Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
fleirum í Eystri Rangá. Þar naut
Einar sín vel og var ætíð hrókur
alls fagnaðar. Hann var árrisull
með eindæmum, alltaf fyrstur á
fætur og kominn út á bakkann á
slaginu. Keppnisskapið hljóp með
hann um alla sveitina að elta þann
silfraða, en svona var Einar, alltaf
iðinn, alltaf að. Einar skilur eftir
sig skarð í veiðihópnum sem aldr-
ei verður fyllt.
Þegar fréttirnar komu um að
Einar væri allur þá setti ég Sergio
Mendes á fóninn. Mas que Nada
hljómaði í græjunum á meðan
hugsanir mínar leituðu til góðs
vinar. Í kjölfarið fylgdi Dionne
Warwick með sínum einstaka
hætti. Einari hefði líkað það, le
grande finale.
Með miklum söknuði kveð ég
hann Einar frænda. Elsku Andr-
ea, Stefán og Sunna, ykkar er þó
missirinn mestur. Guð styrki ykk-
ur og hlúi að ykkur. Minningin um
Einar verður með okkur um alla
tíð.
Þórhallur Eggert
Þorsteinsson.
Einar Þórhallsson var tryggur
og traustur vinur og „frændi“
með stórt og fallegt hjarta. Hann
var einstaklega góður maður og
ljúfur sem, í blíðu og stríðu,
reyndist okkur fjölskyldunni allt-
af vel. Við munum sakna góð-
mennskunnar, húmorsins og
gestrisninnar. Við munum sakna
matarboðanna, gamlárskvöld-
anna, veiðitúranna og allra sam-
verustundanna sem við vorum svo
lánsöm að eiga með svo hjarta-
hlýjum manni. „Hver á þá að
skjóta upp flugeldum með okkur á
gamlárskvöld?“ spurði einn sona
okkar þegar við sögðum honum
að Einar væri allur. Fátt var um
svör enda missir sem þessi ekki
útskýrður á augabragði.
Einar var stór partur af fjöl-
skyldu okkar. Við munum sakna
hans sárt.
Elsku Andrea, Stefán og
Sunna. Hugur okkar og bænir eru
hjá ykkur. Megi Guð fylgja ykkur
í gegnum erfiða tíma.
Bergljót Þorsteinsdóttir,
Magnús Stephensen,
Kristófer, Ólafur Flóki
og Hrafn.
Sönn vinátta lifir innra með
manni þó að leiðir skilji. Einar var
þeim mannkostum búinn að vera
sannur vinur vina sinna og skilur
eftir sig spor sem ekki mást út.
Leiðir okkar Einars lágu saman í
Laugarnesskóla þegar ég var tíu
og hann ellefu ára og á milli okkar
mynduðust vináttubönd sem
verða aldrei rofin. Laugarnesið
var leikvöllur okkar á yngri árum
þar sem við áttum margar
ógleymanlegar stundir saman.
Einar var mikill keppnismaður,
lagði sig allan fram án þess að
hafa rangt við og því var auðvelt
að unna honum þess að hafa bet-
ur. Hann var lipur í handknattleik
og verðugur andstæðingur í nán-
ast öllum íþróttagreinum en mér
tókst aldrei að vinna hann í billj-
ard þar sem hann hafði mikla yf-
irburði yfir okkur félögunum. Það
var mjög gaman að vinna hann,
hlusta á tuðið í honum og nudda
honum upp úr tapinu en hann
svaraði rækilega fyrir sig þegar
leikar snerust honum í hag. Á
sumrin vorum við oft við veiðar á
Þingvöllum en Einar var mikill
veiðiáhugamaður og góður veiði-
félagi. Í stórkostlegu umhverfi á
Þingvöllum undum við hag okkar
vel og ræddum mikið um lífið og
tilveruna og lögðum á ráðin um
framtíðina. Síðar vorum við sam-
ferða í háskólanámi í Svíþjóð þar
sem við bjuggum nálægt hvor
öðrum, skrifuðum lokaritgerð
saman og útskrifuðumst sem
rekstrarhagfræðingar frá háskól-
anum í Gautaborg. Nokkrum ár-
um eftir að námi lauk fjárfestum
við saman í fyrirtæki og unnum
þar hlið við hlið. Sýndum ráðdeild
sem Einari var í blóð borin og í
þeim viðskiptaferðum sem við fór-
um í deildum við yfirleitt herbergi
í sparnaðarskyni. Einar átti það
til að tala upp úr svefni og undir
morgun þar sem við sváfum sam-
an í hjónarúmi í Köln í Þýskalandi
þá velti hann sér yfir á mína hlið
og muldraði í eyra mitt nafn eig-
inkonu sinnar: Andrea. Mér brá
við og vakti Einar, hann var smá-
stund að átta sig á því hvar hann
var staddur en svo hlógum við
dátt að þessari uppákomu. Við
áttum vísan stuðning og trúnað
hvors annars, samglöddumst hvor
öðrum, deildum sorgum og gleði
saman og létum okkur hag hvors
annars og okkar nánustu varða.
