Morgunblaðið - 17.05.2012, Síða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er einleikur án orða sem
fjallar um mann sem rankar við sér í
kassa í yfirgefinni verksmiðju og
þarf að finna sér leið út,“ segir Bene-
dikt Karl Gröndal, höfundur einleiks
er nefnist Fastur og frumsýndur er í
Norðurpólnum í kvöld kl. 20.
Aðspurður segir Benedikt hug-
myndina að verkinu hafa kviknað
um það leyti sem hann útskrifaðist
úr leiklistarskólanum The Comedia
School í Danmörku fyrir þremur ár-
um. „Hugmyndin hefur fengið að
gerjast í kollinum á mér í dágóðan
tíma, en nú í vor fann ég að kominn
var rétti tíminn til að koma þessu á
svið. Þá fékk ég til liðs við mig Árna
Kristjánsson leikstjóra sem kom inn
í vinnsluferlið og varð meðhöfundur
að verkinu. Ég sýndi honum hvað ég
var búinn að sjá fyrir mér, en ég
fangaði þær myndir m.a. í teikn-
ingum. Hann hjálpar mér að tengja
þessar myndir saman og þróa hug-
myndina áfram,“ segir Benedikt
sem fer með eina hlutverk sýning-
arinnar.
Leikhús án orða spennandi
Aðspurður segist Benedikt hafa
sérhæft sig í kómísku og líkamlegu
leikhúsi í námi sínu. „The Comedia
School byggir á franskri hefð og
snýst um líkamlega leiklist. Fyrsta
námsárið vorum við t.d. að þjálfa
okkur í að miðla hlutum og leika án
orða, það var mjög lærdómsríkt. Því
þó orð geti verið falleg og sterk þá
eru þau oft óþörf,“ segir Benedikt og
tekur fram að sér finnist leikhús án
orða sérlega spennandi.
Spurður um áhrifavalda sína seg-
ist Benedikt m.a. horfa til Busters
Keaton og Charles Chaplin sem séu
meistarar þögla leiksins þar sem
einfaldleikinn og einlægnin fái að
njóta sín.
Þess má að lokum geta að hljóð-
mynd sýningarinnar er í höndum
Einars Helgasonar, en útlitshönnun
í höndum hópsins.
Sýningin er u.þ.b. 45 mínútur í
flutningi og leikin án hlés.
Fastur í kassa og þarf
að finna sér leið út
Nýr einleikur án orða frumsýndur í Norðurpólnum
Morgunblaðið/Kristinn
Einsamall Benedikt Karl Gröndal fer með eina hlutverk sýningarinnar.
Merkilegt með þessatrommuleikara hversuoft virðist leynast íþeim faglegir söngv-
arar og lagahöfundar. Mýmörg
dæmi eru um trommuleikara sem
stíga upp frá húðunum og taka sér
stað fremst á svið-
inu, það nýjasta er
að finna á frumburði
íslensku hljómsveit-
arinnar Tilbury sem
ber heitið Exorcise.
Hljómsveitina setti
Þormóður Dagsson
saman en hann hefur meðal annars
trommað með Skakkamanage, Jeff
Who? og Hudson Wayne.
Þormóður samdi öll lög og texta á
plötunni fyrir utan lagið „Picture“
sem skrifað er á Þormóð og Örn Eld-
járn. Helgast þetta eflaust helst af
því að um sólóverkefni var að ræða
hjá Þormóði sem sprakk út með lát-
um og varð að Tilbury.
Allar líkur eru á því að hver sá
sem kveikt hefur á útvarpstæki sínu
undanfarnar vikur hafi heyrt lagið
Tenderloin, upphafslag plötunnar.
Fínasta lag sem setur tóninn fyrir
faglega unna, fumlausa plötu sem
verður án nokkurs vafa á listum yfir
bestu plötu ársins.
Útgáfan kom einnig á góðum tíma
því finna má sumarið í flestum lögum
og auðvelt að sjá fyrir sér að Exorc-
ise verði sett á fóninn í grillveislum
eða partíum á björtum sum-
arkvöldum.
Eftir dágóða hlustun undanfarna
daga er því spáð að næsta smáskífa
verði lagið „Riot“, enda stórgóður
smellur þar á ferð. Creepy lookin
like a an evil teenager/You’re evil
now/Wake me up in the afterhours.
Einfalt og grípandi viðlag sem á eftir
að límast inn á hlustir þeirra sem
heyra.
