Morgunblaðið - 09.08.2012, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012
Það verður smákaffiboð með fjölskyldu og vinum,“ segir IngaBjörk Andrésdóttir, afmælisbarn dagsins, og gerir hún ráðfyrir „hæfilegu magni“ af vinum og vandamönnum í því boði.
Inga Björk er fatahönnuður að mennt, en hún útskrifaðist árið 2008
úr Listaháskóla Íslands. Hún starfar nú í hlutastarfi í vefnaðarvöru-
verslun og sinnir fatahönnuninni með. Þá hannar Inga Björk einnig
skartgripi en telur það hluta af fatahönnuninni.
Inga Björk segir fatahönnun skemmtilegt fag. „Þetta er alltaf
hark, því Ísland er svo lítill markaður, en þetta er alltaf skemmti-
legt.“ Inga Björk hefur einnig tekið þátt í svokölluðum „PopUp“-
mörkuðum. Hún segir að þeir hafi gengið mjög vel. „Það er mjög
mikill áhugi fyrir íslenskri hönnun. Fólk er mjög spennt fyrir nýjum
hlutum og því sem aðrir eru að gera og orðið sjálfstæðara í hugsun.
Það er ekki alltaf að elta fjöldann heldur bara það sem það langar í
sjálft.“
Inga Björk hefur ferðast mikið um Ísland í sumar: „Ég fór á
Reykjanesið og fór einnig í fyrsta sinn á Siglufjörð og á Hóla í
Hjaltadal. Svo fór ég í nýju sundlaugina á Hofsósi, sem er alveg frá-
bær.“ Inga Björk segir að sér lítist mjög vel á það að verða þrítug.
„Þetta er bara byrjunin. Ég hef ennþá tíu ár í að verða fertug, mér
finnst það aðeins verra, en þrítugt er allt í lagi.“ sgs@mbl.is
Inga Björk Andrésdóttir 30 ára
Ljósmynd/Inga Björk Andrésdóttir
Fatahönnuður á ferðalagi Inga Björk Andrésdóttir fatahönnuður
hefur ferðast mikið um landið í sumar.
Líst mjög vel á
að verða þrítug
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Selfoss Jóhannesi
Páli Friðrikssyni og
Þórdísi Björgu Björg-
vinsdóttur fæddust
tvíburastúlkur 17. júlí.
A-stúlka fæddist kl.
19.05 (v.m. á mynd).
Hún vó 2.662 g og var
47 cm löng. B-stúlka
fæddist kl. 19.06
(h.m. á mynd). Hún vó
2.070 g og var 45 cm
löng.
Nýir borgarar
Þrjár vinkonur komu og færðu Rauða krossinum 2.302 kr. sem þær söfnuðu með
tombólu sem þær héldu fyrir utan sjoppuna Kúluna á Háaleitisbraut. Þar seldu
þær bæði sitt eigið og dót sem þær söfnuðu með því að ganga í hús. Þær heita
Erna Alexandra Guðjónsdóttir, sex ára, Agla Vigdís Atladóttir, fimm ára, og
Embla Kleópatra Atladóttir, sjö ára. Á myndina vantar Emblu Kleópötru.
Hlutavelta
H
öskuldur fæddist á
Mýri í Álftafirði við
Djúp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR
1957, viðskiptafræði-
prófi frá HÍ 1963 og stundaði fram-
haldsnám í þjóðfélagsfræðum við
Institute of Social Studies í Haag í
Hollandi 1963-65.
Höskuldur var starfsmaður Rík-
isendurskoðunar 1958-61, aðstoð-
armaður á Hagstofu Íslands, í efna-
hagsráðuneytinu og
viðskiptaráðuneytinu 1961-62, við-
skiptafræðingur hjá Efnahagsstofn-
uninni 1963 og 1965, settur fulltrúi í
fjármálaráðuneytinu frá 1965 og
skipaður þar 1966 og skipaður deild-
arstjóri launamáladeildar fjár-
málaráðuneytisins 1966.
Forstjóri ÁTVR í tvo áratugi
Höskuldur var skipaður skrif-
stofustjóri fjármálaráðuneytisins
Höskuldur Jónsson, fyrrv. forstjóri ÁTVR, 75 ára
Í íslenskri náttúru Höskuldur hefur lengi ferðast um fjöll og firnindi og var forseti Ferðafélags Íslands 1985-94.
Frækinn ferðagarpur
og farsæll í störfum
Fjölskyldan Höskuldur Jónsson og Guðlaug Sveinbjarnardóttir, ásamt son-
um sínum. Í aftari röð frá vinstri: Sveinbjörn, Jón Grétar og Þórður.
Heill heimur af ævintýrum