Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 ✝ Sigurður Ólaf-ur Friðbjarn- arson fæddist á Ís- ólfsstöðum á Tjörnesi, 12. sept- ember 1925. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Þing- eyinga 26. febrúar 2012. Foreldrar hans voru Frið- björn Sigurðsson, f. 1883, d. 1946, og Sigríður Ólafsdóttir, f. 1893, d. 1978. Systkini Sigurðar eru: Karólína María, f. 1911, d. 1985, Aðalgeir Hjálmar, f. 1913, d. 1976, Eiður Sigmar, f. 1915, d. 1936, Hreiðar, f. 1918, d. 1981, Katrín, f. 1922, d. 1991, Arnór, f. 1927, d. 2007, Ing- ólfur, f. 1927, d. 1980 og Jóel, f. 1931. Sigurður giftist Bergljótu Bjarnadóttur 30. ágúst 1958 og eignuðust þau fjögur börn, þau eru: 1) Bjarni Sigmar, f. 30.8. 1957, giftur Vivi Nordeng, f. 30.9. 1960. Börn þeirra: Ásta Nordeng, f. 29.3. 1993, Axel Nordeng, f. 19.4. 1995, Jórunn Nordeng, f. 5.11. 2001. Áður átti Bjarni soninn Sigurð Má, f. 26.10. 1978, móðir hans Jónína Sigurðardóttir, f. 1955, maki Sigríður Inga Aðalsteinsdóttir, 17.11. 1977. Börn þeirra: Jón- ína Ása, f. 2004, Fannar Már, f. 2006, Eygló Rósa, f. 2010, d. 2010 og Tinna Ma- rikó, f. 2011. Áður átti Sigurður son- inn Benedikt Mar- inó, f. 2003, barns- móðir Herdís Jónsdóttir, f. 1981. 2) Friðbjörn Vign- ir, f. 30.1. 1959, giftist Helgu Þur- íðar Árnadóttur, f. 1966, þau skildu, börn þeirra: Berg- ljót, f. 3.7. 1986 og Sigurður Ólafur, f. 19.12. 1987, sonur hans Atli, f. 2009, barnsmóðir Ingibjörg Björnsdóttir, f. 1978. 3) Hólmfríður, f. 16.5. 1960, gift Þórólfi Aðalsteinssyni, f. 20.5. 1959, barn þeirra: Sonja Sif, f. 26.2. 1994. Börn Hólmfríðar og Jónbjarnar Pálssonar, f. 1949 eru Jóna Dagmar og Jóel Mar, f. 7.8. 1986. Synir Þórólfs af fyrra hjónabandi: Davíð, f. 13.1. 1984 og Einar Már, f. 29.6. 1987. 4) Ólafur, f. 25.7. 1963, giftur Sigurbjörgu Björns- dóttur, f. 14.9. 1966. Synir þeirra: Vignir, f. 29.12. 1990 og Björn Vilhelm, f. 29.1. 1999. Sigurður starfaði meiri hluta ævinnar sem vörubílstjóri en seinni hluta ævinnar var hann trillusjómaður. Sigurður verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju í dag, 3. mars 2012, og hefst athöfnin kl. 16. Í dag kveðjum við afa okkar og kemur þá margt upp í hug- ann. Við munum best eftir afa að brasa við bílinn eða bátinn eða almennt að stússast í bílskúrn- um. Það var ekkert sem afi gat ekki lagað eða gert við, því allt lék í höndunum á honum. Okkur fannst líka skemmtilegt þegar hann varð formlegur eldri borg- ari, þá dreif hann sig á sund- námskeið og fór eftir það dag- lega í sund og fengum við stundum að fljóta með. Hann hafði mikinn áhuga á söng og fór að syngja með Sól- seturskórnum, kór eldri borgara á Húsavík, og hafði af því mjög mikla ánægju. Við ræddum oft um tónlist og hann sýndi okkur hvaða lög hann væri að syngja í kórnum og svo hlustuðum við jafnvel á þau sömu lög í flutningi annarra kóra í gamla plötuspil- aranum hennar ömmu. Hann fylgdist vel með öllum börnum og barnabörnum og vildi alltaf vita hvað maður væri að bralla og hvernig lífið gengi hjá manni. Við munum alltaf minnast hans hlýlega. Elsku afi, takk fyrir allar góðu stundirnar. Jóna Dagmar og Sonja