Morgunblaðið - 17.11.2012, Page 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gerðu það sem þú hefur látið sitja á
hakanum undanfarnar vikur. Ef þú þarft að
undirrita pappíra skaltu fá þá til að yfirfara
þá áður.
20. apríl - 20. maí
Naut Það freistar þín að reyna eitthvað nýtt
svo þú skalt fyrir alla muni láta það eftir þér.
Sýndu þolinmæði og stattu storminn af þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að halda þig sem mest við
dagskrána, því nú er ekki rétti tíminn til þess
að breyta út af. Annaðhvort verðurðu að
leggja meira á þig, eða gæta þess að lofa
ekki upp í ermina.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Dagurinn hentar vel til að kynna ykk-
ur hugmyndir sem eru óvenjulegar og jafnvel
byltingarkenndar. Gerðu áætlun um það
hvernig þú getur best unnið að heilbrigðri
sál í hraustum líkama.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Straumarnir milli þín og ákveðinnar
manneskju eru nánast áþreifanlegir. Ekki
láta þetta á þig fá því það gengur á ýmsu í
öllum lífsins ævintýrum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess að þú standir ekki í vegi
fyrir metnaðarfullum tilburðum samstarfs-
manns þíns. Fólk dáist að styrk þínum og
ákveðni að ná vilja þínum fram.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert tilfinninganæm/ur í dag og átt
því á hættu að missa einbeitinguna og hæfi-
leikann til að leggja hlutlaust mat á hlutina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Spyrðu sjálfa/n þig að því hvort
þér finnist hlutirnir vera að þróast í rétta átt.
Nú verður ekki lengur slegið á frest þessum
litlu hlutum sem úr lagi hafa farið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vinkona þín getur veitt þér mik-
ilvægan stuðning í dag. Gættu þess bara að
tala ekki of mikið og sýndu öðrum tillits-
semi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér er það óvænt ánægja hvað þú
uppskerð fljótt árangur erfiðis þíns. Láttu
hlutina ganga smurt heima fyrir. Viðræður
við vin um vonir þínar og drauma fyrir fram-
tíðina gætu borið óvæntan ávöxt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er rangt að telja að allt við-
gangist bara ef það kemst ekki upp. Pen-
ingar eru viðkvæmt umfjöllunarefni, ekki síst
þar sem aldrei virðist nóg af þeim í umferð.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinir og vandamenn sækjast eftir
tíma þínum og þú átt að láta þeim hann í té
eftir fremsta megni. Mundu að sjaldan veld-
ur einn þá tveir deila.
Karlinn á Laugaveginum stóð áhorninu við Vegamótastíginn
þegar ég hitti hann. Hann var póli-
tískur að venju og leist ekki á blik-
una:
Gulnuð loforð, orð án efnda upp á
banka.
Ráðstjórnar með rauða þanka
ríkisstjórnin lætur danka.
Ég fékk í vikunni gott bréf frá
gömlum samþingmanni mínum,
Ingvari Gíslasyni, sem mér þykir
rétt að birta í heild: Nýlega var til
grafar borin nyrðra Dómhildur
Jónsdóttir frá Akureyri, prestsfrú á
Skagaströnd, fyrrum kona sr. Pét-
urs Ingjaldssonar. Veturinn 1942-
43 var Dómhildur í bekk með mér í
MA og átti þá (í febrúar held ég) 17
ára afmæli. Það var siður okkar þá
að minnast afmælisdaga bekkjar-
systkina með söng og húrrahrópi,
ef kennari gaf leyfi til. Þennan dag
var Björgvin Guðmundsson, tón-
skáld, með tónfræðitíma snemma
dags. Hann tók vel beiðni okkar um
að gera afmæli Dómhildar verðug
skil og gerði gott betur en að þvæla
okkur að syngja Hún á afmæli í dag
(sem Björgvin þótti hálfflatneskju-
legt) því að hann flutti af munni
fram afmælisvísu til Dommu, svo-
hljóðandi:
Hann, sem öllum ævi skóp,
eins því hagi þanninn,
að úr biðla ærnum hóp
hún eignist besta manninn.
Ég fullyrði ekki, en trúi því, að
hann hafi ort vísuna á staðnum,
enda vissum við að Björgvin var
ágætlega skáldmæltur og orðvís of-
an á allt annað og fljótur að hugsa.
Nú langar mig að kenna þér þessa
vísu og vita hvort nokkur, sem les,
þekkir vísuna og veit betur en ég
um höfund hennar, ef svo væri.
