Morgunblaðið - 15.11.2012, Síða 27

Morgunblaðið - 15.11.2012, Síða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2012 Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum! Skapaðu góðar minningar með ofnum vynil frá Bolon Ofinn vynill hentar jafnt á heimili sem og verslanir Fyrsta flokks frá FÖNIX Senn koma jólin... Gram heimilistækin eru vönduð í gegn Nilfisk þekkja allir Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Mér verður oft hugs- að til þess hversu mikið sinnuleysi er ríkjandi gagnvart alvarlegum umferðarslysum – slys- um sem oft mætti af- stýra. Í flugi og á sjó hefur náðst ótrúlegur árangur til fækkunar slysa, en á sama tíma er alltof lítið að gert til að afstýra alvarlegum umferðarslysum. Aðeins 2,1 prósent af vegafé ár- anna 2007 til 2011 rann til höfuðborg- arsvæðisins á sama tíma og 43 pró- sent alvarlegra slysa urðu á því svæði. Þetta er með öllu óþolandi, en nefna má að gríðarlegur fjöldi alvar- legra slysa verður á ljósastýrðum gatnamótum. Við komumst ekki hjá því að bæta umferðina, meðal annars með mislægum gatnamótum. Við megum aldrei sætta okkur við það að fjölmargir láti lífið og hljóti varanlega skaða í umferðarslysum. Vinstrimenn, hvort sem er í ríkis- stjórn eða borgarstjórn, skella skolla- eyrum við þessum vanda og nú á enn að draga úr vegafé til höfuðborgar- svæðisins – en ekki á að ráðast í nein- ar stórframkvæmdir í Reykjavík næstu tíu árin. Þingmenn Samfylk- ingarinnar í Reykjavík sætta sig við að milljörðum á milljarða ofan sé var- ið í óarðbærar framkvæmdir, líkt og Héðinsfjarðargöng og Vaðlaheiðar- göng, á sama tíma og brýnar sam- göngubætur í höfuðborginni eru látn- ar sitja á hakanum. Tími fólks er dýrmætur og það kostar þjóðfélagið marga milljarða á ári að láta borgar- búa sitja fasta í full- komlega óþörfum um- ferðarteppum. Að ekki sé minnst á slysahætt- una sem hefur magnast í því sinnuleysi sem ríkt hefur undanfarin ár í þessum málaflokki. Oft er talað um ábyrgð ökumanna – en mikil er ábyrgð stjórn- málamanna sem skirr- ast við að taka á þessum alvarlega vanda. Við megum aldrei taka því sem sjálfsögð- um hlut að hundruð landsmanna hljóti á hverju ári varanleg örkuml eftir umferðarslys. Umferðarslys eru ekki náttúrulögmál Eftir Elí Úlfarsson Elí Úlfarsson » Við komumst ekki hjá því að bæta um- ferðina, meðal annars með mislægum gatna- mótum. Höfundur er flugnemi og gefur kost á sér í sjötta sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík 24. nóvember næstkomandi. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.