Morgunblaðið - 09.08.2012, Síða 35

Morgunblaðið - 09.08.2012, Síða 35
1973, settur ráðuneytisstjóri þess 1974-76, skipaður ráðuneytisstjóri þar 1977-86 og var forstjóri ÁTVR 1986-2005. Höskuldur sat í stjórnarnefnd Skipaútgerðar ríkisins 1966-69, í stjórn Lífeyrissjóðs Sóknar 1970-95, í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs barnakenn- ara 1977-80, í stjórn Biðreiknings líf- eyrissjóðsiðgjalda, síðar Söfn- unarsjóðs lífeyrisréttinda 1974-88, átti sæti í ýmsum nefndum á vegum ríkisins og var m.a. formaður samn- inganefndar ríkisins í launamálum í nokkur ár. Áhugi á landinu stóraukist Höskuldur var forseti Ferðafélags Íslands 1985-94, sat í stjórn Minja- verndar í nokkur ár frá 1985 sem og í Ferðamálaráði frá 1989. Áhuginn á óbyggðargöngum og löngum hestaferðum hefur nú líklega aukist mikið frá því þú fórst fyrst að ferðast, Höskuldur? „Já, það er ekkert sambærilegt og auðvitað mjög jákvætt hvað fólk er almennt farið að kynna sér landið ut- an alfaraleiðar. Þetta er nú líklega hluti af byltingunni um hollari og betri lífsstíl fólks.“ Heldurðu að þessi þróun eigi eftir að breyta afstöðu fólks til nátt- úruverndar? „Ég vona að þessi áhugi styrki okkur í því að byggja stórfram- kvæmdir á nákvæmum og yfirgrips- miklum rannsóknum. Hins vegar tel ég að skynsamleg nýting okkar náttúruauðlinda sé for- senda þeirrar efnahagslegu vel- ferðar sem við flest sækjumst eftir.“ Höskuldur var sæmdur gullmerki Ferðafélags Íslands 1987 og ridd- arakrossi íslensku fálkaorðunnar 1992. Fjölskylda Höskuldur kvæntist 23.7. 1964 Guðlaugu Sveinbjarnardóttur, f. 1.1. 1941, sjúkraþjálfara. Hún er dóttir Sveinbjörns Erlingssonar, f. 28.3. 1913, d. 7.2. 1996, vélstjóra í Reykja- vík, og k.h., Guðnýjar Guðjónsdóttur, f. 27.2. 1916, d. 27.8. 2006, húsfreyja. Synir Höskuldar og Guðlaugar eru Þórður, f. 25.5. 1966, iðnrekstr- arfræðingur og MA í viðskiptafræði og framkvæmdastjóri í Reykjavík, en sambýliskona hans er Erla Magn- úsdóttir og er dóttir hans Guðný Þóra; Sveinbjörn, f. 23.11. 1968, raf- magnsverkfræðingur í Reykjavík, kvæntur Kolbrúnu Eydísi Ott- ósdóttur verkfræðingi og eru synir þeirra Atli Þór og Bjarki Freyr; Jón Grétar, f. 15.1. 1976, búsettur í Reykjavík. Systkini Höskuldar: Hallfríður Kristín, f. 19.2. 1920, d. 25.4. 1985, húsmóðir í Bolungarvík; Bjarney Guðrún, f. 14.7. 1921, d. 9.4. 2012, húsfreyja á Vífilsstöðum; Pálína, f. 27.6. 1925, d. 19.12. 2011, húsfreyja á Seyðisfirði; Kristín Guðrún, f. 10.6. 1928, ljósmóðir og húsfreyja, búsett á Ísafirði; Halldóra Margrét, f. 25.6. 1930, d. 19.10. 1965, húsfreyja í Bol- ungarvík; Kristinn Jón, f. 25.12. 1934, d. 19.9. 2003, rekstrarstjóri Vegagerðar ríkisins á Vestfjörðum, var búsettur á Ísafirði. Foreldrar Höskuldar voru Jón Guðjón Kristján Jónsson, f. 29.8. 1892, d. 30.9. 1943, bóndi á Mýri í Álftafirði, og k.h., Halldóra María Kristjánsdóttir, f. 19.3. 