Morgunblaðið - 17.11.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.11.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012 Krúsaðu frítt í eitt ár *Upphæð inneignarkortsins er 260.000 kr. sem samsvarar 1.000 lítrum á núverandi verði. **Meðalakstur miðað við fólksbíl (bensín), árið 2011, samkvæmt Umferðarstofu. 1.000 LÍTRAR INNIFALDIR* Cruze LTZ bsk. 4d | Verð aðeins 3.190 þús. Aðein s örfáir bílar eftir! Tangarhöfða 8 • 590 2000 | Njarðarbraut 9 • Reykjanesbæ • 420 3330 | Bílaríki • Glerárgötu 36 Akureyri • 461 3636 | www.benni.is Þegar þú kaupir Chevrolet Cruze færðu 1.000 lítra* inneignarkort með hágæða Shell V-Power bensíni. Miðað við um 12.200 km** akstur á ári má segja að þú akir frítt í eitt ár. Chevrolet Cruze er áberandi glæsilegur og hlaðinn staðalbúnaði SVIÐSLJÓS Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Það getur verið hætt við því að kennslukannanir fari út í vinsælda- kannanir,“ segir Hreinn Pálsson, prófstjóri við Háskóla Íslands. Kennslukannanir eru lagðar fyrir í háskólum og framhaldsskólum. Hreinn bendir á að kennarar, að minnsta kosti í háskólanum, noti kennslukannanir til að slípa nám- skeiðin sín til. Þær séu mikilvægur samræðugrundvöllur nemenda og kennara. Spurður hvort ekki sé hætta á að hlustað sé of mikið á rödd nemenda og í kjölfarið slaki kennarar á kröf- unum? „Við verðum að ganga út frá því að það sé bein í nefinu á kenn- aranum. Og ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að taka mark á málefnaleg- um ábendingum. Ef ummæli nem- enda ganga út frá því að það sé nóg að strjúka bókinni en ekki opna hana, þá er ekki bein í nefinu á kenn- ara sem fellur fyrir slíkri krítík. Ekki svo að skilja að nemendur komi fram með þess háttar gagnrýni. Nemend- ur átta sig alveg á því hvenær kröfur eru gerðar til þeirra,“ segir Hreinn. Hann veltir því jafnframt upp hvort ekki væri möguleiki að leggja kennslukönnun fyrir, fimm til tíu ár- um eftir að nemendur brautskrást. Þá gæti fólk litið til baka og greint hvað hefði reynst þeim árangurs- ríkast í skólakerfinu. „Mín reynsla er sú að kennslu- könnun sé gott fyrirkomulag. Ég tel að hún gefi greinargóða mynd af kennslunni. Upplýsingarnar sem við fáum nýtum við til að bæta kennsl- una,“ segir Kristjana Stella Blöndal, lektor við HÍ. Nemendur vilja háa einkunn Björn Guðmundsson hefur bent á tengsl milli kennslukannana og ein- kunnabólgu. Kristjana Stella var spurð hvort einkunnabólga væri al- slæm? „Fyrst þarf að spyrja til hvers einkunnir séu. Ef nemendur vita að þeir fá góða einkunn, þó þeir leggi sig ekki nógu mikið fram, eru það ekki slæm skilaboð til þeirra? Ein- kunnir eru ein leið til að sýna nem- endum hvernig þeir standa sig. Hvort sem það er vel eða illa.“ Hún segist finna fyrir aukinni kröfu nemenda um háar einkunnir og telur marga upptekna af þeim. „Ég hef heyrt því fleygt uppi í há- skóla, að nemendur komi til reynslu- mikilla kennara og rökræði ein- kunnagjöfina og vilji fá hærri einkunnir.