Sif. Ég og afi höfum brallað mikið saman síðan ég var lítill strákur. Það voru margar ferðirnar sem við fórum í kartöflugarðinn hans og oftast fékk ég að keyra síðasta spölinn þegar komið var út af malbiki. Við vorum ekkert endilega að taka upp eða setja niður heldur bara að kanna hvort allt væri með kyrrum kjörum í garðinum hans. Við fór- um ófáar ferðirnar uppá heiði og þar fékk ég að keyra um allt eins og ég vildi, þar vorum við að sniglast eftir vargfuglum og náðum oft nokkrum. Allar ferð- irnar sem við fórum á nesið í veiðiskap voru skemmtilegar og hann reyndi að kenna mér allt sem hann kunni í sambandi við veiði. Ég man eftir síðustu gæsaferðinni okkar á Ísólfsstaði og ég sá hvað hann hafði gaman af þessu þrátt fyrir að vera orð- inn vel fullorðinn og sjónin og þrekið farið að slakna. Mér fannst hann með eindæmum þol- inmóður við mig þegar hann var að kenna mér að keyra og skjóta úr byssu og allt það sem við brölluðum þegar ég var að alast upp. Það var alveg sama hvað ég gerði vitlaust, hann leiðbeindi mér hinn rólegasti og hvatti mig áfram. Takk fyrir allt sem þú kennd- ir mér, afi minn, ég mun alltaf sakna þín. Þinn afastrákur, Jóel Mar. Elsku afi minn. Ég vildi að ég væri heima á Húsavík með fjölskyldunni og gæti kvatt þig. Það er svo erfitt að vera svona langt í burtu en mig langaði svo að skoða heim- inn. Þegar ég kvaddi þig fyrir fjórum mánuðum áður en ég fór til Asíu var ég mjög hrædd um að þetta væri síðasta skiptið okkar saman en mikið óskaði ég þess að svo yrði ekki. Þú ert bú- inn að vera í huga mínum alla daga síðan. Þegar ég hugsa til baka rifj- ast upp margar góðar minningar með þér. Þú varst svo ljúfur og góður við mig og okkur barna- börnin. Það var alltaf svo gaman að fá að vera með þér í bíl- skúrnum að brasa og þér fannst alltaf gaman að hafa okkur krakkana í kringum þig. Þú varst líka svo góður á munn- hörpu og það var yndislegt að hlusta á þig spila fyrir okkur. Síðustu árin varstu svo dug- legur að hreyfa þig. Þú fórst út að ganga í hvaða veðri sem er og í sundlaugina að synda. Þótt lík- aminn hafi verið orðinn þreyttur léstu það ekki á þig fá. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar ömmu og það verður skrítið að koma heim aft- ur og það verður enginn afi til að hlæja að mér og vitleysunni í mér. Elsku afi. Þú hafðir alltaf trú á mér, studdir mig og hjálpaðir mér og fyrir það verð ég æv- inlega þakklát. Besta amma mín, pabbi minn, Siggi bróðir, Systa, Óli, Bjarni og systkinabörn, ég hugsa til ykkar og sakna ykkar mikið. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Þín sonardóttir, Bergljót Friðbjarnardóttir. Hvernig eru gæði manna mæld? Er það út frá persónu- legum metorðum í starfi, fjölda vina og kunningja, uppsafnaðri þénustu, áliti lífsins samferða- manna? Eflaust á það við um marga að skilgreina sína verð- leika útfrá einu eða fleiru af þessu ofannefndu. Og er það allt gott og blessað. Konur og menn þessa lands fara í gegnum ævi- skeiðið í stöðugri mótun og þeg- ar kemur að ævikvöldi þess ferðalags staldra margir við, líta um öxl og spyrja sig: Hvernig hefur tekist til? Eins og