Morgunblaðið - 17.11.2012, Page 2

Morgunblaðið - 17.11.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012 Óbundið, laust mál Litlatrés, ljóðrænt að tjáningu, myndnotkun og orðavali, er einn samfelldur óður til lífsins, óður til ástarinnar, óður til náttúrunnar, óður til Borgarfjarðar — en jafnframt slóttug lýsing á sárri einsemd og þeim vanda mannsins að finna sér merkingu á ævikvöldinu. Óvenjuleg bók — og ógleymanleg! „Þetta er mannbætandi texti.“ ~Ísak Harðarson www.tindur.is www.facebook.com/litlatre KOMIN í verslanir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Veturinn er svo sannarlega genginn í garð, einkum fyrir norðan. Þessi mynd er tekin í Grímsey um tíuleytið á fimmtudagskvöld. Vestanbrimið skall á hafnargarðinum og vindhraðinn var líklega 25-30 metrar á sekúndu. Búast má við slæmu ferðaveðri um landið norðanvert í dag. Veðurstofa Íslands spáir norðvestan og norðan 13-20 og snjókomu norð- an til í dag, hvassast og úrkomumest verður á annesjum en norðvestlæg átt, 5-13, og stöku él syðra. Norðan og norðvestan 10-18 og snjó- koma eða él N-til en sums staðar hvassara, hægari syðra. Heldur á að draga úr vindi á Vestfjörðum seint í kvöld. Í gærkvöldi lýsti Veðurstofan yfir hættustigi vegna snjóflóða- hættu á Ísafirði. Rýma þurfti reit 9 sem engin föst búseta er á en þar er iðnaðarhúsnæði. Þá var lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu fyrir aðra hluta af norðanverðum Vestfjörðum og fyrir Mið-Norðurland. Tígulegt brim við höfnina í Grímsey Ljósmynd/Anna María Sigvaldadóttir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Adolf Guðmundsson, stjórnarformað- ur Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir að ekki sé búið að úti- loka þann möguleika að beita verkbanni í kjaradeilunni við sjómenn en LÍÚ frestaði í gær atkvæða- greiðslu meðal félagsmanna sinna um bannið. Hann vísar því á bug að með hótun um verkbann sé verið að þrýsta á ríkisstjórnina vegna hækkunar veiðigjalds. LÍÚ samþykkti á aðalfundi sínum í lok október atkvæðagreiðslu um verkbann og fékk til þess heimild hjá Samtökum atvinnulífsins 5. nóvem- ber. En hvað hefur breyst? „Það hefur ekkert breyst og ekki heldur frá aðalfundinum,“ segir Adolf. „Málið er að við þurftum að sækja heimildina til SA vegna þess að umboðið til að leita eftir atkvæða- greiðslu er hjá þeim. Samþykkt var á aðalfundinum að stjórnin ætti að ákveða dagsetningu eftir að hafa leit- að eftir því hvort við næðum einhverri niðurstöðu með sjómönnum. Það er búið að reyna það í tvígang og það næst engin niðurstaða. Stjórnin hefur núna ákveðið að taka ekki ákvörðun um dagsetningu. Samþykkt aðalfundar stendur En aðalfundarsamþykktin og verk- bannsheimildin standa eftir sem áður. Það er bara mat manna að taka ekki ákvörðun að svo stöddu en í raun og veru hefur ekkert breyst, við bíðum með ákvörðun.“ Þess má geta að Sævar Gunnars- son, formaður Sjómannasambands Íslands, hefur bent á að sjómenn hafi í verkföllum verið sakaðir um að stofna erlendum mörkuðum í hættu. Gildir ekki það sama um verkbann? „Útgerðarmenn hafa í raun ekki beitt algeru verkbanni síðan á sjötta áratugnum en hins vegar gegn vél- stjórum eða skipstjórnarmönnum eft- ir að verkfall hefur verið boðað,“ svar- ar Adolf. „En við erum búnir að vera með lausa samninga í tæp tvö ár og verkefnið hleypur ekkert frá okkur. Það er ekki rétt að við séum að beina þessu gegn stjórnvöldum, það væri ólögmætt ef við beittum slíkum aðgerðum gegn þeim til að fá þá til að breyta lögum. En það hentar kannski í pólitíkinni að búa til einhverja grýlu úr okkur.