Morgunblaðið - 28.09.2012, Side 35

Morgunblaðið - 28.09.2012, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 ✝ Karl Stef-ánsson fæddist 21. desember 1930 í Stóra-Dunhaga í Hörgárdal. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 19. sept- ember 2012. Foreldrar Karls voru Stefán Árna- son, f. 6. september 1900, d. 8. apríl 1959, og Sigrún Árnadóttir, f. 23. júlí 1902, d. 15. nóvember 1984. Karl átti tvo bræður, Arnstein og Lárus, sem lést 1955. Karl kvæntist hinn 4. júlí 1964 Þóru Hermannsdóttur, f. 15. maí 1937, d. 30. mars 2011. Foreldrar Þóru voru Hermann Val- geirsson, f. 16. október 1912, d. 15. apríl 1990, og Þuríður Pét- Rósa, f. 18. september 1974. Son- ur hennar er Jón Snævar Bjarna- son, f. 28. september 2006. Karl ólst upp í Stóra-Dunhaga í Hörgárdal. Hann tók gagn- fræðapróf á Akureyri og síðan stúdentspróf frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1953. Karl útskrifaðist frá Háskóla Ís- lands með próf í stærðfræði, auk kennslu- og uppeldisfræði. Karl hóf störf við Gagnfræðaskóla Akureyrar haustið 1960. Karl var lengst af kennari í stærð- fræði við Gagnfræðaskólann og Iðnskólann á Akureyri, þar sem hann var yfirkennari síðustu ár skólans. Frá stofnun Verk- menntaskólans á Akureyri kenndi Karl stærðfræði við skól- ann eða þar til hann lét af störf- um á sextugasta og áttunda ald- ursári. Karl verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, 28. sept- ember 2012, og hefst athöfnin kl. 13.30. ursdóttir, f. 4. jan- úar 1912, d. 2. júní 1983. Karl og Þóra bjuggu lengst af í Þingvallastræti 24 á Akureyri. Börn Þóru og Karls eru: 1) Stefán Lárus Karlsson, f. 5. febr- úar 1965, kvæntur Elisabeth Jóhönnu Zitterbart og eru börn þeirra Karl, f. 18. apríl 1995, Astrid María, f. 7. maí 1997, Bergur Þór og Bene- dikt, f. 19. ágúst 1999. 2) Her- mann Þór, f. 15. apríl 1966, hann var kvæntur Sólveigu Ólafs- dóttur sem lést 13. febrúar 2007 og er dóttir þeirra Sigurlína Margrét, f. 1. febrúar 2000. 3) Snorri, f. 12. janúar 1968, kvænt- ur Ragnheiði Árnadóttur. 4) Pabbi minn var kletturinn í lífi mínu, alltaf boðinn og búinn til að hjálpa og veita ráðgjöf en á sama tíma svo lítillátur sjálfur og gerði ekki kröfu um eitt eða neitt. Þau mamma reyndu aldrei að hafa áhrif á ákvarðanir mínar heldur sýndu mér traust og stuðning við það sem ég hef tek- ið mér fyrir hendur í lífinu. Fyr- ir mig er það ómetanlegt. Hann var ótrúlega þolinmóð- ur við yngsta soninn sem fékk spiladellu sex ára og notaði hvert tækifæri til að fá hann til að spila. Aðallega spiluðum við kasínu, rommý og fleiri slík spil, og er ég viss um að þarna var lagður grunnur að stærðfræði- áhuganum, og átti ég það ekki langt að sækja. Pabbi hafði mikinn áhuga á stangveiði og var góður veiði- maður. Ég var ungur farinn að fylgja honum á bökkum Hörgár og síðar líka Skjálfandafljóts, og ég man líka að hann fór í veiði- ferðir austur í Vopnafjörð og kom klyfjaður heim. Fyrst lék ég mér á bökkunum meðan pabbi var að veiða en fljótlega fékk ég stöng í hendurnar. Fyr- ir neðan Stóra-Dunhaga veiddi ég mína fyrstu bleikju, á pínu- litla veiðistöng, og þurfti hjálp hans við að landa henni því stöngin sveigðist nánast í hring. Í náminu var gott að eiga pabba sem var kennari. Alltaf gat ég leitað til hans og fengið hjálp við nánast allar náms- greininar. Stærðfræði var auð- vitað sérsvið pabba en hann var líka mikil hjálparhella í tungu- málum og öðrum raungreinum. Pabbi hafði mikinn áhuga á bók- um og á heimilinu var stórt bókasafn. Ég var kornungur þegar hann byrjaði að lesa sög- ur og ævintýri fyrir okkur bræðurna. Í mestu uppáhaldi voru gömlu strákabækurnar hans, eins og Stikilsberja-Finn- ur, Tumi litli