Morgunblaðið - 17.05.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Ærin Karfa frá Geiteyjarströnd I í
Mývatnssveit er með frjósamari ám
landsins en hún bar fimm lömbum
nú í vor. Á fjórum árum hefur hún
alls borið fimmtán lömbum.
Karfa er fjögurra vetra en sem
gemlingur árið 2009 bar hún þremur
lömbum að sögn Daða Lange Frið-
rikssonar en hann sér um féð á Geit-
eyjarströnd ásamt móðurbróður sín-
um Héðni Sverrissyni. Árið 2010 bar
Karfa svo aftur þremur lömbum, í
fyrra urðu þau fjögur og í ár fimm.
Með slíka stígandi í frjóseminni er
spurning hvort lömbin verði ekki
sex að ári?
„Það er aldrei að vita! Ætli þetta
sé samt ekki gott í bili,“ segir Daði.
Karfa kemur af miklum frjósemis-
ættum en móðir hennar var einnig
fimmlembd árið 2007. „Systur henn-
ar hafa líka verið marglembdar.
Hún er undan hrút sem hét Kaldi og
var á sæðingastöð þannig að hún
hefur þetta báðum megin,“ segir
Daði.
Hann segir þessa frjósemi nokkuð
óvenjulega og ekki síður það að öll
lömbin hennar Körfu hafi komist til
lífs. Það sé nokkuð óvenjulegt fyrir
marglembinga.
Orðinn hobbíbúskapur
Sauðburður hófst 5. maí þetta
vorið að sögn Daða og báru allar
ærnar fyrir utan fjórar sem eru á
öðru gangmáli á einni viku. Alls hafa
43 ær borið og 96 lifandi lömb kom-
in.
„Það er mjög gott, það er frekar
óvanalegt. Allt yfir tvö lömb eftir
ána er mjög gott,“ segir Daði.
Þeir Héðinn eru nú með um fimm-
tíu kindur en þeir hafa dregið saman
seglin undanfarin ár. Fyrir nokkrum
árum voru þeir með fjögur hundruð
kindur en hafa verið að minnka við
sig. Þetta er fyrsta árið sem þeir eru
aðeins með fimmtíu kindur.
„Þetta er orðinn svona hobbíbú-
skapur. Við vinnum allir með og
þetta er bara til að hafa gaman og fá
kjöt,“ segir Daði.
Hann bendir á að kindurnar hafi
ekkert verið rúnar í haust og bú-
skapurinn hafi verið mjög frjálsleg-
ur. Að því leyti sé það kannski
óvenjulegt hvað þetta hafi gengið
vel og burður verið góður. Daði seg-
ir þá frændur ætla að halda sig við
hobbíbúskapinn.
„Ekki nema að aðstæður breytist
og að við göngum ekki í ESB,“ segir
Daði og hlær.
Fimmtán lömb á fjórum árum
Ærin Karfa frá Geiteyjarströnd er
mjög frjósöm Bar fimm lömbum í vor
Ljósmynd/Daði Lange Friðriksson
Afkvæmin Karfa með þremur lömbum sínum af fimm en tvö þeirra voru
vanin undir aðra á. Móðir Körfu var einnig fimmlembd fyrir fimm árum.
Um fimmtíu manns komu saman fyrir framan
Alþingishúsið í gær og börðu á skærlitar tunnur
til þess að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda
gagnvart heimilum landsins. Á meðal þeirra
krafna sem mótmælendur höfðu uppi var að út-
burður fólks af heimilum sínum og uppboð á
þeim yrðu bönnuð á meðan unnið væri að lausn-
um fyrir heimilin. Þá kröfðust þeir þess að rík-
isstjórnin uppfyllti þann hluta stjórnarsáttmál-
ans sem sneri að heimilum og stæði þannig við
loforð sín gagnvart kjósendum fyrir þinglok.
Stjórnarflokkarnir hafa átt í viðræðum við
Hreyfinguna undanfarið en eitt skilyrða hennar
fyrir stuðningi við stjórnina er aðgerðir í þágu
heimilanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Börðu tunnur á Austurvelli fyrir heimilin í landinu
Baldur Arnarson
Egill Ólafsson
„Það hefur engin ákvörðun
verið tekin. Áfrýjunarfrestur-
inn er þrír mánuðir,“ sagði
Gestur Jónsson, lögmaður Sig-
urðar Einarssonar, fyrrver-
andi stjórnarformanns Kaup-
þings, spurður hvort dómi í
máli Sigurðar yrði áfrýjað.
