Morgunblaðið - 09.08.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012
„Þeir hafa náð góðum tökum á eldinum. Staðan
er í jafnvægi núna og eldurinn er hættur að
breiðast út. Við höfum náð að tryggja aftur að
eldurinn valdi ekki tjóni á mannvirkjum,“ sagði
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík, í sam-
tali við Morgunblaðið á ellefta tímanum í gær-
kvöldi. Sinueldar, sem komu fyrst upp á bænum
Hrafnabjörgum í Laugardal á föstudag, loguðu
enn í gær. Var viðbúnaður þá aukinn og m.a.
fengin aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar og
slökkviliðunum á Ísafirði, Bolungarvík og Súða-
vík. Vakt var á svæðinu í nótt. pfe@mbl.is
Fengu loks liðsauka við slökkvistarfið
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stefnt er að því að fyrsti íslenski
sjávarfallahverfillinn verði prófaður
í sjó um næstu mánaðamót. Valdi-
mar Össurarson uppfinningamaður
telur að aðstæður séu ákjósanlegar
til prófana í Hornafirði.
Valdimar hefur undanfarin ár ver-
ið að þróa nýja tegund af hverflum
fyrir sjávarfallavirkjanir. Hverflarn-
ir, sem kenndir eru við fyrirtæki
hans, Valorku, eru gerðir til að snú-
ast og framleiða orku við lítinn
straum.
„Það er stefnan að þeir nýtist við
þann straumhraða sem er í röstum
og við annes víða um heim en séu
ekki bundnir við straumhörðustu
sundin,“ segir
Valdimar og
bendir á að þeir
bresku hverflar
sem lengst séu
komnir í þróun
þurfi það mikinn
straum að þeir
nýtist ekki nema í
þröngum sund-
um, eins og t.d. í
Hvammsfirði og
víðar við Breiðafjörð hér á landi. „Ef
þetta tekst þá opnast mikið mark-
aðssvæði,“ segir Valdimar og nefnir
rastir við Vestfirði, Austfirði, Langa-
nes, Reykjanes og Snæfellsnes. Þá
telur hann víst að aðstæður séu einn-
ig þokkalegar við Norðurland þótt
það komi ekki fram í opinberum
gögnum. Með samtengingu virkjana
allt í kringum landið megi auka af-
hendingaröryggi orkunnar.
Góð aðstaða í Hornafirði
Mikil orka er í sjávarföllum og
straumum en enn hefur ekki tekist
að nýta hana. Valdimar segist verða
að sýna fram á hagkvæmni uppfinn-
ingar sinnar. Telur hann styttra í að
hagkvæmt verði að nýta sjávarfalla-
orku en vindorku.
Valdimar hefur aðstöðu í þróunar-
miðstöðinni Eldey á Ásbrú og þar er
verið að smíða hverfil af nýjustu út-
gáfu hans, til prófunar í sjó. Valdi-
mar hefur fengið aðstöðu hjá Horna-
fjarðarbæ til að prófa hverfilinn í
Mikleyjarál og hefur skoðað aðstæð-
ur. „Þarna er langbesta aðstaða sem
finnst á landinu til að prófa sjávar-
fallahverfil á því stigi sem mín hönn-
un er á. Ég tel að aðstaðan sé á
heimsmælikvarða og þarna væri
hægt að setja upp alþjóðlega próf-
unarmiðstöð,“ segir Valdimar.
Valdimar hefur prófað hönnun
sína með litlum líkönum af hverflum
sínum í kerum. Líkanið sem prófað
verður í haust er um 2,30 metrar í
þvermál. Hverflar sem notaðir verða
við framleiðslu verða margfalt
stærri, 10 til 20 metrar í þvermál.
„Það kemur betri mynd á það, eftir
þessar prófanir,“ segir Valdimar.
Fleki verður notaður við tilraun-
irnar og hverfillinn hengdur neðan í
hann. Notuð eru mælitæki til að
sannreyna orkunýtingu og ýmsa
þætti í hönnun hverfilsins.
