Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
www.golfkortid.is
Einstaklingskort
9.000 kr.
Fjölskyldukort
14.000 kr.
golfvöllur
- eitt kort31
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
BAKSVIÐ
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Það er ekkert óeðlilegt að sveitar-
félag geri leigusamning á jörð við
leigutaka til fjörutíu ára. En það
verður að kveða skýrt á í samningi
hvað gerist eftir þessi fjörutíu ár
varðandi uppbygginguna á staðnum
og til hvers hann er að taka landið á
leigu,“ segir Óskar Páll Óskarsson
lögfræðingur hjá sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu.
Á ríkisjörðum getur
verið lífstíðarábúð
Svo gæti farið að jörðin Gríms-
staðir á Fjöllum verði leigð Huang
Nubo til fjörutíu ára. Verið er að
skoða hvort sveitarfélög á Norður-
og Austurlandi kaupi ríflega 70%
hlut í jörðinni og leigi hana til félags
í eigu Huangs. „Á ríkisjörðum getur
verið lífstíðarábúð ábúenda. Fjöru-
tíu ára leigutími er mjög eðlilegur
miðað við að leigutakinn ætlar að
byggja staðinn upp,“ segir Óskar.
Í lögum um frístundabyggð og
leigu lóða undir frístundahús kemur
fram að óheimilt er að gera tíma-
bundinn leigusamning um lóð undir
frístundahús til skemmri tíma en 20
ára. Að loknum þeim tíma er ávallt
hægt að semja um áframhaldandi
leigu. Óskar segir að leigusamn-
ingar varðandi frístundalóðir séu
oft gerðir til 40 til 50 ára. Annað
gildi um leigu á hlunnindum eins og
laxveiðiám. Þær séu yfirleitt leigðar
til skamms tíma vegna ákvæða í 8.
gr. jarðalaga um að taka hlunnindi
ekki frá jörðum.
Sérstakt samkomulag
Huang hyggur á mikla uppbygg-
ingu á Grímsstöðum. Þar sem hann
gerir leigusamning gilda ábúðarlög
ekki í hans tilfelli. Því þarf að taka
skýrt fram í leigusamningnum
hvert framhaldið verður eftir fjöru-
tíu ár, hvort leigan verður fram-
lengd eða jarðareigandinn kaupi
það sem Huang hefur byggt upp á
staðnum.
Bergur Elías Ágústsson bæjar-
stjóri Norðurþings segir að gert
verði sérstakt samkomulag í leigu-
samningnum um svæðið, um um-
gengnina um landið og hvernig því
verður skilað í lok leigutímans.
„Verkefnið skiptist í tvo
hluta; annars vegar þessar fjár-
festingar og veitingu ívilnana
sem viðkemur okkur ekki í
sjálfu sér. Hins vegar
sjálfa uppbygginguna,
leiguna og landið og
það verður á milli
okkar og félags Hu-
angs.“
Ekki óeðlilegt að
semja til 40 ára
Ábúðarlög gilda ekki í tilfelli Grímsstaða og Huangs
Ljósmynd/Birkir Fanndal
Grímsstaðir á Fjöllum Það skýrist væntanlega á næstu dögum hvort Huang Nubo leigir jörðina til fjörutíu ára.
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
„Ég lýsti því yfir á fundinum að
þetta væri alvarlegasta milliríkja-
deila sem við hefðum átt í síðan við
lok þorskastríð-
anna,“ sagði Ein-
ar K. Guðfinns-
son, fyrrverandi
sjávarútvegsráð-
herra, sem ræddi
makríldeiluna á
fundi með fulltrú-
um úr sjávarút-
vegsnefnd Evr-
ópusambandsins.
Nefndin átti í
gær fund með
atvinnuveganefnd Alþingis. Á fund-
inum voru aðallega tvö mál til um-
ræðu, endurskoðun sjávarútvegs-
stefnu ESB og makríldeilan.
Einar sagði að það hefði komið
greinilega fram á fundinum að það
væri ágreiningur í nefndinni um
grundvallaratriði í sambandi við
endurskoðun sjávarútvegsstefnu
ESB. Ennfremur kom fram að vinnu
nefndarinnar muni ekki ljúka fyrr en
í lok þessa árs og þá ætti málið eftir
að fara inn í þingið.
Mikil óvissa
„Mér fannst þetta athyglisvert
vegna þess að menn hafa verið að
segja öðrum þræði að viðræður okk-
ar við Evrópusambandið um sjávar-
útvegsmál séu á einhvern hátt háðar
þessari endurskoðun fiskveiðilög-
gjafarinnar. Það er að mínu mati í al-
gjörri óvissu hvenær þeirri vinnu
lýkur,“ sagði Einar.
Á fundinum kom makríldeilan
einnig til umræðu. Engin lausn er í
sjónmáli í deilunni, en ESB og Nor-
egur standa saman og hafna alger-
lega sjónarmiðum Íslands og Fær-
eyja í málinu.