Einar og Andrea áttu þátt í að
leiða mig og Helgu eiginkonu
mína saman og kann ég þeim
bestu þakkir fyrir. Saman ferðuð-
umst við um Ísland með börnum
og eiginkonum okkar þar sem við
nutum útivistar og góðra sam-
verustunda. Einar var mikill unn-
andi klassískrar tónlistar og vor-
um við hjónin með fasta miða í
Sinfóníunni þar sem við áttum
margar góðar stundir saman.
Sorgin yfir ótímabæru fráfalli
Einars er mikil og það er svo
margt sem við áttum ósagt og
ógert saman. Minningarnar leita
til æskuára okkar og það er erfitt
að trúa því að við eigum ekki eftir
að njóta návistar við Einar fram-
ar. Missir Andreu, Sunnu og Stef-
áns er mikill og einnig systkina
Einars sem ég kynntist vel og
votta ég þeim innilega samúð
mína.
Rafn Benedikt Rafnsson.
Okkur setti hljóð þegar við
fréttum að Einar Þór, litli bróð-
irinn, væri látinn. Sum okkar eru
búin að þekkja hann frá því að
hann fæddist en öll frá því að
hann var smástrákur við Laug-
arásveginn. Vinir okkar, Sigga
systir Einars og Kristján voru jú
ekki gömul þegar þau byrjuðu að
skjóta sig saman og þá gjarnan að
passa Einar litla bróður. Við nut-
um þess að aðstoða við þessa
pössun og skemmtum okkur
gjarnan vel um leið.
Einar var ótrúlega líkur föður
sínum Þórhalli og því meira eftir
því sem hann eltist. Stundum er
talað um að vera „eins og snýttur
úr nös“ sem má með sanni segja
að Einar hafi verið. Sama röddin,
skapið og karakterinn. Öndvegis-
menn í alla staði og þeirra beggja
saknað og nokkuð ljóst að það
birtir yfir þeim stað þar sem þeir
dvelja saman núna.
Okkar innilegustu og hlýjustu
samúðarkveðjur til ykkar, Andr-
ea, Sunna og Stefán ásamt systk-
inum Einars og fjölskyldum
þeirra.
Megi minningin um góðan
dreng lifa í okkar huga.
Saumaklúbbur Siggu og Krist-
jáns,
Ragnheiður, Bjarni, Hildur,
Guðjón, Svava, Þorsteinn,
María og Guðmundur.
Besti vinur minn er látinn án
nokkurs fyrirvara. Ég er beygður
og dapur og spyr um tilgang og
ástæður. Svörin fást ekki og ég
verð að sætta mig við orðinn hlut.
Einari kynntist ég 1976 þegar
hann bankaði á dyrnar hjá mér
kvöld eitt eftir að við höfðum lent
saman í 1. bekk í MS. Hann vildi
gera mig að félaga sínum með það
fyrir augum að við gætum stutt
hvor annan í því námi sem fram-
undan var. Ég þáði boðið enda
hafði ég fylgst með honum á
grunnskólaárum í Laugalækjar-
skóla og kunni deili á drengnum.
Hann var eldri en ég og hafði þar
að auki bíl til umráða sem átti eft-
ir að koma sér vel. Það eina sem
ég þurfti að gera var að skokka yf-
ir á Laugarásveginn rétt fyrir kl.
8 á morgnana þar sem heitur Fi-
atinn beið eftir mér. Mér var svo
ekið til baka á sama stað eftir að
skóla lauk.
Síðan eru liðin 36 ár og margs
er að minnast. Einar kynntist
konuefni sínu Andreu Rafnar
haustið 1976 og þau giftu sig árið
1981. Ég hafði þann heiður að aka
þeim nýgiftum í glæsibifreið föð-
ur Einars og upplifði svo að sitja í
aftursæti sömu bifreiðar 3 árum
síðar við brúðkaup okkar Eddu.
Einar og Andrea héldu til náms í
Gautaborg og sneru þaðan 1985.
Andrea og Edda urðu upp frá því
mjög nánar vinkonur sem efldi
enn vináttutengsl okkar Einars.
