Morgunblaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ferðaáætlanir og áætlanir sem tengj-
ast menntun virðast vænlegri en þær eru í
raun. Ekki rugla saman aðgerðaleysi og bið.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki láta hugfallast þó að hindranir séu
til staðar í vinnunni. Notaðu tækifærið og
dragðu þig í hlé nógu snemma, þér veitir ekki
af allri þeirri hvíld sem í boði er.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Líklega mun fortíðarþráin toga þig
til baka til áranna þegar þú varst ein/n og
áhyggjulaus. Fólk er óvenjusveigjanlegt og
tilbúið að mætast á miðri leið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vertu ekki stygg/ur þótt eitthvað tefji
verkefni þitt því þú hefur í svo margt annað
að grípa á meðan. Láttu það ekki slá þig út af
laginu þótt aukaverkefni dragi verulega úr af-
köstum þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Margir munu komast yfir ákveðinn hjalla
í starfsframa sínum á næstunni. Kvöldinu
væri best varið í ró og næði ef þú hlustaðir á
líkamann.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Leyfðu öðrum að njóta kunnáttu þinn-
ar en varast skaltu allt oflæti, því fyrr en varir
ert þú sá/sú sem lærir af öðrum. Enginn fær
þakkir fyrir að vera píslarvottur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í dag lendirðu í klípu – sem reyndar
verður ekki of erfitt að leysa úr. Hafðu verk-
efnin innan þess ramma sem þú ræður við.
Einhver sendir þér póst sem þú vilt ekki
svara.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur mikinn metnað og set-
ur markið hátt. Og þar sem þú ert ekki sér-
lega góður lygari lætur þú freistast til að
forðast tilteknar aðstæður alfarið í dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur fórnað miklu í sambandi
við ákveðna manneskju sem stendur ekki
undir trausti þínu. Veltu því fyrir þér hvað er
að og hvað hægt er að gera í því.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óttastu ekki að gera mistök.
Gerðu þér grein fyrir því hvers vegna það
sækir á þig að breyta lífi þínu. Þú getur sigrað
heiminn ef þú vilt það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Notfærðu þér þann hæfileika þinn
að vera fundvís á lausnir. Næstu dagar færa
þér mikla hamingju ef þú leyfir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér finnst líf þitt vera komið í þær
skorður sem þér henta og nú megi engu
breyta. Láttu ekkert trufla þig, haltu þínu
striki. Þú ert á réttri leið og þú veist það.
Það var bjart vorveður þegar égmætti karlinum á Laugaveg-
inum þar sem hann gekk upp
Snorrabrautina. Hann sagði að ráð-
húsið hefði átt að rísa þar sem
Málningarverksmiðjan Harpa stóð.
Hvergi er útsýnið betra yfir sundin
blá og Engey blasir við, sagði hann.
Það er fallegasti bletturinn í
Reykjavík. Þar er kínverska sendi-
ráðið núna. Þeir kunna að meta ís-
lenska náttúrufegurð. Og var
hugsi:
Laus við hljóðskraf í kínverskum höllum
ríkir hásléttan fegurst af öllum
í einsemd og dul.
Það er kvöldsett og kul
og kindur á beit á Fjöllum.
Og það rifjaðist upp fyrir mér
ferð að Dettifossi, sem við ungir
sjálfstæðismenn fórum sumarið
1961. Þegar við komum upp í
Hólmatungur sáum við hvar
snæugla sat á hraunnibbu rétt við
veginn og fór sér í engu óðslega:
Á björtum degi brosti ég
er blasti við mér ungum
hve snæuglan er snöfurleg
á snös í Hólmatungum.
Þá bjó Jón Jóhannesson á Yng-
valdsstöðum, dugnaðarforkur og
hafði sigrast á fátæktinni; höfðingi
heim að sækja. Hann orti margt vel:
Þó að hélan kæli kinn,
komi él um nætur,
hlýnar þel og muni minn
meðan pelinn grætur.
Kristján Ólason, albróðir Árna
Óla rithöfundar og blaðamanns,
var fæddur í Kílakoti en foreldrar
hans frá Víkingavatni og Grásíðu.
