Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 3. MARS 63. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Lést í bruna í Ólafsvík
2. Hún á að pakka saman og hætta
3. „Ég er orðinn öreigi“
4. „Fólk er harmi slegið“
„Heimur sem í fyrstu virðist vera
vin í eyðimörk óreglumannsins verð-
ur brátt að helvíti á jörðu,“ segir Dav-
íð Már Stefánsson m.a. um myndina
Svartur á leik sem var frumsýnd í
kvikmyndahúsum í gær. »43
Vin í eyðimörk verð-
ur helvíti á jörð
Íslensk mynd-
list verður áber-
andi á list-
kaupstefnunni
Armory Show í
New York í næstu
viku. Kastljósi er
beint að myndlist
á Norðurlöndum.
Meðal dagskrár-
liða er að Björk Guðmundsdóttir og
Ragnar Kjartansson tala um list-
sköpun sína og Hrafnhildur Arnars-
dóttir myndlistarkona, sem kallar sig
Shoplifter, verður með daglegan
gjörning á bás Nýlistasafnsins.
Björk og Ragnar á
Armory Show
Öfgarokks-
sveitin Muck
fagnar útkomu
plötu sinnar
SLAVES á Gaukn-
um í kvöld. Einnig
leika Mammút,
Sudden Weather
Change og The
Heavy Experi-
ence.
Muck heldur útgáfu-
tónleika á Gauknum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-13 og él V-til, en suðaustan 8-13 og rigning eða
slydda A-til. Hiti 0 til 5 stig S- og V-lands seinnipartinn.
Á sunnudag Suðvestan 8-13 m/s og él, en birtir til A-lands síðdegis. Frost 0 til 5 stig, en
sums staðar frostlaust við ströndina.
Á mánudag Suðvestan 8-13 m/s og él. Gengur í suðaustan 13-18 með slyddu og síðar
rigningu seinnipartinn, en þurrt að kalla NA-lands. Hiti 1 til 6 stig um kvöldið.
Grindvíkingar urðu í gærkvöldi deild-
armeistarar í úrvalsdeild karla í körfu-
knattleik, Iceland Express-deildinni,
þegar þeir unnu KR, 87:85, í hörku-
spennandi leik á heimavelli. Grindavík
er nú með 10 stiga forskot þegar fjór-
ar umferðir eru eftir. Valur tapaði fyrir
ÍR og getur þar með ekki bjargað sér
frá falli þótt liðið tæki upp á að vinna
fjóra síðustu leiki sína. »4
Grindavík meistari en
Valsmenn fallnir
Brynjar Leó Kristinsson
skíðagöngukappi stefnir
ótrauður á að keppa á vetr-
arólympíuleikunum í Rúss-
landi eftir tvö ár. Hann hefur
þegar náð lágmarki en þarf
að ná því aftur. „Það er ekkert
annað í stöðunni en að stefna
á leikana. Ef ég held rétt á
spöðunum og æfi eftir þeim
áætlunum sem þjálfarinn hef-
ur sett upp ætti það að tak-
ast,“ segir Brynjar. »2
Stefnir ótrauður á
Ólympíuleikana
Kylfingurinn Kristján Þór Einarsson
glímir við meiðsli í öxl þessa dagana,
og jafnframt bíður hann eftir fréttum
af því hvort hann fái undanþágu til að
halda áfram að spila á bandarísku há-
skólamótunum næsta vetur.
Það getur breytt fram-
tíðarplönum hans í
íþróttinni talsvert.
»1
Kristján bíður eftir
fréttum af undanþágu
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Kvenfélagið Baugur í Grímsey varð 55 ára á
dögunum og óhætt er að segja að það lifi góðu
lífi. Eflaust geta fá kvenfélög státað af jafn-
öflugu félagsstarfi.
