Morgunblaðið - 09.08.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012
Vef-Þjóðviljinn segir að Ólafurforseti hafi við innsetningu
réttilega varað við þeirri fráleitu
atlögu sem nú er gerð að stjórn-
arskrá landsins:
Sérstaklega mátaka undir orð
hans þegar hann
varar við því að
henni verði breytt í
miklum ágreiningi.
Stjórnarskrá er grundvallarskjalog á henni á stjórnskipun að
byggjast til langs tíma. Það liggur
í eðli stjórnarskrár að hún geymir
reglur sem tímabundinn meirihluti
á Alþingi á ekki að geta breytt.
Þetta er grundvallaratriði semnúverandi stjórnarliðar gera
nákvæmlega ekkert með en fjöl-
miðlamenn og álitsgjafar skilja
ekki.
Sumir segja ekkert að því aðbreyta stjórnarskrá í miklum
ágreiningi á þingi og með tæpum
meirihluta. Spyrja hvort ekki sé
lýðræðislegt að meirihluti á hverri
stund ráði. Sú spurning er auðvit-
að oft skiljanleg við afgreiðslu
mála á þingi, en á síst við þegar
reynt er að breyta stjórn-
arskránni.
Ef það væri svo, að skamm-tímameirihluti á þingi ætti að
breyta reglum stjórnarskrárinnar
eftir því sem honum sýndist
hverju sinni, þá væru reglur henn-
ar alls ekki í stjórnarskrá. Þá
væru þær í almennum lögum.
Skýringin á því að tilteknarreglur eru settar í stjórn-
arskrá er sú, að það er verið að
verja þær fyrir skyndibreytingum
sem byggðar eru á því hvernig
vindar blása á einu kjörtímabili.“
Ólafur Ragnar
Grímsson
Stjórnarskrár lúta
öðrum lögmálum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 skúrir
Bolungarvík 16 súld
Akureyri 20 skýjað
Kirkjubæjarkl. 17 léttskýjað
Vestmannaeyjar 12 súld
Nuuk 7 súld
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 13 skúrir
Helsinki 16 skýjað
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 18 skúrir
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 20 léttskýjað
London 22 léttskýjað
París 26 heiðskírt
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 18 léttskýjað
Berlín 21 léttskýjað
Vín 25 léttskýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 32 heiðskírt
Aþena 35 léttskýjað
Winnipeg 23 léttskýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 27 skýjað
Chicago 28 alskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:03 22:05
ÍSAFJÖRÐUR 4:51 22:26
SIGLUFJÖRÐUR 4:33 22:10
DJÚPIVOGUR 4:28 21:39
Kröfur eru gerðar um að Vegagerð-
in geri ráð fyrir B-leið í matsáætlun
vegna umhverfismats við leiðaval
fyrir nýjan Vestfjarðaveg nr. 60 um
Gufudalssveit.
Vegagerðin gaf almenningi kost á
að tjá sig um drög að tillögu að
matsáætlun. Allmargar umsagnir
hafa borist, að sögn Kristjáns
Kristjánssonar, forstöðumanns hjá
Vegagerðinni. Von er á fleiri um-
sögnum í þessari viku. Kristján tel-
ur að veigamestu athugasemdirnar
snúi að því að ekki var gert ráð fyr-
ir B-leiðinni svonefndu í drögunum.
B-leiðin þverar Gufufjörð og
Djúpafjörð og liggur um Teigsskóg
í Þorskafirði. Gert er ráð fyrir
þessari leið í aðalskipulagi Reyk-
hólahrepps. Vegagerðin telur hins
vegar fullreynt, vegna dóms
Hæstaréttar, að fá leyfi til að
leggja veginn eftir þessari leið.
Þess vegna ákvað stofnunin að
skoða þrjár aðrar leiðir.
Tvær miða við jarðgöng um
Hjallaháls. Aðalvalkostur Vega-
gerðarinnar gerir ráð fyrir að veg-
urinn fari um jarðgöngin, á nýjum
stað yfir Ódrjúgsháls, fyrir Djúpa-
fjörð og yfir Gufufjörð.
Athugasemdunum verður svarað
og síðan haldið áfram með tillögu.
Kristján segir ekki hægt að segja
til um hvort Vegagerðin treysti sér
til að bæta B-leiðinni við.
helgi@mbl.is
Vilja hafa B-leið um Gufudalssveit með
Athugasemdir berast vegna tillögu
að matsáætlun Vestfjarðavegar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nr. 60 Tveir erfiðir kaflar eru eftir.
Icelandair flutti fleiri farþega í milli-
landaflugi í júlí en nokkru sinni í sögu
sinni eða tæplega 279.000 farþega.
Aukningin nemur um 10% milli
ára, þrátt fyrir að sætaframboð hafi
verið aukið um 11% síðan í júlí í fyrra.
Sökum þessarar miklu aukningar
minnkar sætanýtingin um 0,1%, fer
úr 85,4% í júlí í fyrra niður í 85,3% í
júlí í ár. Farþegum fjölgaði mest á
svonefndum N-Atlantshafsmarkaði
eða um 13%.
Hins vegar varð lítil breyting í inn-
anlands- og Grænlandsflugi hjá félag-
inu. Farþegar voru um 38.000 í júlí og
jafngildir það 1% aukningu milli ára.
Sætanýting var 69,6% og dregst sam-
an um 3,9% milli ára. Af öðrum veltu-
tölum má nefna að fraktflutningar
jukust um 7% á milli ára og framboð á
gistinóttum hjá hótelum félagsins
jókst um 7% frá júlí á síðasta ári.
Þrátt fyrir það batnaði nýting her-
bergja, var 88% í júlí og því 2,7%
betri en í fyrra.
Icelandair
sló eigið
met í júlí
Félagið í sókn
ARMANI
D&G
STENSTRÖMS
BALDESSARINI
SCHUMACHER
T BY ALEXANDER WANG
CAMBIO
ROCCO P
PEDRO GARCIA
PAOLO DA PONTE
HVERFISGÖTU 6 • S. 551 3470
ALLT AÐ 7
0% afslá
ttur
ÚTSÖLULO
K
SÍÐASTI D
AGUR ÚTS
ÖLU ER 11
. ÁGÚST