Morgunblaðið - 09.08.2012, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 9. Á G Ú S T 2 0 1 2
Stofnað 1913 184. tölublað 100. árgangur
NLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALL
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
ÁTTA SÍÐNA
ÍÞRÓTTABLAÐ
FYLGIR Í DAG
VIÐSKIPTABLAÐ ÁHERSLA
LÖGÐ Á
FJÖLBREYTNI
HINSEGIN DAGAR 38ÓL OG PEPSÍ-DEILDIN
Sprotar sem geta vaxið
hratt erlendis
Nýtt öflugt
hestamannafélag
verður til í vetur
með sameiningu
Gusts í Kópavogi
og Andvara í
Garðabæ. Fram-
kvæmdastjórn
hins nýja félags
hefur þegar tek-
ið við öllum verklegum fram-
kvæmdum við félagssvæði félag-
anna á Kjóavöllum sem er á
bæjarmörkum Garðabæjar og
Kópavogs. Byggðir verða tveir
keppnisvellir og stefnt að alútboði
fyrir stærstu reiðhöll landsins í
haust. »17
Hestamenn í eina
sæng á Kjóavöllum
Byggingarfélag Gunnars og Gylfa hefur blásið til nýrr-
ar sóknar á byggingarmarkaði. Fyrirtækið er að ljúka
við 52 íbúðir í Lundi í Kópavogi og að hefjast handa við
að reisa 60 íbúðir sem verða í þremur fjölbýlishúsum á
sama stað. Stefnt er að því að reisa 400 íbúðir á svæð-
inu og fyrirtækið vinnur einnig að því að reisa 40 íbúð-
ir í Garðabæ.
Fyrirtækið er með um 100 fasta starfsmenn auk
margra undirverktaka. Eigendur fyrirtækisins juku
hlutafé þess um 100 milljónir kr. fyrir ári. »Viðskipti
Gunnar og Gylfi í sókn
Lundur í Kópavogi.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Einungis um 30% prósent af þeim
tekjum sem hið opinbera hafði af
bifreiðum og umferð í fyrra runnu
til vegamála. Að sögn Runólfs
Ólafssonar, framkvæmdastjóra
FÍB, voru tekjur hins opinbera af
bifreiðum og umferð tæpir 50
milljarðar á síðasta ári en einungis
tæpir 15 milljarðar hafi hins vegar
samkvæmt fjárlögum þess árs ver-
ið áætlaðir til vegamála.
„Þar af voru nýframkvæmdir
áætlaðar um það bil sex milljarðar,
viðhald 4,1 milljarður, þjónusta 4,4
milljarðar, restin var rekstur,“
segir Runólfur aðspurður í hvað 15
milljarðarnir fóru.
Að sögn Runólfs er mjög sér-
stakt að sú upphæð sem rennur til
vegamála á ári hverju skuli ekki
einu sinni ná þeirri upphæð sem
ríkið hefur í tekjur af virðisauka-
skatti af eldsneyti. „Það sýnir okk-
ur að það er alltof lítið tillegg sem
rennur til framkvæmda og við-
halds,“ segir Runólfur og bætir
við: „Enda líður vegakerfið mjög
fyrir það. Það er nokkuð sem allir
þeir sem um vegi landsins fara
verða varir við.“
Þá bendir Runólfur á að ákveð-
inn vítahringur geti myndast þeg-
ar viðhaldi vega er ábótavant en
lítið viðhald á vegum geti leitt til
aukins viðhalds á bifreiðum.
„Slæmir vegir koma illa út gagn-
vart ökutækjum og það fylgir því
aukið viðhald ef vegir eru slæmir,“
segir Runólfur.
MBifreiðaskattar »4
15 milljarðar
til vegamála af
50 milljörðum
Framkvæmdastjóri FÍB gagnrýnir
hve litlar skatttekjur fara til vegamála
Framlög til vegamála
» Framkvæmdastjóri FÍB segir
aðeins um 30% af tekjum rík-
issjóðs af bifreiðum og umferð
renna til vegamála.
» Einungis tveir skattar; olíu-
gjald og bensíngjald, eru
eyrnamerktir vegamálum.
» Ef viðhaldi á vegum er
ábótavant getur það leitt til
þess að viðhald á bifreiðum
aukist.
