Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 33

Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 33
vík, voru þau ánægð þar og fékk Valgeir þar góða umönnun. Með Valgeiri er farinn drengur góður. Hann umgekkst mann- fólkið af virðingu og varúð þess sem þekkir alvöru lífsins en móð- ur sína missti hann á barnsaldri. Elsku Anna og fjölskyldan ykkar Valgeirs, ég samhryggist ykkur innilega. Valdimar Harðarson. Valgeir var meðalmaður á hæð, eilítið þéttvaxinn, liðugur, greindur og minnugur. Hann var góðmenni sem unni umhverfi sínu og samfélagi þar sem hann starf- aði á Djúpavogi sín bestu ár. Ekki síður var honum annt um sveitina sem ól hann, Norðfjörð, og sveit- ina sem fóstraði hann, Skriðdal. Það var ungum manni mikil upplifun að fara níu ára gamall á Djúpavog og dvelja þar næstu þrjú sumur í Sjólyst hjá Olgu og Sigfinni bróður Valgeirs, en aldr- ei fjarri hinum bróðurnum. Þann- ig spannar minningin um Valgeir full 50 ár. Þar sást að Valgeir var allt í öllu á staðnum, þó ekki læknir, prestur eða kaupfélags- stjóri. Stundum var hann í ferð- um með Heimi lækni og síðar þegar læknaskortur var á lands- byggðinni réð hann lækna sem urðu vinir hans og áhrifavaldar. Miklar annir og ábyrgð settu mark sitt á heilsu Valgeirs. Hann var án efa með ómeðhöndlaðan háþrýsting eins og fleiri ættmenn hans. Um fimmtugt tók hann sér leyfi frá störfum og hóf vistina á heilsuhæli NLFÍ að ráði læknis. Þar voru örlög ráðin og þar rætt- ist draumur sem hann hafði dreymt fyrr á árinu. Þar tókust kynni með Önnu og Valgeiri. Þá eignaðist hann fjölskyldu og fjög- ur börn á einu bretti. Hjónaband þeirra var alúðlegt í tæp 38 ár. Anna vandi Valgeir af ýmsum ósiðum, eins og að bölva. Þau ferðuðust víða um suðurlönd. Val- geir eignaðist marga kunningja í þeim ferðum, og ekki síður eftir að þau fluttu frá Djúpavogi til Reykjavíkur. Þá vandi Valgeir komur sínar í sundlaugina í Breiðholti. Öllum þótti Valgeir viðræðugóður og skemmtinn fé- lagi, sem lagði gott til. Um flest vorum við frændur sammála og sáttir. Þó urðu aldrei aðrar sættir með okkur um fram- sóknarmenn en að vera ósáttir. Hann studdi sinn flokk í gegnum alla erfiðleika fyrr og síðar en hann taldi að ekki hefði verið rétt talið í kosningunum 1978 þegar Alþýðubandalagið fékk fleiri at- kvæði en hans flokkur í Austur- landskjördæmi. Urðu þá miklir fáleikar með þeim sveitungum Valgeiri og Lúðvík. Valgeirs verður minnst um margt en þó helst að hann var fyrsti sjúklingurinn sem var skorinn í opinni hjartaaðgerð á Landspítalanum. Þá var hann 62 ára gamall. Eins og hann fékk nýtt líf með Önnu þá öðlaðist hann enn eitt líf eftir vel heppn- aða aðgerð. Eftir aðgerðina var hann kallaður Valgeir I. Þau systkin frá Hátúni voru sextán sem upp komust, systkin, hálfsystkin og hálfsystir þeirra. Kært var með og kátt er þau hitt- ust. Valgeir hét eftir hálfbróður sínum og Gunnlaugi félaga hans sem fórust í róðri frá Helgustöð- um í Reyðarfirði, eftir að slys hafði orðið í námunni. Þeir bræð- ur frá Hátúni höfðu yndi af spil- um, bridge og l’hombre. Þeir voru leiknir en Valgeir þótti áhættu- djarfur í 10 Coupe í l’hombre. Þótti öðrum bræðrum nóg um. Einnig hafði Valgeir ánægju af veiðum í ám og vötnum. Að leiðarlokum er ekki annað en að vera þakklátur þeim er næstir stóðu Valgeiri síðustu ár, Önnu, börnunum og fjölskyldum þeirra. Síðast en ekki síst starfs- fólki Skógarbæjar sem annaðist hann af alúð og hlýju. Verði Val- geir guði falinn. Megi minningin um Valgeir heiðrast í hug þínum. Vilhjálmur Bjarnason. