á Selfossi Leikritið Sólarferð í upp-
setningu Leikfélags Selfoss hefur notið vinsælda að
undanförnu og þykir vel heppnuð sýning.
ÚR BÆJARLÍFINU
Sigmundur Sigurgeirsson
Sveitarfélagið Árborg
Nokkur kurr er meðal verslunarmanna á Selfossi
vegna áætlana um byggingu stórrar verslunarmið-
stöðvar í útjaðri bæjarins, við Biskupstungnabraut.
Telja forsvarsmenn samtaka verslunar og þjónustu
í Árborg einkennilegt að bæjaryfirvöld stefni að upp-
byggingu miðbæjarins líkt og kynnt hefur verið með
teikningum, svo sem með íbúðabyggð og byggingu hús-
næðis fyrir smærri verslanir á svokölluðum Sigtúnsreit,
á sama tíma og veitt séu vilyrði fyrir afhendingu stórrar
lóðar undir umrædda verslunarmiðstöð. Óttast kaup-
menn að slík verslunarmiðstöð við nýjan Suðurlandsveg,
sem kæmi meðfram byggingu brúar norðan við bæinn,
verði til þess að sumartraffík fari framhjá miðbænum.
Haft er eftir Kolbrúnu Markúsdóttur í Sunnlenska
fréttablaðinu í þessari viku að nauðsynlegt sé að halda
íbúafund um málið. Nú hefur verið ákveðið að halda
þann fund 14. mars næstkomandi og er sá fundur á veg-
um Verslunarmannafélags Suðurlands.
Sýningar leikritsins Sólarferð eftir Guðmund Steins-
son í uppsetningu Leikfélags Selfoss ganga vel og þykir
sýningin bæði skemmtileg og vel heppnuð. Sýningar fara
fram í Litla leikhúsinu við Sigtún, þar sem leikfélagið
hefur haft aðstöðu undanfarna áratugi. Verkið er farsa-
kenndur gamanleikur með nokkru háði um hóp íslenskra
ferðamanna og hegðun þeirra á spænskri sólarströnd.
Selfyssingar eru afar stoltir af því að hafa eignast
bikarmeistara í handknattleik en strákarnir í 2. flokki
komu heim með bikar eftir sigur í spennandi leik gegn
Valsmönnum um síðustu helgi. Ljóst þykir að efniviður-
inn í handboltanum á Selfossi er góður og menn horfa já-
kvæðum augum til framtíðarinnar í þessari íþróttagrein.
Ekki spillir fyrir að sama dag og 2. flokkurinn varð bik-
armeistari léku drengirnir í 4. flokki til úrslita í bik-
arkeppninni, en urðu að sætta sig við tap gegn FH.
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Mikið rætt um stöðu
verslunar á Selfossi
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012
Kaffibarþjónafélag Íslands heldur í
13. sinn Íslandsmót kaffibarþjóna í
Smáralind nú um helgina.
Undankeppni verður haldin milli
kl. 12-17 í dag og eru 8 kaffibar-
þjónar skráðir til leiks. Úrslit
standa svo yfir frá 13:30 til 16 á
sunnudeginum en sá sem hlýtur tit-
ilinn Íslandsmeistari kaffibarþjóna
2012 keppir fyrir Íslands hönd á
heimsmeistaramótinu í Vínarborg í
sumar.
Íslandsmót
kaffibarþjóna
Tillaga að skipulagi Þingvalla sem
lögð var inn í hugmyndasamkeppni
í tilefni af 1100 ára afmæli Íslands-
byggðar árið 1972 fannst fyrir til-
viljun 40 árum síðar. Tillöguna má
nú skoða á sýningunni „Bygging-
arlist og samfélag“ sem stendur yf-
ir í Norræna húsinu en sýningunni
lýkur á morgun, sunnudag.
Á sýningunni er safnað saman
verðlaunatillögum í opnum arki-
tektasýningum síðustu 40 ára á Ís-
landi.
Elsta tillaga sýningarinnar er að
skipulagi Þingvalla frá hugmynda-
samkeppni sem haldin var árið
1972 í tilefni af 1100 ára afmæli Ís-
landsbyggðar tveimur árum
seinna.
