Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012 Norræna kóramótið Norbusang hófst hér á landi í gær og stend- ur það til 12. ágúst. Um hundrað Norðurlandabúar á aldrinum 16- 25 ára taka þátt í mótinu en á því verður m.a. flutt frumsamið verk eftir hjónin Þóru Marteinsdóttur og Gunnar Ben, á lokatónleikum mótsins í Hörpu laugardaginn 11. ágúst kl. 17. Á tónleikunum gefst gestum kostur á að sjá og heyra afrakstur vinnubúða mótsins. Í dag og á morgun fara fram rokk- vinnubúðir undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar, organista og kór- stjóra á Akureyri, og aðrar vinnubúðir, Spuni og hreyfing, sem Gísli Magnason, kórstjóri Léttsveitar Reykjavíkur, stýrir en Saga Sigurðardóttir dansari sér um kóreógrafíu. Kóramót eru haldin árlega á vegum Norbus- ang en mótið í ár er það fyrsta fyrir fyrrnefndan aldurshóp. Mót- in eru haldin víða um Norð- urlönd. Dans Saga Sigurðardóttir dansari sér um kóreógrafíu í vinnubúðum. 100 manns á kóra- móti Norbusang Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is Hljómsveitin In Siren gaf nýverið frá sér hljómplötuna In Between Dreams en hún kom fyrst út á tón- listarveitunni Gogoyoko hinn 12. júní nú í sumar. Platan kemur út í áþreifanlegu formi í þessari viku. Í tilefni af útgáfu plötunnar spiluðu strákarnir í In Siren á Gamla Gauknum í gær. Útgáfa hljómplötunnar hefur átt sér langan aðdraganda. „Við byrj- uðum að semja tónlistina fyrir plöt- una árið 2008 og í kjölfarið árið 2009 byrjuðum að taka hana upp. Það mætti segja að við hefðum ver- ið að vinna við plötuna í skrefum síðan þá,“ segir Kjartan. Meðlimir hljómsveitarinnar eru allir í öðrum verkefnum og svo hafi komið upp ýmisleg mál í millitíðinni. „En við kláruðum þetta loksins núna í vor,“ segir Kjartan Baldursson, gít- arleikari In Siren. Brottflutningar og vinnuslys Áskoranir og óvæntar uppá- komur í ferlinu við gerð plötunnar voru meðal annars meiðsli og brott- flutningar. „Bassaleikarinn slas- aðist, hann skar framan af fingri,“ segir Kjartan en bassaleikari hljómsveitarinnar Erling Orri Baldursson er smiður jafnframt því að spila með In Siren og slysið sem um ræðir átti sér stað á vinnustað Er- lings. „Það tekur að sjálfsögðu sinn tíma að gróa,“ segir Kjartan. Sjálfur flutt- ist Kjartan til London borgar í nám í hljóðupptöku og setti það sinn sess í gerð plötunnar. Að lokum má svo bæta við að nokkrir meðlimir hljómsveitarinnar eru í öðrum hljómsveitum. Til að mynda er söngvari In Siren í hljómsveitinni Árstíðum, en sú hljómsveit hefur verið afar upptekin við tónleika- ferðlög víðsvegar um Evrópu. Einnig eru aðrir meðlimir hljóm- sveitarinnar í öðrum sveitum, t.d. Momentum og Plastic Gods. „Þannig í raun hefur það verið þannig að við höfum varla haft tíma til þess að sinna þessu,“ segir Kristján Einar Guðmundsson, trommuleikari In Siren, en bætir þó við að hljómsveitin sé fegin að hafa lokið við þann áfanga að gefa út plötuna. Hljómsveitin In Siren var stofn- uð árið 2007 en þó kom hún fram undir nafninu Polymental. Einnig gaf hljómsveitin út sex laga stutt- skífu undir sama nafni en fljótlega eftir það urðu ýmsar breytingar á sveitinni. Við byrjuðum og spil- uðum undir öðru nafni, Polymental, og gáfum út sex laga plötu vorið 2008. Það urðu mannabreytingar í hljómsveitinni og í kjölfarið af því urðu ýmsar stefnubreytingar, og við ákváðum að breyta um nafn,“ segir Kjartan. Drög að plötu Aðspurðir hvort hinar hljóm- sveitirnar sem meðlimir In Siren eru í hafi áhrif á tónlistina, tekur Kjartan fyrir það en Kristján bætir við að aðrir áhrifavaldar In siren séu helst King Crimson, Yes, Pain og Salvation, Flower Kings og klassísk tónlist. Kristján segir hins- vegar hljóm In Siren vera alveg einstakan. „Þetta er algjörlega nýtt,“ segir hann og lýsir tónlist In Siren sem „framsæknu pönkrokki.“ Ekki eru margir tónleikar á dag- skrá á næstunni hjá In Siren þar sem meðlimir hljómsveitarinnar verða ekki allir staddir á Íslandi, en Kjartan segir þó að það „gæti verið eitthvað meira í kringum jól,“ og bætir við að drög að næstu plötu séu nú þegar í bígerð. Tónleikahald Hljómsveitin In Siren hélt útgáfutónleika í gær vegna nýju plötunnar, In Between Dreams en næstu tónleikar verða ekki haldnir fyrr en í kringum jól þegar meðlimir sveitarinnar eru allir staddir á Íslandi aftur. „Þetta er algjörlega nýtt“  In Siren sendir frá sér hljómplötuna In Between Dreams  „Framsækið pönkrokk“ einkennir hljómsveitina In Between Dreams EGILSHÖLL VIP 12 12 12 12 12 L L 16 L L L ÁLFABAKKA KRINGLUNNI L 12 12 DARK KNIGHT RISES kl. 4:30-5:30-6-8-9-10 -10:20 2D DARK KNIGHT RISES VIP kl. 6 - 10 2D MAGIC MIKE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D DREAMHOUSE kl. 8 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 3:40 - 5:50 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 3:40 3D UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 3:40 2D DARK KNIGHT RISES kl. 5:30-6-9-10 2D MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 2D 12 12 16 AKUREYRI Dark Knight Rises kl. 7 - 10:20 2D LOL kl. 6 2D Dream House kl. 8 - 10:20 2D 16 KEFLAVÍK 12 12 TOTAL RECALL kl. 8 2D THE DARK KNIGHT RISES kl. 10:30 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10 2D TOTAL RECALL kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D DARK KNIGHT RISES kl. 3 - 5:50 - 6:10 - 8 - 9:20 - 10 - 11:10 2D TED kl. 7:30 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 3:20 - 5 2D ÍSÖLD 4 ísl.Tali kl. 3 - 3:50 2D VINNAN Á KVÖLDIN HEFUR ALDREI VERIÐ JAFN SKEMMTILEG! STÆRSTA MYND ÁRSINS 45. 000 GESTIR Á 2 VIKUM  KVIKMYNDIR.IS  HOLLYWOOD REPORTER  SÉÐ OG HEYRT  MBL TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.