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 ✝ Svavar Bjarna-son fæddist í Reykjavík hinn 26. júlí 1943. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 20. september 2012. Foreldrar hans: Ásta Jónasdóttir fædd á Sauð- árkróki 9. nóv- ember 1911, d. 29. apríl 2009, og Bjarni Pálsson, fæddur á Þór- oddsstöðum í Ólafsfirði 27. júlí 1906, d. 17. febrúar 1967. Svav- ar var yngstur þriggja systk- ina. Systkini hans: Svanhildur Bjarnadóttir, f. 8. febrúar 1937, d. 5. janúar 2002, lét hún eftir sig fimm syni, og Jónas Bjarna- son, f. 23. júní 1938, eiginkona hans er Kristín G. Hjart- ardóttir, f. 30. júlí 1943, eiga þau einn son. Árið 1967 kvæntist Svavar Brynju Bærings Halldórs- dóttur, f. 14. október 1944, for- eldrar hennar: Árný Anna Jó- hanna Bæringsdóttir, f. í 1995, Haukur Bæring, f. 15. desember 1997, Árný Bærings, f. 12. júní 2000 og Sóley Bær- ings, f. 17. janúar 2008. 3) Árný Anna ljósmóðir, f. 15. sept- ember 1969, sambýlismaður hennar er Snæbjörn Freyr Val- bergsson, f. 25. maí 1973, börn: Unnar Bæring, f. 21. september 1988, faðir hans er Sigurður Þ. Unnsteinsson, f. 23. júlí 1965. Ólafur, f. 13. desember 1999, faðir hans er Hjalti Pálmason, f. 28. janúar 1969. Magnús Bær- ing, f. 2. júní 2009, Áshildur Bærings, f. 10. mars 2011. 4) Helgi Páll kerfisfræðingur, f. 16. mars 1974. Svavar bjó alla ævi í Reykja- vík. Hann var stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1963 og útskrifaðist sem rafmagnstæknifræðingur frá Oslo tekniske skole í Noregi ár- ið 1968. Megnið af starfsævi sinni vann hann hjá Pósti og síma en eftir að hann fór á eft- irlaun tók hann að sér ýmis við- haldsverkefni fyrir einkafyr- irtæki. Útför Svavars fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 28. september 2012, og hefst at- höfnin kl. 15. Tungu í Örlygs- höfn 21. maí 1921, d. 15. apríl 1992, og Halldór Guð- finnur Árnason fæddur á Hesteyri í Jökulfjörðum 14. júlí 1916, d. 29. jan- úar 1950. Svavar og Brynja eign- uðust fjögur börn, þau eru: 1) Halldór Guðfinnur verk- fræðingur, f. 23. desember 1966, eiginkona hans er Ta- tiana K. Dimitrova, f. 12. júlí 1969, börn: Brynja Björg, f. 28. júní 1990, Ingibjörg Ásta, f. 16. september 1994, móðir þeirra er Hildur Svavarsdóttir, f. 19. apríl 1965. Thereza Petkova, f. 7. október 1990, Samuil Petkov, f. 1. ágúst 1995, faðir þeirra er Borislav Petkov. Simeon Bær- ing, f. 8. september 2007. 