og Percival Keene. Pabbi fylgdist ætíð vel með öllu, lífi okkar barnanna og barnabarna. Núna síðustu tvö sumur töluðum við mikið um gamla tíma. Hann sagði mér frá afa og ömmu í Stóra-Dunhaga, æsku sinni, námi á Akureyri og Reykjavík og ýmsu öðru tengdu fjölskyldunni. Þetta var bæði skemmtilegt og fræðandi og fyr- ir mig dýrmætar stundir. Pabbi, nú hefur þú kvatt okk- ur í þessu lífi og er ég þér þakk- látur fyrir allar samverustund- irnar okkar og þann stuðning sem þú veittir mér alla tíð. Þinn sonur, Snorri. Elsku pabbi minn er fallinn frá. Mikil sorg og söknuður hvíl- ir í hjarta mínu en einnig þakk- læti fyrir að hafa átt svona ynd- islegan pabba. Pabbi var alltaf traustur, þolinmóður og skiln- ingsríkur en hann var líka ákveðinn og hafði aga á okkur systkinunum. Þegar ég var lítil var hann alltaf til í að spila við mig og sérstaklega á fimmtu- dagskvöldum þegar ekkert sjón- varp var. Hann var líka mjög duglegur að lesa fyrir mig á kvöldin og hann var búinn að lesa bækurnar um Jón Odd og Jón Bjarna svo oft fyrir mig að hann kunni þær utan að. Á heimili okkar var það yfirleitt mamma sem sá um matseldina en ef hún var ekki heima eldaði pabbi handa okkur og tókst það yfirleitt ágætlega nema hann gat aldrei gert góða kakósúpu og kartöflustöppu og þegar við systkinin rifjum upp gamla tíma munum við öll eftir því hvað þetta var bragðvont hjá honum en hann sagði að það væri bara bull og vitleysa í okkur. Hinn 28. september fyrir ná- kvæmlega sex árum eignaðist ég son minn Jón Snævar. Hann var yngsta barnabarn pabba og al- veg frá því að hann fæddist bundust þeir sterkum böndum. Pabbi var alltaf duglegur að passa fyrir mig og svo natinn og umhyggjusamur við Jón Snæv- ar. Ég man að á tímabili þegar Jón Snævar var um tíu mánaða var hann svo mikil mannafæla að enginn gat verið með hann nema ég eða pabbi og mamma. Hjá afa fékk Jón Snævar alltaf hunangcheerios og tvær kexkök- ur og síðan spjölluðu þeir um heima og geima og horfðu sam- an á Bangsímon og Bubbi bygg- ir. Pabbi hefur alla tíð tekið þátt í gleði minni og sorgum, haft óbilandi trú á mér og hvatt mig áfram, hlustað á mig og veitt mér ráðleggingar þegar ég þurfti á því að halda og alltaf verið til staðar fyrir mig. Við Jón Snævar eigum eftir að sakna hans svo óendanlega mik- ið og það eina sem við getum gert til að minnka söknuðinn er að hugsa um að nú er hann hjá mömmu og þau saman á ný. Einnig sagði Jón Snævar að afi væri ekkert dáinn því að við lifð- um að eilífu, fyrst hér á jörðinni og svo uppi í himninum, og því trúum við að afi og amma hafi það gott og vaki yfir okkur uppi í himninum. Minning þín er ljós í lífi okk- ar. Rósa. „Það besta sem manneskja getur skilið eftir á jörðinni er bros á andlitum þeirra sem minnast hennar.“ Elsku afi. Við söknum þín voða mikið og okkur finnst leið- inlegt að þú hafir þurft að kveðja okkur. Það er eins og svo mikið hafi farið til spillis, allar sögurnar og fróðleikur sem þú áttir eftir að segja okkur frá. Það var gott að þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa okkur. Þú æfðir skák með Bensa og gerðir hann mjög góðan, hjálpaðir okk- ur við ómögulega stærðfræði og varst alveg frábær fyrirmynd. Við verðum að segja að heima hjá ykkur ömmu var eins og okkar annað heimili. Við vorum alltaf velkomin og gátum gist þegar við þurftum og vildum. Það er skemmtilegt að hitta fólk sem þekkti þig frá því að þú varst kennari. Margir hverjir kunna stórkostlegar sögur sem sýna hversu einstakur maður þú varst og munt alltaf vera í hjört- um þeirra sem þekktu þig. Það hefði verið gaman að hafa þig hér lengur en við megum ekki vera eigingjörn, amma þarf líka á þér að halda og nú ertu kom- inn til