„Ég sagði á fundinum að ástæða
fyrir þessari deilu við Evrópusam-
bandið og Noreg um makrílinn væri í
því fólgin að þeir tækju til sín með
freklegum hætti 90% af því sem talið
væri ráðlegt aflamark. Þetta væri
uppspretta ágreinings en ekki að við
værum með einhverjum hætti að
ganga illa um auðlindina.“
Alvarlegasta
deilan frá lokum
þorskastríða
Einar K.
Guðfinnsson
Vegagerðin og verktakafyrirtækið
Suðurverk skrifuðu í gær undir
samning um að fyrirtækið leggi
Vestfjarðaveg á milli Eiðis og Þver-
ár. Að sögn Guðmundar Ólafssonar,
verkefnastjóra hjá Suðurverki, hefj-
ast framkvæmdir líklega á næstu
vikum og munu um 20-25 manns
starfa við þær í sumar. Hann gerir
ráð fyrir að unnið verði við fram-
kvæmdina mestan hluta ársins og
að starfsmönnum við hana fjölgi
nokkuð næsta sumar þegar hafist
verði handa við brúarsmíðar yfir
Mjóafjörð og Kjálkafjörð.
Hann segir að nú sé verið að bíða
eftir pramma sem notaður verði til
að fylla upp í firðina fyrir brúar-
smíðarnar. Pramminn hafi verið í
leigu hjá Ístaki í Noregi en varð-
skipið Þór sé að draga hann til
landsins. Guðmundur segir að gert
sé ráð fyrir að notuð verði allt að
ein og hálf milljón rúmmetra af efni
í uppfyllingar.
Suðurverk átti næstlægsta til-
boðið í verkið og hljóðaði það upp á
tæpa 2,5 milljarða króna. Í frétt á
vefsíðu Vegagerðarinnar kemur
fram að heildarkostnaðurinn við
verkið verði líklega um þrír millj-
arðar. Verkinu á að vera lokið að
fullu 1. september árið 2015.
kjartan@mbl.is
Yfir 20 manns vinna við
Vestfjarðaveg í sumar
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Dráttur Varðskipið Þór dregur
pramma Suðurverks frá Noregi.
Þór kemur með
pramma frá Noregi
„Í rauninni hef ég ekki for-
sendur til að meta málið því ég
hef ekki séð samninginn. Ég bíð
eins og aðrir eftir að sjá hvernig
hann er,“ segir Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra um
áætlanir sveitarfélaga á Norður-
landi um að kaupa Grímsstaði á
Fjöllum og leigja kínverska fjár-
festinum Huang Nubo.
Ögmundur hafnaði að veita
fyrirtæki Huang undanþágu frá
banni við erlendum fjárfest-
ingum. „Mér hefur fundist
skorta á að Íslendingar tækju
upp umræðu um eignarhald
á landi og kosti þess og
galla að afnotaréttur yfir
íslensku landi og öræfum
sé færður út úr okkar
samfélagi. Ég játa að ég
hef miklar efa-
semdir um að það
sé hyggilegt.“
helgi@mbl.is
Hefur ekki
séð samning
INNANRÍKISRÁÐHERRA
Ögmundur
Jónasson
Ríkissjóður gekk í gær frá samning-
um um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð
1 milljarði Bandaríkjadala, sem jafn-
gildir um 124 milljörðum króna.
Skuldabréfin bera fasta vexti og eru
gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni
6,0%. Fjárfestar sýndu útgáfunni
mikinn áhuga og nam eftirspurn um 4
milljörðum Bandaríkjadala, segir í
frétt frá fjármálaráðuneytinu.
Fjárfestahópurinn samanstendur
aðallega af fagfjárfestum frá Banda-
ríkjunum og Evrópu. Skuldabréfaút-
gáfan kom í framhaldi kynningarher-
ferðar í Bandaríkjunum og Evrópu.
Umsjón var í höndum Deutsche
Bank, J.P. Morgan og UBS Invest-
ment Bank.
„Þessi aðgerð markar heilmikil
tímamót fyrir Ísland og er afar já-
kvæð fyrir íslenskt efnahagslíf,“ er
haft eftir Oddnýju Harðardóttur fjár-
málaráðherra í fréttatilkynningu.
„Við erum með þessu að fylgja eftir
vel heppnaðri skuldabréfaútgáfu frá
því í fyrra á bréfum sem gefin voru út
til skemmri tíma. Viðbrögð fjárfesta
eru mjög ánægjuleg, eftirspurn er
tvisvar sinnum meiri en í síðustu
skuldabréfaútgáfu og fjöldi þátttak-
enda í útboðinu er einnig tvöfalt meiri
en þá. Þetta er fyllilega í samræmi við
stefnumörkun okkar í lánamálum rík-
isins þar sem markmiðin eru meðal
annars þau að tryggja aðgengi að er-
lendum lánsfjármörkuðum til lengri
tíma og að stórum og fjölbreyttum
hópi fjárfesta.“
Skuldabréfaútgáfa
fyrir 124 milljarða