Morgunblaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
BÍLARAF
BÍLAVERKSTÆÐI
Bílaraf
www.bilaraf.is
Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is
Allar almennar
bílaviðgerðir
Tímapantanir í síma 564 0400
Gott verð, góð þjónusta!
Startarar og alternatorar
í miklu úrvali
Okkur ber að virða og þakka
þeim sem komin eru
við aldur og hafa lagt
á sig ómælt erfiði til
þess að koma okkur á
lappirnar sem telj-
umst miðaldra eða
yngri í dag. Þar með
ráðamönnum þjóð-
félagsins í öllum stöð-
um.
Mætti friður og
þakklæti ríkja í hjört-
um okkar í garð
þeirra sem komin eru
á efri ár. Sýnum þeim
sanngjarna og sjálf-
sagða virðingu, mannúð, um-
hyggju og kærleika. Þau eiga það
skilið. Þau eiga skilið að fá að
njóta sanngirni, virðingar og kær-
leika án forréttinda, enda er það
ekki það sem þau vilja.
Er það hugsanlegt að við sem
yngri erum og þá ekki síst þau
sem valist hafa í stjórnunarstöður
í fyrirtækjum eða opinberum
stofnunum komum fram við eldri
borgarana okkar af skilningsleysi,
hroka og græðgi, óþolinmæði og
lítilsvirðingu, án þess endilega að
ætla okkur það eða gera okkur
hreinlega grein fyrir því?
Enginn er sem þú
Kæri eldri borgari! Þú sem
kominn ert á efri ár, þú sem berð
reynslu ævinnar á bakinu. Þú sem
hefur upplifað vonbrigði, áföll og
sorgir, sigra og gleði. Lát engan
líta smáum augum á aldur þinn,
þekkingu eða reynslu.
Þú einn eða ein býrð að þinni
ómetanlegu reynslu. Þú einn getur
miðlað henni til okkar sem yngri
erum svo hún berist til komandi
kynslóða. Þú hefur svo óendanlega
mikið að gefa, segja
frá og miðla.
Enginn hefur sömu
reynslu og þú. Enginn
hefur sama sjón-
arhorn á liðna atburði
og þú. Enginn hefur
upplifað hlutina á ná-
kvæmlega sama hátt
og þú hefur gert.
Þú einn getur miðl-
að þinni sérstæðu
reynslu, sagt þínar
sögur. Enginn annar
getur miðlað þinni
ást, umhyggju og
kærleika sem uppvaxandi kynslóð
þarf í svo ríkum mæli á að halda.
Nú sem aldrei fyrr.
Þú ert einstakt eintak, sem ger-
ir hlutina og sérð lífið á þinn ein-
staka hátt, með þínum augum sem
Guð hefur gefið þér og þú einn
hefur. Það kemur enginn í þinn
stað. Þú ert einstakur og við hin
yngri þurfum á þér, þekkingu
þinni og reynslu að halda.
Þú ert einstök sköpun Guðs, svo
óendanlega dýrmætt eintak. Þú
ert ekki úreltur og láttu ekki telja
þér trú um það. Veröldin væri
ekki söm ef þín hefði ekki notið
við. Hún væri svo miklu fátækari
án þinnar dýrmætu aðkomu og
einstöku reynslu. Án þinna upplif-
ana, sem þú mátt til að miðla til
þeirra sem yngri eru.
Þú sem tekið hefur þátt í að
byggja upp þetta þjóðfélag okkar.
Unnið og stritað í áratugi. Oft við
erfiðar aðstæður og greitt þína
skatta og skyldur. Þú átt skilið ást
og umhyggju frá börnunum þín-
um, barnabörnum og barna-
barnabörnum, frá ráðamönnum
þjóðarinnar og okkur öllum. Hvar
værum við ef ykkar hefði ekki
notið við og þú lagt þinn mikla og
góða skerf til þjóðfélagsins, veitt
þjónustu og þinna dýrmætu krafta
ekki notið við?
