Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012
Fæst með hægri
! !!
157.921.-
# $
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Þetta gerist nánast á einum góðum
klukkutíma,“ segir Þorvaldur Jó-
hannsson, stjórnarformaður Holl-
vinasamtaka Sjúkrahúss Seyð-
isfjarðar (HSSS), en hinn 28.
febrúar síðastliðinn, klukkan 18:45,
fékk Þorvaldur tölvupóst frá Rúnari
Reynissyni, yfirlækni á Sjúkrahúsi
Seyðisfjarðar, þar sem stóð: „Bráð-
vantar 1 stk. rafdrifið hjúkr-
unarrúm á stofnunina, fyrir 61 árs
Seyðfirðing sem fékk heilablóðfall
og er lamaður öðrum megin. Gætu
Hollvinasamtökin hlaupið undir
bagga?“
Klukkan 19:45 sama kvöld sendi
Þorvaldur póst á stjórn HSSS þar
sem hann óskaði eftir samþykki
hennar til þess að fjárfesta í nýju
rúmi sem kostaði um 470 þúsund
krónur. Sautján mínútum síðar,
klukkan 20:02, sendi síðan Þorvald-
ur svohljóðandi tölvupóst til baka
á Rúnar: „Sæll Rúnar: Þú pantar
rúmið og gengur frá greiðslu o.fl.
sem til þarf.“
Í gær barst síðan sjúklingnum
rúmið, en um er að ræða nýtt raf-
drifið hjúkrunarrúm. Að sögn Þor-
valds var rúmið sent frá
Reykjavík til Seyðisfjarðar
með flutningabíl en engin
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Fyrir liggur að 18% samdráttur
verði á opinberum framkvæmdum
á árinu en á árlegu Útboðsþingi í
gær voru kynntar verklegar fram-
kvæmdir að upphæð 42 milljarðar
króna, samanborið við 51 milljarð
króna árið á undan.
Meðal stærstu verkkaupa ársins
verður Reykjavíkurborg en hjá
henni eru ráðgerðar framkvæmdir
fyrir um 8,8 milljarða króna. Þá
ráðgerir Framkvæmdasýsla ríkis-
ins framkvæmdir á vegum ráðu-
neytanna fyrir um 7,8 milljarða
króna.
„Undanfarin tvö ár hefur komist
á ákveðið jafnvægi í opinberum
framkvæmdum þar sem boðið var
út fyrir um 50 milljarða, bæði 2010
og 2011. Nú verða þetta 42 millj-
arðar og við þurfum að leita aftur
til ársins 1999 til að finna sam-
bærilega tölu,“ segir Árni Jó-
hannsson, forstöðumaður mann-
virkjasviðs Samtaka iðnaðarins.
Innviðir í hættu
Árni segir það ljós í myrkrinu að
svo virðist sem almenni bygginga-
markaðurinn sé að taka við sér en
það sé áhyggjuefni að varla fáist
fjármagn til að sinna nauðsynlegu
viðhaldi á vegum hins opinbera.
„Ef við göngum svo hart fram í
niðurskurði að við getum ekki
sinnt viðhaldi þá eru allar fjár-
festingar í innviðum í hættu. Ég
óttast til dæmis að ef lengra verð-
ur gengið í þessu hjá Vegagerð-
inni og Orkuveitunni muni það
kosta okkur meira til lengri tíma
litið en að sinna nauðsynlegu við-
haldi núna,“ segir hann.
Kostnaðarsamt til lengri tíma
Fjárveitingar til Vegagerðar-
innar fyrir árið 2012 nema tæpum
16 milljörðum en þar af eru sex
milljarðar ætlaðir í nýfram-
kvæmdir og 4,6 milljarðar í við-
hald.
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri tekur undir þær áhyggjur að
of litlu sé ráðstafað í viðhalds-
aðgerðir.
„Við höfum verið mjög gagn-
rýnin á þennan niðurskurð fjár-
veitinga, sérstaklega í viðhaldið.
Hann kemur illa við reksturinn á
kerfinu og þótt það sé vissulega
mjög gott að fá meira fjármagn í
nýja vegi erum við mun viðkvæm-
ari fyrir því að það sé skorið niður
í viðhaldinu. Þetta mun kosta okk-
ur mikið á næstu árum því það
sem er búið að byggja upp er fljótt
að skemmast og eyðileggjast ef við
fáum ekki að halda því við,“ segir
hann.
18% samdráttur í framkvæmdum
42 milljarðar áætlaðir í verklegar framkvæmdir á vegum hins opinbera á árinu, samanborið við 51
milljarð 2011 Áhyggjuefni hversu litlu á að verja til viðhaldsframkvæmda Verður dýrt seinna
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Minna fjármagn Samdrátturinn
kemur líka niður á viðhaldi.