fjölbreytileiki manna gefur tilefni til eru svörin við þessari spurningu óteljandi. Ég og afi ferðuðumst saman á síð- asta þriðjungi ævi hans. Lífsbar- átta milli- og eftirstríðsáranna að baki. Sömuleiðis tímabili stofnunar fjölskyldu með þartil- heyrandi kapphlaupi uppeldis, húsabyggingu og vinnu myrkra á milli. Með allt þetta að baki hafði afi tíma. Og ómælda þol- inmæði fyrir stubb með ógrynni spurninga. Og það er einmitt þessi tími og þolinmæði sem sjaldan er fyrir hendi hjá for- eldrum, sem keppast við skaffa fóður á borð, þak yfir kolla ásamt öllu því öðru sem til þarf. Foreldrar leggja grunn að mót- un og uppeldi einstaklings og leggja línur í þær áttir sem rétt- ast þykir hverju sinni. Það sem einstaklingar eins og afi leggja á vogina er afgangurinn. Afgang- ur í jákvæðum skilningi. Það er afgangs tími, þolinmæði, friður og ró sem lagt er í litlar sálir og hægt og rólega ýta mótun barna í rétta átt. Það voru ómældar stundir af afgangs tíma hjá okkur afa á þessum árum. Gönguferðir í fjöru. Dytta að Brandinum. Fella rauðmaganet á köldum vetrardögum. Tína kríuegg í júní. Hyggja að rjúpnaungum á heiði. Listinn er endalaus. Og alltaf sama róin og nægur tími, næg þolinmæði. Og saga með, alltaf saga með. Sögur um menn og konur, dýr, stórviðri, aflaskip og sjóferðir. Lífsreglur voru oft á döfinni líka, góð ráð. Hvað ber að gera og hvað ekki. Af hverju svona en ekki hinsegin? Og allt- af nægur tími. Sú lífsregla sem stendur uppúr fjöldanum og mun aldrei gleymast var kynnt til sögunnar kvöldið fyrir fyrstu sumardvölina í sveit. Hef senni- lega verið sjö ára og fékk marg- ar línur lagðar þetta kvöld og þessa síðasta: Og mundu að borða allt uppí skít. Það hef ég gert ætíð síðan. Að mínu mati endurspeglast gæði manna í afkomendunum. Stór og föngulegur hópur fólks fullur af gæðum heldur áfram för berandi vitni um verðleika forfeðranna. Tíminn sem við afi áttum saman mun alltaf eiga vissan sess í huga og hjarta. Gæska og einlægni. Seigla og þolinmæði. Viska á margan hátt. Gæði. Takk fyrir þig, afi. Sigurður Már Bjarnason. Sigurður Ólafur Friðbjarnarson ✝ Þökkum innilega hlýhug, samúð og vináttu okkur sýnda við andlát og útför eiginmanns míns, föður og afa, HILMARS BJÖRNSSONAR. Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu í Kópavogi fyrir hjálpina sl. mánuði. Marie Bögeskov, Emilía María Hilmarsdóttir, Björn Elíasson, Björn Bögeskov Hilmarsson,Ólöf Ævarsdóttir, Hjördís Hilmarsdóttir, Tryggvi Rúnar Guðmundsson, Hilmar, Rakel, Anton, María, Kristbjörg, Elísa og Guðrún. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru dóttur, systur, mágkonu og frænku, VILHELMÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Sléttuvegi 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir til heimaaðhlynningar og heimahjúkrunar á Sléttuvegi 7, Oddshúsi. Einnig til starfsfólks Ferðaþjónustu fatlaðra Reykjavík. Guðmundur Ottósson, Anna Þóra Sigurþórsdóttir, Grétar Karlsson, Ólöf Ólafsdóttir og frændsystkini. ✝ Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát BJARNA ÞÓRÐARSONAR tryggingastærðfræðings. