Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2012
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í dag kl. 17 verður opnuð sýning á
verkum nemenda Myndlistaskólans í
Reykjavík í nýbyggingu Lækn-
ingaminjasafnsins á Seltjarnarnesi.
Sýningin er tvískipt. Annars vegar
verða sýnd lokaverkefni 48 nemenda
í þremur deildum skólans, þ.e. Mót-
un, Teikningu og Textíl, en nemend-
urnir eiga að baki tveggja ára nám á
diplómastigi og er námið samstarfs-
verkefni Myndlistaskólans og
Tækniskólans. Hins vegar verða
sýnd verk 29 nemenda á myndlista-
og hönnunarsviði sem hafa lokið eins
árs grunnnámi á framhaldsskóla-
stigi. Mótun sýnir nú lokaverk nem-
enda sinna úr tveimur námshlutum í
fjórða sinn en Teikning og Textíll
tóku inn nemendur í fyrsta sinn vor-
ið 2010 og eru útskriftarnemar
þeirra deilda því þeir fyrstu sem
sýna lokaverkefni sín. Nemendur
sem útskrifast með diplóma eiga
kost á því að hefja nám á þriðja og
síðasta ári BA-náms við háskóla er-
lendis, nemendur í Teikningu geta
sótt um nám í háskóla í Cumbria á
Englandi, nemendur Textíls í
listaháskólanum í Bergen og text-
ílskóla í Skotlandi.
Stolt af samstarfinu við Kahla
Nemendur úr einum hluta Mót-
unar hafa í vetur átt í samstarfi við
Kahla, helstu postulínsverksmiðju
Þýskalands, og er markaðsstjóri
hennar, Sheila Rietscher, stödd hér
á landi og mun velja verkefni tveggja
nemenda sem þróuð verða áfram hjá
fyrirtækinu, nemendurnir fara þá til
Þýskalands og vinna þar að sínum
verkefnum. Skólinn átti einnig í sam-
starfi við Kahla veturinn 2010-11 og
sýndu nemendur afrakstur þess
samstarfs í Berlín í fyrra.
„Þetta Kahla-verkefni er mjög
fagmannleg vinna, ég er mjög stolt
af því. Mér finnst við vera að ná ein-
hverju stigi sem er mjög flott,“ segir
skólastjóri Myndlistaskóla Reykja-
víkur, Ingibjörg Jóhannsdóttir.
Kahla sé fyrirmyndarfyrirtæki að
mörgu leyti, t.d. hvað varðar sjálf-
bærni í framleiðslu, umgengni við
náttúruna og skilji hlutverk sitt í
samfélaginu. Fyrirtækið hafi t.a.m.
ekki úthýst framleiðslu eins og mörg
sambærileg fyrirtæki hafi gert.
„Það væri gaman ef einhverjir
hlutir frá nemendunum fara í fram-
leiðslu, að þeir sjái verkin sín í sam-
hengi við flottustu gæðaframleiðslu
Þýskalands á þessu sviði og að þeir
læri af því. Þetta er stærsta fyr-
irtæki Þýskalands á þessu sviði,“
segir hún. Það sé stefna Myndlista-
skólans og Tækniskólans að nýju
deildirnar, þ.e. Teikning og Textíll,
eigi í frekara samstarfi við erlend og
innlend fyrirtæki í framtíðinni líkt
og Mótun hefur átt.
Tekur tíma að ná færni
Ingibjörg segir útskriftarnema
hafa fengið frjálsar hendur síðustu
sex til sjö vikur námsins til að vinna
að lokaverkefnum sínum. Nefnir hún
sem dæmi um fjölbreytni að nem-
endur hafi m.a. gert bækur, tölvuleik
og smáforrit eða „app“.
Hvað teiknideildina varðar segir
Ingibjörg mikla áherslu lagða á
teiknifærni í náminu sem nemendur
geti síðan nýtt með ólíkum hætti, allt
eftir áhuga þeirra og hvar metnaður-
inn liggur. „Þetta er í raun eini skól-
inn sem er með þessa áherslu í teikn-
ingunni og sama má segja um Textíl
og Mótun. Þetta er nám á diplóma-
stigi þar sem mikil áhersla er lögð á
sköpun, að vinna á skapandi hátt en
líka tæknilega færni og þjálfun, að
nemendur þrói hugmyndir sínar og
verkefni í gegnum þessa færni sem
þeir afla sér í gegnum námið,“ segir
Ingibjörg. Það taki tíma að ná slíkri
færni og hún geti nýst við margs
konar störf, m.a. þar sem verið sé að
þróa sjónrænan heim með margs
konar hætti. Því til dæmis megi
nefna sköpun myndræns heims
tölvuleikja, hreyfimyndagerð o.fl.