1892, d. 19.5. 1944, húsfreyja á Mýri. Úr frændgarði Höskuldar Jónssonar Guðrún Magnúsdóttir frá Kleifskoti í Ísafirði Matthías Jónsson b. á Sandeyri við Djúp Guðrún Jónsdóttir úr Eyrarsókn Egill Þorgrímsson b. á Skarði Halldór Hermannsson b. á Bæjum á Snæfjallastr. Sigríður Þorbergsdóttir vinnukona Jens Matthíasson vinnum. á Fremri-Bakka Höskuldur Jónsson Halldóra María Kristjánsdóttir húsfr. á Mýri Jón G.K. Jónsson b. á Mýri í Álftafirði við Djúp Jón Egilsson b. og vefari á Skarði á Snæfjallastr. Kristín Matthíasdóttir húsfr. á Skarði Hallfríður Jensdóttir húsfr. á Laugalandi Kristján Halldórsson b. á Laugalandi Helga María Jónsdóttir húsfr. á Laugalandi við Djúp Ólafur Á. Þórðarson b. á Rauðumýri Halldór Þórðarson b. á Lauga- landi Jóhann Þórðarson lögfr. María Rebekka Kristjánsdóttir húsfr. á Bæjum Margrét Kristjánsdóttir húsfr. á Bjarnarstöðum Kristín Sigurðardóttir húsfr. á Blámýrum Elísabet Hjörleifsdóttir húsfr í Hnífsdal Steindór Hjörleifsson leikari Afmælisbarnið Höskuldur Jónsson. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012 Guðmundur Halldórsson, út-sölustjóri hjá ÁTVR, knatt-spyrnumaður og formaður Knattspyrnufélagsins Fram, fædd- ist 9. ágúst árið 1900. Foreldrar hans voru Andrea Katrín Guðmundsdóttir og Halldór Högnason verslunarmaður. Hann ólst upp í stórum systkinahópi, þriðji í röðinni af níu systkinum sem náðu fullorðinsaldri. Skólaganga hans var ekki löng því hann missti föður sinn ungur og þurfti því að styðja móður sína við að sjá heimilinu farborða. Bræður hans tveir, Sigurður og Ólafur, voru einnig formenn í Fram. Hann kvæntist Ágústu Jóhann- esdóttur og áttu þau Öldu og Hall- dór. Hann ólst upp við Njálsgötuna í Reykjavík sem var helsta vígi knatt- spyrnufélagsins Fram. Árið 1919 gekk Guðmundur til liðs við Fram og var þá meðal yngstu leikmanna liðs- ins. Hann varð strax fastamaður í meistaraflokksliði félagsins og hampaði margoft Íslandsmeist- aratitli með liðinu. Árið 1927 mátti litlu muna að Fram lognaðist út af þegar nær allir lykilmenn og stjórnendur félagsins hættu. Guðmundur átti sinn þátt í því að blása lífi í félagið að nýju. Hann smalaði stjórn félagsins árið 1928 sem sinnti komandi verkefnum af kappi. Jafnframt safnaði hann piltum af Njálsgötunni og nálægum götum til æfinga, sem hann stýrði sjálfur. Segja má að hann hafi gerst fyrsti þjálfari meistaraflokks í nú- tímaskilningi þess orðs. Þrekvirki Guðmundar var staðfest 1933, á 25 ára afmæli félagsins þegar hann og Kjartan Þorvarðarson, fé- lagi hans úr stjórninni frá 1928, voru útnefndir heiðursfélagar Fram, en sá heiður hafði þá ekki enn hlotnast neinum stofnfélaga Fram. Guðmundur tók við formanns- embættinu árið 1937 og gegndi því til 1939 og svo aftur 1946-47. Á seinna formannstímabili Guðmundar réðst Fram í byggingu félagsheim- ilis, fyrst íslenskra íþróttafélaga. Guðmundur lést 13. febrúar 