Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Sýning Blaðaljósmyndarafélags Ís- lands á bestu myndum ársins 2011 verður opnuð í Gerðarsafni í Kópa- vogi í dag klukkan 15. Haraldur Guðjónsson sýningar- stjóri segir sýninguna með nýju sniði í ár. Nú séu myndirnar færri og stærri og hverri mynd gefið betra rými. Dómnefnd valdi mynd- irnar úr um eitt þúsund innsendum myndum frá yfir 30 blaðaljósmynd- urum helstu útgáfumiðla landsins. Sýningin er í raun yfirlit á mynd- máli yfir viðburði ársins á öllum sviðum þjóðlífsins, fréttamyndir, portrettmyndir, íþróttamyndir og fleiri. Þá eru sýnd bestu myndskeið ársins 2011 frá átta tökumönnum. Sérstök sýning er á myndum Har- aldar Þórs Stefánssonar sem birtir annan vinkil á blaðaljósmyndir. Haraldur segir sýninguna í heild vera sannkallaða ljósmyndaveislu. Blaðaljósmyndarafélagið gefur jafnframt út bók með bestu mynd- um ársins. Í bókinni eru myndir sýningarinnar auk um hundrað mynda sem Þorkell Þorkelsson, rit- stjóri bókarinnar, valdi úr inn- sendum myndum. Hengt upp Haraldur Guðjónsson og Rakel Ósk Sigurðardóttir, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands. Bestu myndir ársins sýndar BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is Landsdómur kemur saman næstkom- andi mánudag klukkan 9:00 en þá hefst aðalmeðferð í máli Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra. Gerðar hafa verið tvær manna- breytingar á dóminum en þeir Helgi I. Jónsson, dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Gunnlaugur Claes- sen hæstaréttardómari munu víkja sæti. Ástæðurnar fyrir þessum manna- breytingum eru tvíþættar. Annars vegar er Helgi tímabundið settur hæstaréttardóm- ari og því tekur Eggert Óskars- son, settur dóm- stjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, við sæti Helga sem dómari í lands- dómi. Hinsvegar er Gunnlaugur Cla- essen kominn í veikindafrí og því tek- ur Eiríkur Tómasson, nýskipaður hæstaréttardómari, við hans sæti í landsdómi. Telur sig hæfan Athygli vekur að Eiríkur, sem skip- aður var dómari við Hæstarétt frá og með 1. september síðastliðnum, taki sæti sem dómari við landsdóm enda er kveðið á um í a. lið 2. gr. laga nr. 3/ 1963 um landsdóm að á meðal þeirra 15 dómara sem eigi sæti í landsdómi séu þeir fimm dómarar sem lengst hafa átt sæti við Hæstarétt. „Það eru tveir dómarar sem eru eldri en ég að embættisaldri sem ekki hafa tekið sæti í dómnum, þeir Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þor- valdsson,“ segir Eiríkur spurður út í aldursröðina. Fyrir tæpum 8 árum, eða síðla árs 2004, gagnrýndi Eiríkur harðlega skipan Jóns Steinars í embætti hæsta- réttardómara, en Eiríkur, sem hafði þá einnig sótt um starfið, var ásamt Stefáni Má Stefánssyni lagaprófessor talinn hæfastur i embættið af Hæsta- rétti. Geir H. Haarde skipaði Jón Steinar í embættið en hann var á þeim tíma settur dómsmálaráðherra. „Ég tel þessa ákvörðun setts dóms- málaráðherra gagnrýnisverða þar sem ráðherra dómsmála hefur nú tví- vegis gengið gegn tillögu Hæstarétt- ar um skipun hæstaréttardómara,“ sagði Eiríkur m.a. í viðtali við mbl.is þann 29. september árið 2004. Aðspurður hvort hann telji þetta ekki hafa áhrif á hæfi sitt sem dómari við landsdóm í máli Geirs segir Eirík- ur: „Nei, ég tel að svo sé ekki, það voru nú þónokkuð fleiri umsækjend- ur á þessum tíma ef ég man rétt, þannig að það hefur engin áhrif á mitt hæfi. Það væri nú orðið ansi langt gengið ef að það ætti að vera þannig.“ Eiríkur bendir einnig á að verjanda Geirs hafi gefist kostur á að gera at- hugasemdir við hæfi sitt en það hafi hann ekki gert. Eiríkur tekur þó fram að hann hafi velt þessari spurningu fyrir sér. „Ég auðvitað velti því fyrir mér þegar að þetta kom til álita og ég sá ekkert sem að gerði mig vanhæfan, auðvitað kannast ég við Geir og hef gert í nokkuð langan tíma en það er nú eins örugglega með ýmsa þá sem eru dómarar í þessum dómi, í þessu litla landi þá þekkjast menn nú og vita deili hver á öðrum,“ segir Eiríkur. Efast ekki um hæfi Eiríks „Ég held að það geri menn form- lega ekkert vanhæfa þó að þeir hafi ekki fengið eitthvert embætti sem jafnvel margir sækja um og einn fær að lokum, enda var væntanlega eðli- lega að þessu staðið og annars væri maður að lýsa því yfir að það hefði verið eitthvað óeðlilegt,“ segir Andri Árnason, hæstaréttarlögmaður og verjandi Geirs, og bætir við: „Við höfum allavega tekið þá af- stöðu að við teljum að það eigi ekki við nein vanhæfissjónarmið varðandi Eirík, hvorki út af þessu né öðru.“ Mannabreytingar í landsdómi  Eiríkur Tómasson telur sig hæfan þrátt fyrir fyrri gagnrýni sína á störf Geirs H. Haarde  Verjandi Geirs gerir ekki athugasemdir við hæfi Eiríks  Landsdómur kemur saman á mánudag Morgunblaðið/Golli Aðalmeðferð Landsdómur kemur saman næstkomandi mánudagsmorgun en þá hefst aðalmeðferð í máli Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. „Um helmingur af dómurum rétt- arins er í landsdómi og það hefur þau áhrif þá að það eru um helm- ingi færri mál sem eru flutt á með- an,“ segir Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri Hæstaréttar, spurður hvaða áhrif seta hæsta- réttardómara í Landsdómi hefur á starfsemi Hæstaréttar Íslands. Að sögn Þorsteins verða mjög fá mál tekin fyrir á þessu tímabili sem dæmd eru af fimm dómurum en þó verði einhver slík mál tekin fyrir. Í einstaka málum dæma sjö dómarar mál fyrir Hæstarétti. Að- spurður hvort hægt verði að taka fyrir slík mál meðan Landsdómur er að störfum segir Þorsteinn: „Ef sex dómarar væru forfallaðir þá yrði kallaður til varadómari ef á þyrfti að halda.“ Spurður hvort ekki sé erfitt að skipuleggja starfsemi dómstólsins við þessar aðstæður segir Þor- steinn að svo sé ekki. „Það er ekk- ert vandamál að skipuleggja þetta. Við vissum af því fyrirfram að það yrðu þetta margir dómarar í burtu í ákveðinn tíma og við miðum skipulagið við það,“ segir Þorsteinn en hann bendir einn- ig á að þinghöld- um á viku fækki í samræmi við þann fjölda dómara sem er fjarverandi. Fá fimm manna mál tekin fyrir HELMINGI FÆRRI MÁL FLUTT FYRIR HÆSTARÉTTI Á MEÐAN Þorsteinn A Jónsson Eiríkur Tómasson Ármúla 38 Sími 588 5011 Verð: 93 800 Staðgreitt: 69 900 FIMM LITIR Gjöf?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.