Við nutum fjölda samverustunda
með þeim hjónum í tæpa 3 áratugi
enda hafa þau verið okkar nán-
ustu vinir. Við fórum í fjölda utan-
landsferða allt frá árinu 1987 en
hæst bar þó ferð okkar til Ítalíu
árið 2010. Þá má einnig nefna
margar heimsóknir í sælureit fjöl-
skyldu Einars á Þingvöllum svo
ekki sé minnst á fjölda matar-
boða, nú síðast í mars.
Skarð Einars verður ekki fyllt
en maður reynir að hughreysta
sjálfan sig í þeirri sorg sem maður
upplifir. Henni verður ekki lýst í
rituðu máli. Einar var mér sem
bróðir og ég hef um árabil um-
gengist fjölskyldu hans og for-
eldra sem slíkur. Systkini Einars
hafa öll sýnt mér mikla vináttu frá
upphafi sem og foreldrar hans,
þau Bubba og Þórhallur, meðan
þau lifðu.
Einar var ákaflega vandaður
maður í gjörðum sínum. Hann
kunni að fara með fé á þann hátt
sem fæstir kunna, enda efnaðist
hann smám saman á eigin aðferð-
um en ekki í gegnum happdrætti
eða spákaupmennsku. Hann vildi
sínu fólki aðeins hið besta og bjó
börnum sínum vel í haginn. Missir
þeirra er mjög mikill sem og And-
reu og votta ég þeim mína dýpstu
samúð. Heiðarleiki Einars var
hans aðalsmerki í viðskiptum og
því náði hann árangri umfram
flesta á því sviði. Hann var stund-
um þungur í skapi en slíkt varði
aldrei lengi og ef Liverpool sigr-
aði í ensku deildinni þá lék Einar
á als oddi.
Stórt skarð er höggvið í vina-
hóp okkar sem haldið hefur golf-
mótið „Masters Private“ síðan
1980. Þar er keppt um „Græna
jakkann“ og hefur Einar sigrað
oftar en einu sinni þó svo að golfið
væri ekki hans aðaláhugamál. Það
verður þungur róður fyrir okkur
félagana að hefja leikinn án Ein-
ars í ár. Að leiðarlokum kveð ég
félaga minn með djúpum söknuði
og þakka honum vináttuna sl. 36
ár. Hún var mér gersemi. Hvíl í
friði, kæri vin.
Sigurður K. Kolbeinsson.
Á margan og fjölbreyttan hátt
fléttast vináttu- og tryggðabönd
milli manna. Það var árið 1998 að
fyrirtækin Valdimar Gíslason ehf.
og Íspakk ehf. sameinuðust, en
Íspakk ehf. var stofnað af og í
eigu Einar Þ. Þórhallssonar, en
Valdimar Gíslason ehf. í eigu
minnar fjölskyldu. Það er ekki
sjálfgefið að sameining fyrirtækja
gangi eftir, hvað þá að tvær fjöl-
skyldur, sem lítt þekktust fyrir,
sameinist um rekstur fyrirtækis.
Við slíka sameiningu og samvinnu
reynir á mannkosti manna. Einar
Þórhallsson hafði þá mannkosti til
að bera að þessi sameining tókst
með miklum ágætum og var hann
frá upphafi framkvæmdastjóri
hins sameinaða fyrirtækis. Við
stofnun Kerfislausna ehf. árið
2003 og uppbyggingu þess fyrir-
tækis sem þessar tvær fjölskyld-
ur stóðu að, nutu hæfileikar Ein-
ars sín vel. Hann var
harðduglegur, fullur af sannfær-
ingarkrafti og hreif aðra með sér,
en umfram allt var hann heiðaleg-
ur, góður félagi og samstarfsmað-
ur. Við Einar rifjuðum það oft upp
eftir að fyrirtæki okkar höfðu ver-
ið seld, á árunum 2006 og 2007,
hvað það kom oft fyrir við úrlausn
ákvörðunarefna er vörðuðu rekst-
urinn og ákveðið hafði verið að
menn „svæfu á málinu“, hversu
líkar skoðanir hvor okkar um sig
hafði mótað sér á lausn mála. Við
höfðum ótrúlega líkar skoðanir og
samstarf okkar gekk með miklum
ágætum, samvinna sem mótaðist
af gagnkvæmri virðingu sem þró-
aðist upp í vináttu.
Nú þegar Einar er fallinn frá,
langt fyrir aldur fram, er mér efst
í huga þakklæti til hans og fjöl-
skyldu hans fyrir það góða sam-
starf sem við höfum átt og þau
vináttubönd sem hafa tengt okkur
saman. Ég mun sakna þess að
njóta ekki framar samverustunda
með Einari og hafa ekki lengur
tækifæri til þess „að hugsa upp-
hátt“ með honum um hin ýmsu
mál er við áttum sameiginleg.