Dómurinn sem málið varðar
var kveðinn upp í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær en
með honum er Sigurði gert að
endurgreiða Kaupþingi tæplega 500 milljónir,
ásamt dráttarvöxtum, vegna lána sem hann fékk
hjá Kaupþingi til að kaupa hlutabréf í bankanum á
tímabilinu frá desember 2005 til ágúst 2008.
Bréfin urðu verðlaus í hruninu en Sigurður
hafði þá haft nokkurn arð af þeim.
Bankastjórnin felldi niður ábyrgðina
Nokkrum dögum fyrir fall Kaupþings ákvað
stjórn bankans að fella niður persónulega ábyrgð
hans vegna lánanna og krafðist Kaupþing þess að
fá lánin greidd, enda hefði niðurfellingin verið
gjafagerningur. Féllst dómarinn á kröfur Kaup-
þings og er Sigurði gert að greiða 496 milljónir kr.
ásamt dráttarvöxtum frá 20. ágúst 2010 til
greiðsludags. Var það varakrafa í málinu.
Aðalkrafan hljóðaði upp á 549.308.558 krónur
en það samsvarar 10% ábyrgðar vegna heildar-
upphæðarinnar sem Sigurður fékk að láni.
Sigurði gert að endurgreiða
um hálfan milljarð auk vaxta
Héraðsdómur Reykjavíkur fellst á að niðurfelling ábyrgðar hafi verið gjöf
Eignirnar kyrrsettar
» Krafa um kyrrsetningu eigna var staðfest
með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
» Sýslumaðurinn í Reykjavík hafði í júlí 2011
kyrrsett eignir Sigurðar á Valhúsabraut 20,
Seltjarnarnesi, eignarhluta stefnda í jörðinni
Stíflisdal, sumarhúsi á jörðinni Stíflisdal og
20% eignarhluta stefnda í Hvítsstöðum ehf.
» Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur er þessi
kyrrsetningargerð staðfest.
» Stefndi krafðist sýknu og að kyrrsetning-
arkröfu stefnanda yrði hrundið.
Sigurður
Einarsson
Páll Bergþórsson
veðurfræðingur
hefur birt tíu daga
veðurspár á Face-
book, eða Fasbók-
inni, í meira en eitt
ár. Páll styðst við
spár norska veð-
urvefsins yr.no við
gerð spánna.
„Þeir spá fyrir
tíu daga að með-
töldum útgáfudeginum,“ sagði Páll.
Hann sagðist nota allar spárnar sem
gefnar væru út á yr.no og kvaðst hafa
fengið töluverða reynslu af þeim.
Norðmennirnir vinna úr spám frá
Evrópureiknimiðstöðinni í Reading í
Englandi sem koma tvisvar á dag.
„Þær koma svona tvær mínútur yfir
sjö á morgnana og svo aftur tvær mín-
útur yfir átta á kvöldin,“ sagði Páll.
Seinni spáin kemur það seint að hún
nær ekki fyrir gerð veðurspánna sem
birtar eru í sjónvarpinu á kvöldin. En
hvað finnst Páli um þessar langtíma
veðurspár?
„Þær eru býsna góðar en verða því
lakari sem lengra líður, að sjálfsögðu.
En þetta er orðið ótrúlega nærri lagi í
þessa 5-6 daga. Mér þykir þýðing-
armikið að fólk fái að vita hverju er
spáð fyrir næstu sex daga þar á eftir,
þó að það reynist ekki alltaf rétt. Það
er þó það skásta sem maður hefur,“
sagði Páll, sem á um 2.500 kunningja á
Fasbókinni. gudni@mbl.is
Páll
Bergþórsson
Tíu daga
veðurspár
á Facebook
Páll Bergþórsson
styðst við norska spá
Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í
Garði, var rekinn frá störfum á
aukabæjarstjórnarfundi í gærkvöldi.
Að sögn Ásmundar snýst uppsögnin
og þær breytingar sem urðu á meiri-
hlutanum í bæjarstjórn um helgina
um málefni skólans.
Hann frétti fyrst af uppsögninni á
vefmiðlum. Núverandi meirihluti
hafði ekkert samband við hann.
Að sögn Ásmundar mun upp-
sögnin kosta sveitarfélagið um
fimmtíu milljónir króna þar sem
hann verður á launum í 32 mánuði.
Hann er mjög ósáttur við uppsögn-
ina, sérstaklega hvernig staðið var
að henni. guna@mbl.is
Bæjarstjóri í
Garði rekinn
Frétti af uppsögn-
inni á vefmiðlum