Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 19

Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 Athugasemd hefur borist frá Róbert Wessman vegna fréttar Morgun- blaðsins í gær þar sem fjallað var meðal annars um þjóðþekkta fjár- festa, sem voru umsvifamiklir í íslensku við- skiptalífi fyrir hrun bankakerf- isins, en félög þeim tengd hafa á árinu tekið þátt í fjárfestingarleið Seðlabankans. Fram kemur í yfirlýsingu Ró- berts, sem er birt hér að hluta til, að „með rangfærslum Morgunblaðsins [sé] gróflega vegið að mannorði [hans].“ Athugasemd Róberts má lesa í heild sinni á mbl.is. „Á forsíðu Morgunblaðsins í [í gær] er ég til umfjöllunar. Þar er fullyrt að ég hafi fengið umtalsverð- ar afskriftir hjá íslenskum fjármála- stofnunum. Jafnframt er greint frá því að íslenskir fjárfestar, og gefið til kynna að ég eigi þar í hlut, eigi umtalsverða fjármuni erlendis og hafi flutt þá til landsins með afslætti í gegnum fjárfestingaleið Seðla- banks. Ýmsir fréttamiðlar hafa frá því í [gær]morgun fjallað um málið og vísað í umfjöllun Morgunblaðs- ins. Ég staðfesti hér með að ég hef engar afskriftir fengið hjá íslensk- um fjármálastofnunum. Jafnframt hef ég ekki flutt fjármuni til lands- ins eins og greint er frá í umfjöllun blaðsins. Lyfjafyrirtækið Alvogen, sem ég veiti forstöðu og tengd félög hafa hinsvegar flutt fjármuni til Ís- lands í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans og hafa þeir fjármun- ir verið nýttir til uppbyggingar fé- lagsins á Íslandi. Í því samhengi má benda á að frá því Alvogen hóf starf- semi sína hér á landi hafa skapast um 20 ný störf.“ Aths. rits. Í yfirlýsingu frá Róbert Wessman sem birt er hér að ofan er því haldið fram að í frétt Morgunblaðsins í gær, þar sem fjallað er um fjárfest- ingarleið Seðlabankans, sé „fullyrt“ að Róbert hafi fengið „umtalsverðar afskriftir hjá íslenskum fjármála- stofnunum.“ Ekkert slíkt er fullyrt í frétt Morgunblaðsins. Hins vegar er bent á að eignarhaldsfélög í eigu þjóðþekktra fjárfesta – Bakkavar- arbræðra, Karls Wernerssonar og Róberts Wessman – hafi það sem af er ári komið með á þriðja milljarð króna í gegnum fjárfestingarleiðina, sem veitir fjárfestum tækifæri á að kaupa krónur fyrir gjaldeyri með 20% afslætti. Sú staðreynd sýni að ýmsir fjárfestar, sem flugu hátt á árunum fyrir hrun bankakerfisins, eigi fjármuni á erlendri grundu á sama tíma og fjármálastofnanir hafi þurft að afskrifa háar fjárhæðir hjá félögum þeim tengdum. Fjárfestingafélagið Salt Invest- ment, sem er í eigu Róberts, skuldaði yfir 20 milljarða króna í árslok 2010 og eigið fé félagsins var neikvætt um 14,6 milljarða. Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs lyfjafyrirtækisins Alvogen, sem Róbert Wessman fer fyrir, sendi Morgunblaðinu athuga- semdina frá Róbert sem birt er hér að ofan. Aðspurður svaraði Halldór því ekki hvort og þá hvernig sú skuld yrði greitt að fullu til baka. „Það eru umtalsverðar eignir að baki lánum sem Glitnir banki veitti félögum í eigu Róberts,“ segir í svari sem barst frá honum í tölvu- pósti. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins varð töluverður hluti eignanna sem að baki lánunum stóðu lítils virði í kjölfar falls bank- anna. Í yfirlýsingu Róberts kemur einn- ig fram að hann „hafi ekki flutt fjár- muni til landsins eins og greint er frá í umfjöllun blaðsins.“ Í frétt Morgunblaðsins er því ekki haldið fram að Róbert hafi persónulega flutt fjármuni til landsins heldur sagt að eignarhaldsfélagið Aztiq Pharma, sem samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er í eigu Róberts og fleiri aðila, hafi komið með 220 milljónir í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans. Athugasemd frá Róbert Wessman Róbert Wessman. Önnur álfyrirtæki á Íslandi virðast ekki ætla að fara sömu leið og Rio Tinto Alcan í Straumsvík, sem til- kynnti í fyrradag uppsagnir 13 starfsmanna vegna erfiðs rekstrar á árinu, en Ágúst Hafberg, upplýs- ingafulltrúi Norðuráls, segir að ekki sé að vænta uppsagna hjá fyr- irtækinu. Í samtali við mbl.is sagði hann framleiðsluna ganga vel. „Við finnum fyrir verðlækkunum en engar mannabreytingar eru í kort- unum hjá okkur.“ Erna Indriðadóttir, fram- kvæmdastjóri samfélags- og upp- lýsingamála hjá Alcoa, tók í svip- aðan streng og sagði engin áform um uppsagnir. Á fyrstu sex mán- uðum ársins var um 250 milljóna króna tap af rekstri Alcoa og því ljóst að sveiflukennt álverð hefur að einhverju marki haft sitt að segja fyrir afkomu fyrirtækisins. Frá því í marsmánuði á þessu ári hefur álverð farið heldur lækkandi, ef undan er skilin um 20% hækkun frá 15. ágúst til 14. september, og er það mat sérfræðinga að verðið muni lækka eitthvað á ný á næstu misserum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Álframleiðsla Ekki eru nein áform um uppsagnir hjá Norðuráli né hjá Al- coa Fjarðaáli. Þrettán manns var sagt upp í fyrradag hjá Rio Tinto Alcan. Engar uppsagnir BÍLARAF BÍLAVERKSTÆÐI Bílaraf www.bilaraf.is Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is Allar almennar bílaviðgerðir Tímapantanir í síma 564 0400 Gott verð, góð þjónusta! Startarar og alternatorar í miklu úrvali V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is Múlalundur - fyrir betri framtíð 40 litir af mismunandi efnum sem hægt er að framleiða úr eftir óskum. Einnig er hægt að velja mismunandi fjölda af ísoðnum vösum og skávösum. Áletrum eftir óskum Kínverski seðlabankinn hefur að undanförnu reynt að stemma stigu við hækkandi lántökukostnaði með því að dæla fjármagni sem nemur tugmilljörðum Bandaríkjadala inn á fjármálamarkaði. Á síðustu þremur dögum nemur innspýting seðlabankans á pen- ingamarkaði, í gegnum endurhverf viðskipti, um 58 milljörðum dala, en bankinn hefur aldrei í sögunni grip- ið til jafn umfangsmikilla aðgerða í þessum efnum. Aðgerðir Kínverska seðlabank- ans höfðu strax mikil áhrif á lána- markaði og lækkuðu helstu vextir um prósentustig – úr 4,75% í 3,75%. Hagvöxtur í Kína hefur ekki mælst minni í þrjú ár. Milljarða dala innspýting í Kína AFP Kína Hagvöxtur hefur ekki mælst minni í þrjú ár og því kom það ekki á óvart að seðlabankinn reyndi að stemma stigu við hækkandi vöxtum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.