Rifjaðu upp, segðu frá, miðl-
aðu og kenndu
Vertu ófeiminn við að rifja upp
hið liðna. Leyfðu okkur að taka
mið af reynslu þinni, læra af henni
og nýta okkur hana til framfara
inn í nýja tíma. Segðu okkur sög-
urnar þínar og kenndu okkur
bænirnar þínar. Sögurnar og bæn-
irnar sem þú varst alinn upp við
og komandi kynslóðir þurfa að
heyra, læra og tileinka sér. Sjálf-
um sér og þjóðfélaginu til heilla
og blessunar.
Góður Guð blessi þig og þína
einstöku og dýrmætu arfleifð. Með
kæru þakklæti fyrir allt sem þú
hefur meðvitað og ómeðvitað verið
okkur sem yngri erum.
Óður til aldraðra
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Vertu ófeiminn við
að rifja upp hið
liðna. Leyfðu okkur að
taka mið af reynslu
þinni, læra af henni og
nýta okkur hana til
framfara inn í nýja
tíma.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er rithöfundur og m.a.
umsjónarmaður starfs eldri
borgara í Laugarneskirkju.
Í u.þ.b. 40 ár
tengdist ég íslenskum
sjávarútvegi all-
nokkuð. Fyrstu 15 ár-
in sem kokkur eða
vélstjóri lengst af á
skipum Gjögurs ehf.
En því félagi hefur
alltaf verið stjórnað
af miklu sómafólki.
Í um 25 ár féll það
í minn hlut, sem for-
manns Vélstjórafélags
Íslands, bæði að gera samninga
fyrir vélstjóra við LÍÚ og eiga í
margháttuðum samskiptum við
einstakar útgerðir vegna túlkunar
þeirra. Í heildina voru þessi sam-
skipti góð, þó að í þessari grein
sem öðrum séu einstaklingar sem
hefðu getað komið betur fram við
sitt fólk. En þannig er það bara í
öllum geirum mannlífsins, það
verður sennilega alltaf misjafn
sauður í mörgu fé.
Ég rifja þetta upp vegna þess
að þegar ég var til sjós, fyrir um
40 árum, var umtal um greinina
allt annað en það er í dag. Mín til-
finning er sú að það tali ekki aðrir
vel um þessa höfuðatvinnugrein
þjóðarinnar en þeir sem eiga þar
beinna hagsmuna að gæta.
Alltof margir tala um kvóta-
kónga, sægreifa, braskara og
fleira í þeim dúr.
Hvað gerðist?
Þeir sem skynja
þessa breyttu stöðu
útgerðarinnar hljóta
að velta fyrir sér hvað
nákvæmlega gerðist
sem breytti stöðu
hennar í huga alltof
margra landsmanna.
Einn ágætur vinur
minn hefur þá skoðun
að hrunið hér á landi
megi rekja til kvóta-
kerfisins. Nánar til-
tekið til þess að heimila hand-
höfum veiðiheimildanna að selja
nýtingarréttinn, bæði innan ársins
og til langframa, sem hættu síðan
í útgerð, stundum með milljarða
hagnað fyrir sölu á óveiddum fiski
sem þeir áttu ekkert í.
Kenning þessa glögga vinar
míns er sú að þarna hafi mörgum
þeim sem síðar fylltu flokk hinna
svokölluðu útrásarvíkinga lærst sú
viðskiptalist að selja annarra eig-
ur og stinga andvirðinu í eigin
vasa og fá til viðbótar hrós sam-
félagsins fyrir einstaka hæfileika í
viðskiptum. Þetta olli því að for-
seti vor, sem dreifir nú ekki me-
dalíum embættisins á hvern sem
er, átti það til að hengja eina og
eina medalíu um hálsinn á bæði
kvótakóngum og útrásarvíkingum.
Sem sagt, hérna í slorinu, í óra-
fjarlægð frá mestu efnishyggju-
hugsuðum þessa heims, hafi þessi
nýja útfærsla á eilífðarpeningavél-
inni slitið barnsskónum. Kann að
vera rétt. Sjálfur er ég nú alltaf
þeirrar skoðunar að naglasúpu-
kokkurinn sé mesti og besti áróð-
ursmeistari allra tíma. Maðurinn
sem lagði af stað með einn ryðg-
aðan nagla í farteskinu og sagði
trúgjörnum konum að hann ætlaði
nota hann til súpugerðar; meira
þyrfti nú ekki til þó að grjón og
annað viðlíka myndi nú ekki
skemma. Allir þekkja lyktirnar.
