Morgunblaðið - 09.08.2012, Side 17
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nýtt félag hefur tekið við öllum
verklegum framkvæmdum við fé-
lagssvæði hestamannafélaganna
Gusts í Kópavogi og Andvara í
Garðabæ. Félagið vinnur að land-
mótun á Kjóavöllum þar sem
byggðir verða keppnisvellir með
tilheyrandi aðstöðu og stærsta reið-
höll landsins. Gustur og Andvari
munu sameinast.
Stofnfundur nýs hestamanna-
félags verður haldinn í haust þar
sem gengið verður frá lögum fyrir
félagið, nafn valið og stjórn kjörin.
Kópavogsbær og Garðabær settu
þau skilyrði fyrir stuðningi við upp-
byggingu aðstöðunnar að félögin
myndu sameinast. Það gerist vænt-
anlega að afloknum fundum félag-
anna tveggja næsta vetur.
Kjóavellir eru á milli hesthúsa-
hverfanna Heimsenda í Kópavogi
og Andvara í Garðabæ. Bæjar-
mörkin liggja þar um og var sam-
þykkt sameiginlegt skipulag fyrir
svæðið fyrir nokkrum árum. Eftir
því er unnið, segir Þorvaldur Sig-
urðsson, varaformaður fram-
kvæmdastjórnar nýja félagsins.
Stefnt að alútboði í vor
Verulegar framkvæmdir eru á
Kjóavöllum. Þar er verið fergja
púða undir nýju reiðhöllina. Húsið
á að fara í alútboð í haust. Fjár-
hagsáætlun fyrir tilbúna reiðhöll af
þessari stærð hljóðar upp á tæpar
400 milljónir. Samið hefur verið við
sveitarfélögin um framlög til fram-
kvæmdarinnar. Reiðhöllin verður
32 metra breið, stærsta reiðhöll
landsins. Þorvaldur vonast til að
höllin verði risin fyrir lok næsta
árs. Í skipulaginu er gert ráð fyrir
annarri höll, enn stærri.
Verið er að móta skeifu á svæð-
inu og verða tveir löglegir keppn-
isvellir ofan í henni, með áhorf-
endasvæðum og annarri aðstöðu
fyrir hestamenn og gesti. Áhorf-
endasvæði verða fyrir 20 þúsund
manns, að sögn Þorvaldar. „Það
veit enginn,“ segir hann þegar
hann er spurður hvort markmiðið
sé að gera nýtt landsmótssvæði og
bendir á að skoðanir séu afar skipt-
ar um það hvar halda skuli lands-
mót. „En hægt verður að halda
landsmót þegar allt verður tilbúið,“
bætir Þorvaldur við.
Búið er að reisa tamningagerði
og stefnt að uppsetningu eins
hringgerðis í haust.
Sveitarfélögin tvö ákváðu að
standa sameiginlega að gerð deili-
skipulags fyrir Kjóavelli og stuðla
að áframahaldandi uppbyggingu
þess með það að markmiði að gera
hesthúsa- og keppnissvæði í
fremstu röð.
Lóðum hefur verið úthlutað
Kópavogsmegin og hesthús í bygg-
ingu en ekki hefur verið úthlutað
lóðum á Andvarasvæðinu.
Nýtt keppnissvæði byggt upp
Nýtt félag hefur tekið við uppbyggingunni á Kjóavöllum Gustur og Andvari munu sameinast
Tveir löglegir keppnisvellir og stærsta reiðhöll landsins Brekkur fyrir 20 þúsund áhorfendur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Uppbygging Framkvæmdir standa yfir á Kjóavöllum, sameiginlegu svæði hestamanna í Garðabæ og Kópavogi.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16
Springfield 3ja sæta áður kr. 231.900 nú kr. 162.300 / 2ja sæta kr. 188.700 nú kr. 132.000
Vintage púðar áður kr. 8.900
nú kr. 4.450
Narfe sófi áður kr. 235.700
nú kr. 188.560
50%
afsláttur
30%
afsláttur
springfield
sófar
20%
afsláttur
ÚTSALA
T A K M A R K A Ð M A G N A F H V E R R I V Ö R U
Uppbygging á Kjóavöllum, á
mörkum Garðabæjar og Kópa-
vogs, byggist á samkomulagi
bæjarfélaganna frá 2006. Þá
þegar var gengið út frá því að
hestamannafélögin samein-
uðust. Annar grundvöllur upp-
byggingar á Kjóavöllum var
sala Glaðheimasvæðisins, sem
var aðalfélagssvæði Gusts, til
uppbyggingar íbúða, og þurfti
því að útbúa nýtt svæði fyrir
hestamenn.
Búast má við að 1.100 til
1.300 félagsmenn verði í hinu
nýja sameinaða hestamanna-
félagi og um 2.500 hestar á
hesthúsasvæðinu.
„Við gerum okkur vonir um
að þetta verði stórt og öflugt
félag með góðum útreiðaleið-
um og sem bestri aðstöðu fyr-
ir félagsmenn. Það verður
nýrrar stjórnar að móta starf-
ið,“ segir Þorvaldur Sigurðs-
son. Hann bendir á að Kjóa-
vellir séu miðsvæðis á
höfuðborgarsvæðinu og vel
tengdir útivistarsvæðinu í
Heiðmörk.
Stórt og
öflugt félag
NÝTT HESTAMANNAFÉLAG