Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 36

Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012 Fyrir nokkrum dögum birtist umhugsunarverðgrein í brezka dagblaðinu Financial Times,þar sem sagt var frá vangaveltum í Þýzka-landi um hugsanlegt samstarf Kristilegra demókrata, flokks Angelu Merkel, og Græningja í ríkisstjórn að loknum þingkosningum, sem fram fara í Þýzkalandi í september á næsta ári. Þessir tveir flokk- ar hafa aldrei unnið saman í ríkisstjórn. Núverandi samstarfsaðili Angelu Merkel, Frjálsir demókratar, sem eru hinn hefðbundni samstarfs- flokkur Kristilegra, mælist nú í könnunum með undir 5% fylgi, sem þýðir að það er álitamál, hvort þeir fái þingmenn kjörna. FT segir að samstarf Kristilegra og Græningja yrði merkileg sáttargjörð á milli vinstrisinnaðra mótmæl- enda af 6́8 kynslóðinni og íhaldssamari foreldra þeirra. Tilraunir þessara tveggja flokka til að starfa saman í ríkisstjórnum sambandslandanna í Þýzkalandi hafa ekki gengið upp. Hins vegar eiga þeir nú meiri mál- efnalega samleið en áður. Báðir flokkarnir vilja loka kjarnorkuverum, báðir eru fylgjandi agaðri fjár- málastjórn, mótfallnir skuldasöfnun á kostnað kom- andi kynslóða og eyðslu og báðir vilja meiri samein- ingu ríkja í Evrópu. Opinberlega hafna báðir flokk- arnir slíkum hugmyndum og tveir aðrir kostir eru hugsanlega fyrir hendi. Annar er að jafn- aðarmenn myndi ríkisstjórn með Græningjum en ólíklegt er að þeir fái nægileg mörg þingsæti til þess en hinn að stóru flokk- arnir tveir, Kristilegir demó- kratar og jafnaðarmenn, taki höndum saman. Þessar vangaveltur um fram- vindu þýzkra stjórnmála leiða óhjákvæmilega hugann að hinni pólitísku stöðu hér á Íslandi. Sennilega er Sjálfstæðisflokkurinn líkari flokki Kristilegra demó- krata í Þýzkalandi en nokkrum öðrum flokki, sem hann hefur verið borinn saman við í umræðum hér. Hins vegar hafa hugmyndir um að Sjálfstæðisflokk- urinn leiti samstarfs við Vinstri græna ekki fundið neinn hljómgrunn í þeim flokki og andstaða við slíkt samstarf er líka mjög sterk innan VG. Þetta byggist þó ekki á því að flokkana greini á um hin stærstu mál í grundvallaratriðum heldur er það fortíðin, sem þar veldur mestu. VG er byggt upp af hluta Alþýðu- bandalagsins gamla, sem ekki vildi ganga inn í Sam- fylkinguna, og hins vegar af náttúruverndarsinnuðu fólki. Hver er málefnastaðan, þegar horft er til þess- ara tveggja flokka? Samkvæmt opinberum yfirlýsingum og formlegum samþykktum landsfunda Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna eru flokkarnir sammála um stærsta málið, sem nú er á döfinni í íslenzkum stjórnmálum, þ.e. spurninguna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Báðir flokkarnir eru andvígir aðild. Afstaðan til Evr- ópusambandsins ætti því ekki að koma í veg fyrir samstarf heldur þvert á móti. Þá er spurningin, hvort svo mikið beri á milli í um- hverfismálum að slíkur ágreiningur komi í veg fyrir samstarf þeirra. Nú er það svo, að Sjálfstæðisflokkur- inn á sér merkilega sögu í þeim málaflokki, sem of lít- ið hefur verið haldið á lofti af flokksins hálfu. Sá ís- lenzki stjórnmálamaður sem fyrstur manna setti náttúruverndarmál á hina pólitísku dagskrá var einn af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins á Viðreisnarár- unum, Birgir heitinn Kjaran,(afi Birgis Ármannssonar alþingismanns) sem ferðaðist mikið um óbyggðir og skrifaði bækur um þær ferðir. Eysteinn Jónsson kom svo í kjölfarið á Birgi og gerði náttúruverndarmál að sínu baráttumáli á efri árum. Innan Sjálfstæðisflokksins eru sterk öfl, sem vilja fara varlega, þegar hér er komið sögu í röskun á nátt- úrunni. Telja má víst að sú skoðun að ekki eigi að ganga lengra í framkvæmdum á miðhálendi Íslands eigi miklu fylgi að fagna innan flokksins svo að dæmi sé nefnt. Auðvitað eru þeir líka til innan Sjálfstæðis- flokksins sem telja slíkar hug- myndir fásinnu alveg eins og innan VG eru öfgarnar hinum megin frá líka til staðar. En óhætt er að full- yrða, að hófsamari öfl í báðum flokkum ættu tiltölulega auðvelt með að ná saman um meginsjónar- mið í umhverfismálum. Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir eiga augljóslega meiri sam- leið í byggðamálum en VG og Sam- fylking, þar sem hin gamla óvild í garð hinna dreifðari byggða, sem búið hafði um sig í Alþýðuflokknum, er enn til staðar og ríkjandi hjá há- skólafólkinu sem stjórnar Samfylkingunni. Í þessu felst um leið að Sjálfstæðisflokkur og VG mundu eiga auðveldara með að ná saman um atvinnuuppbyggingu en VG og Samfylking. Það væri hægt að rökstyðja þá skoðun í lengra máli að það sé ekki málefnalegur ágreiningur sem valdi því að svo virðist sem ekki sé hægt að tala um samstarf þessara tveggja flokka, Sjálfstæðisflokks og VG, af nokkurri alvöru. Það er fortíðin sem ræður þeirri ferð. Innan Sjálfstæðisflokksins er enn litið á Vinstri græna sem „kommúnista“. Það er að verða mjög lang- sótt söguskýring, þótt aðra og þriðju kynslóð gamla kjarnans í Kommúnistaflokki Íslands og Sósíalista- flokki megi enn finna í þingflokki VG. Innan VG er áreiðanlega litið á Sjálfstæðisflokkinn, sem „hrun- flokk“ og flokk auðmanna. Er Samfylkingin ekki líka „hrunflokkur“? Aðalatriðið er þó að það er ekki rétt sýn á þá grasrót sem að lokum ræður ferðinni í Sjálf- stæðisflokknum. Þar eru á ferð almennir borgarar, at- vinnurekendur og launþegar, útgerðarmenn og sjó- menn, ungt fólk og gamalt fólk – þverskurður af samfélaginu. Er ekki kominn tími til að brjóta blað og losa sig úr viðjum fortíðar og gamalla fordóma? Í Þýzkalandi er nú rætt um samstarf Kristilegra og Græningja – af hverju má ekki ræða samstarf Sjálf- stæðisflokks og VG? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Í viðjum fortíðar og gamalla fordóma Fyrir nokkru skrifaði ég hér umhin fleygu orð Jóns Þorláks- sonar forsætisráðherra, að bylting væri lögleg, ef hún lukkaðist, og reyndi að rekja uppruna þeirra. Af því tilefni skrifaði Örn Ólafsson bókmenntafræðingur smágrein í Morgunblaðið þar sem hann hélt því fram, að eðli málsins sam- kvæmt væru byltingar alltaf ólög- legar, því að þá væri stjórnvöldum kollvarpað. Ég er ekki viss um, að fremstu stjórnspekingar Vestur- landa séu sammála Erni. Til dæmis taldi enski heimspekingurinn John Locke, að byltingar væru löglegar, þegar stjórnvöld hefðu rofið þann sáttmála, sem gilti milli þeirra og borgaranna. Konungur, sem bryti rétt á þegnum sínum, væri hinn raunverulegi uppreisnarmaður, ekki þeir, sem tækju að sér að reka hann frá völdum. Hvað sem því líður, rifjaðist við þetta upp fyrir mér vísa, sem Magnús Ásgeirsson þýddi fyrir löngu: Af landráðum vex ekki vegsemd! Hve verður það sannað? Ef landráðin hafa heppnast, þá heita þau annað. Í ritsafni Magnúsar, sem Krist- ján Karlsson bókmenntafræðingur gaf út fyrir Helgafell 1975, er þessi vísa sögð eftir ókunnan höfund. Hún er hins vegar augljóslega eftir enska aðalsmanninn og skáld- ið Sir John Harington, sem orti í Epigrams árið 1618: Treason doth never prosper, what’s the reason? For if it prosper, none dare call it treason. Hér segir Sir John svipað og hinn íslenski nafni hans Þorláks- son, að munurinn á glæp og hetju- dáð getur stundum oltið á leiks- lokum. Alþekkt dæmi er, þegar danski sendiherrann í Washington- borg, Henrik Kauffmann, óhlýðn- aðist ríkisstjórn sinni eftir hernám Danmerkur vorið 1940 og samdi upp á sitt eindæmi um, að Banda- ríkjastjórn tæki að sér hervernd Grænlands. Hann var rekinn úr stöðu sinni og fundinn sekur um landráð, en strax eftir stríð var sá dómur ógiltur, og varð Kauffmann raunar ráðherra í fyrstu dönsku stjórninni eftir hernámið. „Sekur er sá einn, sem tapar,“ orti Einar Benediktsson. