Morgunblaðið - 10.05.2012, Side 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2012
Spíralformið er eitt af grunn-mynstrum lífsins, og raun-ar alheimsins. Í einkasýn-ingu Kristins E. Hrafns-
sonar í Listasafninu á Akureyri er
fólgin áminning um eðli þeirrar
orku sem mótar tilveru okkar. Stór
stálskúlptúr, Spírall, gengur í gegn-
um safnrýmið og virðist ætla að
sprengja það utan af sér með snún-
ingskrafti náttúrunnar – og rým-
isskynjun áhorfandans fer á sann-
kallað flug. Sýningin heitir „Misvís-
un“ og fjallar m.a. um afstöðu,
sjónarhorn, leiðarkerfi, hreyfingu
og rými – og eins og yfirskriftin
gefur til kynna þá er ekkert gefið í
þeim efnum. Á sýningunni getur
einnig að líta fleiri skúlptúra auk
grafíkmynda, siglingakorta, áttavita
og svonefnds leiðarsteins.
Lífið er sífelld verðandi og ljóst
er að Kristinn hrífst af þeirri stað-
reynd; myndhugsun hans hverfist
um tilvistarlega þætti og vangavelt-
ur um eðlisheiminn, stöðu mannsins
og þau viðmið og staðsetning-
arkerfi sem hann styðst við á veg-
ferð sinni. Strax og komið er í and-
dyri safnsins blasir við
sýningargestinum smækkuð útgáfa
af sýningunni í formi líkans eða
nokkurs konar uppdráttar sem
minnir hann á eigin staðsetningu,
og raunar smæð. Og þegar inn í
miðsalinn er komið virkjar lista-
maðurinn rýmislega og huglæga af-
stöðu áhorfandans sem staðnæmist
við Tímamót, skúlptúr á gólfi. Stál-
gormurinn laðar gestinn umsvifa-
laust til sín og sendir hann í ferða-
lag um sýningarrýmið, ferðalag
sem er þó ekki endilega bundið
stund og stað. Þar má sjá smækk-
aða spegilmynd sína í pólstjörnunni
og óravíddum geimsins, eða láta
sogast inn í lægð yfir landi. Þegar
farið er að rýna í grafíkverk á
veggjum salarins sjást þar eins
konar sneiðar úr sjónbaugi og tákn
sem gefa til kynna áttirnar – og
samkvæmt því er pólstjarna Krist-
ins í norðaustri. Norðrið sjálft er á
hreyfingu; það er að finna í bili
(misvísuninni) milli segulnorðurs og
rétts norðurs, og þetta afstæði
heimsmyndarinnar undirstrikar
Kristinn með verkinu Norðrið –
leiðarsteinn, kompási inni í afmörk-
uðu rými, sem hægt er að hreyfa
(þ.e. nálina) að vild með seg-
ulmögnuðum leiðarsteini, eða
magnetíti. Síbreytileg heimsmynd
og skynjun hvers og eins á sér,
þegar allt kemur til alls, miðju í
honum sjálfum. Við erum öll pól-
stjörnur eins og endurspeglast í
verkinu Stjarna.
Ferðinni um sýninguna má líkja
við lífsferðalagið þar sem hver og
einn leitast við að ná áttum og
staðsetja sig í heiminum, með
tungumálinu ekki síður en öðrum
táknkerfum. Viðkomustaðirnir eru
margir og samferðamenn hug-
fólgnir, eins og Kristinn tjáir með
verkinu Sjókort föður míns.
Lúmskur húmor býr í verkinu 360°
(tileinkað H.F.) þar sem hann kink-
ar kolli til andlega skyldra kollega í
listinni.
Sýning Kristins er úthugsuð,
vönduð og hefur sterkan heild-
arbrag. Verk hans eru meitluð og
þau búa yfir fagurfræðilegri og efn-
islegri nærveru sem áhorfandinn
heldur ávallt „jarðsambandi“ við,
og um leið við staðsetningu í
ákveðnu rými – jafnvel þótt hug-
urinn sé á siglingu um geimsins
höf.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Misvísun Myndlistarmaðurinn Kristinn E. Hrafnsson við eitt verka sinna á sýningunni Misvísun/Variation.
Fyrir tilstilli
Listasafnið á Akureyri
Kristinn E. Hrafnsson –
Misvísun/Variation
bbbbm
Til 13. maí 2012. Opið þri.-sun. kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Köntrísveit Baggalúts heldur vor-
tónleika sína í Gamla bíói á morg-
un, 11. maí, kl. 21. Í tilefni af þeirri
köntríveislu tóku Baggalútar sig til
og endurgerðu þekkta ljósmynd
sem tekin var af fjórum meðlima,
þ.e. Kidda, Kalla, Gumma og
Braga, árið 2006 við gamla bragg-
ann í Nauthólsvík. Feður þeirra
settu sig í sömu stellingar á sama
stað fyrir endurgerðina, þeir Jón,
Sigurður, Páll og Skúli, og afrakst-
urinn má sjá hér til hliðar. Ábúð-
arfullir feður þar á ferð og heldur
óárennilegir, eins og sjá má.
Baggapabbar Feður Baggalúta við
gamla braggann í Nauthólsvík.
Baggapabbar í
Nauthólsvík
Empire Total film Variety
Tommi, Kvikmyndir.is
Stærsta ofurhetjumynd allra tíma!
EGILSHÖLL
16
16
14
KRINGLUNNI
ÁLFABAKKA
VIP
12
12
12
12
12
L
L
10
10
10
10
10
10
STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI !
KEFLAVÍK
16
12
10THEAVENGERS KL. 8 - 10:50 3D
GONE KL. 8 2D
SVARTURÁLEIK KL. 10 2D
12
12
10
AKUREYRI
THEAVENGERS (3D) KL. 6 - 9 3D
GONE KL. 8 2D
WRATHOF THE TITANS KL. 5:40 - 10:10 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 7 - 8 - 10 - 11. 3D
THEAVENGERS KL. 6 2D
BATTLESHIP KL. 8 - 10:50 2D
DARKSHADOWS FORSÝND. KL. 9 3D
THECOLDLIGHTOFDAY KL. 5:50 2D
UNDRALAND IBBA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
STÓRSKEMMTILEG TEIKNIMYND
THEAVENGERS KL. 5 - 7 - 8 - 10 - 10:50 3D
THEAVENGERSVIP KL. 5 - 8 - 10:50 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 10:20 2D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
CABIN IN THEWOODS KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D
BATTLESHIP KL. 8 - 10:40 2D
AMERICANPIE: REUNION KL. 8 2D
FJÖRFISKARNIRM/ÍSL.TALI KL. 5 2D
THEAVENGERSKL. 5 - 6 - 8 - 9 - 10:50 3D
THEAVENGERS KL. 6 2D
CABIN IN THEWOODSKL. 10:10 2D
COLDLIGHTOFDAY KL. 6 - 8 2D
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
YFIR 37 ÞÚS. BÍÓGESTIR !
SVALI&SVAVAR
ALLAVIRKA
MORGNAKL. 7.00
Sláðu á þráðinn í 571 1111 eða kíktu
á okkur á facebook K 100,5