Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Fyrir Alþingi liggur fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2022, á þskj. 418, þingmál 342. Í henni koma fram helstu stefnumið ríkisins og markmið í málaflokkn- um fyrir komandi ár. Það vekur strax athygli hversu varlega er stigið til jarðar. Svo virðist sem landshlutar utan þjónustusvæðis Gagnaveitu Reykja- víkur eigi bara að fá notendaþjónustu (heimilisþjónustu) á netinu á kom- andi áratug. Engin nútíma starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins? Fram kemur að áætlunin á að tryggja 99% heimila og vinnustaða 100 Mb/sek netafköst á árinu 2022 (sem þýðir reyndar að allt að 1.000 heimili verða með 30 Mb samband). Það kann að nægja fyrir heimili sem ekki hafa mikinn áhuga á netvæð- ingu, en í töflu 1 er raunverulegum þörfum ólíkra notendahópa stillt upp. Netafköst samkvæmt áætluninni eru heilli stærðargráðu of lítil til að geta mætt þörfum stórnotenda, svo sem vísinda- og fræðimanna, kvik- myndagerðarmanna og annarra lista- manna. Hún er enn annarri stærð- argráðu frá þörfum háskóla og stórra vinnustaða og þjónustuaðila sem vilja stunda viðskipti og kennslu á netinu. Þá eru þessi markmið mörgum stærðargráðum frá þeim afköstum sem þarf til þess að gagnaver geti starfað í landshlutum þar sem orka verður nýtt fyrir starfsemi í heima- byggð. Enginn þeirra not- enda, sem hér eru nefndir, getur því búið eða starfað nema á suð- vesturhorninu á næstu 10 árum samkvæmt áætluninni. Háleit markmið ríkisins, sem eru að „stuðla að at- vinnuuppbyggingu, bættum lífskjörum og jákvæðri byggðaþró- un“ í landinu, eru því í mótsögn við raunveru- legt innihald áætlunar- innar. Meðalafköst á netinu eru þegar verulega lakari á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum samkvæmt al- þjóðlegri tölfræði eða álíka og í Ung- verjalandi skv. Akamai og sýnu lakari skv. raunmælingum Pando í sept. 2011 eða rétt yfir heimsmeðaltali. Ljósleiðarar eru næstu jarðgöng Kjarni málsins er sá að byggðin austan, vestan og norðan þjón- ustusvæðis Gagnaveitu Reykjavíkur á sér fá sóknarfæri í framtíðinni ef ekki eru lagðir nýjar þjóðbrautir netsins til hennar. Leggja þarf fjóra hringi, einn hring um landið, annan um Vestfirði, um Snæfellsnes og um Reykjanes. Í slíkri framkvæmd skiptir ekki höfuðmáli hversu margir strengirnir eru, en þeir ættu að vera þúsundir, heldur er meginkostnaður- inn við plæginguna, brunna og sam- setningar. Gróf áætlun um kostnað er 5-7 milljarðar. Kostnaðurinn er kannski svipaður og við jarðgöng eða ferju. Margt bendir til þess að hag- kvæmni í net- og tölvurekstri kalli á stækkandi einingar í framtíðinni. Stjórnvöld gætu þurft að koma sér upp stjórnsýsluneti annars vegar og sveitarstjórnarneti hins vegar til að aðstoða litlar rekstrareiningar við að verjast hættum netsins. Svipað gæti atvinnulífið þurft að gera. Til þess þarf ljósleiðara um allt land. Net í almannaeigu Í nágrannaríkjunum eru það gjarnan rafveitur sem eru reknar af sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum sem fjárfesta í ljósleiðara. Smásalan inn á netið er svo í annarra höndum og stundum í samkeppni. Hlutverk opinberra aðila eru með- al annars að auka jöfnuð og jafna tækifæri. Það