Guðmundur Þ. Guðmundsson stýrði íslenska landsliðinu í handknattleik í
síðasta sinn í gær, í bili að minnsta kosti, þegar það tapaði fyrir Ungverjum
í tvíframlengdum leik í átta liða úrslitum á Ólympíuleikunum. Guðmundur
lék á sínum tíma 230 landsleiki og hann stýrði liðinu í 193 leikjum, fyrst frá
2001-2004 og síðan frá 2008 þar til í gær. Að auki var hann aðstoðarþjálfari
landsliðsins í 21 leik á árunum 2006-2007 og kveður því eftir samtals 444
landsleiki. Ólafur Stefánsson lék líklega sinn síðasta landsleik en er þó ekki
tilbúinn til að kveða upp úr með það að svo stöddu. » Íþróttir
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur kveður
landsliðið eftir 444 leiki
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í hinu fádæma góðviðri í sumar
hafa alls 42 dagar rofið 20 stiga
múrinn en margir þeirra aðeins rétt
rofið hann.
Upp á síðkastið hefur hitinn held-
ur tekið við sér og í gær mældist
hæsti hiti sumarsins á Egilsstaða-
flugvelli, 25,1 stig. Á Hallormsstað
komst hitinn í 24,4 stig. Hinn 8. júlí
í sumar mældi sjálfvirki mælirinn á
Stjórnarsandi við Klaustur 24,8 stig
og kvikasilfursmælirinn á
Kirkjubæjar-
klaustri sýndi
sama dag rétt
rúmlega 24 stig.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Trausta Jónssyni
veðurfræðingi
hefur hitinn nú
komist í 20 stig í
13 daga í röð, eða frá 27. júlí. Vant-
ar bara tvo daga upp á að met verði
jafnað, en það er 15 dagar í röð árin
1990 og 2008. Miðað við veðurspána
næstu daga er mjög líklegt að met-
ið verði jafnað eða jafnvel slegið.
Á bloggi Einars Sveinbjörns-
sonar veðurfræðings kemur fram
að hár hiti í lægri hluta veðra-
hvolfsins ætti að öðrum skilyrðum
uppfylltum að leiða til á milli 20 og
23 stiga hita almennt um austan-
vert landið í dag og hámarkshiti
dagsins á landinu verði 25 til 28
stig.
Líklegir staðir með hæsta hita
dagsins eru m.a. Ásbyrgi, Skjald-
þingsstaðir í Vopnafirði, Hallorms-
staður, Seyðisfjörður eða Nes-
kaupstaður segir Einar.
Hiti yfir 20 stig 13 daga í röð
Metið er 15 dagar í röð Góðar líkur á að það falli
FINNUR.IS
Ísleifur færði okkur frönsku
perluna Intouchables
„Mér er meinað
að fá skýrsluna
þótt mennta-
málaráðuneytið
hafi vísað í hana á
vefsíðu sinni á
föstudeginum
fyrir verslunar-
mannahelgi og
þótt fjölmiðlar
séu meira og
minna komnir
með hana,“ segir Kjartan Magn-
ússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, í kjölfar þeirrar ákvörð-
unar stjórnarformanns Austur-
hafnar í gærkvöldi að afgreiða ekki
strax beiðni hans um að fá skýrslu
KPMG um rekstur Hörpu.
Fékk hann það svar að beiðnin
yrði tekin fyrir á stjórnarfundi 17.
ágúst. Skýrslan var tilbúin í lok maí
og óskaði Kjartan eftir því í júlí við
Austurhöfn að fá skýrsluna.
„Það er skrítið að meðferðin á al-
mannafé í þessu fyrirtæki skuli ekki
vera betri en þetta þegar menn
koma svona fram við kjörna fulltrúa
sem eiga að gæta almannafjár,“ seg-
ir Kjartan sem kveðst „furðu lostinn
yfir þessari ósvífnu framkomu“. »6
Enn neitað um
skýrslu um Hörpu
Kjartan
Magnússon
Vaðlaheiðargöng hf. hafa enn
ekki lokið samningi við fjár-
málaráðuneytið um ríkisábyrgð
vegna ganganna og býst Kristín H.
Sigurbjörnsdóttir, stjórnarformað-
ur félagsins, við að því verði lokið
um miðjan mánuðinn. Fyrr verði
ekki skrifað undir samninga við
verktaka.
Oddný G. Harðardóttir fjármála-
ráðherra segir beðið eftir yfirförn-
um samningi frá Vaðlaheiðar-
göngum sem verði síðan borinn
undir ríkisábyrgðarsjóð. Oddný
kveðst eiga von á að félagið skili
fljótlega tryggingum fyrir því að
eigið fé þess standist eins og lög
gera ráð fyrir. »4
Fjármögnun ganga
er enn ekki tryggð