Hann átti til skálda að telja, var ná-
skyldur Kristjáni Fjallaskáldi og
Jóni Sveinssyni, Nonna. Hann var í
hópi listfengustu hagyrðinga og
muna margir eftir honum á Húsa-
vík, þar sem hann stundaði versl-
unarstörf um þrjátíu ára skeið:
Minninga að ganga garð
gleður okkur flesta,
en oft er það sem aldrei varð
eftirsjáin mesta.
Og Að leiðarlokum:
Kannað hef ég kalt og heitt,
kátur meðal gesta.
Nú er bara eftir eitt
– ævintýrið mesta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hljóðskraf í
kínverskum höllum
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
ÆI!
ÉG ER KISI OG
HVAÐ ÆTLI ÉG SÉ
AÐ HUGSA?
ÉG ER AUÐVITAÐ
AÐ HUGSA UM AÐ
KREMJA KÓNGULÓNA...
ÞVÍ ÉG
HEF EKKERT
BETRA AÐ
GERA
TÍMI TIL
AÐ KENNA ÞÉR
MANNASIÐI
HERRA MINN, HUNDURINN
ÞINN ER ÓGEÐSLEGUR. AF HVERJU
BAÐARÐU HANN EKKI?
EN
HANN ER NÚ
ÞEGAR BÚINN
AÐ FARA Í
BAÐ...
HVENÆR?
FYRIR
SVONA ÁRI EÐA
TVEIMUR
ÞAÐ ER AUGLJÓST
AÐ ÞÚ ERT AÐ UNDIRBÚA
ÞIG UNDIR AÐ FARA ÚT
AÐ ELTA BÍLA
ÞAÐ ER
SVO
EINMANALEGT
AÐ SKAUTA
EINN
Íslenska var ekki sterkasta fag Vík-verja þegar hann var í mennta-
skóla og enn verður honum stundum
fótaskortur á tungunni. Stundum fær
hann slæm þágufallssýkissköst eða
hnýtur um erfiðar beygingar. Tungu-
bylturnar fara óskaplega í taugarnar
á Víkverja og hann reynir í sífellu að
bæta sig, vanda málið og hann er,
þrátt fyrir allar sínar ambögur,
áhugamaður um íslenskt mál.
x x x
Íslenskan þróast sem betur fer enekki alltaf til betri vegar. Sem
dæmi um afturför má nefna þá þróun
að sífellt fleiri skrifa nú stóran staf í
nafni stofnana, deilda eða skrifstofa.
Eitt skýrasta dæmið um þessa þróun
er að finna í nýjasta Tímariti Háskóla
Íslands. Þar eru deildir og svið nú
skrifaðar með stórum staf, samanber
Tannlæknadeild, Jarðvísindadeild,
Íslensku- og menningardeild,
Menntavísindasvið og svo framvegis.
Þessi breyting úr litlum staf yfir í
stóran er tiltölulega ný af nálinni og
er að mati Víkverja hreint ekki til
bóta.
x x x
Þessi ritháttur mun víst ekki verarangur en ljótur er hann. Það er
reyndar afar misjafnt hvort nöfn
stofnana, deilda og annarra apparata
séu rituð með stórum eða litlum staf.
Í ljósi þess að hér er um Háskóla Ís-
lands að ræða er t.d. athyglisvert að
menntamálaráðuneytið er enn ritað
með litlum staf. Hið sama á við um
innanríkisráðuneytið en í nafni emb-
ættis Sýslumannsins í Reykjavík er á
hinn bóginn hafður stór stafur í upp-
hafi nafnsins.
x x x
Stór stafur í upphafi nafns fer semsagt ekki eftir því hvar í valda-
pýramídanum viðkomandi stofnanir
eða deildir eru staddar. Og þó,
kannski er það einmitt málið. Ef til
vill er þetta einhvers konar minni-
máttarkennd sem brýst svona út, að
menn haldi að það geri þeirra stofnun
eða skrifstofu eitthvað merkilegri ef
nafn hennar er ritað með stórum staf.
Vonandi láta menn af þessari vit-
leysu sem fyrst. Hún ruglar Víkverja
enn frekar í ríminu. Og mátti hann
síst við því. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður
yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka
ÖFLUGIR Í SAMSTARFI
VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR
· Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang
· Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum
· Seljum hellusand og útvegum mold
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS