Morgunblaðið - 09.08.2012, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012
Kolbrún Kristleifsdóttir
kennari
- Ég finn mig alltaf svo
velkomna hérna!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Sudden Weather Change: ljóðræn
heimildarmynd verður sýnd í kvöld
kl. 22 í Bíó Paradís. Í myndinni er
fjallað um ár í lífi hljómsveitarinnar
Sudden Weather Change, allt frá því
hún hlaut verðlaun sem bjartasta
vonin á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum árið 2010. Höfundur mynd-
arinnar er einn meðlima hljómsveit-
arinnar, Loji Höskuldsson og er
þetta hans fyrsta heimildarmynd.
Myndin var frumsýnd á heimild-
armyndahátíðinni Skjaldborg í maí
sl., verður aðeins sýnd í kvöld í Bíó
Paradís og er frítt inn.
Loji lýsir myndinni sem portretti
af liðsmönnum hljómsveitarinnar
frekar en tónlistarsköpun hennar.
„Hún fjallar um okkur sem persón-
ur, okkar umhverfi og hvernig það
hefur áhrif á okkur sem hefur auðvit-
að áhrif á tónlistina. Ég eignaðist s.s.
litla myndavél sem ég var alltaf með á
mér þannig að ég tók bara alltaf upp
allt saman þannig að ég náði fullt af
augnablikum sem maður myndi ann-
ars ekki ná,“ segir Loji um myndina.
Titill myndarinnar hafi upphaflega
átt að vera Ljóðræn heimildarmynd
en nafni hljómsveitarinnar hafi síðar
verið bætt við. Loji segir myndina
ekki dæmigerða heimildarmynd,
áhorfendur verði að geta nokkuð í
eyðurnar. „Ég fjalla t.d. um Granda-
svæðið, út af því að við erum með æf-
ingarhúsnæði þar og þá fékk ég
manneskju sem er sérfræðingur í
hafnarsvæðum í Evrópu til að skrifa
pistil sem er lesinn upp í myndinni.
Það er ekki beinlínis sagt að það hafi
áhrif á okkur heldur kemur allt í
einu pistill,“ nefnir Loji sem dæmi
um hin ljóðrænu efnistök í heimild-
armyndinni. helgisnaer@mbl.is
Portrett af hljómsveit
Veðrabrigði Sudden Weather Change, frá vinstri Loji Höskuldsson, Oddur
Guðmundsson, Bergur Thomas Anderson og Dagur Sævarsson.
Heimildarmynd
um Sudden
Weather Change
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
Á þriðjudaginn hófust Hinsegin dag-
ar í Reykjavík með pompi og prakt.
Hátíðardagskráin í ár er að vanda
vegleg og nær hápunkti á laugar-
daginn þegar Gleðigangan fer fram.
„Í ár var lögð áhersla á fjölbreyti-
leika og hinar ýmsu greinar menn-
ingar okkar og þó að Gleðigangan sé
auðvitað hápunkturinn þá er vikan til
þess að styrkja stoðir okkar menn-
ingar,“ segir Eva María Þórarins-
dóttir Lange, formaður Hinsegin
daga.
Sigga Beinteins er dívan
„Fyrsti dagurinn setti tóninn fyrir
hátíðina en hann hófst með opnun
sýningar á teikningum Kristínar
Ómarsdóttur. Seinni partinn bauð
Hinsegin kórinn svo á tónleika og
kvöldinu lauk með frumsýningu kvik-
myndarinnar Hrafnhildur eftir
Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur,“
segir Eva María, ánægð með þétt-
pakkaða dagskrána.
„Sigga Beinteins er dívan okkar í
ár enda átti hún stórafmæli um dag-
inn,“ segir Eva María en í ár ríkir
einnig mikil spenna fyrir komu
hljómsveitarinnar Betty sem kemur
til með að troða upp bæði á opn-
unarhátíð Hinsegin daga sem og á
Arnarhóli að lokinni Gleðigöngu.
„Hljómsveitin Betty er líklega
þekktust fyrir að hafa komið fram í
sjónvarpsþáttunum L-Word,“ segir
Eva María og vísar þá til vinsælla
þátta sem sýndir voru hér á landi fyr-
ir nokkrum árum. „Þær eru miklir
töffarar og frekar „röff“ píur svo
þetta verða æðislegir tónleikar.“
Stærsta Gleðigangan
Eins og áður sagði ná Hinsegin
dagar hámarki í Gleðigöngunni sem
farin verður á laugardaginn og segir
Eva María gönguna í ár vera þá fjöl-
mennustu til þessa. „Um 40 vagnar
eru skráðir til leiks í ár, þeim fjölgar
með hverju árinu,“ segir hún og bæt-
ir við að fjölbreytnin muni sem fyrr
ráða ríkjum í göngunni. „Þetta eru
allt frá því að vera krúttlegir
mömmuhópar upp í Pál Óskar.“
Lag Hinsegin daga þetta árið ber
heitið Rönd í regnboga og er flutt af
söngdúettinum Viggó og Víólettu.
Eva María er hæstánægð með lagið
og segir það smellpassa við hátíðina.
„Í laginu er mjög mikil söngleikja-
dramatík sem allir ættu að fíla,“ seg-
ir Eva María og bætir við að aðrir
fastir liðir verði einnig á sínum stað,
Áhersla lögð á
fjölbreytileika
Hinsegin dagar í Reykjavík standa
nú yfir og ná hápunkti á laugardaginn
Fjölbreytt Vagn-
ar Gleðigöng-
unnar eru hver
öðrum flottari.