hennar. Nú getið þið fylgst með okkur í fjarlægð og dáðst að brosunum sem þið skilduð eftir á andlitum okkar. Sofðu vært, elsku afi okkar. Astrid María, Karl, Bene- dikt og Bergur Þór. Þegar fréttir berast af að ná- inn ættingi eða vinur sé að kveðja fara gjarnan miklar til- finningar af stað og maður lítur yfir farinn veg. Þannig var það hjá mér þegar ég fékk þær upp- lýsingar að Kalli föðurbróðir minn ætti stutt eftir. Ég varð döpur en samt glöð fyrir hans hönd en fyrst og fremst fann ég fyrir þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa átt Kalla sem frænda. Kalli var ekki sá sem var mest áber- andi eða hafði sig í frammi en hann var hins vegar sá sem var til staðar og hafði hag fólksins síns í huga. Það var alltaf til- hlökkun að fara í heimsókn í Þingvallastrætið og ennþá finnst mér notalegt að keyra þar fram hjá. Eins var skemmtilegt þegar Kalli og fjölskylda komu á Bron- kónum í sveitina og er óhætt að segja að oft hafi verið glatt á hjalla þegar guttarnir þrír og litla frænkan mættu með for- eldrum sínum. Þá var Kalli fljót- ur að láta sig hverfa úr húsinu þar sem mamma og Þóra voru, hann fór annaðhvort með pabba í fjárhúsin eða labbaði upp á tún því sennilegt er að honum hafi þótt gott að koma á æskuslóð- irnar. Þegar ég fór í framhalds- skóla kenndi Kalli mér tvo stærðfræðiáfanga. Þar kynntist ég honum á annan hátt en sem föðurbróður. Hann fór fram á að við lærðum hjá honum, var ekki að hanga yfir hlutunum og þá skipti engu máli hvort frænka hans átti í hlut eða einhver ann- ar. Á seinni áfanganum hafði ég lítinn áhuga enda var stúdents- prófið rétt handan við hornið en þegar frændi rétti mér skyndi- próf með einkunninni 4,2 veit ég ekki hvoru okkar þótti það verra og ákvað ég að gera hvorki mér né honum þessi ósköp aftur og fara að læra. Það kunni hann að meta. Alla tíð hefur verið mikill kærleikur á milli pabba og Kalla og hefur verið fallegt að fylgjast með þeim bræðrum fullorðnast en eiga samt svona náið bræðra- samband, það er ekki öllum gef- ið. Óhætt er að segja að lík- aminn hafi gefið sig langt á undan höfðinu og þegar Kalli slasaði sig núna seinni part sum- ars fór hratt að halla undan fæti og eins og ég sagði áður varð ég döpur en samt glöð fyrir hans hönd af því að ég held að til- hugsunin um að vera fastur í hjólastól hafi verið honum erfið. Ég votta frændsystkinum mín- um og fjölskyldum þeirra inni- lega samúð, missir ykkar er mikill. Ég þakka kærum frænda fyrir ljúfa samfylgd. Heiðrún Arnsteinsdóttir. Einn af mínum bestu vinum, og uppeldisbróðir, Karl Stefáns- son frá Stóra-Dunhaga hefur kvatt hinn skynjanlega heim. Hinn 19. september síðastlið- inn tók hann þá ákvörðun að bregða sér milli bæja á vit konu sinnar Þóru Hermannsdóttur frá Lönguhlíð. Milli þeirra hjóna var gott kærleiksband og saman komu þau sér upp mannvæn- legum barnahópi. Börnin eru samnefnari þessara ágætu hjóna. Við Kalli, eins og ég hef alltaf kallað hann, hittumst fyrst árið sem Hekla gaus 1947. Þá gerðist ég viðvaningur og kúasmali í Stóra-Dunhaga í Hörgárdal, hjá þeim indælishjónum, Sigrúnu Árnadóttur og Stefáni Árnasyni. Þau tóku mér opnum örmum, vandalausum og voru mér sem aðrir foreldrar frá því. Þau áttu þrjá drengi, tvo fullorðna og svo Kalla, sem þá var 16 ára. Addi var elstur og tók við búi af föður og móður bræðranna og er sá eini eftirlifandi. Lalli dó mjög ungur frá konu og fjórum börn- um. Eftir sumardvölina í Stóra- Dunhaga, gossumarið, tókum við inntökupróf í MA, ég 12 ára og Kalli 16 ára og lukum stúd- entsprófi saman í júní 1953. Næstu tveimur vetrum eyddum við saman á stúdentagörðunum þegar við námum við HÍ. Kalli fór svo norður aftur og fór að kenna, sem varð