Hverfillinn prófaður í sjó
Valdimar Össurarson hannar fyrsta íslenska sjávarfallahverfilinn Ætlaður til
að nýta hæga strandstrauma til að framleiða raforku Möguleikar á fleiri stöðum
Valdimar
Össurarson
Flutningur þjóðhátíðargesta með farþegaferjunni Herj-
ólfi gekk afar vel fyrir sig í ár en fjöldi fólks sigldi með
skipinu á milli lands og Eyja í þjóðhátíðarvikunni.
„Það er bara bros og gleði í Herjólfi,“ sagði Gunn-
laugur Grettisson, rekstrarstjóri skipsins. „Þetta voru
miklir flutningar en gengu gríðarvel fyrir sig og alveg
áfallalaust,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið.
Alls sigldi Herjólfur 18 ferðir sleitulaust frá því
klukkan tvö aðfaranótt mánudags og fram til miðnættis
á þriðjudagskvöld. Lítur út fyrir að það sé metfjöldi
ferða.
Endanlegar tölur farþega lágu ekki fyrir þegar
Morgunblaðið ræddi við Gunnlaug en talið er að skipið
hafi flutt yfir tuttugu þúsund farþega milli lands og
Eyja þjóðhátíðarvikuna í ár. Árið í ár er það þriðja sem
siglt er á milli Landeyjahafnar og Eyja yfir þjóðhátíð
en siglingar þar á milli hófust 22. júlí 2010. Var þjóð-
hátíðin það ár sú stærsta frá upphafi en hátíðin í ár er
sú næststærsta. gunnhildur@mbl.is
Talið að Herjólfur hafi flutt
um tuttugu þúsund farþega
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Farþegaflutningar Herjólfur stóð í ströngu í flutn-
ingum milli lands og Eyja í tengslum við þjóðhátíðina.
Flutningar gengu vel og
áfallalaust frá þjóðhátíð
Verði virðis-
aukaskattur á
gistingu hækk-
aður úr 7% í
25,5% yrði það
rothögg fyrir
ferðaþjónustuna.
Hækkunin myndi
skapa ákjósan-
legar aðstæður
fyrir svarta at-
vinnustarfsemi.
Þetta segir Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar.
„Við höfum ekki fengið þetta stað-
fest hjá ráðherra, en við höfum verið
boðuð á fund sem verður næstu
daga,“ segir Erna. „Það var ekkert
samráð haft við okkur, engar til-
kynningar, ekki neitt. Þetta er auð-
vitað rothögg. Hvernig halda menn
að það sé hægt að halda sjó á alþjóð-
legum samkeppnismarkaði í ferða-
þjónustu ef við tilkynnum 17% hækk-
un á gistingu vegna skattahækk-
ana?“
Erna segir að gangi hækkunin í
gegn hafi það í för með sér hrun fyrir
ferðaþjónustuna, einkum þann hluta
sem snýr að ráðstefnugestum. „Það
er gríðarlega mikil samkeppni um
ráðstefnugesti. Við ætluðum einmitt
að fara að gefa í hvað varðar ráð-
stefnur. Við erum komin með Hörpu
og manni skilst að það veiti nú ekkert
af því að fjölga ráðstefnugestum. En
þetta er ekki alveg leiðin til þess – að
skattleggja okkur út af markaðnum.“
Erna segir að í 90% allra Evrópu-
landa sé gisting í lægra skattþrepi en
önnur þjónusta og markmiðið sé að
fjölga ferðamönnum. Öll ríki heims
séu að berjast um að fá erlenda
ferðamenn, ekki síst funda- og ráð-
stefnugesti. annalilja@mbl.is
„Þetta er
auðvitað
rothögg“
Erna
Hauksdóttir
Ekkert samráð við
ferðaþjónustuna
Níræð kona var rænd í austurborg
Reykjavíkur síðdegis í gær. Veski
konunnar var tekið af henni, en í því
voru 10 þúsund krónur í reiðufé auk
greiðslukorts.
Ræninginn ósvífni var ungur mað-
ur og samkvæmt lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu virðist sem hann
hafi fylgst með ferðum gömlu kon-
unnar áður en hann lét til skarar
skríða.
Tók peninga
af 90 ára konu
Laugavegi 53, s. 552 3737 – Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
2012
HAUSTVÖRURNAR
KOMNAR
Síðustu útsöluvörurnar
50% afsláttur
Litríkar og
skemmtilegar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.