Morgunblaðið - 04.05.2012, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Elísabet II. Bretadrottning kannar heiðursvörð
við athöfn fyrir utan Windsor-kastala í gær.
Drottningin varð 86 ára 21. apríl en venja er að
haldið sé upp á afmæli hennar í júní. Bretar
minnast nú einnig þess að í ár eru sex áratugir
liðnir frá því að Elísabet varð drottning. Á hátíð-
inni í júní verður meðal annars viðhafnarsýning
báta í Tempsá og tónleikar fyrir utan Bucking-
ham-höll með Paul McCartney og Elton John.
Mikið um dýrðir í tilefni af afmæli drottningar
Reuters
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fjölmiðlar í Frakklandi sögðu í gær
að hvorugur forsetaframbjóðend-
anna tveggja hefði borið sigur úr
býtum í sjónvarpskappræðum þeirra
í fyrrakvöld. Báðir frambjóðendurn-
ir skutu föstum skotum og margir
fréttaskýrendur sögðu að François
Hollande, forsetaefni sósíalista,
hefði komið á óvart með harðfylgi og
óvæginni gagnrýni á Nicolas Sar-
kozy forseta.
Hollande hefur verið með talsvert
forskot í skoðanakönnunum síðustu
mánuði og margir stuðningsmenn
Sarkozys höfðu litið á kappræðurnar
sem síðasta tækifæri forsetans til að
snúa vörn í sókn og koma „rothöggi“
á keppinautinn. Fréttaskýrendur
sögðu að það hefði ekki tekist.
Leiðarahöfundar franskra dag-
blaða töldu að kappræðurnar myndu
ekki hafa mikil áhrif á fylgi fram-
bjóðendanna. Fyrir kappræðurnar
höfðu skoðanakannanir bent til þess
að Hollande fengi um 53-54% fylgi í
síðari umferð forsetakosninganna á
sunnudag.
Sarkozy vonaðist til þess að geta
sannfært kjósendur um að Hollande
hefði ekki næga pólitíska reynslu til
að stjórna landinu og loforð hans um
að minnka fjárlagahallann sam-
ræmdust ekki áformum hans um
aukin ríkisútgjöld.
Óvægnustu kappræðurnar
Fyrir kappræðurnar hafði Hol-
lande verið mildari í framgöngu en
forsetinn í kosningabaráttunni og
lofað því að stuðla að þjóðareiningu
en hann sýndi á sér nýja hlið í kapp-
ræðunum, einkum þegar á leið.
Sarkozy sakaði Hollande nokkrum
sinnum um lygar, sagði hann „hroka-
fullan“ og „óhæfan“ til að stjórna
landinu og lýsti honum sem „róg-
bera“.
Hollande var í vörn í byrjun kapp-
ræðnanna en blés til gagnsóknar,
hæddist að forsetanum og sakaði
hann meðal annars um að hafa lagt
efnahag landsins í rúst og neita að
axla ábyrgð á mistökum sínum. Hol-
lande lýsti Sarkozy sem sjálfumglöð-
um forseta, sagði hann hugsa meira
um eigin hag á meðan efnahags-
kreppa léki frönsku þjóðina grátt.
Þýska fréttaritið Spiegel sagði að
þetta hefðu verið hörðustu og
óvægnustu sjónvarpskappræður í
sögu forsetakosninga í Frakklandi.
„Sarkozy gat ekki lengur leynt
megnustu óbeit sinni á Hollande og
Hollande leyndi ekki ímugust sinni á
Sarkozy,“ sagði fréttaskýrandi
Spiegel.
Nicolas Sarkozy spáði því í gær-
morgun að mjög mjótt yrði á munum
í síðari umferðinni og að þetta yrðu
tvísýnustu forsetakosningar í sögu
Frakklands.
Hollande sagði að „nokkrar
óþekktar stærðir“ gætu ráðið úrslit-
um, meðal annars kjörsóknin og
framganga frambjóðendanna á síð-
ustu dögum kosningabaráttunnar.
Báðir frambjóðendurnir biðluðu
til stuðningsmanna Marine Le Pen,
forsetaefnis Þjóðfylkingarinnar, sem
fékk sex milljónir atkvæða í fyrri
umferðinni. Le Pen sagði í gær að
baráttunni væri í raun lokið því Sar-
kozy hefði „beðið ósigur fyrir löngu“.
Áætlað er að um 17,8 milljónir
manna hafi fylgst með kappræðun-
um sem stóðu í tvær klukkustundir
og 50 mínútur.
