Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 42
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Lokadagur Tectonics-tónlistarhátíðarinnar er í
dag en hátíðin hófst miðvikudaginn 1. mars en þá
hleypti Sinfóníuhljómsveit Íslands þessari nýju
tónlistarhátíð af stokkunum í Hörpu. Hátíðin leið-
ir saman Sinfóníuhljómsveit Íslands og ýmsa
unga tónlistarmenn úr raf- og spunageiranum. Þá
koma fram þekktir tónlistarmenn úr heimi sam-
tímatónlistar á borð við Ástralann Iren Ambarchi
og breski píanóleikarinn John Tilbury sem er einn
af þekktari tónlistarmönnum á sviði nýrrar píanó-
tónlistar.
Tónlistarhátíðinni líkur í kvöld á Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu en þar mun meðal
annars Ghostigital og Ásgerður Júníusdóttir en
þau munu flytja verkið Indeterminacy eftir John
Cage.
„Þetta er verk sem byggist á smásögum eftir
John Cage sem eru lesnar og síðan var félagi hans
í öðru herbergi að spila tónlist og þeir heyrðu ekk-
ert hvað hvor annar var að gera og við erum með
ákveðna útfærslu á þessu verki,“ segir Einar Örn
Benediktsson tónlistarmaður. Með honum og
Ghostigital verður Ásgerður Júníusdóttir, Sig-
tryggur Baldursson og Curver sem verður með
þeim í gegnum Skype en hann er staddur í New
York. „Hrafnkell Flóki verður líka með okkur og
síðan notum við listasafnið sjálft sem er með fullt
af ranghölum og verðum í sitt hvoru herberginu
og spilum síðan öll saman og það er verkið í hnot-
skurn.“
Að sögn Einars eru sagðar 90 sögur á 90 mín-
útum og því tekur hver saga um eina mínútu.
„Mikið af verkum John Cage byggist upp á tíma
og hvert spjald á að lesast upp á mínútu og ég þarf
því að lesa hvert spjald mishratt og eða hægt.
Venjulega í gegnum Ghostigital er ég alltaf að
segja sögur svo það er gaman að fá að segja John
Cage sögur.“
Tónlistin og Sinfónían
Margir tónlistarmenn hafa beðið þess dags að
Sinfóníuhljómsveit Íslands taki höndum saman
við raf- og spunageirann og er Ásgerður Júníus-
dóttir ein af þeim. „Þetta er eitthvað sem ég er
búin að vera að gera frá 2006 og mér finnst kom-
inn tími til að sinfóníuhljómsveitin sinni þessu. Ég
er mjög ánægð með nýja hljómsveitarstjórann og
að Magnúsi Blöndal sé sýndur svona mikill heið-
ur,“ segir Ásgerður.
Sjálf mun hún loka hátíðinni með Ghostigital en
samstarf hennar og hljómsveitarinnar hefur verið
farsælt.
„Núna er það reyndar þannig að Einar Örn bað
mig um að koma og syngja með þeim en við unn-
um fyrst saman árið 2006 þegar ég fékk þá til að
útsetja verk eftir Magnús Blöndal á diskinn „Í
rökkri“ sem Smekkleysa gaf út það ár en á hon-
um er að finna heildarútgáfu á sönglögum Magn-
úsar. Þannig hófst okkar samstarf og síðan hef ég
sungið inn á nokkur lög á síðustu plötu Gho-
stigital. Þannig að við höfum starfað saman áð-
ur.“
Uppi er orðrómur um að listrænn stjórnandi
hátíðarinnar ,Ilan Volkov sem einnig er aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar,
muni spila verk eftir John Cage á kaktusa á und-
an verki Ghostigital en Ásgerður vill þó ekki gefa
neitt upp um verk Ilan Volkov og segir að fólk
verði sjálft að koma og upplifa tónverk hans og
sjá hvað hann er að gera.
Tónleikar Ghostigital spilar á Tectonics í dag.
