Morgunblaðið - 28.09.2012, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Rússlandi hyggjast
herða viðurlögin við ölvunarakstri
eftir að foráttudrukkinn ökumaður
varð sjö manns að bana þegar hann
ók bíl á ofsahraða á strætisvagna-
biðstöð í Moskvu. Rússneskir fjöl-
miðlar hafa eftir þingmanni stjórn-
arflokksins Sameinaðs Rússlands
að það sem af er árinu hafi 2.300
manns dáið í bílslysum sem urðu í
Rússlandi vegna ölvunaraksturs.
Fimm unglingar á heimili fyrir
munaðarlaus og þroskaheft ung-
menni létu lífið í slysinu í Moskvu á
laugardaginn var, auk kennslukonu
þeirra og eiginmanns hennar. Öku-
maðurinn slasaðist lítillega og
viðurkenndi að hafa setið að
drykkju í tvo daga. „Maðurinn hlýt-
ur að hafa verið dauðadrukkinn ef
ekki meðvitundarlaus þegar þetta
hörmulega slys varð,“ sagði tals-
maður lögreglunnar í Moskvu.
„Blóðsýnið úr honum bendir til þess
að áfengið sem hann drakk sam-
svari meira en tveimur flöskum af
vodka.“
Hermt er að maðurinn hafi ekið
bílnum á nær 200 km hraða á
klukkustund. Hann á allt að níu ára
fangelsisdóm yfir höfði sér.
Slysið vakti mikla umræðu í
Rússlandi um hvernig fækka ætti
banaslysum vegna ölvunaraksturs.
Shamsal Saralíjev, þingmaður Sam-
einaðs Rússlands, sagði að ölvunar-
akstur væri miklu alvarlegra
vandamál en hryðjuverkastarfsemi.
„Í fyrra urðu drukknir ökumenn
2.103 að bana,“ hefur fréttavefurinn
pravda.ru eftir honum. „Þetta er
gríðarhá tala. Það sem af er árinu
eru dauðsföllin orðin 2.300.“
Til samanburðar biðu 57 manns
bana í hryðjuverkaárásum í Rúss-
landi í fyrra, að sögn þingmannsins.
Gengið of langt?
Sameinað Rússland hyggst
leggja til að lágmarkssektin fyrir
ölvunarakstur verði hækkuð úr
5.000 rúblum (20.000 krónum) í
100.000 rúblur (400.000 krónur).
Þingmenn flokksins vilja að viður-
lögin við ölvunarakstri, sem leiðir
til banaslyss, verði þau sömu og við
manndrápum að yfirlögðu ráði,
þannig að hámarksrefsingin verði
15 ára fangelsi í stað níu ára. Enn-
fremur hefur komið fram tillaga um
að ökumenn verði sviptir ökurétt-
indum ævilangt, í stað tveggja ára,
ef þeir verða staðnir að ölvunar-
akstri tvisvar sinnum. Mannrétt-
indahreyfingar og þingmenn
stjórnarandstöðunnar óttast að
gengið verði of langt í því að herða
viðurlögin og segja að refsigleði
dugi ekki til að leysa vandamálið.
AFP
Fangi Ölvaður maður festur við stól til að róa hann á lögreglustöð í Moskvu.
Valda yfir 2.000
dauðsföllum á ári
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I linan.is
Supreme Deluxe svefnsófi
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16
Extra þykk og
góð springdýna
Svefnbreidd
140x200
Rúmfatageymsla
í sökkli
kr. 169.800
Ertu að taka til …
… á vinnustaðnum
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is… í bíls umkúrn
Villibráðarhlaðborð
Meðal rétta á villibráðarhlaðborði:
Okkar vinsæla íslenska hreindýr, íslensk gæs
kengúra og margt fl.
• Villibráðarhlaðborð 7.900 kr. á mann.
• Hlaðborð með gistingu og morgunverðarhlaðborði
er aðeins 14.900 kr. á mann og miðast við tvo í herbergi.
Gisting í einstaklingsherbergi er á 19.900 kr.
Endilega bókið tímanlega í hlaðborðin hjá okkur á Hótel
Hellissandi. Spennandi og freistandi kræsingar sem má ekki
missa af. Eyfi mætir á svæðið og spilar fyrir gesti.
www.hotelhellissandur.is
Helgarnar 2.-3. og 9.-10. nóvember.
Pantanir í síma
430 8600
Hótel Hellissandur - Klettsbúð 9 - 360 Hellissandur - Sími 430 8600 - hotelhellissandur@hotelhellissandur.is