1986. thorunn@mbl.is Merkir Íslendingar Guðmundur Halldórsson 106 ára Guðrún Jónsdóttir 90 ára Friðrik Haraldsson Gunnar Þórðarson Marteinn Sigurólason 85 ára Kristín Björnsdóttir 80 ára Arnór Valgeirsson Ásta Hjálmarsdóttir Jenný L. Valdimarsdóttir Nanna Tómasdóttir Oddný Ásmundsdóttir Olga Sigurðardóttir Ólafía Sigurðardóttir Sesselja Ingimundardóttir Sólveig Björnsdóttir 75 ára Gunnar Ásgeirsson Helga Bjarnadóttir Höskuldur Jónsson Kolbrún Pálsdóttir Steinunn Guðmundsdóttir 70 ára Ásgeir Christiansen Erlen Jónsdóttir Guðrún Ingibjörg Hlíðar Gylfi Þór Sigurðsson Ingólfur Arnar Stein- dórsson María Siggeirsdóttir María Steinunn Arnfinns- dóttir Ragnheiður Jónsdóttir 60 ára Ágúst Stefánsson Baldvin Elíasson Guðjón Reynir Jóhann- esson Ólafur Héðinsson Sesselja Geirlaug Pálsdóttir Sigurður V. Hólmsteinsson Stefán Melsted Þóra Zophoníasdóttir 50 ára Anna Björg Stefánsdóttir Árni Már Mikaelsson Guðrún Halldórsdóttir Haraldur Lorange Helga Adolfsdóttir Kristján Reynir Pálsson Nanna Þórhallsdóttir Oddur Jónsson Sigrún Sæmundsdóttir Sveinbjörg Halldórsdóttir Valdimar Runólfsson Þórður Már Svavarsson 40 ára Giedrius Dailidenas Guðrún Karla Sigurðardóttir Gunnar Atli Hafsteinsson Gunnar Hreinsson Gunnlaug Óladóttir Hermann Már Þórisson Hrund Þrándardóttir Sigurjón Pálsson Sólveig Einarsdóttir 30 ára Árni Björn Árnason Berglind Benónýsdóttir Dagný Tryggvadóttir Einar Örn Einarsson Erla Anna Ágústsdóttir Inga Björk Andrésdóttir Karl Ingi Þorleifsson Margrét Dóróthea Guðmundsdóttir Ólöf Haraldsdóttir Rannveig Elíasdóttir Rebekka Ósk Sváfnisdóttir Örvar Ingi Jóhannesson Til hamingju með daginn 30 ára Guðmundur er fæddur að Steinum í Borgarfirði og er búsettur á Akranesi. Hann er raf- eindavirki frá Iðnskól- anum í Reykjavík og raf- virki frá FVA. Hann starfar sem rafvirki hjá Norðuráli. Maki Sigurrós María Sig- urbjörnsdóttir, f. 1985, starfsmaður Norðuráls. Foreldrar Jóhann Odds- son bóndi á Steinum f. 1946, verður 68 ára í dag, og Valgerður Björnsdóttir, f. 1953 bóndi á Steinum. Guðmundur S. Jóhannsson 40 ára Bolli ólst upp í Laufási í Eyjafirði og starf- ar nú þar nú sem prestur. Maki Sunna Dóra Möller, f. 1975, verðandi prestur við Akureyrarkirkju. Börn Jakob Þór Möller, f. 1994, Sigrún Hrönn, f. 2000, og Matthildur Þóra, f. 2002. Foreldrar Bolli Þórir Gúst- afsson, prestur og vígslu- biskup á Hólum í Hjaltadal, f. 1935, d. 2008, og Matt- hildur Jónsdóttir, hús- freyja, f. 1936. Bolli Pétur Bollason 50 ára Ragnar er fæddur í Skagafirði og uppalinn í Lóninu og er búsettur á Þorgeirsstöðum hjá Höfn í Hornafirði. Ragnar starf- ar hjá Rafeyri á Akureyri sem járnsmiður og raf- virki. Dóttir Þórhildur Anna Ragnarsdóttir, f. 2001. Foreldrar Jóhanna Vil- borg Ingvarsdóttir frá Hvítárbakka í Bisk- upstungum, f. 1924 og Pétur Pálmason, fæddur í Skagafirði, f. 1930. Ragnar Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.