Morgunblaðið - 09.08.2012, Side 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012
staðinn settumst við niður því
allt var klárt, þú bara búin að
öllu og allt eins og þú hefðir búið
þarna lengi.
Fundir okkar urðu strjálli
eins og vera ber í þroska einstak-
linga og fjölskyldna. Þegar við
hittumst varð þó allt eins og fyrr,
einkahúmor, leyndarmálin bara
okkar og svo auðvitað minning-
ar.
Og alltaf man ég þig brosandi,
káta og svo stóra í lífinu þínu og
mínu. Stór og erfið veikindi nú
hin síðustu misseri breyttu ekki
fallegu persónunni sem mín
kæra, sterka vinkona var.
Og nú eru minningarnar um
okkur úr sveitinni, veiðihúsinu,
Noregi og víðar einleikur á lífs-
hörpuna mína og söknuðurinn er
hin sterka bakrödd.
Söknuðurinn er svo sár en ég
vil í allri einlægni senda öllu þínu
góða fólki ósk um huggun og
blessun, um leið og ég vil gera
orðin þín að mínum: „Ég vil
þakka þér fyrir alla vináttuna –
alla vináttuna“.
Ragnheiður Ólafsdóttir.
Komdu út á pall og sjáðu hvað
sumarblómin eru falleg núna,
sagði Auður vinkona mín fyrir
stuttu síðan. Já, falleg eru þau og
þvílík blómabreiða. Blómin
fengu ómælda umhyggju og
næringu eins og allt annað í
kringum hana Auði vinkonu
mína. „Umhyggja“ sama hvert
litið er , fjölskyldan, heimilið,
umhverfið og vinirnir.
Næstum fjörutíu ára vinátta
er ekki sjálfgefin, vináttan er
eins og blómin þarfnast um-
hyggju og næringar, ef ekki er
hugað að henni þá blómstrar hún
ekki. Hún Auður vinkona mín sá
til þess að vináttan blómstraði,
vinátta okkar var djúp og gátum
við talað um allt hvor við aðra,
hlegið saman endalaust, verið
ósammála og fyrirgefið. Það er
vinátta og hún er dýrmæt.
Þegar hugurinn fer á vit
minninganna verða þær svo ljós-
lifandi, margar og skemmtileg-
ar. Ungar stoltar mæður með
frumburði sína í fínu stóru
barnavögnunum á gangi upp og
niður Laugaveginn en síðan eru
34 ár, afmælin stór og smá, brúð-
kaup, útskriftir, skemmtanirnar,
heimsóknirnar, saumaklúbbarn-
ir, göngutúrarnir í hverfinu okk-
ar, gleði, húmor og mikill hlátur.
Það var mikið áfall þegar Auð-
ur veiktist, en dugnaðurinn og
krafturinn er ólýsanlegur. Hún
Auður var hetja.
Ég sakna Auðar, það er sárt
að kveðja. Ég kveð elsku Auði
mína með virðingu og þökk.
Elsku vinir, hugur minn og
fjölskyldu minnar er hjá ykkur
og sendum við ykkur okkar
dýpstu samúð.
Hulda vinkona.
Fegurðin birtist okkur í ýms-
um myndum. Hún getur verið
myndræn, huglæg, áþreifanleg
eða bara eitthvað óskilgreint, en
samt fallegt. Það er sama hvar
hugurinn staldrar við í minn-
ingaflóðinu sem streymir að síð-
ustu dagana, allt sem tengist
yndislegri vinkonu, Auði Péturs-
dóttur, er fallegt, bara fallegt.
Sjálf var hún einstaklega fal-
leg og glæsileg kona, yst sem
innst. Hjartahlýja hennar og
glettinn húmor varð líka til þess
að gera nærveru hennar fallega
og einstaka. Það löðuðust hrein-
lega allir að henni. Það leyndist
ekki þau skipti sem hún kom og
aðstoðaði við sölustörf í Engla-
börnunum, þá hreinlega
streymdu inn viðskiptavinir,
Auður raðaði saman hverju
dressinu á eftir öðru og gleymdi
aldrei sokkum í stíl…. Viðskipta-
vinirnir gengu ánægðir út úr
versluninni og höfðu aldrei feng-
ið eins persónulega og hlýja
þjónustu.
