Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 3. M A R S 2 0 1 2  Stofnað 1913  53. tölublað  100. árgangur  Komdu og smakkaðu nýtt Skyr.is Ert þú með SKYR markmið? SKYR.IS DAGAR KRINGLUNNI 3.-4. MARS • Kynning á nýju og endurbættu Skyr.is á blómatorgi Kringlunnar • Uppskriftir að ljúffengum boost drykkjum • Fimmtíu heppnir gestir vinna mánaðarbirgðir af Skyr.is • Markþjálfi frá Vendum verður á staðnum frá 14-16 báða dagana • Líttu við og fáðu aðstoð sérfræðings við að setja þér markmið og ná árangri H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA SARAH SMILEY Í ÍSLENSKA LANDSLIÐINU DANSARI BYRJAÐI Í FRJÁLSUM BIOPHILIA BJARKAR TIL BUENOS AIRES SUNNUDAGSMOGGINN NÝ NÁLGUN Í KENNSLU 45HM KVENNA ÍÞRÓTTIR  „Fyrir utan öll óþægindin og amstrið í kringum það að breyta um lyf býður þetta beinlínis upp á hættu á að meðferðin fari úr böndunum og geti jafnvel verið hættuleg. Ég ætla rétt að vona að menn sjái að sér og fresti þessu máli þar til búið er að undirbúa þetta betur. Það væri mun vænlegra fyrir alla,“ segir Karl Andersen hjartasérfræðingur um þá breyt- ingu sem gerð var á greiðsluþátttöku ríkisins á nokkrum algengum blóðþrýstings- og magalyfj- um hinn 1. mars. Breytingin var gerð vegna lækkunar Lyfís á samheitalyfjum í þessum flokkum um allt að 66%. Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Ís- lands, undrast að breytingarnar hafi verið til- kynntar nánast sama dag og þær tóku gildi. Inn- leiða þurfi breytingar sem þessar með góðum fyrirfara og í samráði við þá sem þurfa að fram- fylgja þeim, ekki síst þegar um jafnalgeng lyf er að ræða og þarna eru á ferðinni. bjb@mbl.is »6 Lyfjameðferð gæti farið úr böndunum með breytingum Þorbjörn Jónsson Biðskýlið Stoppustuð við Þjóðminjasafnið í Reykjavík kom sér vel í gær þegar gekk á með snörpum vindhviðum og rigndi eins og hellt væri úr fötu. Fólk leitaði þar skjóls og þótt á móti blési og þungt væri yfir um stund leyndi sér ekki að bjartsýnin var í fyr- irrúmi hjá mörgum vegfarendum á þessum annars góða degi enda bjartari tíð í vænd- um og ekki nema rúmur mánuður til páska. Stoppustuð veitir skjól í slagviðrinu Morgunblaðið/Kristinn Afstaða nokkurra þingmanna sem á sínum tíma samþykktu ákæru á hendur Geir H. Haarde í september 2010 hefur breyst. Sumir eru nú andvígir ákæru, enn aðrir virðast líklegir til að sitja hjá ef aftur yrðu greidd at- kvæði um slíka tillögu. „Eftir að hafa vegið og metið málið að nýju komst ég að þeirri niðurstöðu að rangt hefði verið að ákæra Geir,“ segir framsóknarmaðurinn Birkir Jón Jónsson, sem studdi ákæru 2010. Séu ummæli þingmanna, m.a. í sambandi við seinni atkvæðagreiðslur um málið, kannaðar virð- ast 32 af alls 63 þingmönnum nú vera á móti ákær- unni. »16 Meirihluti gegn ákæru  Nú virðast 32 af alls 63 þingmönnum vera á móti Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fyrrverandi háttsettir yfirmenn í einum föllnu bankanna komust að því við yfirheyrslu hjá sér- stökum saksóknara að lögreglan hafði ekki einungis beitt síma- hlustun í þágu rannsóknar held- ur einnig hlerað fundarstað þar sem þeir hittust löngu eftir efna- hagshrunið. Við yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara voru spilaðar upp- tökur úr síma til að hressa upp á minni þeirra sem verið var að yfirheyra. Svo var spurt út í til- sagði að embættið notaði öll þau úrræði sem lög um meðferð saka- mála byðu upp á. Lögin setja ákveðin skilyrði fyrir hlustun en að þeim uppfylltum er m.a. heim- ilað að hlusta á eða hljóðrita sam- töl og símtöl án þess að þeir sem í hlut eiga viti af því. Brynjar Níelsson, hrl. og for- maður Lögmannafélags Íslands, sagði það ekki hafa tíðkast á ár- um áður að beita hlustun við rannsókn meintra efnahagsbrota en sérstakur saksóknari hefði beitt því úrræði. Hlerun síma og húsnæðis hefði hins vegar verið þekkt við rannsókn meintra fíkniefnabrota. MFundur fyrrverandi »4 tekinn fund mannanna sem hald- inn var á skrifstofu í miðborginni löngu áður en yfirheyrslan fór fram. Þegar kom í ljós að viðkom- andi mundi ekki efni fundarins í smáatriðum var spiluð hljóðritun af fundinum til að hressa upp á minnið. Mennirnir höfðu brugðið sér á annan stað í húsinu til að fá sér kaffi og virtist hlustunarbúnað- urinn ekki hafa náð þangað því þeir voru spurðir sérstaklega um hvað þar var rætt. Ólafur Þór Hauksson, sérstak- ur saksóknari, kvaðst ekki geta svarað til um einstök mál en Sími og fundarstaður bankamanna hleraðir  Upptökurnar spilaðar við yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara Morgunblaðið/ÞÖK Hlustað Sími og fundur hleraðir.  Leita verður aftur til ársins 1999 til að finna sambærilegt umfang opinberra framkvæmda og ráðgert er á þessu ári, að sögn Árna Jóhanns- sonar hjá Samtökum iðnaðarins. Á Útboðsþingi í gær voru kynntar verklegar framkvæmdir upp á 42 milljarða en það er 18% samdráttur miðað við árin 2011 og 2010. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sagði að Vegagerðin hefði verið mjög gagnrýnin á nið- urskurð fjárveitinga, sérstaklega til viðhalds. »2 Opinberar framkvæmdir dragast saman á þessu ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.