„Þessi litlu samfélög, þau eiga náttúrlega undir högg að sækja, hér fækk-
ar mikið fólki og við urðum aldrei mikið vör við þessa þenslu sem var í
gangi þannig að þetta fór svona svolítið framhjá okkur, en þegar
svona hlutir koma upp eru allir boðnir og búnir að stökkva til og
bjarga málunum,“ segir Þorvaldur og bætir við:
„Þess vegna var þetta gott dæmi um það hvernig hugarfarið
er úti á landi á meðan allt virðist taka eitthvað svo óskaplega
langan tíma alls staðar annars staðar.“ Að sögn hans skipta
stuttar boðleiðir hér máli og einnig hvað hægt er að gera þegar
hugur fylgir máli og menn standa þétt saman. „Mér finnst við
þurfa að koma okkur upp úr þessum hjólförum, vera góð
hvert við annað og hugsa kannski með jákvæðara
hugarfari um hlutina,“ segir Þorvaldur.
Allir tilbúnir til þess að hjálpa
GOTT DÆMI UM HUGARFARIÐ ÚTI Á LANDI
Þorvaldur
Jóhannsson
byggð á Íslandi er jafnlangt frá höf-
uðborginni og Seyðisfjörður.
Veita styrki á hverju ári
„Það kom þarna upp bráðatilfelli.
Sextugur Seyðfirðingur verður fyrir
því að fá heilablóðfall og hann lam-
ast og það þarf að koma honum fyrir
en þá er ekkert svona þægilegt rúm
fyrir starfsfólkið til þess að hafa
hann í,“ segir Þorvaldur og bætir við
að þá hafi Rúnar, sem jafnframt er
gjaldkeri HSSS, farið strax að skoða
rúm, það hafi verið til í Reykjavík og
þeir hafi því fjárfest í rúminu og beð-
ið um að fá það sent í hvelli austur.
Hollvinasamtökin eru einungis
fjögurra ára gömul en þau hafa þó
verið dugleg við að styrkja sjúkra-
húsið á Seyðisfirði á hverju ári. Að
sögn Þorvalds hafa HSSS keypt
búnað fyrir tæpar 18 milljónir á
þessum fjórum árum og gefið stofn-
uninni en þar er m.a. rekin 13 manna
lokuð Alzheimer-deild sem þjónar
Austurlandi.
Ljósmynd/Ólafur Sveinbjörnsson
Rúm Sjúkraliðarnir Stefanía Stefánsdóttir (t.v.) og Ragnhildur Billa Árnadóttir (t.h.) ásamt nýja sjúkrarúminu.
Hröð viðbrögð á
landsbyggðinni
Hollvinasamtök útveguðu HSA nýtt rúm á mettíma
Maður fórst í eldsvoða í Ólafsvík í
fyrrinótt. Hann hét Theódór Árni
Emanúelsson og var 38 ára. Theódór
heitinn var einhleypur og barnlaus.
Íbúi í nágrenninu varð var elds í
húsinu, sem er lítið einbýlishús, og
lét lögreglu vita. Slökkvilið Snæfells-
bæjar fékk tilkynningu um eldinn
um klukkan 02.20. Að sögn lögregl-
unnar var lítill eldur í íbúðinni en
gríðarlegur hiti og húsið fullt af
reyk. Tveir reykkafarar fóru inn í
húsið og fundu manninn meðvitund-
arlausan. Hann bjó einn í húsinu.
Kallað var eftir lækni og björgun-
arþyrlu. Lífgunartilraunir á staðn-
um báru ekki
árangur. Maður-
inn var fluttur á
heilsugæslustöð-
ina og þar var
hann úrskurðað-
ur látinn.
Fólk var harmi
slegið í Ólafsvík
vegna slyssins, að
sögn sóknar-
prestsins. Bæna-
stund var haldin á vinnustað Theó-
dórs heitins í gær. Tæknideild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
rannsakar eldsupptök. gudni@mbl.is
Maður fórst í elds-
voða í Ólafsvík
Mikill hiti og reykur var í húsinu
Theódór Árni
Emanúelsson
Slökkvilið bjargaði meðvitundar-
lausum manni úr brennandi íbúð í
fjölbýlishúsi við Tungusel í Reykja-
vík í fyrrinótt. Maðurinn liggur
þungt haldinn á gjörgæsludeild
Landspítalans og er haldið sofandi
samkvæmt upplýsingum læknis þar í
gærkvöldi. Annar íbúi í íbúðinni
komst hins vegar út úr henni af eigin
rammleik og fékk að fara heim af
sjúkrahúsi í fyrrinótt að lokinni
skoðun.
Mikill eldur var og þurfti að rýma
stigaganginn þar sem eldurinn
kviknaði og þann næsta við hliðina.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út
og þar sem rýma þurfti margar íbúð-
ir var fjöldahjálparlið Rauða kross-
ins kallað út og strætisvagni ekið á
staðinn.
Eldurinn kviknaði í íbúð á þriðju
hæð hússins og barst slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins tilkynning um
eldinn klukkan 1.14 í fyrrinótt.
Þungt haldinn eftir
bruna í Breiðholti