Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 36
36 MINNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Snyrting Babaria-snyrtivörur loksins á Íslandi. Babaria er fjölbreytt vörulína sem er unnin úr náttúrulegum hráefnum og hentar þörfum allrar fjölskyldunnar fyrir alla daglega umhirðu húðar. Vörurnar fást í netversluninni www.babaria.is Sumarhús Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir - réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300 til 50.000 lítra. Lindarbrunnar. Borgarplast.is Mosfellsbæ. S. 561 2211. Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Til sölu Viltu læra eitthvað nýtt? Námskeið í japönskum pennasaumi. Skráning í síma 848 5269. Pennasaums-myndir í miklu úrvali - póstsendum. Annora, sími 848 5269. Vélar & tæki PERKINS-LEORY-SOMER/STAM- FORD-RAFSTÖÐVAR - VARAAFL Útvegum á afar góðu verði rafstöðvar /varaaflstöðvar, af ýmsum tegundum, með eða án ATS-tengibúnaðar og einnig í hljóðeinangruðum kassa. Leitið upplýsinga. www.holt1.is Símar 435 6662 og 895 6662. Bílar VW Polo, árgerð 2004 Sjálfskiptur, ekinn 164 þús. Skoðaður 2013. Verð kr. 550 þús. Upplýsingar í s. 824 1200. BMW 550i 6/2006 með M Sport-pakka. Ek. aðeins 37 þús. km. Einn eigandi. 368 hö., fjölskyldubíll sem eyðir 15 L innanbæjar og það er sko hvers dropa virði. Nýr bíll með þessum búnaði kostar yfir 20 milljónir. Þú færð þennan á aðeins 5.975 þús. ef þú ert snöggur. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið 12-18 virka daga. Bílar óskast                              Bílaþjónusta Hjólbarðar Kebek-Nama-heilsársdekk 165 R 13 kr. 6.900 195/65 R 15 kr. 13.900 205/55 R 16 kr. 15.900 215/55 R 16 kr. 16.900 205/50 R 17 kr. 18.900 235/45 R 17 kr. 21.390 225/65 R 17 kr. 21.890 Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Byssur GÆSASKOT, 42 gr MAGNUM Frábær gæði, hóflegt verð. Byssu- smiðja Agnars, s. 891 8113. Dreifing: Sportvörugerðin, s. 660 8383. www.sportveidi.is ✝ Karl HelmutBrückner- Kortsson, f. 17. okt. 1915 í Crimmitsc- hau í Saxlandi. Hann lést 18. sept- ember sl. Faðir: Curt Brückner, dr. med- .vet., borg- ardýralæknir, f. 11. apríl 1874, d. 4. júní 1925. For.: Emil Brückner, prófessor, kennaraskólastjóri í Schnee- berg, f. 24. mars 1845, d. 8. ágúst 1928, og k.h. Anna Brück- ner, f. Bonitz, húsmóðir, f. 14. febrúar 1845, d. 6. apríl 1914. Móðir: Johanna Brückner, f. Helling, f. 18. apríl 1883, d. 8. nóv. 1960. For.: Albrecht Hell- ing, stórkaupmaður í Plauen, Saxlandi, f. 22. mars 1843, d. 20. júlí 1933, og k.h. Alma Helling, f.v. Watzdorf, húsmóðir, f. 21. ágúst 1840, d. 21. nóv. 1913. Námsferill: Tók stúdentspróf eða ígildi þess frá Gymnasium latínuskóla í Keilhau 1935. Lauk háskólaprófi frá Tierärzt- liche Hochschule í Hannover 16. mars 1940. Almennt lækn- ingaleyfi 1. okt. 1980 á Íslandi. Lauk doktorsprófi frá sama skóla 30. mars 1940. Leyfi fyrir dýralækna í opinberri þjónustu félags Suðurlands 1966. Gekk í frímúraregluna 1976. Formað- ur heilbrigðisnefndar Rang- árvallahrepps 1982. Ritstörf: Ýmsar greinar í íslensk og er- lend tímarit. Viðurkenningar: Heið- ursmerki 1940-1945. Heið- urskross 1. stigs Sam- bandslýðveldis Þýskalands 1971. Riddararkoss Hinnar ís- lensku fálkaorðu 1986. Gull- merki Dýralæknaháskólans í Hannover 1990. Maki I: Carmen Brückner, f. Thony, f. 31. maí 1914 í Nice, d. 4. maí 1994 í Reykjavík. Börn þeirra: a) Hans Brück- ner-Karlsson, f. 4. febr. 1946, verkfræðingur. b) Haraldur Brückner-Karlsson, f. 25. mars 1947, verkfræðingur. c) Helgi Brückner-Karlsson, f. 6. nóv. 1950, sölustjóri. d) Kristjana Brückner- Karlsdóttir, f. 24. nóv. 