Morgunblaðið - 09.08.2012, Síða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
ÞRÍR FRAKKAR
Café & Restaurant
Mánafiskur með rjóma-
lagaðri sítrónu dill sósu
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | sími 568 2870 | www.friendtex.is
OPNUNARTÍMI
mánudag - föstudag 11:00-18:00
LOKAÐ á laugardögum
ÚTSALA
40%
50%
60%
70%
Ný frábær tilboð
Kíktu, það borgar sig
Síðastliðna öld
hafa menn æ meir
beitt sér til að hindra
landspjöll. Nýjast,
sem ég hef séð, er í
Svaðbælisá undir
Eyjafjöllum, þar sem
gosið hafði brætt
jökulinn, en jök-
ulbráðin bar með sér
aur, sem ógnaði ný-
legu ræktarlandi
marflötu. Ég sá
mann hindra ána með gröfu í að
flæða yfir landið. Eyfellingar
minntust þess, þegar Markarfljót
flæddi og tók brúna í gosinu og
flæddi yfir aura, að ungmenna-
félagið hafði hundrað árum áður
beitt sér fyrir hleðslu varn-
argarðs, svo að fljótið færi ekki í
austur. Fyrir þremur öldum fór
það alveg austur í Holtsós. Á 20.
öld fór það í hina áttina, flæddi í
Þverá og braut sér farveg alla
leið út í Djúpós, en Þykkbæingar
brugðust við með fyrirhleðslu.
Þessi viðbrögð þóttu virðing-
arverð.
Sem stendur eru menn í bið-
stöðu með brúargerð á Múlakvísl,
sjá til, hvort ekki komi hlaup
bráðum, svo að ný brú lendi ekki
í því.
Litið yfir lengri tíma, frá land-
námi, eru þessi vinnubrögð mátt-
laus. Landeyjar standa ekki leng-
ur undir nafni, menn
hefðu ekki fundið
upp á slíku nafni, ef
þeir hefðu við land-
nám komið að, eins
og landið er nú.
Markarfljót fékk í
þúsund ár að flæmast
um og skapa Ísland.
Austar á Suður-
landi, í Landbroti,
eru Seglbúðir. Það
heitir svo, af því að
þar voru segl við
hún, þangað var sem
sagt skipgengt.
Merki um slíka skipgengd var
festarhringur, sem bóndi nokkur
og járnsmiður á 19. öld tók til
sinna nota. Þetta er ótrúlegt, því
að nú er langur vegur frá Segl-
búðum niður í fjöru. Skammt frá
Seglbúðum er Vík (Efri-Vík og
Syðri-Vík), nefnd Vík í Land-
broti, til aðgreiningar frá annarri
Vík í Skaftafellssýslu, Vík í Mýr-
dal. Ekkert minnir á vík á þess-
um stöðum. Af þessu sést, hvern-
ig Skaftá og önnur fljót þar hafa
borið aur og skapað land. Sköp-
unin þar er ekki komin eins langt
og í Landeyjum, sem nú eru frá-
bært nytjaland með kornökrum.
Skaftá ber aur, mismikið, mest
í hlaupum. Undanfarið hefur hún
verið hamin, svo að hún skemmi
ekki veginn yfir Nýja-Eldhraun.
Hún hleður í staðinn undir sig
því, sem ekki fær að berast út yf-
ir hraunið, það gera jökulár. Við
Kirkjubæjarklaustur hefur hún
borið svo mikið undir sig, botninn
hefur hækkað svo mikið, að þar
vofir nú yfir, að hún flæði upp á
flatlendið í miklu jökulhlaupi og
ógnar þannig mannvirkjum. Áður
en menn eignuðust tækin, flæddi
Skaftá yfir Eldhraun. Þar seig
vatn hennar niður og birtist síðan
sem ferskt vatn í ám og lækjum í
Landbroti. Flóðinu fylgdi leir,
sem barst upp á hraunið og fauk
svo um og gat verið til ama, en
frjóvgaði jarðveginn. Þannig hef-
ur íslenskur jarðvegur orðið
frjór.