er meginröksemdin fyrir aðkomu þeirra. Þeir eiga líka að auka öryggi og vernd og vinna að sameiginlegum hagsmunum þjóð- arinnar. Í þessu skyni hafa stjórnvöld komið sér upp vegakerfi, vita- og hafnakerfi, veitukerfum fyrir raf- magn, vatn- og fráveitu, sundlaugum og símakerfum. Um allt landið. Nú er komið að næsta stórverkefni og þó að mörgum kunni að þykja það kostnaðarsamt þá má nefna að kostn- aður við sum eldri kerfin var mikið meiri í upphafi. Fjármögnun og rekstur Stofnanir eins og jöfnunarsjóður sveitarfélaga, ríkissjóður og fleiri ættu að koma að verkinu. Þá má benda á að IPA-styrkir Evrópusam- bandsins eru ætlaðir fyrir eflingu innri kerfa á Íslandi og sátt gæti myndast um að nýta þá í þetta verk- efni. Enginn vafi er á því að slíkt mann- virki fyrir allt landið yrði að vera í samfélagslegri eigu og rekstrarformi eða með samningi við einkaaðila um rekstur. Við höfum þegar reynslu af því að náttúrleg einokun kemur upp eftir einkavæðingu aðalsam- skiptaneta og að einokunaraðilar halda verði á þjónustu háu. Sam- keppnissjónarmið ættu ekki að stöðva opinbera aðila, því NATO-strengirnir eru löngu sokkinn kostnaður og þeir aðilar sem grunnnetin voru einka- vædd til eiga allar heimtaugar í land- inu og fá því stórkostleg markaðs- tækifæri með nýjum ljósleiðurum, því þá geta þeir veitt sömu verðmætu þjónustuna til allra landsmanna. Önnur sjónarmið gætu gilt um net- rekstur innan sveitarfélaga, víða gæti myndast samkeppni um hann. Lokaorð Ljósleiðarar eru nú lagðir til allra byggðarlaga í okkar heimshluta. Þeir eru grundvöllur aukins vaxtar í at- vinnulífinu, aukinna mennt- unartilboða og nútímalegs lífs. Þeir jafna tækifæri fyrir byggð og at- vinnulíf og gefa ungu fólki, opinber- um aðilum og atvinnulífi raunveru- lega valkosti um búsetu og uppbyggingu, sem ekki eru fyrir hendi eins og er. Eftir Hauk Arnþórsson »Líkur eru á því að til- laga að fjarskipta- áætlun þýði að netafköst utan veitusvæðis Gagna- veitu Reykjavíkur mæti aðeins þörfum heim- ilisnota næstu tíu ár. Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Raunverulegar þarfir fyrir afköst Flokkun notenda Mismunandi þarfir fyrir aðgengi Afkastakröfur Almenningur og heimili Ekki aðgangur að ljósleiðara 100 Mb – 2 Gb/s. Stórnotendur (sérfræðingar, Aðgangur að ljósleiðara 2 – 10 Gb/s. listamenn og vísindafólk) Þjónustuaðili (atvinnulíf, Aðgangur að ljósleiðara 10 – 100 Gb/s. háskólar) Stór þjónustuaðili (gagnaver) Aðgangur að ljósleiðara. Nánast Þúsundir Gb/s. endalausir stækkunarmöguleikar Ljósleiðarar um Ísland gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn 151 151 Eftir þínu höfði Þú hannar Coffee sófann sjálf/ur, allt frá formi og stærð upp í stífleika. Þú velur sætaeiningar, arma og fætur. Að lokum velur þú áklæði eða leður í þeim lit og áferð sem falla að þínum óskum og smekk. Komdu við í verslun okkar og byggðu draumasófann þinn. Möguleikarnir eru nær óendanlegir frábært úrval áklæða í ýmsum litum Bæjarlind 16 Kópavogur S: 553 7100 www.linan.is Opið mán - fös 12 - 18 lau 11 - 16 arma fætur áklæði eða leður sætaeiningar þú velur... hannaðu þinn eigin sófa Coffee leður í mörgum litum og gæða- flokkum í boði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.