hans ævistarf og lauk hann því á til- skildum tíma. Eftir að ég kom heim frá sér- námi, tókum við Kalli aftur upp samskipti, sem héldust fram að því að Kalli missti konu sína. Þá var hann sjálfur orðinn sjúklingur. Það gerðist með þeim hætti að í „skalla“ boltatíma, sem við stunduðum saman í mörg ár, sparkaði Kalli of hátt með vinstri fætinum, náði ekki til boltans, rann á gólfinu og datt á bakið. Kalli hlaut við þetta sam- fallsbrot á hryggjarlið og náði aldrei bata eftir það. Hann var eitilharður í skallaboltatímunum og sendi oft eitraða bolta með vinstri fætinum. Kalli var eins og segir í Carminu, þéttur á velli og þétt- ur í lund. Hann var klókur á nám. Kalli hefur ávallt verið óvenjufriðsamur maður, en í MA komst hann ekki hjá því að taka þátt í bekkjahasar og einvígjum, til að verja hendur sínar. Hin mikla vígfimi Kalla og hin ákafa tjáning í andliti og limaburði, ollu því, að einvígi hans voru eft- irlætisskemmtanir í stærðfræði- deildinni. Ég man ekki eftir að Kalli hafi skipt skapi undir öðrum kringumstæðum. Hið glaðlynda bros Kalla smitaði út frá sér. Hann var hæglætismaður, ljúfur í umgengni og vinur vina sinna. Ég á bágt með að trúa því að hann hafi siglt í austur, en leið- inn eftir konumissinn og getu- leysi hryggjarins að halda hon- um uppréttum olli honum sárindum. Hann langaði ekki til að halda áfram hérna megin. Hann hlakkaði til að hitta Þóru sína aftur. Ef einhver á skilið orðtakið drengur góður, þá á Kalli það. Það var honum með- fætt, enda foreldrar hans óvenjulegar sómamanneskjur. Farðu í friði, kæri vinur. Vin- átta þín var mér mikils virði. Megi sá sem öllu ræður leiða frið yfir börnin þín á þessari sorgarstundu. Eiríkur Páll Sveinsson. Karl Stefánsson ✝ Inga Sig-urjónsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 15. júlí 1929. Móðir hennar var Ingibjörg Hjálmarsdóttir og faðir hennar var Sigurjón Sig- urbjörnsson. Inga á eina systur, Selmu Sigurjónsdóttur, f. 2. ágúst 1930. Hennar maður er Friðþjófur Björnsson. Inga gift- ist Guðmundi Magnúsi Krist- inssyni 5. september 1953. Hann lést 24. maí 1998. Börn þeirra eru Garðar Guðmunds- son, f. 16. desember 1954. Kona hans er Guðrún Helgadóttir, f. 8. ágúst 1955. Börn þeirra eru Fífa, f. 3. ágúst 1976, Hugi, f. 4. janúar 1982 og Arnar Helgi, f. 21. janúar 1992. Dóttir Ingu er Sigrún Kristín Guðmunds- dóttir, f. 21. júlí 1957. Sambýlis- maður hennar er Torfi Ólafs- son, f. 26. apríl 1951. Börn Sigrúnar eru Guðmundur Brynjar, f. 22. desember 1974 dætur hans eru Embla Líf, f. 11. nóvember 2000, og Victoría Ósk, f. 21. ágúst 2007. Magnús Már, f. 30. maí 1981, Tinna Björg, f. 24. júlí 1991 og Inga Hrönn, f. 21. september 1995. Dóttir hennar er Ísabella Mist, f. 1. ágúst 2012. Inga bjó í Vest- mannaeyjum til 19 ára aldurs, er hún flutti til Reykjavík- ur. Hún hóf þar störf hjá Barna- vinafélaginu Sum- argjöf. Þar starfaði hún þar til hún eignaðist sitt fyrsta barn. Hún var heimavinnandi þar til börnin komust á legg. Þá fór hún að starfa hjá skrifstofu Mjólkursamsölunnar, sem hún vann hjá í nokkur ár. Eig- inmaður Ingu var alla tíð sjó- maður og fór hann að sigla á stærstu olíuskipum heims. Inga sigldi með honum um öll heims- ins höf um árabil. Á þeim árum settust þau að í Kalundborg í Danmörku og bjuggu þar í all- mörg ár. Þegar heim kom fór Inga að vinna hjá Trygg- ingastofnun ríkisins og starfaði þar uns starfsævinni lauk. Inga dvaldi á elli og hjúkrunarheil- inu Grund síðustu átta mán- uðina, eftir að heilsu hennar fór að hraka. Inga verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 28. sept- ember 2012. Hefst athöfnin kl. 11. Elsku amma. Þú hefur alltaf verið eins og annað foreldri fyr- ir mig. Á