Árin okkar sem dansmömmur
Kalla og Margrétar voru líka
skemmtileg. Börnin okkar voru
auðvitað alltaf fallegasta parið á
dansgólfinu, og Margrét alltaf í
fallegasta kjólnum. Við vorum
stoltar mömmur í áhorfendastúk-
unni og fylgdumst gaumgæfilega
með hverju spori.
Fjölskylda Auðar var henni
allt, hennar faðmur var alltaf op-
inn og hún hlúði að öllum með al-
úð og hlýju, hvatti og leiðbeindi
og var alltaf til staðar þegar fjöl-
skyldan þurfti á henni að halda.
Auður var líka vinamörg, enda
nærvera hennar yndisleg og hún
var sannur vinur í raun. Þegar á
bjátaði, var alltaf hægt að fá góð
ráð hjá Auði; með glettnu yfir-
bragði, en alltaf djúphugsuð, ein-
læg og góð. Þá var gott að eiga
vináttu hennar að.
Samheldni Rikka og Auðar var
líka einstök. Þegar hann var frá
vegna vinnu, sá hún um að hlut-
irnir gengju upp heima og þegar
hann kom í land nutu þau þess að
vera saman, voru alltaf eins og
nýtrúlofuð og áttu ánægjustundir
með börnum sínum og barna-
börnum. Bæði miklir fagurkerar,
nutu þess að elda góðan mat og
taka á móti gestum, enda alltaf
höfðingjar heim að sækja og ber
fallegt heimili þeirra þess glöggt
vitni að þar er vel nostrað við
hvern hlut. Og húmorinn alltaf í
lagi.
En skjótt skipast veður í lofti,
erfið veikindi gera vart við sig og
ekkert verður við ráðið. Á sorg-
arstundu viljum við systurnar
þakka fyrir samveruna í gegnum
árin. Við erum ríkari af því að
hafa fengið tækifæri til að kynn-
ast Auði og eiga með henni sam-
leið og vináttu. Fallegar minning-
ar um hana munu lifa áfram um
ókomin ár.
Það var líka mjög sérstakt að
þegar við systurnar ákváðum í
síðustu viku að eiga kvöldstund
tvær saman, til að minnast Auð-
ar, þá hittum við tvær af hennar
bestu vinkonum fyrir algjöra til-
viljun. Þær voru líka að rifja upp
minningar um Auði. Saman átt-
um við fjórar yndislega stund þar
sem fallegar myndir af Auði og
samveru með henni á liðnum ár-
um streymdu fram. Við gátum
ekki annað en brosað í laumi yfir
þessu atviki, svo líkt Auði að
koma þessu til leiðar.
Við kveðjum nú Auði Péturs-
dóttur, yndislega vinkonu, með
þakklæti og virðingu og vottum
fjölskyldu hennar okkar innileg-
ustu samúð.
Aðalheiður og Helga
Karlsdætur.
Á sólbjörtum degi dregur ský
fyrir sólu, allt í einu verður allt
svo dimmt. Við fáum að heyra að
okkar kæra vinkona Auður hafi
kvatt þetta líf. Við hugsum um
Auði eins og hún var, sterk og
þrautseig, og þá birtir í huganum
á ný. Yndisleg vinkona okkar og
félagi hefur nú kvatt okkur.
Brostinn er hlekkur í keðju
okkar. En minningin um einstaka
konu, um einstaka vináttu, mun
lifa með okkur.
Við kveðjum Auði með þakk-
látum hug, fyrir að hafa fengið
tækifæri til að kynnast henni.
Hún var einstök persóna, rökföst
og hafði ríka réttlætiskennd og
var vinur í raun. Til hennar var
gott að leita, hún var hreinskiptin
í öllum sínum samskiptum, hrein
og bein. Svo sannarlega til eft-
irbreytni fyrir okkur hin. Hennar
mun sárt saknað.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Við vottum fjölskyldu Auðar
okkar dýpstu samúð og biðjum
henni Guðs blessunar.