Er það nokkuð svo fjarlægt að
halda því fram að margur spámað-
urinn í útgerð hér á landi hafi,
þegar opnað var fyrir sölu á
óveiddum fiski, lagt af stað með
lítið annað en einn ryðgaðan nagla
og skuldir. En hafi, að lokinni sölu
á heimildum til veiða, staðið uppi
með fúlgur fjár og farið mikinn í
framhaldinu líkt og Íslands-Bersi
forðum.
Almenningur krefst breytinga
Þessi angi kvótakerfisins hefur
verið gagnrýndur harkalega frá
fyrstu dögum hans. Svo harkalega
reyndar að segja má að fyrirheit
núverandi ríkisstjórnarflokka um
að búa svo m.a. um hnúta að
ríkjandi viðskiptum með aflaheim-
ildir verði hætt, hafi tryggt þeim
þingmeirihluta og stjórnarsetu í
síðustu kosningum.
Í framhaldi var hafist handa um
endurskoðun á kvótakerfinu. Skip-
uð var sáttanefnd með setu full-
trúa allra hinna svokölluðu hags-
munaaðila í málinu. Sú nefnd
starfaði í um tvö ár en skilaði ekki
öðru en almennt orðuðum tillögum
um réttlátara stjórnkerfi veið-
anna. Eftir var að taka ákvarðanir
um nánast allt sem deilur hafa
staðið um á liðnum árum. En nú á
að breyta þannig að deilunum
linni og sem flestir verði sáttir við
sinn hlut.
Nú liggja m.a. fyrir þinginu tvö
frumvörp, annað um stjórn veið-
anna en hitt um gjaldtöku v/
þeirra. Varla voru frumvörpin
komin fram þegar LÍÚ og/eða ein-
stök félög eða félagar innan sam-
takanna, byrjuðu að hóta upp-
sögnum starfsmanna og lokun
einstakra fyrirtækja með þeim af-
leiðingum að svo og svo margir
myndu nú missa vinnuna ef frum-
vörpin yrðu ekki strax dregin til
baka og ný samin með þeirra að-
komu.
Móðuharðindin endurborin
Helst mátti af öllum hamagang-
inum ráða að ef þessi frumvörp
yrðu að lögum mundu fiskveiðar
að stærstum hluta leggjast af hér
við landið og ekkert annað blasa
við en örbyrgð ámóta og móðu-
harðindin leiddu yfir þjóðina á sín-
um tíma. Endurskoðunarskrif-
stofur skreyttar erlendum nöfnum
voru fengnar til þess að staðfesta
nú þessa heimsendaspá LÍÚ. Og
bankarnir, sem voru búnir að lána
útgerðinni um 500 milljarða út á
um 60 milljarða eign, fengu sér-
staklega þungbært ekkakast þeg-
ar það rann upp fyrir þeim að veð-
in sem áttu að tryggja þeim
endurgreiðslur voru ekki eins
traust og öll hálaunuðu bankaséní-
in höfðu ætlað.
Það er þó huggun harmi gegn
að enn virðist útgerðin hafa ráð á
að auglýsa bágindi sín lengi og oft
í dýrum fjölmiðlum. Svo lengi að
flestir eru steinhættir að taka eft-
ir boðskapnum.
Fróðlegt væri að vita hvað áróð-
urinn er búinn að kosta þessa
vammlausu grein sem vondir
menn eru að leggja í einelti.
Naglasúpuformúlan
Eftir Helga Laxdal » Áróður LÍÚ, gegn
nánast öllum breyt-
ingum á kvótakerfinu,
er kominn út fyrir öll
velsæmismörk, bæði
hvað varðar efni og
kostnað.
Helgi Laxdal
Höfundur er vélfræðingur
og fyrrv. yfirvélstjóri.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is