1951, hótelrekstur. Maki II: 24. nóv. 1997, Antje Brückner-Kortsson, f. Lorenz, f. 6. jan. 1944, sjúkraliði. For.: Alfred Lorenz, útgerðarmeist- ari Graal-Müritz, f. 27. sept. 1900, d. 3. mars 1959 og k.h. Ella Lorentz, f. Peters, hús- móðir, f. 30. jan. 1907, d. 17. maí 1988. Jarðarför Karls hefur farið fram. í Þýskalandi 1948. Nám í hitabelt- issjúkdómum í Uni- versität, Berlín 1941; í búfjársæð- ingu í Lübeck 1949; í nautgripa- sjúkdómum í Tier- ärztl. Hochschule í Hannover 1972; í loðdýrasjúkdómum frá háskólastofnun Celle-Hannover 1981. Starfsferill: Liðsforingi, vet., handlæknir á spítala fyrir hesta 1940. Yfirdýralæknir 18. loft- herdeildarinnar 1942. Borg- ardýralæknir í Flensborg 1945. Sjálfstætt starfandi dýralæknir í Hertogad., Láenborg í búfjár- sæðingum, aðgerðum gegn ófrjósemi, umsjón með kynbóta- starfsemi 1947. Stofnaði Rauða- krossdeildina til að liðsinna flóttamönnum. Ráðinn héraðs- dýralæknir í Rangárvallaum- dæmi 20. maí 1950. Skipaður ræðismaður Sambandslýðveld- isins Þýskalands 1954. Félags- og trúnaðarstörf: Formaður þýsk-íslenska vina- félagsins á Suðurlandi 1954. Í stjórn Félags ræðismanna er- lendra ríkja, Corps consulaire. Stofnaði Rótarýklúbb Rang- æinga 1965. Í stjórn Stúdenta- Dr. Karl Kortsson, fv. hér- aðsdýralæknir á Hellu, andað- ist nærfellt 97 ára, aðfaranótt hins 18. september 2012 á Dvalarheimilinu Lundi, eftir þriggja mánaða dvöl þar. Yfir honum var sérstakur glæsi- bragur alla tíð og hann hélt krafti og heilsu lengst af, en var á heimili sínu á Hellu og fékk heimilishjálp, eftir að hann missti Antje f. Lorenz, seinni konu sína 2010. Þau voru gift í 13 ár. Fyrri kona hans Carmen f. Tony frá Frakklandi dó 1994. Þau voru gift í 50 ár og eignuðust 3 syni: Hans, Harald og Helga, sem allir eru búsettir erlendis, og eina dótt- ur, Kristjönu, sem býr hér á landi og hugsaði nærfærin um föður þeirra. Eiginkonur hans voru glæsi- legar, hvor á sinn hátt, ynd- islegar persónur, sem stóðu við hlið bónda síns og studdu. Þær hvíla báðar í kirkjugarðinum á Selfossi, þar sem hann er jarð- settur. Dr. Karl hafði aflað sér fjölbreyttrar menntunar og reynslu á sviði dýralækninga, þegar hann varð héraðsdýra- læknir í Rangárvallasýslu 1950. Fyrst var hann í 3 mánuði með Jóni Pálssyni dýralækni á Sel- fossi og vann með honum til að kynnast íslenskum aðstæðum. Hann bætti við sig menntun fram eftir ævi og lét sér annt um að fræða aðra um nýjungar, sem að gagni mættu verða. Hann hafði veruleg áhrif í framfaraátt. Hann var frábær- lega skyldurækinn og nákvæm- ur embættismaður og snjall læknir. Á fyrsta ári Karls í Rang- árvallasýslu, er ég var 11 ára, kom hann við sögu mína. Lína, besta kýrin okkar í Hemlu, steig á afturspena aðkonu- megin og klauf hann frá rót og niður úr spenaopi. Þetta var að vetri, kolamyrkur úti, ekkert ljós nema olíuluktir til að lýsa dýralækninum, sem saumaði spenann á básnum af slíkri snilld, að hann varð jafngóður, lak ekki einu sinni. Þetta varð ógleymanlegt og átti þátt í því, að ég valdi það að verða dýra- læknir. Þessi sýnikennsla varð mér að gagni. Sams konar slys kom í mínar hendur á Mið- húsum í Gnúpverjahreppi næst- um 20 árum síðar og heppn- aðist vegna kennslu Karls. Ég var nýbyrjaður á dýra- læknisnámi, ólærður í sára- saumi, en hafði lært í barna- skóla að fara með saumnál, prjóna, hekla og sauma í. Þá fékk ég það hlutverk að sauma með kattargörn auga í kollóttan kynbótahrút frá Jónasi á Brekkum; uppi á heyvagni á kaupfélagshlaðinu á Rauðalæk í Holtum. Karl Kortsson leið- beindi og léði mér búnað. Ég fagnaði trausti hans. Ég varð að duga, annars hefði þurft að lóga hrútnum. Hann