Brynja Hlíðar,
Hildigunnur Hlíðar,
Sigríður Hlíðar,
Svandís Matthíasdóttir.
✝ Kristín Hall-varðsdóttir En-
gel fæddist í
Reykjavík 2. apríl
1934. Hún lést á
heimili sínu í Palm-
dale, Kaliforníu 23.
maí s.l.
Foreldrar henn-
ar voru Hallvarður
Árnason stýrimað-
ur f. 23. desember
1895, d. 21. janúar
1969 og Guðrún Kristjánsdóttir
húsmóðir f. 19. desember 1903,
d. 7 mars 1986. Systkini Krist-
ínar voru Þórarinn Haukur f.
20. júlí 1931, d. 31. október
2010. Fyrri kona Hauks var
Kolbrún Ólafsdóttir lést 1960.
Seinni kona hans var Erla Long
f. 28. desember 1933. Agnes K.
Hallvarðsdóttir f. 16. október
1937 gift Karli Aspelund,
Ragna K. Hallvarðsdóttir f. 8.
nóvember 1940 gift Benedikt
bjuggu víða, á Guam í Kyrra-
hafinu, New York, Kampala í
Úganda, Perth í Ástralíu, og
Honolulu og Maui á Hawaii.
Harry lést á Maui 1983, en
Kristín bjó þar til ársins 2002 er
hún flutti til Palmdale í Kalif-
órníu. Þar bjó hún við sömu
götu og Harry sonur hennar.
Kristín og Harry eignuðust þrjú
börn: Harry M. Engel III fram-
kvæmdastjóri giftur dr. Suz-
anne Frye kíropraktor. Þau
eiga Kamillu Ósk f. 16. desem-
ber 1996 og Harry M. IV f. 2.
maí 2003. Justin Engel f. 27.
október 1962 trygginga-
sölumaður, kona hans er Laura
Bridgwell Engel stílisti 21. febr-
úar 1963. Þau eiga Elizu Krist-
ínu 22. Mars 1996 og Önnu.
Rúna Engel Magowan frum-
kvöðull f. 20. apríl 1964 gift
Thomas Magowan fram-
kvæmdastjóra f. 26. maí 1964.
Þau eiga Katrínu f. 19. febrúar
1991 og Merrill f. 15. febrúar
1994. Kristín starfaði lengst af
sem sjúkraþjálfari og um tíma
var hún fasteignasali.
Útför Kristínar fer fram frá
Fossvogskapellu í dag, fimmtu-
daginn 9. ágúst 2012 kl. 15.
Blöndal. Arnfríður
M, Hallvarðsdóttir
f. 5. nóvembeer
1942 gift Þór Þor-
bergssyni. Árný
Þóra Hallvarðs-
dóttir f. 6. mars
1945 gift Loga
Magnússyni.
Kristín ólst upp
á Fálkagötu og
Langholtsvegi í
Reykjavík, hún
gekk í Menntaskólann í Reykja-
vík og útskrifaðist þaðan 1954.
Eftir stúdentspróf hélt hún til
Svíþjóðar og stundaði nám í
sjúkraþjálfun í Háskólanum í
Lundi og lauk þaðan prófi 1958.
Hún flutti til New York 1959 og
vann þar sem sjúkraþjálfari
með framhaldsnámi. Í New
York kynntist hún manni sínum
Harry Engel athafnamanni.
Þau giftu sig í Honolulu á
Hawaii 1960. Kristín og Harry
Við Rúna, konan mín, kynnt-
umst í október 1986, vorið 1987
fór ég til Hawaii til að hitta Krist-
ínu Engel í fyrsta sinn. Flestum
finnst vandræðalegt að hitta
móður eða föður einhvers í fyrsta
sinn. Það veit Guð! Þú dæmir
móðurina eða föðurinn og þau
dæma þig. Ég get vel sagt og án
nokkurs vafa að heimsóknin til
Kris var sú auðveldasta af öllum
slíkum heimsóknum. Ég býst við
að það sé ástæða þess að við
Rúna höfum bráðum verið gift í
25 ár.