hverjum einasta degi þegar ég var í grunnskóla komst þú og sóttir mig og við löbbuðum heim saman og borð- uðum og lærðum saman. Hverja einustu helgi gerðum við eitthvað skemmtilegt sam- an. Þú ert án efa ein besta manneskja sem ég hef kynnst, alltaf svo jákvæð og með lausn- ir á hlutunum. Þú hefur alltaf veitt mér skjól þegar ég hef þurft á því að halda og án þín væri ég ekki sú manneskja sem ég er í dag. Það er sárt að kveðja en ynd- islegt að vita að núna ertu með afa sem þú hefur saknað svo sárt seinustu ár. Ég elska þig alltaf. Þín Tinna. Elsku amma mín, alla mína tíð hefur þú verið mér innan handar og hjálpað mér í gegn- um svo mikið. Þú hefur verið alveg ótrúlega stór hluti í lífi mínu og ég hef alltaf getað leit- að til þín og treyst þér fyrir öllu. Þú hefur alltaf trúað á mig og við eigum svo margar minn- ingar saman. Mig langar til að rifja upp nokkrar af mínum uppáhalds- minningum eins og það að á hverjum degi sóttirðu mig í skólann og við lásum saman og allar skemmtilegu minningarn- ar okkar úr bústaðnum þegar við sátum úti að borða kökur og fórum í bakaríið að kaupa okk- ur eplaköku. Það er skrýtið að þú skulir vera farin frá okkur, en ég veit að þú ert á betri stað núna og með afa sem þú ert búin að sakna svo lengi og ég veit þú fylgist með okkur og verður áfram hjá okkur alla daga. Þú varst einstaklega góð manneskja sem öllum þótti vænt um, þú varst alltaf bros- andi og jákvæð, þú studdir mig alltaf í öllu sem ég tók mér fyr- ir hendur og hafðir alltaf trú á mér. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og ég er svo þakklát fyrir það. Elsku amma mín, takk fyrir allar góðu stundirnar okkar saman og allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þú varst ynd- isleg manneskja. Ég elska þig elsku amma mín. Ég sakna þín. Þín Inga. Nú er komið haust eftir sól- ríkt sumar. Haustlitirnir eru í ótal litbrigðum og gleðja okkur mannanna börn. Inga vinkona mín er búin að kveðja. Mig langar að þakka henni sam- fylgdina síðan við vorum stelpur í Vestmannaeyjum. Inga var greind kona, trygglynd, alvarleg í bragði en stutt í brosið sem náði til augnanna. Það var reisn yfir henni. Hún fylgdist vel með mönnum og málefnum og lagði oft gott til málanna. Alla afmæl- isdaga mundi hún hjá vinum og vandamönnum og sparaði ekki hringingarnar. Æskuárin í Eyj- um liðu í félagsskap góðra vina og skólafélaga. Við vorum fjór- tán ára þegar við stofnuðum saumaklúbbinn sem lifir enn góðu lífi hér í Reykjavík. Við er- um enn góðar vinkonur eftir öll þessi ár, Ásta, Dúddí, Gunna, Lea, Gústa og ég, og hugsum til hennar með söknuði. Ung fór Inga til Kaupmannahafnar og vann þar um hríð, það var góð- ur tími. Seinna þegar hún var gift kona bjuggu þau Guðmund- ur í Danmörku í nokkur ár. Guðmundur var skipstjóri og Inga sigldi oft með honum til framandi landa. Þau eignuðust tvö börn, Garðar og Sigrúnu, og eftir það átti fjölskyldan hug hennar allan. Fyrir nokkrum árum veiktist Inga. Það kom í ljós að um heilabilun væri að ræða. Það er erfiður sjúkdómur. Það var eins og Inga færi í ferðalag þangað sem við komumst ekki, stundum staldraði hún við og svo hvarf hún lengra og lengra í burtu. Það var til fyrirmyndar hvað Sigrún reyndist mömmu sinni vel í veikindum hennar. Ég var búin að kveðja Ingu fyrir löngu. Guðmund missti Inga fyrir fimmtán árum, hún saknaði hans mikið. Síðast þegar ég heimsótti Ingu talaði hún mikið um hann, hún skildi ekki af hverju hann hefði ekki samband við sig þótt hann væri úti á sjó. Ég vil trúa því að nú séu þau búin að hittast á ný. Já, Inga er komin á leiðarenda. Blessuð sé minning góðrar konu. Ragnheiður. Inga Sigurjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.