Þá er ekki úr vegi að minnast á
lagið „Eclective boogaloo“, rokk-
aðasta lagið á plötunni og annað
mjög sterkt lag. Þó óx lagið Drama
með hverri hlustun og telst með
betri lögum plötunnar.
Þegar kemur að því að finna veika
bletti er fátt að sjá. Helst að óþarfa
miðkaflar heyrist sem bæta kannski
ekki endilega neinu við og eru í raun
óþarfa skreytingar. Sá ókostur sem
segja má að sé tilfinnanlegastur er
lengd plötunnar. Lögin níu spanna
aðeins tæpar fjörutíu mínútur og eft-
ir síðasta lagið er helst að maður vilji
heyra eitt til viðbótar. En kannski er
erfitt að telja það til ókostar.
Telja verður mjög líklegt að Ex-
orcise verði fylgt eftir með annarri
skífu hjá Tilbury, sveitin hefur alla
vega alla burði til að setja mark sitt á
íslenskt tónlistarlíf á næstunni.
Fumlaus frumburður hjá Tilbury
Tilbury – Exorcise
bbbbn
Tilbury skipa Þormóður Dagsson, Krist-
inn Evertsson, Örn Eldjárn, Guðmundur
Óskar Guðmundsson og Magnús
Tryggvason Eliassen. Record records
gefur út.
ANDRI KARL
TÓNLIST
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
efnir til tónleika í Seltjarnar-
neskirkju nk. sunnudag kl. 17. Tón-
leikarnir hefjast á verkinu On hear-
ing the first cuckoo in spring eftir
Delius. Þá syngur Selkórinn með
hljómsveitinni harmljóðið Nänie
eftir Brahms. Að lokum leikur Ein-
ar Jóhannesson einleik í klarinettu-
konsert Mozarts. Stjórnandi á tón-
leikunum er Oliver Kentish. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Delius,
Brahms og
Mozart
568 8000 | borgarleikhus.is
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fim 17/5 kl. 20:00 9.k Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Mið 6/6 kl. 20:00 aukas
Fös 18/5 kl. 20:00 aukas Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Lau 19/5 kl. 17:00 aukas Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Sun 20/5 kl. 20:00 10.k Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Þri 22/5 kl. 20:00 aukas Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Mið 23/5 kl. 20:00 11.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k
Fim 24/5 kl. 20:00 12.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Fim 17/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00
Fös 18/5 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra svið)
Lau 19/5 kl. 20:00 lokas
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fim 17/5 kl. 20:00 Fös 25/5 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Fös 18/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bræður - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport, Malmö Stadsteater, Teater Får302. Sýnt á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Lau 19/5 kl. 20:00 4.k Fim 24/5 kl. 20:00 7.k Lau 9/6 kl. 20:00
Sun 20/5 kl. 20:00 5.k Fös 1/6 kl. 20:00
Mið 23/5 kl. 20:00 6.k Lau 2/6 kl. 20:00
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 20/5 kl. 13:00 Sun 20/5 kl. 14:30
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 18/5 kl. 19:30 Fös 1/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Lau 19/5 kl. 19:30 Lau 2/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Sun 20/5 kl. 19:30 Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Fim 24/5 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Síð. sýn.
Fös 25/5 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 15:00 Fös 15/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 23. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 18/5 kl. 19:30 24.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 Sun 20/5 kl. 19:30 Síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Mið 23/5 kl. 19:30 11.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 1/6 kl. 19:30
Fim 24/5 kl. 19:30 12.sýn Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn
Uppselt. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Bliss (Stóra sviðið)
Mán 21/5 kl. 12:00
Myndbandsverk eftir Ragnar Kjartansson. Listahátíð 2012
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Sun 20/5 kl. 17:00
Frumsýn.
Þri 22/5 kl. 19:30
Mán 21/5 kl. 19:30 Lau 26/5 kl. 17:00
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Gestasýning frá Sviss í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 23/5 kl. 20:00
Frumsýn.
Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Danssýning eftir Sigríði Magnúsdóttur og Sigríði Soffíu Níelsdóttur á Listahátíð
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 19/5 kl. 16:00 Sun 20/5 kl. 16:00
Sigurður Skúlason fer á kostum. Aðeins tvær sýningar eftir.
TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI
Just Imagine - John Lennon show
Fim 17. maí kl 20.00 Ö
Fös 18. maí kl 20.00 Ö
Lau 19. maí kl 20.00 Ö
Sun 20. maí kl 20.00 Ö
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is