Kris Engel var engill. Yndis-
legri, vingjarnlegri eða ástríkari
manneskja hefur aldrei stigið
fæti á þessa jörð. Kris átti ekki til
í sér neitt slæmt. Hún óskaði öll-
um aðeins þess besta. Helsta
minning mín um Kris er hvað hún
naut þess að hlæja. Hún sagði
mér að hún hefði gifst Harry En-
gel vegna þess að hann fékk hana
til að hlæja. Ég man að þegar ég
hitti Kris í fyrsta sinn sat ég hjá
henni og við sögðum hvort öðru
sögur og hlógum.
Kris var prakkari, hafði gaman
af því að gantast og naut þess að
hlæja. Kris var líka mjög virðuleg
kona. Hún trúði á Guð, sótti
kirkju reglulega, greinilegt var
að trúin skipti hana miklu máli,
hún sýndi það með líferni sínu.
Kris var góð kona, færði fórnir
fyrir börnin sín þegar hún hafði
ekki mikið milli handanna. Því
miður þurfti Kris að þola meiri
niðurlægingu mörg síðustu árin
en nokkur manneskja ætti að
þurfa að lifa. Hún fékk margsinn-
is heilablóðfall sem lamaði hana
að mestu. Heilsunni hrakaði eftir
því sem dró úr hreyfigetunni.
Þetta reyndist Kris erfitt og
einnig vinum hennar og
fjölskyldu.
Ég hef heyrt sagt að hinn
sanni persónuleiki komi í ljós við
mótlæti. Að þessu leyti og þrátt
fyrir margar raunir lifði Kris
áfram með eins mikilli reisn og
henni var framast unnt. Hún
sýndi meiri innri styrk en gerist
og gengur. Greinilegt var að hún
þjáðist en hún bar þá þjáningu í
hljóði. Ég hef fundið til með Kris
í langan tíma en jafnframt dáðst
að henni fyrir hugrekkið sem hún
sýndi þegar hún þurfti að búa við
hlutskipti sem hún átti ekki skil-
ið. Síðustu árin studdu Harry og
Suzanne Kris og veittu henni,
umönnun og félagsskap. Sérhver
móðir væri heppin að hafa fólk
eins og þau tvö sér við hlið. Ka-
milla og Harry veittu ömmu sinni
mikla gleði, það var augljóst því
þegar þau voru nálægt ljómaði
hún.
Kris naut þeirra einföldu
ánægjustunda sem lífið færði
henni, fá sér vínglas, taka þátt í
skemmtilegum samræðum og
hlæja dátt. En Kris var líka æv-
intýramanneskja. Hve margar
konur vitum við um sem fluttust
frá Íslandi og bjuggu eins víða og
hún. Ég held að ef Kris væri hér
til að gefa okkur ráð væru þau
eitthvað á þessa leið: Lífið er ann-
að og meira en peningar og ekki
er hægt að kaupa hamingjuna
fyrir peninga. Elskið fjölskyldu
ykkar og vini. Verið góð við aðra,
eltið drauma ykkar og lifið lífinu
til hins ýtrasta, þið getið gert
hvað sem þið viljið ef þið reynið.
Verið hnarreist og munið að
hlæja mikið. Munið að fara með
bænirnar.“
Nú kveð ég Kris í hinsta sinn.
Ég er betri manneskja eftir að
hafa kynnst henni og mun geyma
minninguna um hana í hjarta
mér.
Thomas Magowan.
Stína systir var 11 ára þegar
ég fæddist. Hún var ekki ánægð
með þetta nýja barn því henni
fannst nóg komið. Hún svaf í stof-
unni því þar var mest næði til að
læra. Stína var afburða dugleg og
útsjónarsöm og með eindæmum
sjálfstæð enda útskrifaðist hún
úr stærðfræðideild MR 1954.