hafði lent í slag við hyrndan dreka, sem barði hann og braut augnum- gjörðina. Augað hljóp út á kinn. Saumaskapurinn tókst vel, hrúturinn hélt auganu, sjóninni og kvenseminni, renndi „hýru auga“ til ánna sem aldrei fyrr eftir aðgerðina. Árin 1965 og 1966 bað Karl mig skoða fjós og kýr í V- Skaftafellssýslu. Ég notaði ferðirnar til að líta á heimasæt- ur á bæjunum. Dr. Karl gaf mér bendingar um það hvar best væri að gista. Í þessari ferð rakst ég á einstæða perlu í fjósinu á Kaldrananesi í Mýr- dal, sem nokkru seinna varð konan mín. Það er ljóst að ég á Karli Kortsyni margt að þakka. Ég votta fólki hans og vinum samúð og bið þeim blessunar. Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Látinn er hátt á tíræðisaldri nestor okkar íslenskra dýra- lækna, Karl Helmut Brükner- Kortsson, almennt kallaður Karl Kortsson. Eftir ýmis störf í Þýskalandi og þar á meðal í stríðsátökum seinni heimsstyrj- aldar, kom hann til Íslands í lok fimmta áratugarins og var ráðinn héraðsdýralæknir í Rangárvallaumdæmi í maí 1950. Hann setti sig niður á Hellu og bjó þar alla sína tíð. Í raun náði svæði hans allt aust- ur í Vestur-Skaftafellssýslu og það var ekki fyrr en 1971 að héraðsdýralæknir kom í Skóga undir Eyjafjöllum, 1974 á Kirkjubæjarklaustur og 1977 á Hvolsvöll. Það var því mikið að gera hjá Karli á þessum árum og hann þekktur fyrir að keyra mikið og hratt. Ég minnist þess að á mínum unglingsárum í sumarvinnu í Gunnarsholti var hann iðulega kallaður þangað og þá gekk oft mikið á og eins gott fyrir okkur vinnumennina að vera snöggir að hlýða skipunum um heitt vatn, sápu og handklæði, ann- ars var von á miklum orða- flaumi á ýmsum tungum. Jafn- framt því að sinna erilsamri dýralæknaþjónustu þótti hann röggsamur embættismaður með eftirliti í fjósum og slát- urhúsum á sínu svæði. Síðar sögðu starfsmenn mjólkurbús- ins á Selfossi mér, að þeir hefðu tekið eftir því að almennt hreinlætisástand í fjósum hefði verið mun betra á svæði Karls en annars staðar og þökkuðu það áhrifaríku eftirliti hans og þannig var hann öðrum dýra- læknum til fyrirmyndar. Marg- ar sögur spunnust um Karl á þessum árum og ein tengist einmitt fjósaskoðunum og virð- ingu hans fyrir öðrum embætt- ismönnum. Þá mun hann hafa verið að skoða fjósið á Breiða- bólstað í Fljótshlíð og eitthvað fundið að hreinlæti í fjósi hjá presti, sem tók því ekki vel og sagði Karli að biskupinn yfir Íslandi hefði verið á ferðinni nýlega og honum hefði fundist fjósið ágætt. Við það hefði Karl horfið á braut. Margir íslenskir dýralæknar nutu leiðsagnar hans á sínum námsárum og voru hans aðstoð- armenn og jafnvel leystu hann af og öðluðust þannig dýrmæta reynslu sem nýttist þeim síðar í sínu starfi. Það var einnig gott að hafa samband við Karl og spyrja ráða, t.d. varðandi lyfja- notkun og lækningar og því kynntist ég sem héraðsdýra- læknir á Kirkjubæjarklaustri. Á þessum árum höfðu héraðs- dýralæknar á Suðurlandi þann sið að hittast hvor hjá öðrum snemma á vorin áður en sauð- burðartörnin hófst og bera saman bækur sínar og skemmta sér. Þær voru eftir- minnilegar veislurnar hjá Karli og Carmen, en þá veitti hann vel í mat og drykk og var hrók- ur alls fagnaðar. Hann var virkur félagi í mörgum félaga- samtökum og þar á meðal í Dýralæknafélagi Íslands. Það ber að þakka Karli Kortssyni fyrir hans áratuga löngu störf í þágu íslenskra bænda og stuðningi hans við dýralæknastéttina, en hann vildi hag hennar sem mestan og bestan. Afkomendum vottum við samúð. Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. Karl Helmut Brückner-Kortsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.