“ Kröfugerðin sé skýr og hafi verið mörkuð þegar fyrir tveim árum. En engin launung sé á því að hækkunin á veiðigjaldinu hafi fyllt mælinn. Ekk- ert útgerðarfyrirtæki þoli til lengdar að borga allt að 65% af framlegð í veiðigjald og mörg smærri fyrirtæki þoli það ekki einu sinni til skamms tíma. „Þegar búið er að raska hluta- skiptum með þessum hætti þarf að ræða það en við erum ekkert að segja að sjómenn eigi að taka þetta allt á sig,“ segir Adolf Guðmundsson. „Við bíðum með ákvörðun“  Stjórnarformaður LÍÚ segir að krafan sé ekki að sjómenn taki á sig allan skell- inn sem mikil hækkun á veiðigjaldinu sé fyrir útgerðina  Fresta atkvæðagreiðslu En það hentar kannski í póli- tíkinni að búa til einhverja grýlu úr okkur. Adolf Guðmundsson Pólfoss, frystiskip Eimskipafélagsins, strandaði við eyj- una Altra í N-Noregi í gærmorgun. Skipið er óskemmt en það strandaði í malar- og sandfjöru. „Það er búið að kafa undir skipið og eins og við bjuggumst við eru ekki skemmdir á því,“ segir Ólafur William Hand, upplýsinga- fulltrúi Eimskips. Níu skipverjar eru í áhöfn en engin slys urðu á fólki. Þá urðu ekki skemmdir á farminum, 1800 tonnum af frosnum fiski, og engin olía lak úr skipinu. Fljótlega eftir strandið greindi norska ríkisútvarpið frá því að stýrimaður skipsins hefði sofnað. „Það hefur verið staðfest af norskum yfirvöldum að hann sofnaði,“ sagði Ólafur í samtali við Mbl.is í gærkvöldi og bætti við að það væri ástæða óhappsins. Í gærkvöldi lá skipið við höfn í Sandnessjoen en skipið var á leið til Álasunds þegar óhappið varð. Pólfoss heldur áleiðis til Álasunds um leið og skýrslutökum lýkur en Ólafur átti von á því að grænt ljós fengist í gærkvöldi eða snemma í dag. „Venjulega ganga svona skýrslutökur hratt fyrir sig þegar engin slys verða á fólki né skemmdir á skipi eða náttúru.“ Pólfoss óskemmdur eftir að hafa strandað við Noreg Mynd/Eimskip Lán í óláni Níu manna áhöfn sakaði ekki þegar skipið Pólfoss strandaði í gær í malar- og sandfjöru við Noreg.  Stýrimaðurinn sofnaði  Engin slys urðu á fólki Lagt var hald á verulegt magn af fíkniefnum við húsleitir í Kaup- mannahöfn, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tveir menn, Íslendingur og Pólverji, hafa verið úrskurðaðir í fjögurra vikna gæslu- varðhald í þágu rann- sóknarinnar, sem er unnin í samvinnu við lögregluliðin á höfuðborgar- svæðinu og Suðurnesjum. Lögreglan í Kaupmanna- höfn segir að lagt hafi verið hald á hálft kíló af kókaíni, tæplega 41.000 e-töflur og 26.500 dali í reiðufé á fimmtudag. Fram kemur í tilkynningu að mennirnir, Íslendingur á þrítugs- aldri og Pólverji á fertugsaldri, bú- settur hérlendis, hafi verið hand- teknir í Kaupmannahöfn á fimmtu- dag en báðir hafi áður komið við sögu hjá lögreglu. Par var handtekið á Íslandi og yfirheyrt vegna málsins, en maðurinn var handtekinn við heimkomu frá Kaupmannahöfn. Hann er íslenskur, rétt eins og kon- an, en bæði eru þau á þrítugsaldri. Rannsókn málsins, sem snýr m.a. að því hvort flytja hafi átt fíkniefnin til Íslands, hefur staðið yfir í nokk- urn tíma og framkvæmdar hafa ver- ið fjórar húsleitir hérlendis vegna þessa. kjon@mbl.is Fundu mikið af fíkniefnum  Íslendingur og Pól- verji í haldi í Danmörku Fiskistofa hefur lokið álagningu gjalds vegna umframafla strand- veiðibáta í ár. Alls nemur upphæðin um 26,5 milljónum sem greiðast í Verkefnasjóð sjávarútvegsins. Í strandveiðum er lagt á gjald sem nemur verðmæti þess afla sem var umfram 650 þorskígildiskíló í veiði- ferð, skipt hlutfallslega eftir teg- undum. Lagt var á fyrir hvern mán- aðanna fjögurra og tilkynningar sendar mánaðarlega. Alls voru 1.028 tilkynningar sendar út. Í fyrra voru sendar út 969 tilkynn- ingar og nam samanlögð upphæð gjaldsins þá um 24,7 milljónum. aij@mbl.is 26,5 millj- ónir í sektir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.