Stína Hall og Stína Leifs voru
stelpurnar í bekknum og hélst
vinátta þeirra alla tíð. Þegar
Stína fór til náms í Svíþjóð fundu
hún og Haukur leið til að fjár-
magna námið hennar og um leið
fyrstu íbúðarkaup hans. Hún
fékk þá hugmynd að sækja um að
kaupa og flytja inn til Íslands bíl.
Á þeim tíma var mjög erfitt að fá
innflutningsleyfi fyrir bíl. Stína
fékk innflutningsleyfi og Haukur
lánaði henni pening fyrir kaup-
unum.
Stína vann alltaf með náminu
hér heima sem var óvanalegt á
þeim tíma, eins tók hún vaktir á
sjúkrahúsinu í Svíþjóð. Eftir að
Stína lauk náminu í Svíþjóð hélt
hún til New York, bæði til að læra
meira og vinna við sitt fag. Á
þessum tíma kynnist hún
„skemmtilegasta manni verald-
ar“ honum Harrý sem varð henn-
ar lífsförunautur. Þau hlógu mik-
ið og fylgdi gleðin og hláturinn
þeim lengst af. Stína og Harry
bjuggu víða og bestu árin þeirra
voru í Afríku þar til Idi Amin náði
að sölsa undir sig eignum þeirra
en þá sáu þau sér ekki fært annað
en að flýja. Þau fluttu til Perth í
Ástralíu en enduðu á Hawaii.
Harry og Stína eignuðust þrjú
börn þau Harry yngri, Justin og
Rúnu. Ég hef verið þeirrar gæfu
aðnjótandi að fá að hafa þau hjá
mér í skólafríum og tvö systkin-
anna voru hér í skóla í einn vetur.
Justin á Ísafirði hjá Agnesi syst-
ur og Rúna hjá mér. Ég hef alltaf
talað við þau íslensku sem þau
þakka mér í dag. Við Agnes syst-
ir og eiginmenn okkar heimsótt-
um Stínu á Hawaii 1987. Árið
2002 ákvað hún að flytja til Kali-
forníu til að vera í nágrenni við
Harry son sinn og hans fjöl-
skyldu. Árið 2003 buðu Stína og
Harry mér í heimsókn í endur-
hæfingu sem ég og þáði. Það var
ógleymanlegur tími, þar kynnt-
ist ég henni best og við hjálp-
uðum hvor annarri sem mest.
Ég að koma heimilinu hennar í
stand og hún að dekra við mig á
annan hátt. Ég var svo lánsöm
að geta heimsótt Stínu oft eftir
þetta og rifjað upp með henni
gamla tíma. Ég hafði samband
við gömlu félagana hennar og
vini og var tengiliður þar á milli
þannig að hún hélt áfram að
fylgjast með öllum og öllu. Við
hlógum mikið saman og ég söng
fyrir hana og það kunni hún að
meta.
Á árunum 2000-2003 kom
Stína árlega til Íslands og flakk-
aði milli Ísafjarðar og Reykja-
víkur, hún naut Íslands á ný. Í
ágúst 2003 er hún var stödd hér
á landi fékk hún heilablóðfall.
Hún náði sér aldrei eftir þetta
en þá var ráðin íslensk kona,
Bára Halldórsdóttir, til að sjá
um hana í Kaliforníu. Þær áttu
mjög góðan tíma saman, deildu
sama húmornum, hlógu mikið,
skemmtu sér og ferðuðust. Það
dró jafnt og þétt af henni síðustu
árin en hún gat samt verið heima
hjá sínu fólki þar til yfir lauk,
Harry og Suzanne hugsuðu ein-
staklega vel um hana og sáu til
þess að alltaf hafði hún gott að-
stoðarfólk heima öll þessu níu
ár.
Ég kveð þig Stína mín.
Árný.
Kær vinkona og skólasystir,
Kristín Hallvarðsdóttir Engel,
er látin í Palmdale í Kaliforníu
eftir langvinn veikindi. Í áratug
barðist hún hetjulegri baráttu
við síendurteknar heilablæðing-
ar.