„Tillagan fannst í sérsmíðuðum
umbúðum, tilbúin til sendingar út á
land þar sem átti að sýna hana.
Þangað fór hún hins vegar aldrei,
en fannst svo fyrir tilviljun 40 árum
seinna,“ segir Haukur Viktorsson
arkitekt, sem annast sýning-
arstjórn ásamt Haraldi Helgasyni
og Hilmari Þór Björnssyni.
Morgunblaðið/Sverrir
Þingvellir Skipulagstillaga sem lögð var inn í hugmyndasamkeppni í tilefni af 1100
ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1972 fannst fyrir tilviljun 40 árum síðar.
Skipulagstillagan fannst eftir 40 ár
Svanur Kristjánsson, prófessor í
stjórnmálafræði, leiðir laugardags-
fund í Grasrótarmiðstöðinni í
Brautarholti 4 kl. 13 í dag.
Erindi sitt nefnir Svanur: Var
búsáhaldabyltingin til einskis?
Fram kemur í tilkynningu að
Svanur muni fjalla um orsakir
búsáhaldabyltingarinnar og hvaða
Íslendingar tóku þátt í henni og
hverjir ekki.
Fjallað um bús-
áhaldabyltinguna
STUTT
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hópur foreldra barna í Hamraskóla
í Grafarvogi átti tvo fundi með Jóni
Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur,
síðastliðinn mánudag. Fundirnir
voru vegna fyrirhugaðrar samein-
ingar unglingadeildar og sérdeildar
einhverfra barna í Hamraskóla og
unglingadeildar Húsaskóla við
Foldaskóla næstkomandi haust.
Mikillar óánægju gætir meðal for-
eldra vegna þessarar sameiningar.
Að sögn Árna Guðmundssonar,
talsmanns foreldra í Hamraskóla,
afhentu þau borgarstjóra ályktanir
margra funda þar sem sameining-
aráformunum er hafnað. Þá voru
honum afhentar umsagnir og bók-
anir fjölmargra fagaðila, samtaka,
skólaráða, stofnana, umsagnaraðila
og fleiri þar sem áformunum er ann-
aðhvort hafnað eða varað sterklega
við að þeim verði hrundið í fram-
kvæmd nema að vel athuguðu máli
og þá í fullri sátt og samvinnu við
alla hlutaðeigandi. Lögð var áhersla
á að tilgangur og ávinningur, bæði
fjárhagslegur og faglegur, yrði að
vera verulegur til að eðlilegt væri að
fara í svo afgerandi breytingar á
grunnþjónustu heilla hverfa.
Foreldrarnir afhentu borgar-
stjóra undirskriftir foreldra allra
barna í sérdeildinni þar sem fyrir-
huguðum flutningi deildarinnar er
hafnað. Bent var á að þar væri um
mjög viðkvæmt mál að ræða og lang-
an tíma tæki að byggja upp slíka
deild á nýjum stað. Rifjað var upp að
í mars 2011 voru borgarstjóra af-
hentar um 12.000 undirskriftir sam-
takanna Börn.is þar sem sameining-
aráformunum var mótmælt.
Árni segir að borgarstjóri hafi
tekið erindinu vel, lofað að skoða
málið og margítrekað að ekki yrði
farið í sameiningu nema algjöra
nauðsyn bæri til.
„Þar sem borgaryfirvöld hafa ekki
sýnt fram á slíka nauðsyn, hvorki
faglega né fjárhagslega, og ljóst að
meginþorri foreldra og íbúa Hamra-
og Bryggjuhverfis er alfarið á móti
sameiningaráformunum hljóta for-
eldrar að álykta að borgarstjóri
grípi inn í og stöðvi málið, enda skor-
uðu foreldrar á hann að sýna það í
verki að hann væri óhefðbundinn
stjórnmálamaður sem hefði kjark til
þess,“ segir Árni.
Á fundi Hluti þeirra foreldra sem eiga börn í Hamraskóla og fóru á fund
Jóns Gnarrs borgarstjóra til að mótmæla fyrirhugaðri sameiningu.
Foreldrar fund-
uðu með Jóni
Óánægja með áform um sameiningu