Kom ekki „rothöggi“ á Hollande
Sarkozy spáir tvísýnustu forsetakosningum í sögu Frakklands eftir mjög harða og óvægna rimmu
forsetaframbjóðendanna tveggja í sjónvarpi Hvorugur þeirra fór með sigur af hólmi í kappræðunum
AFP
Kappræður Hollande (t.v.) og Sarkozy skutu föstum skotum.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Bandarískir embættismenn sögðu í gær að
þeir hefðu hafið viðræður við kínverska and-
ófsmanninn Chen Guangcheng vegna þess að
hann vildi nú komast frá Kína með fjölskyldu
sinni. Chen kvaðst óttast um öryggi sitt og
fjölskyldu sinnar.
Chen, sem er blindur, sjálfmenntaður lög-
fræðingur, flúði úr stofufangelsi 22. apríl í
Shandong-héraði þótt hann hefði verið í
strangri gæslu tuga varða. Hann dvaldi í sex
daga í sendiráði Bandaríkjanna í Peking þar til
í fyrradag þegar hann féllst á að fara þaðan á
sjúkrahús eftir að samkomulag náðist milli
Bandaríkjamanna og Kínverja um að honum
yrði veitt frelsi.
Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins sagði að bandarískir embættismenn hefðu
rætt tvisvar við Chen í síma um kosti hans í
stöðunni eftir að honum snerist hugur.
Gary Locke, sendiherra Bandaríkjanna í
Peking, neitaði því að Bandaríkjamenn hefðu
þrýst Chen til að fara frá sendiráðinu.
Hótuðu að berja hana til dauða
Chen sagði í viðtölum í gær við AFP og fleiri
fréttastofur að hann hefði í fyrstu ekki viljað
óska eftir hæli í öðru landi en honum snerist
hugur eftir að hann var fluttur á sjúkrahúsið.
„Ég vil fara til annars lands. Ég vil að Banda-
ríkjamenn hjálpi mér og fjölskyldu minni,“
hafði AFP eftir Chen.
Andófsmaðurinn sagði í viðtali við CNN-
sjónvarpið að hann óttaðist um öryggi sitt og
fjölskyldu sinnar. Eftir flótta hans úr stofu-
fangelsi hefðu lögreglumenn bundið eiginkonu
hans á höndum og fótum niður í stól í tvo daga
og hótað að berja hana til dauða.
Chen sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið
að hann hefði ekki getað hitt bandaríska emb-
ættismenn í gær og kvaðst telja að kínversk
yfirvöld hefðu komið í veg fyrir það.
Talsmaður mannréttindasamtakanna Hum-
an Rights Watch sagði þau hafa efasemdir um
að kínversk stjórnvöld myndu standa við lof-
orð sín um að veita Chen frelsi. Standi þau
ekki við samkomulagið gæti það orðið vopn í
höndum andstæðinga Baracks Obama í for-
setakosningunum í Bandaríkjunum.
Chen er einkum þekktur fyrir að afhjúpa
mannréttindabrot embættismanna í Shandong
sem þvinguðu þúsundir kvenna til að fara í
ófrjósemisaðgerð eða í fóstureyðingu seint á
meðgöngu til að tryggja að lög um eitt barn á
fjölskyldu væru virt.
Chen Guangcheng vill nú fara í útlegð frá Kína
Reuters
Flúði Chen Guangcheng ræðir við eiginkonu
sína (2. frá hægri) á sjúkrahúsi í Peking.
Andófsmaðurinn kveðst óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar Eiginkonu hans hótað lífláti
Mannréttindasamtök efast um að stjórnvöld í Kína standi við samkomulag um að veita Chen frelsi
Mannréttinda-
samtök sökuðu í
gær stjórnvöld í
Aserbaídsjan um
að bæla niður
gagnrýni og tak-
marka frelsi fjöl-
miðla í aðdrag-
anda Evróvisjón
sem fram fer í
Bakú, höfuðborg
landsins, síðar í
mánuðinum.
Amnesty International og Human
Rights Watch hvöttu EBU, samtök
evrópskra sjónvarpsstöðva, til að
mótmæla mannréttindabrotum
stjórnvalda í Aserbaídsjan og gagn-
rýndu samtökin fyrir að leiða kúgun-
ina hjá sér.
Mannréttindasamtökin segja að
algengt sé að blaðamenn í Aserbaíd-
sjan verði fyrir „áreitni, hótunum og
árásum“ yfirvalda. Amnesty Inter-
national segir að nú séu átján sam-
viskufangar í fangelsum í Aserbaíd-
sjan, fjórtán pólitískir andófsmenn
sem hnepptir voru í fangelsi fyrir
mótmæli, tveir blaðamenn og tveir
baráttumenn fyrir mannréttindum.
Stjórn Aserbaídsjans neitar þess-
um ásökunum, segir þær runnar
undan rifjum afla sem vilji grafa
undan henni með ófrægingar-
herferð.
Kúgun í
Aserbaídsjan
mótmælt
Evróvisjón mót-
mælt í Bakú.