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 11 B og 11 G á Landspítalanum við Hringbraut. Kristín Guðmundsdóttir, Þórdís Bjarnadóttir, Dagur Jónsson, Hildur Bjarnadóttir, Hjörtur Hjartarson, Valgerður Bjarnadóttir, Þórhallur Ágústsson, Vera, Vaka og Vala, Úlla, Bjarni Orvar og Breki, Kristín Ísold og Ágúst Atli, Viðar Þórðarson, Jóhannes Þórðarson, Þóra Vala Þórðardóttir. ✝ Þökkum innilega hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra eigin- manns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR húsasmíðameistara frá Hellissandi, Sóleyjarrima 7, sem andaðist þriðjudaginn 14. febrúar. Þorbjörg Gísladóttir, Gísli Guðmundsson, Margrét Geirsdóttir, Magnús Guðmundsson, Þórunn Sveinsdóttir, Elín S. Guðmundsdóttir, Freygarður Þorsteinsson, Jón H. Guðmundsson, Hanna Antonsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega fyrir samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, KATRÍNAR JÓNSDÓTTUR, Brekkubyggð 61, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Land- spítalans Landakoti og hjúkrunarfræðingum hjá heimahjúkrun Garðabæjar fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Ásgeir Örvarr Jóhannsson, Hanna Lilja Jóhannsdóttir, Lúðvík Örn Steinarsson, Hjördís Hildur Jóhannsdóttir, Ellert Kristófer Schram og ömmubörn. Sigríður Jónsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Gunnhildur Jónsdóttir, Gunnar M. Hansson, Þórarinn Jónsson, Anna Kristín Þórðardóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er með margvíslegu móti veittu okkur stuðning og sýndu okkur samúð og vinarhug með blómum, skeytum, samúðarkortum og gjöfum við fráfall ÁSTU BJARNADÓTTUR, Strikinu 2, Garðabæ. Sérstakar þakkir eru hér fluttar Jóni Hrafnkelssyni, lækni, hjúkrunarfræðingum hjá Karitas og starfsliði líknardeildar Landspítalans í Kópavogi, er önnuðust hana með miklum kærleikshug í veikindum hennar. Blessun Guðs fylgi ykkur öllum. Guðmundur Þorsteinsson og fjölskylda. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HJARTAR ÁRNASONAR stýrimanns, Bakkabakka 4a, Neskaupstað. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Fjórðungssjúkrahúsins í Neskaupstað fyrir einstaka hlýju og umönnun. Bjarni Jóhannsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Gyða María Hjartardóttir, Jóhann G. Kristinsson, Lára Hjartardóttir, Sigurður Indriðason, Kristinn Vilhjálmur, Sigurbjörg, Brynja, Bryndís, Hjörtur Árni, Guðmundur, Sigurbergur, Arna Lind og Jökull. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og réttu fram hjálparhönd við andlát og jarðarför VALDEMARS GUNNARSSONAR mjólkurfræðings, Kjarnagötu 14, Akureyri, sem lést þann 27. janúar síðastliðinn. Brit Mari Gunnarsson, Kristín Irene Valdemarsdóttir, Jón Marinó Sævarsson, Bryndís Elfa Valdemarsdóttir, Jón Birgir Gunnlaugsson, Berglind Mari Valdemarsdóttir, Sverrir Ásgeirsson og barnabörn. ✝ Þökkum innilega samúð og vínáttu við andlát og útför SIGRÍÐAR ÞORKELSDÓTTUR, Diddu, Lindargötu 33. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Eirar. Brynja R. Guðmundsdóttir, Hafsteinn Skúlason, Elín Guðmundsdóttir, Magnús Jóhannsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.