2) Ásta sjúkraliði, f. 5. október 1968, eiginmaður hennar er Þorsteinn Hauksson, f. 16. október 1965, börn þeirra: Svavar Bæring, f. 12. nóvember Ástkær pabbi okkar er látinn. Stuttur aðdragandi var að andlát- inu og áfallið mikið. Með örfáum orðum viljum við minnast elsku pabba sem okkur þótti svo óend- anlega vænt um. Í gegnum æsku okkar og uppvaxtarár var hann ávallt til staðar fyrir okkur, studdi okkur með öllum ráðum og var okkur dýrmæt fyrirmynd. Pabbi var mjög verklaginn og æskuheimili okkar á Vesturbergi 7 byggði hann frá grunni og gerði allt sjálfur sem gera þurfti við á heimilinu. Ber allt heimili pabba og mömmu góðu handbragði hans vitni. Alltaf var gott að geta hringt í pabba og fengið ráðlegg- ingar um verklegar framkvæmd- ir og oftar en ekki var hann innan skamms mættur á svæðið, búinn að kaupa það sem til þurfti og hafði hafist handa. Pabbi hafði með eindæmum gott jafnaðargeð og munum við vart eftir að hafa séð hann reiðan. Ef við vorum með læti og hávaða á okkar yngri árum þá sussaði hann ekki á okk- ur, heldur hækkaði bara í útvarp- inu. Hann var mjög fréttaþyrstur og vildi helst heyra fréttir á öllum miðlum. Oft var það svo að hann fylgdist með fréttum í bæði sjón- varpi og útvarpi á meðan hann las blöðin. Einnig var hann áhuga- samur um stjórnmál og hafði þar sterkar skoðanir. Þegar við vorum lítil vann pabbi mjög mikið og gjarnan úti á landi. Eftir að hann hætti því og fór að vera meira heima var eins og maður kynntist pabba á nýjan hátt. Hann elskaði barnabörnin sín heitt og naut sín í afahlutverk- inu. Væntumþykja hans var líka endurgoldin. Pabbi var mann- blendinn og hafði einstaklega gaman af því þegar fjölskyldan öll kom saman og skein stoltið úr augum hans þegar hann horfði yfir hópinn sinn. Eftir að við flutt- um að heiman var heimili pabba og mömmu sem fyrr griðastaður okkar allra. Ávallt var gott að koma til þeirra og spjalla saman og þar áttum við alltaf vísan stuðning. Andrúmsloftið á heim- ilinu var notalegt og alltaf tóku pabbi og mamma jafn hlýlega á móti okkur. Þegar við fórum það- an stóðu þau ávallt í dyragættinni og veifuðu í kveðjuskyni. Pabbi var með undirliggjandi sjúkdóm sem hafði greinst fyrir um tveimur áratugum. Þrátt fyr- ir það hafði hann að mestu leyti verið heilsuhraustur þann tíma. Í vor lét pabbi gamlan draum ræt- ast og tók vélhjólapróf. Hann átti gott sumar og naut þess að hjóla til fjölskyldumeðlima og kíkja inn í spjall og kaffisopa. Enginn átti því von á að svo stutt væri eftir af hans ævi. Í sorg okkar erum við þó þakklát fyrir það að pabbi þurfti hvorki að þjást né verða lasburða. Að verða upp á aðra kominn hefði reynst honum þungbært. Pabbi var ekki orðinn gamall maður og langt frá því saddur lífdaga. Hann hafði mörg járn í eldinum og var sífellt að fást við eitthvað. Áfallið fyrir fjöl- skylduna við að missa hann svo óvænt er því mikið. Mamma okk- ar horfir á eftir lífsförunaut sín- um og biðjum við Guð að gefa henni styrk til að takast á við það. Með djúpri sorg kveðjum við pabba okkar og munum ávallt minnast hans með mikilli ást og virðingu. Þín börn, Halldór Guðfinnur, Ásta, Árný Anna og Helgi Páll. Frá því ég kynntist tengda- pabba, Svavari, hefur hann ávallt verið hlýr og vingjarnlegur. Hann og tengdamamma tóku mér strax sem einum af fjölskyld- unni og komu fram við börnin mín, Terry og Samma, þá 10 og 5 ára, eins og þau væru þeirra eigin barnabörn. Í gegnum árin kynnt- ist ég tengdapabba betur og bet- ur. Hann var alltaf skapgóður, lífsglaður, jákvæður og hugul- samur og ég bar mikla virðingu fyrir honum. Hann var mjög hjálpsamur við alla í fjölskyldunni. Hann kom oft heim til okkar og tók þátt í