“ Mikilvægur samræðugrundvöllur  Kennslukannanir meta kennsluhætti  Nemendur vita hvenær gerðar eru kröfur til þeirra  Nemendur krefjast hárra einkunna og eru uppteknir af þeim  Kennarar þurfa að hafa bein í nefinu Háskóli „Það getur verið hætt við því að kennslukannanir fari út í vinsældakannanir,“ segir Hreinn Pálsson. Kennslukannanir hafa verið lagðar fyrir í Háskóla Íslands með einum eða öðrum hætti frá 1987. Þær eru lagðar fyrir í flest- um námskeiðum í Háskóla Ís- lands. Þær eru einnig lagðar fyrir í nokkrum framhaldsskólum. Markmið kennslukannana er að „stuðla að betri kennslu og al- mennari ánægju ef þær eru teknar alvarlega og hugað að úr- bótum,“ eins og kemur fram á vef Háskóla Íslands. Kennslukönnunin í Háskóla Íslands er sett saman úr sex þáttum, tveir þeirra eru mat stúdenta á sérkennum í kennslu kennarans; kennsla, fræðileg hvatning. Þriðji þátturinn (skipulag námskeiðs) er mat stúdenta á því hversu skýr og aðgengileg markmið og kröfur eru í námskeiði. Fjórði þátturinn lýtur að vinnuálagi. Sá fimmti er mat stúdenta á ávinningi af setu í námskeiði. Sjötti og síðasti þátturinn er mat stúdenta á undirbúningi sínum til að glíma við viðfangsefni í námskeiði og hversu mikla vinnu þeir hafa lagt í námið, stendur á vef HÍ. Hlutverk þeirra? KENNSLUKANNANIR „Kveikjan að því að ég fór að hugsa um einkunnabólgu var sú að ég lærði í Bandaríkjunum, í Dartmouth Col- lege. Skólinn sendir reglulega fréttabréf og ann- að slíkt. Þar birt- ist fyrir tíu árum síðan grein sem fjallaði um ein- kunnabólgu. Ég hef verið að hugsa um þetta mikið síðan. Margt hangir á ein- kunnabólguspýt- unni, svokölluðu,“ segir Björn Guð- mundsson framhaldsskólakennari. „Nýverið rakst ég á grein eftir Noel Perrin, prófessor við Dartmouth há- skóla. Þar kemur fram að skólinn ákvað á einum tímapunkti að hækka einkunnirnar í skólunum. Að gefa fleiri A einkunnir, til þess að nem- endur í þessum ágæta skóla ættu auðveldara með að komast í fram- haldsnám. Þeir hugsuðu með sér að þeir væru harðari í einkunnagjöf en aðrir skólar. Það hindraði nemendur þeirra að komast í framhaldsnám. Því var ákveðið að hækka einkunnirnar á þeim forsendum að aðrir háskólar hefðu þegar verið búnir að því,“ segir Björn. Hann veltir því upp að þar sem Ísland fylgi öðrum erlendum skólum ætti íslenska skólakerfið ekki að vera nein undantekning á þessum málefnum. Björn skrifaði greinin „Einkunna- bólga: orsök og afleiðing,“ á vordög- um sem birtist í Fréttablaðinu. Hún vakti töluverða umræðu í samfélag- inu. Guðmundur Ævar Oddsson, höf- undur greinarinnar,: „Þekkingar- samfélög eða skyndimenntunarstaðir?“ þar sem hann fjallar meðal annars um McDo- nalds-væðingu háskólanáms, vitnar m.a. í grein Björns, máli sínu til stuðnings. Í grein Björns veltir hann meðal annars upp þeim möguleika að ein- kunnabólgu megi að hluta til rekja til kennslukannana. „Líklega kynda kennslukannanir undir einkunnabólgu og undanláts- semi kennara enda er oft fylgni milli einkunna sem kennari fær og ein- kunna sem nemendur búast við frá honum. Það gleymist að kennarar þurfa að halda uppi aga og námskröf- um og slíkt er ekki alltaf vinsælt með- al nemenda. Markaðsvæðing mennt- unar er ákaflega vandmeðfarin. Eru til sölu á Íslandi fyrirhafnarlitlar námseiningar? Ég hef ekki séð tölur um einkunnabólgu á Íslandi. Vegna örra breytinga á námskrám og nem- endasamsetningu framhaldsskól- anna er erfitt að mæla einkunnabólgu hér. Líklega er þó sums staðar dulin einkunnabólga,“ þetta kemur meðal annars fram í grein Björns. Hann byggir grein sína á banda- rískum rannsóknum um málefnið. Sumar rannsóknirnar eru taldar hafa sýnt fram á fylgni milli einkunna sem kennari gefur nemendum og ein- kunnanna sem hann fær frá nemend- um í kennslukönnun. Kynda kennslu- kannanir undir einkunnabólgu? Björn Guðmundsson  Margt hangir á „einkunnabólguspýt- unni“ Töluvert rannsakað erlendis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.