Sköpun og tæknileg færni
Sýning á verkum nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík verður opnuð í dag Tveir útskriftar-
nemar úr Mótun fara til Þýskalands og starfa að verkefnum sínum hjá postulínsfyrirtækinu Kahla
Morgunblaðið/Ómar
Sköpun Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri Myndlistaskóla Reykjavíkur, með Sigríði Þóru Óðinsdóttur, útskriftar-
nema við deildina Mótun - leir og tengd efni. Myndin var tekin við uppsetningu sýningarinnar í gær.
myndlistaskolinn.is
kahlaporzellan.com
Postulínsfyrirtækið Kahla var stofnað árið 1844 í
Kahla í Þýskalandi. Árið 1914 var það orðið eitt
stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í land-
inu og rak m.a. verksmiðjur í Arzberg,
Hutschhenreuther og Schönwald. Eftir að
seinni heimsstyrjöldinni lauk var fyrir-
tækið þjóðnýtt þar sem það stóð austan
megin múrsins. Árið 1979 voru verksmiðj-
urnar orðnar 17 og starfsmenn 18 þúsund.
Árið 1994 tóku nýir aðilar við rekstr-
inum og var framleiðslan þá betrumbætt
með nýrri tækni. Tíu árum síðar náði fyrir-
tækið þeim merka áfanga að hljóta fertug-
ustu hönnunarverðlaunin fyrir framleiðslu
sína á aðeins einum áratug og árið 2010
voru verðlaunin orðin 70.
Tugir hönnunarverðlauna
POSTULÍNSVERKSMIÐJAN KAHLA
Glæsilegt Skálar og bakki frá
Kahla, hönnunf Corneliu Müller.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE RAID Sýnd kl. 8 - 10:10
THE AVENGERS 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10
AMERICAN PIE: REUNION Sýnd kl. 5:30
21 JUMP STREET Sýnd kl. 8
HUNGER GAMES Sýnd kl. 10:20
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 5
STERK BYRJUN, MANN
ÞYRSTIR Í MEIRA!
T.V. - Vikan/Séð og Heyrt
HHHH
HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐ
DREPFYNDIN MYND SEM
GEFUR FYRSTU MYND-
UNUM EKKERT EFTIR!
Fór beint á toppinn í USA
BRÁÐSKEMMTILEG OG LITRÍK MYND
FRÁ HÖFUNDUM AULINN ÉG
„FYNDNASTA MYND
SEM ÉG HEF SÉÐ Í
LANGAN TÍMA!“
- T.V., Kvikmyndir.is
HHHH
STÆRSTA OFURHETJUMYND
ALLRA TÍMA
„SVÖL,
SKEMMTILEG,
GRÍPANDI OG FYNDIN“
„ÞÆR GERAST VARLA
BETRI EN ÞETTA!“
- Tommi, Kvikmyndir.is
HHHHHHHH
- J.W. Empire
HHHH
- J.C. Total Film
HHHH
- J.C. Variety
HHHH
- T.M. Hollywood Reporter
HHHH
- T.V. Séð og Heyrt
TUTTUGU SÉRSVEITARMENN, EINN
VÆGÐARLAUS GLÆPAFORINGI OG
ÞRJÁTÍU HÆÐIR AF STANSLAUSRI SPENNU!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
FRÁ FRAMLEIÐENDUM BRAVEHEART
KEMUR FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ
MEL GIBSON Í FANTAFORMI!
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 5.50 - 8 - 10.10 16
GRIMMD (BULLY) KL. 5.45 - 8 10
21 JUMP STREET KL. 10.15 14
MIRROR MIRROR KL. 5.40 L
HUNGER GAMES KL. 9 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
- V.G. - MBL.
HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 5.50 - 8 - 10.10 16
THE AVENGERS KL. 5 - 8 - 10.30 - 11 10
THE AVENGERS LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 10
21 JUMP STREET KL. 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 3.30 L
AMERICAN REUNION KL. 8 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L
HUNGER GAMES KL. 5 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 16
HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 8 - 10 16
THE RAID KL. 10 16
GRIMMD (BULLY) KL. 8 10
21 JUMP STREET KL. 6 14
MIRROR MIRROR KL. 6 L