mörg- um verkefnum: skipti um rúður og hurðir í gamla húsinu okkar ásamt Halldóri; festi gervihnatta- diska uppi á þakinu, hjálpaði okk- ur með að hirða lóðina; lánaði okkur oft kerru og ýmis tæki. Tengdapabbi og tengdamamma hafa hjálpað okkur mikið á allan hátt, hafa alltaf verið til staðar og gefið okkur góð ráð. Alltaf þegar einhvern vantaði hjálp og lét vita af sér var tengdapabbi kominn á staðinn og tilbúinn til verka. Ég man aldrei eftir því að hann hafi sagt nei við nokkurn mann. Hann var áhugasamur um margt og var oft að dunda sér við lestur, fylgjast með fréttunum og pólitík, gera við tæki og græjur. Hann vildi alltaf læra eitthvað nýtt, laga hluti og hjálpa fólki. Hann elskaði Simma, yngsta barn okkar Halldórs, af öllu hjarta. Hann og tengdamamma hafa passað Simma oft fyrir okk- ur til styttri og lengri tíma þegar við höfum þurft að skreppa út eða fara til útlanda. Simmi hlakkaði alltaf til að fara heim til afa og ömmu, knúsa þau fast og leika við þau. Afi var uppáhalds maðurinn í lífi hans. Svavar var ástríkur og gefandi gagnvart öllum sínum barnabörnum. Tengdapabbi elskaði að spjalla við mig, spyrja mig um það hvernig gengi hjá okkur, hvað væri að frétta og svo segja mér sögur af gömlum og liðnum við- burðum, sem aðrir í fjölskyldunni þekktu en ekki ég. Ég hafði mjög gaman af að hlusta á þessar sög- ur. Þannig endurlifði hann sínar minningar, sagði frá þeim á líf- legan og skemmtilegan hátt og ég mun varðveita þessar spjall- stundir okkar í hjarta mínu um ókomna tíð. Tengdapabbi var traustur, áreiðanlegur, heiðarlegur, já- kvæður, sanngjarn, hugulsamur, elskulegur, hógvær, rausnarleg- ur og elskandi fjölskyldumaður sem allir í fjölskyldunni elskuðu. Hann og tengdamamma saman sem ein eining voru kjarni fjöl- skyldunnar. Í kringum hann söfnuðumst við í öllum fjölskyldu- viðburðum og hátíðum. Ég og börnin mín höfum alltaf upplifað gleði og hamingju á þessum fjöl- skyldusamkomum. Öll fjölskyldan er núna í sorg vegna fráfalls Svavars. Hann var eini pabbinn sem ég átti. Ég sagði aldrei við hann beint hversu vænt mér þætti um hann, en ég verð að vona að hann hafi vitað það allan tímann. Ég er þakklát fyrir öll ár- in sem ég þekkti hann. Söknuður- inn hellist yfir mig eins og ískald- ur, öflugur, miskunnarlaus íslenskur foss. Góður maður er farinn frá okkur, en ástin varir að eilífu. Tengdapabbi Svavar var, er og verður fyrirmynd okkar allra. Tatiana Dimitrova. Ég er gífurlega þakklát fyrir að hafa kynnst afa mínum, bæði sem afa og sem manneskju. Ég bjó við þann lúxus að vera nógu gömul til að geta farið í heimsókn til afa og ömmu til að spjalla við þau um daginn og veginn, þrasa við afa um pólitík eða rifja upp hvernig þau kynntust. Ég held reyndar að það sé mjög mikilvægt, ef maður er svo heppinn að alast upp með afa og ömmu á lífi, að kynnast þeim. Tala við þau um þeirra skoðanir, væntingar og minningar. Áður en það er of seint. Afi var alltaf hinn hjálplegasti og sagði aldrei nei. Ég gat alltaf leitað til hans með öll mín bíla- vandræði. Hann bilanagreindi gömlu Corolluna mína þegar hún fór ekki í gang, lagaði læsinguna, skipti um bremsur og lagaði hvað það sem var að honum. Hann spurði reglulega hvernig