Þessu er hér með komið á fram-
færi. Og svo hittist svo á, að nú í
vikunni kenndi Sigurður H. Guð-
jónsson hrl., framkvæmdastjóri
Húseigendafélagsins, mér tvær vís-
ur, sem Páll S. Pálsson hrl. hafði
kennt honum:
Lífs míns sól fer lækkandi,
loks hún hverfur sýnum;
fer nú óðum fækkandi
framhjátökum mínum.
Ég er allur úr mér genginn,
ekki veit ég hvað því veldur,
því kvennamaður er ég enginn
og ekki drykkjumaður heldur.
Og nú er spurningin hvort nokk-
ur þekki til þessara vísna frekar en
hér er sagt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þekkir nokkur vísurnar?
Í klípu
„ÉG VEIT AÐ ÉG ÆTLAST TIL MIKILS, EN
ÞÚ ÞARFT AÐ FARA ÚT Í ÓBYGGÐIR OG
LEIKA Á DAUÐANN EINU SINNI ENN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„NÚ, ÞETTA ER GOTT. HÉR SEGIR: „FYRIR-
TÆKIÐ OKKAR LEITAÐI ALLRA LEIÐA VIÐ AÐ
TRYGGJA AÐ SVÍNIÐ MYNDI EKKI ÞJÁST.““
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna að hann
ætlar að spyrja að
einhverju mikilvægu.
HLAUPTU HEIM OG SÆKTU MÚS!
HÓST! GRETTIR! ER ÞESSIFJÖÐUR AF ÞÉR? LÍT ÉG ÚT
EINS OG
KANARÍFUGL?
Hvers vegna eru mörg íslensk nú-tímaheimili með frasa á ensku
upp um alla veggi? Frasa á borð við:
keep calm and carry on, relax, home
og annað í þessum dúr? Ekki svo að
skilja að Víkverji sé andsnúinn
ensku og enskuslettum. Þvert á móti
grípur hann til þeirra oft og tíðum ef
út í það er farið. En það er önnur
saga.
x x x
Er þetta tilkomið vegna þess aðþegar fólk er statt í tilteknum
rýmum á heimilinu, þá viti fólk ekk-
ert hvar það er? Því síður hvernig
það eigi að haga sér? Og þess vegna
þurfi það á ensku textunum að halda
til að leiðbeina sér um hvernig skuli
bera sig að í lífinu?
x x x
Já, þarna á skenknum (borð-stofuskápnum, fyrir þá sem það
kjósa) stendur Home, þá hlýt ég að
vera inni á heimili. Aha! Og á veggn-
um hangir innrammaður texti: keep
calm and carry on. Alveg rétt, ég er
hjá Gunnu frænku sem er ósjaldan
föst í eigin æsingi og getur þar af
leiðandi sig hvergi hrært. Þess
vegna þarf hún á þessum mætu leið-
beiningum á að halda; að slaka á og
halda gangi sínum áfram.
x x x
Relax á baðherberginu þykir Vík-verja einkar kátlegt. Svo ekki sé
nú talað um enskar setningar sem
eru skrifaðar á vegginn við rúmgafl-
inn í svefnherbergjum fólks. Ætli
þetta sé angi af þeirri tísku að vera
með flennistórar myndir af stór-
borgum? Kannski í þeim tilgangi að
bjóða útlendinginn í sjálfum sér vel-
kominn? Veit ekki, en töff eru þær
og setja svo sannarlega stórborgar-
brag yfir heimilið.
x x x
Annars er nú ágætt að býsnast afog til. En hverjum er frjálst að
búa heimili sín eftir eigin höfði.
Kannski er Víkverji bara forn í
hugsunarhætti. Hann væri helst til í
að klína myndum og minnisskjöldum
af Jóni Sigurðssyni í hvert einasta
herbergi. Og útsaumuðum myndum
með „drottinn blessi heimilið“.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Því að Mannssonurinn er kominn að
leita að hinu týnda og frelsa það.“
(Lúkasarguðspjall 19:10)
Langtímaleiga
www.avis.is
52.100 kr. á mánuði og allt
innifalið nema bensín!*
Hafðu endilega samband við okkur í síma 591 4000 eða
kíktu á avis.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
*Hyundai l10, árgerð 2011, í 36 mánaða leigu.
Komdu í langtímaleigu Avisog láttu dæmið ganga upp!