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Ef landráðin hafa heppnast Efnislegum gæðum þessa heims er afar misskipt milli jarðar- búa. Vestræn lönd búa við lífsgæði sem eru ólík lífsgæðum margra annarra landa sem við nefnum gjarnan þró- unarlönd. Meðal þess- ara landa eru ríki í Afríku þar sem dæmi eru um að íbúar hafi ekki aðgang að nauð- þurftum eins og vatni, fæðu og húsaskjóli. Vestræn ríki hafa reynt að koma til aðstoðar þar sem þörfin er mest bæði með framlögum stjórnvalda og félagasamtaka. Ís- lensk stjórnvöld hafa lagt sitt af mörkum auk Rauða krossins, Hjálp- arstarfs kirkjunnar og fleiri sam- taka. Það er ljóst að Íslendingar leysa ekki allan vanda þróunarríkj- anna en það munar samt um það sem við leggjum af mörkum. Í ágúst 2008 fórum við hjónin til Uganda til þess að kynnast af eigin raun verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar þar í landi. Rétt er að taka fram að öll verkefni Hjálpar- starfsins voru unnin í náinni sam- vinnu við heimamenn. Við heimsótt- um margar fjölskyldur, sumar þeirra höfðu fengið aðstoð frá Hjálparstarfinu en aðrar ekki. Áhersla var greinilega lögð á að hjálpa fjölskyldunum til að koma undir sig fótunum með betra hús- næði, vatnsbrunnum og kömrum og ef unnt var með litlum bústofni sem gjarnan var ein geit. Við sáum dæmi um einstæðar mæður með mörg börn og einnig einstæðar aldr- aðar ömmur með börn en HIV veir- an hafði oft hoggið skörð í margar fjölskyldur sem við heimsóttum. Þarna var algengt í þorpum og bæj- um að fólk sæi sér farborða með litlu einkafyrirtæki og hafði Hjálp- arstarfið í nokkrum tilvikum að- stoðað konur með því að útvega þeim saumavélar og koma á fót lítilli saumastofu. Rekstur saumastof- unnar aflaði síðan lífsbjargar fyrir stóra fjölskyldu. Það var oft sláandi hvað lít- ið þurfti á mælikvarða Íslendingsins til að hjálpa fólki til að lifa betra og sjálfstæðara lífi. Við fórum einnig til Essese-eyja í Viktor- íuvatni og hittum þar konur í fullorðins- fræðslu á vegum Þró- unarsamvinnustofn- unar Íslands en þær fengu tækifæri til þess að læra að lesa reikna og skrifa og fara með peninga sem að þeirra eig- in sögn gerbreytti lífi þeirra og sjálfstæði. Þar var fiskimönnum einnig kennt að gera afla sinn úr Viktoríuvatni verðmætari m.a. með þurrkun á fiski. Þarna fengum við enn og aftur staðfestingu á því að hjálparstarf og þróunaraðstoð er að skila árangri. Hjálparstarf innanlands hefur alltaf skipt máli og sem betur fer eru Íslendingar meðvitaðir um ábyrgð sína á samborgurunum sem og í samfélagi þjóðanna. Við þekkj- um öll til dæmis Hjálparstarf kirkj- unnar, Mæðrastyrksnefnd, Fjöl- skylduhjálpina og björgunarsveitirnar þar sem alls staðar er unnið óeigingjarnt sjálf- boðaliðastarf í þágu okkar allra en byggist auðvitað á því að við veitum þeim styrk og afl. Íslendingar hafa þurft á aðstoð annarra þjóða að halda þegar hremmingar hafa gengið yfir og fyr- ir það erum við þakklát en sælla er að gefa en þiggja og auðugri þjóð eins og Íslendingum ber að axla sína ábyrgð í samfélagi þjóðanna. Árangur af hjálparstarfi Eftir Dúfu Sylvíu Einarsdóttur Dúfa Sylvía Einarsdóttir » Íslendingar styðja mikilvægt hjálpar- starf innanlands og utan og það munar um fram- lög okkar. Höfundur er söngkennari í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.