gengi með bílinn og ef það var eitthvað að var hann fljótur að renna sér undir hann og laga það sem var að. Mér er sérstaklega minnis- stætt atvik, sem mér fannst lýsa hjálpsemi og hugulsemi afa vel. Einu sinni sem oftar heyrði ég einhver furðuleg hljóð í gömlu Corollunni minni. Hvað gerir maður þá? Ef ég hringdi ekki í pabba, sem hringdi svo í afa í svona aðstæðum, þá hringdi ég beint í afa. Sem ég gerði. Ég lýsti hljóðunum fyrir afa og spurði hvað þetta gæti verið. Hann nefndi þrjár mögulegar skýringar, sem allar voru slæmar og ein þeirra að vélin væri að gefa sig. Afi spurði svo hvort ég vildi ekki bara koma með bílinn til hans svo hann gæti litið á hann. Ég þáði það og keyrði svo upp í Breiðholt með hjartað í buxunum allan tímann – hrædd um að vélin myndi springa á leiðinni. Þegar ég kom til afa og ömmu var tekið vel á móti mér eins og alltaf, amma tilbúin með kaffi og afi kominn í vinnugallann og kominn undir bílinn. Pakkning hafði losnað undir bílnum og var að lemjast utan í grindina undir bílnum. Afi var svo ekki lengi að losa pakkninguna, fara upp í Vöku, kaupa nýja og skipta um hana. Þegar ég ætlaði svo að keyra heim eftir þessa ljúfu heimsókn tók ég eftir því að afi hafði fyllt á tankinn. Svona var afi. Hann var hjálp- legur og liðlegur út í hið óend- anlega og passaði vel upp á fjöl- skylduna sína. Hann passaði upp á að allt væri í lagi. Afi var fjölskyldumaður í öll- um skilningi orðsins. Hann átti stóra fjölskyldu, marga afkom- endur sem allir hafa verið tíðir gestir í Vesturbergi, sá vel um hana og öllum þótti vænt um pabba, afa eða tengdapabba. Hann var í fullri vinnu við að vera afi og hafði gaman af því. Ég er viss um að ég get talað fyrir öll barnabörnin þegar ég segi að við eigum bara góðar og fallegar minningar um afa. Við söknum hans öll. Eins erfitt og það er að horfast í augu við að afi sé farinn held ég að hann hefði getað verið mjög stoltur af sínu ævistarfi og arf- leifð. Fáir geta skilið við heiminn jafnsáttir við sitt og afi. Hversu margir geta sagst hafa elskað sömu konuna í hálfa öld, átt með henni fjögur börn og 13 barna- börn sem öll elskuðu hann og nutu þess að vera með honum? Ég vildi að minnsta kosti geta skilið við heiminn eins og hann gerði. Brynja Björg Halldórsdóttir. Æ, það er sárt elsku bróðir að missa þig, 69 ára gamlan og á af- mælisdegi afa okkar, Jónasar læknis. Nú er ég einn eftir af gömlu fjölskyldunni en fóstur- systir, Svanfríður, býr í BNA. Þótt við eigum fjölskyldur, sem við elskum, er samt sem leggi að mér óræðan kulda. Ég er líkast til einmana. Þú elsku „litli bróðir“ ert farinn. Þú naust góðrar konu, Brynju, og barnahamingju, fjög- urra gjörvulegra barna og ellefu barnabarna auk stjúpbarna. Svavar vandi komur sínar til mín og var það gott okkur báðum. Við ræddum þjóðfélagsmál og hvaðeina. Áður fyrr gátum við nagast, en það risti grunnt og skammt. Hann var róttækur en ég ekki, en það breyttist. Hann bakkaði ekkert fyrir „stóra bróð- ur“, en við vildum ekki þjarka, bræðurnir. Ég meðtók hans við- horf sum og sér í lagi eftir hrun. Eftir það hefur hnífurinn ekki gengið á milli okkar. Vanalega kom hann hlaðinn hugsunum, sem hann vildi viðra við mig. Hann sagði mér