Ghostigital lýkur Tectonics með
verki John Cage í eigin búningi
Ásgerður Júníusdóttir
syngur og Ivan Volkov
leikur á kaktus
Söngkonan Ásgerður Júníusdóttir.
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012
Florence And The Machine, The
Horrors og Arctic Monkeys fóru
heim með flest verðlaun af NME-
tónlistarhátíðinni. Florence And
The Machine vann til verðlauna
fyrir beta lag ársins og fyrir besta
tónlistarmann ársins. The Horrors
fékk verðlaun fyrir bestu plötu árs-
ins og Kasabian fyrir besta breska
bandið en þeir tileinkuðu verðlaun-
in Davy Jones söngvara The Mon-
kees.
Reuters
Söngkonan Florence á Britawards.
Florence And The
Machine sigursæl
Kiss, Queen, Faith No More, The
Blackout o.fl. frábærar hljómsveitir
munu spila á Soni-
sphere-tónlistarhátíðinni í sumar
sem fer fram 6. til 8 júlí. Að sögn
skipuleggjanda er þó ekki um
Freddie Mercury-tónleika af hálfu
Queen að ræða en aðdáendur
hljómsveitarinnar ættu þrátt fyrir
það ekki að verða fyrir vonbrigðum
með tónleikana.
Reuters
Hljómsveitin Kiss er frábær á sviði.
Stórkostlegt val
úrvalshljómsveita
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarV.J.V.
-SVARTHÖFÐI
HHHHH
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND!
VJV - SVARTHÖFÐI
HHH
SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
JOURNEY 2 3D Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4 - 6
SAFE HOUSE Sýnd kl. 8 - 10:20
SKRÍMSLI Í PARÍS Sýnd kl. 2 (750kr.) - 4
THE GREY Sýnd kl. 10:15
IRON LADY Sýnd kl. 5:50 - 8
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 2 (750kr.) - 4
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
2 óskarsverðlaun
m.a. besta leikkonan
H.S.K. -MBL
HHHH
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
Frá framleiðendum
„Drive“ kemur
hröð og spennandi
glæpamynd úr
íslenskum
veruleika
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
SVARTUR Á LEIK KL. 1 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 16
SVARTUR Á LEIK LÚXUS KL. 1 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 16
TÖFRATENINGURINN KL. 1 (TILBOÐ) - 3.10 L
HAYWIRE KL. 5.50 - 8 16
GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 12
THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.15 10
SAFE HOUSE KL. 10.10 16
SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 L
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 1 (TILBOÐ) - 3.10 L
FRÉTTABLAÐIÐ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
SVARTUR Á LEIK KL. 6 - 8 - 10 16
GHOST RIDER 2 3D KL. 10 12
HAYWIRE KL. 8 16 / SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 4 (TILBOÐ) L
THIS MEANS WAR KL. 6 14 / ALVIN 3 KL. 4 (TILBOÐ) L
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND MEÐ ÍSLENSKU TALI
FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA
FT/SVARTHÖFÐI.IS
N.R.P., BÍÓFILMAN.IS A.E.T, MORGUNBLAÐIÐ
H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
FRÁ FRAMLEIÐENDUM “DRIVE” KEMUR HRÖÐ OG SPENNANDI
GLÆPAMYND ÚR ÍSLENSKUM VERULEIKA.
SVARTHÖFÐI.IS
FRÉTTABLAÐIÐ
“HÖRKUÞÉTT, SPENNANDI OG
SKEMMTILEG!”
FRÉTTATÍMINN
„EIN BESTA ÍSLENSKA MYND SEM
KOMIÐ HEFUR Í BÍÓ UM ÁRABIL“
SVARTUR Á LEIK KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 16
TÖFRATENINGURINN KL. 3.30 (TILBOÐ) - 6 L
GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 12
THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.15 10
THE DESCENDANTS KL. 5.30 L
LISTAMAÐURINN KL. 4 (TILBOÐ) - 6 - 8 - 10 L
SKRÍMSLI Í PARÍS KL. 3.30 (TILBOÐ) L