Stína kom í síðasta sinn til Ís-
lands í desember 2004 til að
njóta samvista við stórfjölskyld-
una og vini. Þá þegar var svo af
henni dregið að hún komst hvergi
nema í hjólastól. Dvölin varð
henni engu að síður hin ánægju-
legasta enda sýndi hún einstakt
æðruleysi og var staðráðin í að
njóta hverrar stundar. Þrátt fyrir
mikla hömlun var glettnin ekki
langt undan.
Við kynntumst í Menntaskól-
anum í Reykjavík haustið 1950 og
lentum fljótlega í sömu klíkunni.
Hún var hávaxin og grönn með
fríða andlitsdrætti og hafði til að
bera mikla útgeislun. Fáguð
framkoma, frjálslegt fas og al-
hliða gáfur hennar vöktu athygli
bekkjarsystkinanna. Undir niðri
kraumaði í ærslabelgnum Stínu
sem oftar en ekki litaði gráan
hversdagleika okkar. Smitandi
hlátur hennar er mér sérstaklega
minnisstæður. Hún kunni til ým-
issa verka betur en flest okkar,
var vön matargerð og saumaði
sjálf fötin sín. Hún vann oft með
skólanum, vélritaði m.a. fyrir fólk
og var sætavísa í Trípolíbíó. Það
var fátítt á þessum árum ef ekki
einsdæmi að nemendur ynnu
jafnhliða námi.
Eftir stúdentspróf 1954 stund-
aði Stína nám í sjúkraþjálfun í
Svíþjóð, hélt síðan til Bandaríkj-
anna í framhaldsnám og til
starfa. Hún kynntist athafna-
manninum Harry Engel og átti
viðburðaríka ævi með honum í
rúm tuttugu ár. Hann lést 1983.
Með börnin þrjú: Harry, Justin
og Rúnu gerðu þau víðreist. Þau
voru m.a. búsett í New York,
Perth í Ástralíu, í Úganda og á
Hawaii. Eftir lát manns síns
starfaði Stína um árabil sem
sjúkraþjálfari og síðar við fast-
eignasölu á Hawaii. Hún fluttist
síðan til Bandaríkjanna þar sem
öll börnin hennar höfðu sest að.
Þótt Stína væri búsett í óra-
fjarlægð frá okkur gömlu vinkon-
unum hafði hún lag á að gleðja
okkur með ýmsum óvæntum
uppákomum. Haustið 1988 þegar
efnt var til brúðkaups Rúnu dótt-
ur hennar í San Francisco þáðum
við nokkrar boð hennar og fórum
ásamt fríðu föruneyti fjölskyldu-
meðlima og vina til að taka þátt í
vikulöngum gleðskap, ýmist fá-
mennum eða fjölmennum,
veislum og ferðalögum. Dvölin í
San Francisco, sem og öll ferðin,
var eitt ævintýr. Sex árum seinna
gekk Harry sonur hennar í það
heilaga á tindi Snæfellsjökuls. Þá
var gestum boðið í sleðaferð upp
á jökul. Það var enn eitt ævintýr-
ið og jafn eftirminnilegt. Meðan
Séra Agnes Sigurðardóttir lagði
blessun sína yfir brúðhjónin
gægðist sólin fram undan dimmri
þokuslæðunni sem rétt áður hafði
hulið jökulinn. Hvílík hátíðar-
stund!
Gengin er yndisleg kona, móð-
ir, amma, systir og margra vinur.
Elsku Harry, Justin, Rúna,
Agnes, Ragna, Fríða, Árný og
aðrir ástvinir, ég votta ykkur ein-
læga samúð mína.
Megi allar góðar vættir vaka
yfir minni kæru vinkonu.
Víða til þess vott ég fann,
þótt venjist oftar hinu,
að guð á margan gimstein þann,
sem glóir í mannsorpinu.
(Bólu-Hjálmar.)
Unnur María.
Kristín Hallvarðs-
dóttir Engel
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjón-
arfólki minningargreina viðvart.
Minningargreinar