margt. Fyrir löngu minntist hann á veikindi sín, sem voru í leyni, en hann fór til læknis reglulega. En svo sagð- ist hann ekki verða langlífur og sá ég þá alvöruna. Oft ræddi hann um íbúðarhúsið, sem þau hjónin áttu. Hann vildi að það yrði skuldlaust þegar hann færi. Svo vel hugsaði hann til Brynju. Svavar var ábyrgur svo af bar. Hann var í fasi kvikur, stund- um aðeins kýtinn, en ungæðisleg- ur og unglegur. Meðalmaður á hæð og ljóshærður. Til vinnu var hann óhyskinn og seigur og kom sér vel alls staðar. Eyðslusemi átti hann ekki til. Síminn var hans mál og þar byrjaði hann að starfa og sótti svo til Osló í tæknifræði. Brynju tók hann með og Halldór sem kornabarn. Þegar hann var 16 ára ókum við norður á Vatnsnes til að heim- sækja sveitabæi okkar. Hann var á Skarði hjá Eggerti bónda. Þeg- ar við komum þar var hús hans nær hrunið og gamli maðurinn bjó þar einn. Svo fagnaði hann Svavari, að honum vöknaði um augu og erfiður var viðskilnaður. Sá ég gjörla hversu vel hann hafði komið sér. Hann lýsti oft þeim tíma, sem mótaði hann. Heyskapur, hestar, kýr og sauðfé. Þegar hann var sjö ára og á Skarði og ég á Bergstöðum hóf- um við að nota bréfdúfu, sem flaug á milli okkar fram og til baka með bréfskeyti, sem bundin voru um fætur fuglsins. Var það einsdæmi og falið djúpt í hug- skoti okkar. Sem börn áttum við í óttalegu flandri. Faðir okkar yfirgaf okk- ur í stríðslok og móðir okkar barðist ein með okkur. Við áttum heima á mörgum stöðum, en á Hringbraut 134 fæddist Svavar. Við vorum sæmilega sett um efni, en flakk var erfitt varðandi vini, sem sífellt þurfti að yfirgefa. – Í þá tíð vorum við tveir mikið sam- an. Aldrei stofnaði hann til vand- ræða og átti sína vini og einn þeirra náinn, en lést sem ungling- ur. Nú horfir fjölskyldan á eftir honum með söknuði. Elsku vinir, megið þið lifa í gleði, sem mun birtast. Lífið heldur áfram þótt eitt sinn skuli hver deyja. Börn hans ásamt ellefu barnabörnum eru nú hluti íslenskrar æsku, sem horfir til framtíðar og mun njóta þess lands, sem Svavar átti þátt í að skapa. Jónas Bjarnason. Það er erfitt að kveðja elsku frændann sinn. Svavar var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér og mér þótti ótrúlega vænt um þennan góða mann. Hann var alltaf eins og klettur í lífi mínu, ávallt vel- viljaður, jákvæður og hjálpsam- ur. Ég hef leitað til hans í rúm 40 ár með ótrúlegustu verkefni og vandamál, og hann hefur leyst þau öll á einstaklega vandaðan hátt. Við vorum alltaf með svipaðan húmor, gátum hlegið saman að vitleysunni hvor í öðrum og sáum oft lífið í sama ljósi. Hann var mikill gleðigjafi og ég hlakkaði alltaf til að hitta hann í afmælum og uppákomum í fjölskyldunni. Hann var einstaklega fjölskyldu- rækinn og elskaði sína nánustu augljóslega mikið. Síðustu mán- uðina rúntaði hann um göturnar á vespunni sinni eins og unglingur og kíkti reglulega á mig í kaffi við þau tækifæri. Ég á eftir að sakna fundanna okkar mikið og þess að fá að faðma hann – ég hefði viljað ná einu knúsi í lokin. Ég samhryggist Brynju, börn- unum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum af öllu hjarta. Sigurður Páll. Svavar Bjarnason Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.