Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 Opið 9-18 alla daga nema sunnudaga • Sími 553 1099 Jóhannes Kjarval listmálari málaði fjölda mál- verka í Gálgahrauni þar sem hann notaði hraun- myndanir sem fyrirmyndir. Í hrauninu má jafn- vel enn finna ummerki um liststörf málarans. Í skýrslunni um umhverfisáhrifin frá 2002 kemur fram að tillit hafi verið tekið til þeirra svæða sem Kjarval málaði á þegar lega nýja veg- arins var valin. Hér að ofan má sjá eitt verka Kjarvals og hraunmyndun sem hann notaði sem fyrirmynd. Myndin var birt í umhverfisskýrslunni og Fram- kvæmdafréttum Vegagerðarinnar í sumar. Tóku tillit til fyrirmynda og minja um Kjarval Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Það gæti orðið allt frá fimm til tíu sinnum dýrara að leggja Álftanes- veg í stokk á um hálfs kílómetra kafla en leggja nýjan veg um Garða- hraun eins og til stendur. Þetta segir Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni. Umhverfissamtökin Hraunavinir hafa mótmælt því að nýi vegurinn verði lagður í gegnum hraunið. Þau leggja til að vegurinn verði áfram á sama stað en verði lagður í stokk á þeim kafla sem er næstur húsum í Prýðishverfi. Vegur til framtíðar „Ég held að það sé vægt til orða tekið að segja að það sé margfalt dýrara. Þá ættu menn eftir að tengja vegi og finna út hvernig menn ættu að komast inn í stokkinn og út úr honum,“ segir Jónas. Skipulag varðandi landnýtingu og umferðaröryggissjónarmið séu aðal- ástæðurnar fyrir því að nauðsynlegt sé að ráðast í að leggja nýjan veg. „Það hafa verið slys og óhöpp á núverandi vegi, sérstaklega á vet- urna. Það eru margar tengingar við hann og vegsýn er ekki góð.“ Hugsanlegt væri þó að laga þá galla en stóra málið að sögn Jónasar er að verið sé að leggja veg til fram- tíðar. Samkvæmt framtíðaráætl- unum Garðbæinga, sem komi fram í aðalskipulagi, sé mikil byggð áform- uð í Garðaholti. „Þá þarf öruggar og greiðar sam- göngur. Sameiginleg niðurstaða Vegagerðarinnar og Garðbæinga á sínum tíma var sú að hafa veginn þar sem við bjóðum hann út í dag. Þar með yrði byggðin öðrum megin og friðaða hraunið hinum megin,“ segir Jónas. Í höndum framkvæmdaaðila Hraunavinir hafa einnig haldið því fram að forsendur umhverfismatsins fyrir nýja veginn séu brostnar en það er frá árinu 2002. Að sögn Stefáns Thors, forstjóra Skipulagsstofnunar, gera lög ráð fyrir að ef framkvæmdaleyfi hafi ekki verið gefið út þegar tíu ár eru liðin þurfi að huga að því hvort for- sendur hafi breyst og hvort ástæða sé til að gera nýtt mat á umhverfis- áhrifum. Stofnunin hafi óskað eftir upplýs- ingum frá Garðabæ um málið og fengið þau svör að framkvæmdir væru hafnar og leyfi veitt fyrir ákveðnum áföngum. Það sé því al- farið framkvæmdaaðila og sveitarfé- lagsins að meta hvort ástæða sé til að ráðast í nýtt umhverfismat. „Skipulagsstofnun hefur enga að- komu að þeirri ákvörðunartöku eða vald til að skipa mönnum fyrir að matið skuli endurtekið,“ segir hann. Í umfjöllun Morgunblaðsins á miðvikudag kom fram að hvorki Vegagerðin né bæjaryfirvöld í Garðabæ teldu að breytingar hefðu orðið á forsendum frá því umhverf- ismatið var unnið fyrir áratug. Stokkur allt að tífalt dýrari  Alfarið í höndum Garðabæjar og framkvæmdaaðila hvort ástæða sé til að endurskoða tíu ára gamalt mat á umhverfisáhrifum af nýjum Álftanesvegi Jónas Snæbjörnsson Stefán Thors Sjónvarpsþátturinn Aðför að lög- um, sem fjallaði um