Með þeim vinnubrögðum, sem
tíðkast hafa, með öflugum véla-
kosti, fást stundargrið. Hug-
myndin með vegagerðinni yfir
Skeiðarársand var að búast við
hlaupum, hvenær sem væri,
menn ætluðu sér ekki að stöðva
sköpun landsins, heldur tak-
marka skemmdir á mannvirkjum
og búast við því að þurfa að end-
urgera þau. Í samræmi við það
væri að fyrstu viðbrögð við
ágangi jökulár yrðu ekki að hlaða
varnargarð eða dýpka árfarveg
eða breyta honum. Þá ætti ekki
að reyna að stöðva áfok úr árfar-
vegi, heldur láta jarðveginn, sem
fær áfokið, njóta þess, þegar til
lengri tíma er litið. Að þessu
gefnu væri það verkfróðra, jarð-
fróðra og búfróðra að hugsa út
úrræði, sem standast. Ekki mætti
beita þeim, fyrr en almennur
skilningur hefði orðið um stefnu-
breytinguna og úrræði vegna
hennar, svo að þeim, sem hafa
hugann við hefðbundin úrræði og
eiga hagsmuna að gæta, þætti
ekki hallað á sig.
Sköpun Íslands
Eftir Björn S.
Stefánsson »Með þeim vinnu-
brögðum, sem tíðk-
ast hafa, með öflugum
vélakosti, fást stund-
argrið. Fyrstu viðbrögð
við ágangi jökulár yrðu
ekki að hlaða varn-
argarð.
Björn S.
Stefánsson
Höfundur er dr. scient.
Innsetning Ólafs
Ragnars Grímssonar
sem forseta Íslands í
fimmta skipti vekur
blendnar tilfinningar.
Hann hlaut aðeins
rúman þriðjung at-
kvæða þeirra sem
voru á kjörskrá þann-
ig að 64,32% kusu
aðra frambjóðendur
eða skiluðu auðum og
ógildum kjörseðlum.
Því hefði síðari umferð verið ákjós-
anleg við val á forseta. Ólafur þarf
því að sýna í verki að hann sé
fulltrúi allrar þjóðarinnar, eða sem
flestra þegnanna. Mun hann bera
gæfu til þess? Vonandi – og það var
skynsamlegt hjá honum að leggja
áherslu á samstöðu í innsetning-
arræðu sinni því orð hans um
einkapólitík og aukin afskipti for-
seta af stjórnmálum hræða. Mað-
urinn hefur setið allt of lengi í
þessu embætti og tíðkast slíkt helst
í einræðisríkjum og þar sem lýð-
ræði er ekki hampað mikið. Valdið
spillir mönnum, jafnvel í embættum
með takmörkuðu valdi og leiðir
stundum til sjálfsupphafningar.
Þessi þekkti veruleiki er ástæða
fyrir því að seta ráðamanna í emb-
ætti er takmörkuð í
flestum þróuðum ríkj-
um. Færi vel á því að
slíkt væri fært í lög á
Íslandi.
Vonandi tekst Ólafi á
næstu árum að beina
orku sinni og vits-
munum, sem enginn
efast um, að því að
sameina þjóðina og efla
með henni sóknarhug
og dug til að takast á
við hin ýmsu verkefni
sem til heilla horfa.
Kjörnir fulltrúar almennings til
þess að fara með löggjafarvald fái í
friði fyrir forseta að sinna því verk-
efni hvernig sem þeir eru annars
vandanum vaxnir. Í þeim anda eru
forsetanum sendar árnaðaróskir á
þessari stundu.
Fimmta upphafn-
ing Ólafs
Eftir Sigurð
Jónsson
Sigurður
Jónsson
» Vonandi tekst Ólafi á
næstu árum að
beina orku sinni og vits-
munum, sem enginn
efast um, að því að sam-
eina þjóðina og efla með
henni sóknarhug.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda
og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.