„Við erum alltaf með fund einu sinni í mán-
uði og handavinnukvöld einu sinni í viku. Þá
erum við stundum með spilavist, helst ef það
er bræla því annars fáum við enga karla,“ seg-
ir Sigrún Þorláksdóttir, formaður Baugs. „Ég
hugsa að við séum með tíu skemmtanir yfir ár-
ið þar sem börnin eru með okkur. Þá verðum
við með Grímseyjardag 2. júní og sjóstang-
veiðimót í júlí. Á sumrin tökum við líka á móti
hópum í mat og kaffi í félagsheimilinu ef það
er pantað hjá okkur.“
Sigrún segir að kvenfélagið standi fyrir
flestum skemmtunum í eynni ásamt
Kiwanisklúbbnum sem er
fyrir karlana, en í honum
eru allir karlar í Grímsey
nema tveir. „Ef Kiwanis
gerir það ekki gerum við
það eða öfugt,“ segir
Sigrún. Það þarf ekki
að ganga á eftir kon-
unum til að taka þátt í
vinnunni sem fylgir kvenfélagsstarfinu að sögn
Sigrúnar, voðalega auðvelt sé að virkja þær.
Allar konurnar í kvenfélaginu
Í kvenfélaginu Baugi eru 25 konur starfandi
en fleiri Grímseyjarkonur sem búa í landi eru
skráðar í félagið. Sigrún segir að allar konur
búsettar í Grímsey séu í kvenfélaginu. „Aldurs-
hópurinn í félaginu er breiður, þær yngstu eru
um tvítugt en sú elsta verður áttræð í sumar.
Þær byrja stundum í félaginu sextán eða
sautján ára ef þær eru heima. Mætingin á við-
burði er líka yfirleitt mjög góð, við erum t.d.
sjaldan færri en tíu þegar við hittumst á
handavinnukvöldum, það þykir nú gott að fá
helmingsmætingu.“
Sigrún tók við formennsku í Baugi á afmæl-
inu nú í febrúar. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem hún gegnir því embætti. „Ég hef oft verið
formaður, þrisvar eða fjórum sinnum. Formað-
urinn er skyldugur til að vera í eitt ár og má
sitja lengur ef hann vill. Við reynum að hafa
formannstímabilið stutt til að virkja þær yngri
inn í starfið.“
Sigrún segir að kvenfélagsstarf hafi allt að
segja fyrir samfélagið í Grímsey. Í eynni sé
mikið félagslíf, t.d. í febrúar hafi verið þrír
stórir viðburðir, og því sé ekki í boði fyrir fé-
lagsskíta að flytja til Grímseyjar.
Baugur lifir góðu lífi
Kvenfélagið Baugur stuðlar að öflugu félagslífi allt árið um kring í Grímsey
Félagið var nefnt Baugur því heimskautsbaugurinn liggur í gegnum eyna
Félagslyndar Konurnar í Kvenfélaginu Baugi samankomnar á 55 ára afmælishátíð félagsins 24. febrúar síðastliðinn. Tuttugu og fimm konur eru virkar í
starfinu og duglegar að mæta á þá viðburði sem félagið stendur fyrir en það er meðal annars handavinnukvöld í hverri viku og fundur einu sinni í mánuði.
Kvenfélaginu Baugi hefur lítið verið ruglað
saman við hið gjaldþrota félag Baug Group.
„Kvenfélagið var nefnt Baugur því heim-
skautsbaugurinn liggur í gegnum eyna. Við
sögðum um árið að við ættum að eiga
einkarétt á þessu nafni, en það hefur enginn
verið að argast út í okkur út af neinu,“ segir
Sigrún. Hún er jafngömul kvenfélaginu,
verður 55 ára í vor og var móðir hennar
langt gengin með hana þegar kvenfélagið
var stofnað og fékk nafnið Baugur.
Sigrún segir félagið aldrei hafa verið
fjáð eins og hitt Baugsfélagið.
„Ef við eigum peninga notum við
þá til að hjálpa fólki. Gefum í
landssafnanir eða hérna heima
fyrir ef einhver á erfitt, þá reyn-
um við að styðja við það eins og
gott samfélag á að virka.“
Eftir heimskauts-
baugnum
BAUGUR OG BAUGUR