Guðmundar- og Geirfinnsmálið og var sýndur í tveimur hlutum í Sjónvarpinu árið 1997, hefur verið gefinn út á DVD. Á disknum er að finna áður óbirt viðtal við Sævar Ciesielski, aðal- sakborninginn í málinu, en það var tekið 1996. „Ég held mér sé óhætt að segja að þetta sé eitt skýrasta og heildstæðasta sjónvarpsviðtal sem nokkurn tímann hefur verið tekið við Sævar,“ segir Sigursteinn Más- son, framleiðandi þáttanna. Á sínum tíma var aðeins birtur stuttur bútur úr viðtalinu. „Sævar hafði verið ötull baráttumaður fyrir endurupptöku málsins og verið gríðarlega áberandi í fjölmiðlum. Við töldum skyn- samlegt að hafa hann ekki of áberandi í sjálf- um þáttunum. Nú þegar maður fór aftur í gegn- um efnið og við- talið við Sævar sá ég það í nýju ljósi,“ segir Sig- ursteinn. „Það sem mér finnst athyglisvert er hvernig hann fjallar um aðdrag- anda málsins. Það voru engar skýrslur eða upplýsingar um það af hverju hann var bendlaður við mál- ið. Það sama á við um hina sakborn- ingana.“ Eitt skýrasta viðtalið við Sævar Ciesielski  Þátturinn Aðför að lögum á DVD DVD Hulstur Aðför að lögum. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, krefst þess að Hrólfur Ölvisson, framkvæmda- stjóri flokksins, íhugi alvarlega að láta af störfum fyrir Framsóknar- flokkinn. Þetta sagði Höskuldur í yf- irlýsingu sinni til fjölmiðla í gær. Forsaga málsins er sú að í síðustu viku tilkynnti Höskuldur að hann hygðist bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norð- austurkjördæmi. Um helgina lýsti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, því yfir að hann hygðist gera slíkt hið sama. Fram- boð Sigmundar kom Höskuldi að óvörum en hins vegar hefur Hrólfur komið fram í fjölmiðlum og sagt að hann hafi sjálfur látið Höskuld vita um framboð Sigmundar á fimmtu- dag fyrir viku. Þessu hafnar Höskuldur alfarið í yfirlýsingu sinni og segir jafnframt að fáheyrt sé að starfsmaður flokks- ins gangi fram með þessum hætti. Jafnframt krefst Höskuldur þess að Hrólfur íhugi stöðu sína sem fram- kvæmdastjóri alvarlega. „Það skipt- ir öllu að félagsmenn geti treyst því að skrifstofa Framsóknarflokksins starfi af heilindum fyrir alla flokks- menn, ekki síst í væntanlegum próf- kjörum fyrir komandi kosningar,“ segir í yfirlýsingunni. Höskuldur segist ætla að halda ótrauður áfram og hann sé þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem hann finni fyrir í Norðausturkjördæmi. Ekki náðist í Hrólf Ölvisson við vinnslu fréttarinnar í gær. Höskuldur Þór Þórhallsson Hrólfur Ölvisson Segir Hrólf fara með fleipur  Ætti að íhuga stöðu sína alvarlega Gjaldskrár Reykjavíkurborgar vegna þjónustu munu hækka um 5,6% á næsta ári en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir 10,85% hækkunum að meðaltali. Borgarráð staðfesti þessa breytingu á fundi sínum í gær. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að við undirbúning fjárhagsáætlunar 2011 hafi ákvörðun verið tekin um að hækka gjaldskrár með væntri verðbólgu en auk þess um 5,35% á hverju árið frá 2011-2013 til að færa verðgildi þeirra til þess sem var í upphafi árs 2008. Tveir fyrstu áfangarnir eru nú að baki og í tilkynningunni segir að fallið verði frá þeim þriðja og gjaldskrár fyrir þjónustu hækki um 5,6%. Í tilkynningunni segir að gjaldskrá þjónustu í Reykjavík sé sú lægsta á landinu. Gjaldskrár í Reykjavík hækka um 5,6%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.