Morgunblaðið - 17.11.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vindrafstöðvarnar tvær sem Lands-
virkjun hyggst koma upp í nágrenni
Búrfellsvirkjunar byrja væntanlega
að framleiða orku í byrjun nýs árs.
Búið er að steypa undirstöður
beggja myllanna og er stefnt að því
að reisa möstrin um miðjan næsta
mánuð.
Vindrafstöðvarnar eru liður í
rannsókna- og þróunarverkefni
Landsvirkjunar sem gengur út á að
athuga hagkvæmni slíkra stöðva hér
á landi. Landsvirkjun hefur látið
mæla vindstyrk á nokkrum stöðum á
landinu og tekur einnig þátt í nor-
rænu verkefni, Ísvindum, með
nokkrum íslenskum stofnunum. Ef
þessar tvær stöðvar reynast vel er
hugmyndin að koma upp fleiri vind-
myllum við Búrfell og hugsanlega
einnig við Blönduvirkjun.
Mastrið er 55 metra stálrör
Vindmyllurnar sem nú er verið
að koma upp eru á stað sem kallað er
Hafið sem er við Bjarnalón, ofan
Búrfellsvirkjunar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps samþykkti uppsetningu
vindrafstöðva í tilraunaskyni og leyfi
hafa fengist hjá þeim opinberu
stofnunum sem hafa með málið að
gera. Landsvirkjun hefur viðrað
hugmyndir um byggingu vindmyllu-
garðs á þessu svæði með allt að 15
ennþá stærri myllum.
Vindmyllurnar eru keyptar frá
Enecon í Þýskalandi. Mastur vind-
myllanna er ólíkt því sem hér hefur
áður sést, til dæmis í Belgsholti í
Melasveit. Það er stálrör sem er 3,5
metrar í þvermál við jörð en mjókk-
ar upp í tæpa tvo metra við topp.
Mastrið er 55 metrar að hæð og hver
spaði um 22 metrar að lengd. Þegar
spaðinn er í efstu stöðu verður heild-
arhæð vindmyllunnar því 77 metrar.
Afl hvorrar stöðvar er 0,9 kíló-
wött og áætlað er að þær geti fram-
leitt samtals um 5,4 gígawattstundir
af rafmagni á ári.
15 metrar á sekúndu
Myllurnar hefja framleiðslu
þegar vindhraði nær þremur metr-
um á sekúndu og ná fullu afli þegar
vindhraði er 15 metrar á sekúndu.
Til að draga úr hættu á skemmdum
á myllan að minnka framleiðslu þeg-
ar vindur fer upp fyrir 28 metra á
sekúndu og stöðvast alveg ef vindur
fer upp fyrir 34 metra.
Vindmyllurnar verða tengdar
inn á jarðstreng sem liggur samhliða
Þjórsárdalsvegi. Strengur og ljós-
leiðari verða lagðir meðfram veg-
slóða sem liggur að mannvirkjunum.
Undirstöður vind-
myllanna steyptar
Ljósmynd/Landsvirkjun
Undirstöður Vindmyllurnar eru mikil mannvirki eins og voldugar undirstöður mastranna gefa til kynna.
Tilraunamyllur Landsvirkjunar við Búrfell verða gang-
settar í byrjun nýs árs Spaðarnir ná upp í 77 metra hæð
Raforka Vindmyllurnar verða
skammt frá Þjórsárdalsvegi.
Jóhanna María
Sigmundsdóttir
býður sig fram í
4.-5. sæti á
framboðslista
Framsóknar-
flokksins í
Norðvestur-
kjördæmi í komandi kosningum.
„Ég hef ákveðið að bjóða mig
fram þar sem ég tel að reynsla mín
af búsetu í bæði dreifbýli og þétt-
býli komi sér vel við að finna lausn-
ir á mörgum málum. Þar má nefna
mín helstu hugðarefni, samgöngu-
mál, byggðastefnumál, atvinnumál
og einna helst landbúnaðarmál og
menntamál,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu frá Jóhönnu Maríu.
Jóhanna María er fædd árið 1991
á Látrum í Mjóafirði við Ísafjarðar-
djúp. Hún er með diplomu í búfræði
frá Landbúnaðarháskóla Íslands,
og starfar m.a. í stjórn Samtaka
ungra bænda og stjórn Félags
ungra bænda á Vesturlandi og
Vestfjörðum.
Framboð í 4.-5. sæti
holabok.is/holar@holabok.is
Bráðskemmtileg gátubók
Páls Jónassonar hentar jafnt
ungum sem eldri og það hvar
og hvenær sem er.
Hjálmar Freysteinsson
fer á kostum og gerir
hversdagsleikann
örlítið léttbærari
með mögnuðum
kveðskap sínum.