Hans skarð verður ekki fyllt. En
söknuðurinn er mestur hjá And-
reu, Sunnu og Stefáni og fjöl-
skyldu Einars allri. Við Valla biðj-
um góðan Guð að styrkja þau öll í
þeirra miklu sorg. Genginn er
góður drengur. Blessuð sé minn-
ing Einars Þ. Þórhallssonar.
Valdimar Valdimarsson.
SJÁ SÍÐU 34
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KJARTAN ÓLAFSSON,
Hlaðhamri,
lést á sjúkrahúsinu Hvammstanga þriðju-
daginn 24. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Prestbakkakirkju
Hrútafirði laugardaginn 5. maí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga.
Jóhannes Kjartansson, Sveinbjörg Guðmundsdóttir,
Jón Kjartansson, Gyða Eyjólfsdóttir,
Sigurður Kjartansson, Olivia Weaving
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUNNHILDUR ABBA MAGNÚSDÓTTIR
frá Sauðárkróki,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn
28. apríl, verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 5. maí
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Minningarsjóð
Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási (Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks).
Hildur Svafarsdóttir, Jón Þór Ólafsson,
Ólöf Svafarsdóttir Wessman, Wilhelm Wessman,
Svavar Ásbjörnsson,
Linda Wessman, Knútur Rúnarsson,
Róbert Wessman, Ýr Jensdóttir,
Gunnhildur Wessman, Arnar Haraldsson,
Arnþór Jónsson, Alda Jónsdóttir,
Ómar Andri Jónsson, Arna Ragnarsdóttir
og langömmubörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
SIGURGEIR ANGANTÝSSON
frá Sauðárkróki,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans, Hring-
braut miðvikudaginn 2. maí.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugar-
daginn 12. maí kl. 13.30.
Jarðsett verður á Hofsósi.
Við, fjölskyldan hans Muna, viljum koma á framfæri innilegu
þakklæti til starfsfólks nýrnadeildar og gjörgæsludeildar
Landspítalans við Hringbraut.
Umhyggju ykkar og baráttu munum við aldrei gleyma.
Friðrika J. Sigurgeirsdóttir, Þorvaldur Guðmundsson,
Vanda Sigurgeirsdóttir, Jakob Frímann Þorsteinsson,
Andri Sigurgeirsson, Aníta S. Ásmundsdóttir,
Ívar, Inga, Brynja, Rakel, Muni, Dísa og Gunnar.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JAKOBÍNA ÞÓRA PÁLMADÓTTIR,
Garðabraut 6,
Akranesi,
lést laugardaginn 28. apríl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðju-
daginn 8. maí kl. 14.00.
Jón Helgi Guðmundsson, Atik Fauziah Hadad,
Guðný Guðmundsdóttir, Alfreð Viggó Sigurjónsson,
Jórunn Petra Guðmundsdóttir, Jóhann H. Hafsteinsson,
Helga Guðmundsdóttir
og ömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 1,
áður Greniteigi 4,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 17. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Halldór Ármannsson, Stefanía Haraldsdóttir,
Sæunn Ásta Sigurbjörnsdóttir,
Ársæll Ármannsson, Kristrún Níelsdóttir,
Lilja Ármannsdóttir, Sigurður Garðarsson,
Valur Rúnar Ármannsson, Katrín Benediktsdóttir,
Helgi G. Steinarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sonur okkar, bróðir, unnusti og
frændi,
GARÐAR SKAGFJÖRÐ BJÖRGVINSSON,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar
sunnudaginn 22. apríl.
Útförin hefur farið fram.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
minningarsjóð Barnaspítala Hringsins.
Björgvin Magnús Garðarsson, Sigríður Einarsdóttir,
Rósa Skagfjörð Ingólfsdóttir,
Andrea Eygló Sigurðardóttir,
Ingólfur P. Heimisson, Sigrún Rós Sigurðardóttir,
Anna Sjöfn Skagfjörð R. Magnús Halldór Pálsson,
Guðjón Karl Guðjónsson,
Elín Ósk Björgvinsdóttir,
Baldvin Heiðar Björgvinsson,
Aron Freyr Guðjónsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og bróðir,
GUÐBJARTUR RAFN EINARSSON
skipstjóri og útgerðarmaður,
Löngulínu 2 B,
Garðabæ,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans
við Hringbraut miðvikudaginn 2. maí.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 10. maí kl. 11.00.
Anna Sigurbrandsdóttir,
Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson,
Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir, Steinar Ingi Matthíasson,
barnabörn,
Guðrún Einarsdóttir,
Sigurður Einarsson,
Stefán Einarsson.